Dagur - 16.01.1990, Blaðsíða 9
Þriðjudagur 16. janúar 1990 - DAGUR - 9
Mynd: KL
íslandsmótið í handknattleik:
KA-menn sprungu í lokin
- íslandsmeistarar Vals unnu þá öruggan sigur 33:27
Eftir vægast sagt mjög slakan
leik í fyrri hálfleik tóku KA-
strákarnir sig heldur betur
saman í andlitinu í síöari hálf-
leik og söxuöu á forskot
Valsmanna í 1. deildinni í
handknattleik á laugardaginn.
En munurinn var of mikill og
Islandsmeistararnir sigruðu
33:27.
Eins og tölurnar gefa til kynna
var varnarleikur beggja liða frek-
ar slakur, sérstaklega í fyrri hálf-
leik. Þá stóð reyndar varla steinn
yfir steini í KA-vörninni og hinir
lipru hornamenn Vals skoruðu
hvert markið á fætur öðru.
Fyrri hluta hálfleiksins gekk þó
þokkalega hjá sóknarmönnum
KA og héldu heimamenn því í
við gestina. En síðan gekk allt á
afturlöppunum hjá KA og Vals-
menn höfðu náð átta marka for-
skoti, 20:12, er gengið var til
búningsherbergja.
Snemma í síðari hálfleik fékk
einn besti maður KA-liðsins,
Sigurpáll Árni Aðalsteinsson,
reisupassann hjá Gunnari Kjart-
anssyni dómara fyrir að sparka til
Valdimars Grímssonar.
Þá var eins og KA-liðinu hefði
verið gefin vítamínsprauta og
fór liðið að saxa á forskot Vals-
ara jafnt og þétt. Staðan breytt-
ist úr 24:16 í 24:21 á skömmum
tíma. KA-liðið fór á kostum í
þessum leikkafla og hefur sjaldan
leikið betur í vetur. Axel fór að
verja í markinu eins og berserkur
og áhorfendur tóku vel við sér.
Þegar staðan var 25:23 fengu
KA-menn hraðaupphlaup en það
fór í vaskinn og þá var eins og all-
ur kraftur væri úr heimaliðinu.
Valsmenn gengu á lagið og juku
forskotið og sigruðu með sex
marka mun 33:27, eins og áður
sagði.
Það var greinilegt á þessum
leik að KA-liðið vantaði leikæf-
ingu enda langt frá síðasta leik.
Varnarleikurinn var ntjög slakur
í fyrri hálfleik en small vel saman
í þeim síðari. Sigurpáll Árni var
einna bestur KA-manna í þessunt
leik á meðan hans naut við en
hann átti þó í mesta brasi með
Valdimar Gríntsson í vörninni.
Jóhannes Bjarnason lék sinn
besta leik með KA-liðinu í vetur
og átti góðan leik bæði í vörn og
sókn. Friðjón Jónsson fyrirliði
kom aftur til leiks eftir meiðsli og
styrkti hann liðið óneitanlega.
Annars áttu flestir leikmenn KA-
liðsins góða spretti en duttu niður
þess á milli, sérstaklega í varnar-
leiknum. Pétur Bjarnason var
ekki með í þessum leik vegna
leikbanns og munar um minna.
Hjá Valsliðinu voru horna-
mennirnir Valdimar Grímsson og
Jakob Sigurðsson yfirburða-
menn. Sérstaklega var Valdimar
góður og skoraði hann 9 mörk í
leiknuin úr 10 skotum. Brynjar
Harðarson var daufur í fyrri hálf-
leik en sýndi í þeim síðari að það
er engin tilviljun að hann er
markahæsti maður deildarinnar.
Dómarar voru þeir Gunnar
Kjartansson og Gunnar Sigurðs-
son. Þeir dæmdu ekki illa en þó
var útafrekstur Sigurpáls Árna
vafasamur. Einnig hefðu þeir átt
að taka á „atvinnumannabrot-
um“ varnarmanna Vals í hornun-
um.
Áhorfendur voru um 300 og
getur það varla talist ntikið þegar
Islandsmeistararnir koma í heirn-
sókn.
Mörk KA: Sigurpáll Árni Aðalsteins-
son 6. Erlingur Kristjánsson 5/2. Karl
Karlsson 4, Guðmundur Guðmundsson
4, Jóhannes Bjarnason 4/1, Friðjón Jóns-
son 3/1, Bragi Sigurðsson 1. Axel Stef-
ánsson 11 varin skot.
Mörk Vals: Brynjar Harðarson 10/5.
Valdimar Grímsson 9, Jakob Sigurðsson
7. Jón Kristjánsson 3, Júlíus Gunnarsson
2, Finnur Jóhanncson 2.
Einar Þorvarðarson 12 varin skot.
idknattleikur/2. deild karla:
tturiim kom of seint
- og Pór tapaði 19:21
liðinu. Varnarleikurinn var slakur og
sóknarleikurinn enn lélegri enda skor-
uðu Þórsararnir ekki nema eitt mark í
þessar 15 mínútur. Selfossliðið gekk á
lagið og náði 6 marka forskoti 18:12.
Munurinn hefði orðið meiri ef Stein-
grímur í marki Þórs hefði ekki varið
vel á þessu tímabili.
Síðari hluta hálfleiksins tóku Þórsar-
arnir sig saman í andlitinu og fóru að
spila af eðlilegri getu. En munurinn var
of mikill og þótt aðeins hafi munað
tveimur mörkum í lokin þá var sigur
Selfyssinga aldrei í hættu.
Þórsliðið náði sér ekki á strik í þess-
um leik. Það var helst hinn ungi mark-
vörður Steingrímur Pétursson sem
sýndi góða takta. Kristinn Hreinsson
hristi þó af sér slenið undir lok leiksins og
skoraði falleg mörk. En í heild verður
liðið að taka sig á ef það ætlar ekki að
síga niður í neðri hluta deildarinnar.
Sævar Árnason fékk rauða spjaldið
undir lok leiksins fyrir að sýna „lamb-
ada-takta“ við einn leikmann gest-
anna.
Selfossliðið kom á óvart í þessum
leik með góðum leik og mikilli baráttu.
Besti maður liðsins var Klemens Klem-
ensson markvörður og varði hann oft
frábærlega. Einnig var Einar Guð-
mundsson góður og réðu heimamenn
lítið við hann í sókninni.
Dómarar voru þeir Guðmundur Lár-
usson og Guðmundur Stefánsson og
dæmdu þeir ágætlega.
Þórsarar léku þennan leik með sorg-
arbönd vegna andláts Jóseps Ólafsson-
ar, leikmanns með 3. flokki Þórs, en
hann var jarðsunginn á föstudaginn.
Mörk Þórs: Ólafur Hilmarsson 4, Jóhann
Jóhannsson 4/1, Rúnar Sigtryggsson 3/1, Krist-
inn Hreinsson 3, Páll Gíslason 2/1, Sævar Árna-
son 1, Sigurður Pálsson 1 og Ingólfur Samúels-
son 1.
Mörk Selfoss: Einar Guðmundsson 10/2,
Gústaf Björnsson 5, Sigurður Þórðarson 3,
Magnús Gíslason 2, Sverrir Einarsson 1.
og leikur því í 1. deild að ári ásamt hinu Akureyrarliðinu, KA. Mynd: Jakob
Handknattleikur/
3. deild:
Tvöfalt hjá
Völsungum
Sigurganga Völsunga í hand-
knattleiknum í 3. deildinni
heldur áfram. Um helgina léku
þeir tvo leiki sunnan heiða og
sigruðu í þeim báðum. Þeir
unnu Reyni í Sandgerði 23:20
og ÍH í Hafnarfirði 26:19.
Þessir sigrar gera það að verk-
um að Völsungarnir hafa styrkt
stöðu sína verulega á toppi 3.
deildar.
Um næstu helgi reynir þó mjög
á Völsungana því þá mæta
Breiðabliksmenn úr Kópavogi til
Húsavíkur. Blikarnir unnu
Völsungana í fyrri umferðinni og
eru nú í þriðja sæti í deildinni.
Leikurinn fer fram á föstudags-
kvöldið kl. 20.00.
Það er því vert fyrir Húsvík-
inga og aðra handknattleiks-
áhugamenn að mæta á leikinn á
föstudaginn til að hvetja Völs-
ungana til sigurs í leiknum við
Breiðablik.
Iþróttamaður
Norðurlands 1989
Nafn íþróttamanns: íþróttagrein:
1.
3.
Nafn:
Sími:
Heimilisfang:
Sendið tii: íþróttamaður Norðurlands 1989
c/o Dagur, Strandgötu 31, 600 Akureyri.
Skilafrestur til 20. janúar 1990.