Dagur - 16.01.1990, Síða 10
10 - DAGUR - Þriðjudagur 16. janúar 1990
íþróttir
n-
Enska knattspyrnan:
Ovænt jafntefli á Anfield
Eftir bikarleiki síðustu helgar
tóku Englendingar til við
deildakeppnina að nýju á laug-
ardaginn. Fríið frá deilda-
leikjunum virtist hafa gert leik-
mönnum gott og var mikið um
fjörlega leiki. Þó virtist sem
nokkur þreyta sæti í þeim lið-
um sem þurftu að endurtaka
jafnteflisleiki í vikunni. En þá
eru það leikir helgarinnar.
Ekki var talið að Liverpool
yrði í vandræðum með Luton á
Anfield. Jim Ryan þjálfari Luton
hafði tekið við stjórn liðsins og
var þetta hans fyrsti leikur sem
framkvæmdastjóra. Liverpool
hafði yfir í hálfleik með marki
John Barnes úr aukaspyrnu 8
mín. fyrir hlé og liðið hafði haft
yfirburði. En 5 mín. kafli um
miðjan síðari hálfleik var sem
köld vatnsgusa framan í aðdá-
endur liðsins. Er 20 mín. voru til
leiksloka jafnaði Kingsley Black
fyrir Luton eftir lélega spyrnu
Alan Hansen úr teignum og
tveim mín. sfðar gerðist hið
ómögulega, Black braust fram
vænginn, sendi fyrir markið og
Kurt Nogan sem lék þarna sinn
fyrsta leik fyrir Luton skoraði af
stuttu færi. Steve Nicol tókst þó
að jafna fyrir Liverpool eftir
sendingu Barnes skömmu síðar,
en þar við sat og Liverpool tapaði
dýrmætum stigum.
Aston Villa nýtti tækifærið vel,
sigraði Charlton á útivelli og hef-
ur nú jafnmörk stig og Liverpool
á toppnum, en hefur leikið einum
leik minna. Sigur Villa var örugg-
Staðan
1 deild
Liverpool 23 12-7- 4 46:22 43
Aston Villa 22 13-4- 5 38:21 43
Arsenal 22 12-3- 7 37:24 39
Southampton 22 9-8- 5 44:36 35
Nott. Forest 22 9-6- 7 31:22 33
Tottenham 21 9-6- 6 31:28 33
Chelsea 22 8-8- 6 33:31 32
Everton 22 9-5- 8 29:28 32
Derby 22 9-5- 9 29:20 32
Norwich 22 8-7- 7 26:13 31
Coventry 22 9-4- 9 18:28 31
Wimbledon 22 7-9- 6 26:25 30
Q.P.R. 22 7-8- 7 24:22 29
Crystal Palace 22 7-5-10 26:43 26
Sheff. Wed. 23 6-7-10 20:32 25
Man. Utd. 22 6-6-10 27:31 24
Man. City 22 6-5-11 26:37 23
Millwall 22 5-7-10 29:34 22
Luton 22 4-9- 9 24:32 21
Charlton 22 3-7-12 17:31 16
2 deild
Leeds Utd. 26 15- 7- 4 44:26 52
Sheff. Utd. 26 13- 8- 4 41:29 48
Swindon 26 12- 7- 7 48:35 43
Sunderland 26 11- 9- 6 44:40 42
Oldham 26 11- 9- 6 37:31 42
Ipswich 25 11- 8- 6 38:33 41
Newcastle 25 11- 7- 7 46:35 40
Wolves 26 9- 9- 8 41:37 36
Oxford 26 10- 6-10 37:36 36
Blackbum 25 8-11- 6 46:41 35
West Ham 26 9- 8- 9 37:32 35
Port Vale 26 8-10- 8 37:33 34
Watford 26 9- 6-11 35:33 33
Leicester 26 9- 6-11 37:44 33
Bournemouth 26 9- 6-1140:44 33
Middlesbr. 26 8- 7-11 33:39 30
Plymouth 25 8- 6-11 40:36 30
W.B.A. 26 7- 8-11 44:44 29
Brighton 26 8- 5-13 32:38 29
Portsmouth 26 5-11-10 34:41 28
Bradford 26 6-10-10 32:35 28
Barnsley 26 7- 6-13 28:49 27
Hull 25 5-11- 9 29:37 26
Stoke 25 4-10-11 23:37 22
- Toddi með stórleik - óvænt tap Arsenal - Aston Villa stendur best
ur og liðið náði forystu strax á 4.
mín. er Derek Mountfield skor-
aði eftir hornspyrnu Gordon
Cowans. Villa gerði síðan út um
leikinn á 15. mín. síðari hálfleiks
eftir að mark hafði verið dæmt af
Paul McGrath miðverði liðsins.
Kevin Gage lagði upp dauðafæri
fyrir Tony Daley og Joe Mc-
Laughlin varnarmaður Charlton
varð fyrir skotinu og stýrði því í
eigið net.
Þorvaldur Örlygsson átti stór-
leik fyrir Nottingham Forest er
lið hans sigraði Millwall örugg-
lega 3:1. Toddi sýndi enn einu
sinni í þessum leik að hann stend-
ur öðrum leikmönnum í 1. deild-
inni fyllilega á sporði og var tal-
inn besti maður vallarins í leikn-
um. Nigel Clough náði forystu
fyrir Forest um miðjan fyrri hálf-
leik og þeir Brian Laws og Steve
Hodge höfðu komið liðinu í 3:0
er 25 mín. voru til leiksloka. Þá
kom Teddy Sheringham inná sem
varamaður hjá Millwall og hann
skoraði með skalla er 10 mín.
voru eftir af leiknum og Steve
Sutton í marki Forest varð að
taka á honum stóra sínum undir
lokin, en sigur Forest var sann-
gjarn og öruggur.
Hörkuleikur Southampton og
Everton var sýndur hjá Bjarna
Fel. í sjónvarpinu og þarf því ekki
að hafa mörg orð um hann. Sout-
hampton hóf leikinn með mikl-
um látum og Russell Osman náði
forystu fyrir liðið með skoti úr
aukaspyrnu á 15. mín. Tvö mörk
Norman Whiteside sitt hvoru
megin við hlé, snéru leiknum
Everton í hag, fyrst skallamark
og síðan gott langskot. Osman
jafnaði fyrir Southampton er 16
mfn. voru til leiksloka, en vel af
sér vikið hjá Everton að ná jafn-
teflinu þar sem Southampton
hefur verið í ham að undanförnu.
Manchester City nældi sér í
óvænt stig á útivelli gegn Totten-
ham, en City hefur ekki unnið
leik á útivelli í vetur. Tottenham
náði forystu rétt fyrir hlé meá
marki David Howells sem skall-
aði í netið. Allt virtist stefna í sig-
ur heimaliðsins, en sterkur leikur
Howard Kendall framkvæmda-
stjóra City bjargaði liðinu. Hann
skipti þá Wayne Clarke inná, en
hann var keyptur frá Leicester í
vikunni, í stað Clive Allen sem
fyrir nokkrum árum var aðal
markaskorari Tottenham, en
hafði lítið látið að sér kveða í
leiknum. Clarke var mjög beittur
í framlínunni, nærri því að skora
sjálfur, en lagði upp jöfnunar-
markið 9 mín. fyrir leikslok er
hann skallaði fyrir fætur Colin
Hendry sem skoraði framhjá
Englendingar hafa jafnan leik í
beinni útsendingu hjá sér á
sunnudögum og sl. sunnudag
var það leikur Sheffield Wed.
gegn Chelsea. Þá fór einnig
fram mikilvægur leikur í 2.
deild á sunnudaginn.
Mjög góður leikur Dave Bea-
sant markvarðar Chelsea tryggði
liðinu jafntefli í fjörugum leik.
Það var Chelsea sem náði foryst-
unni í leiknum er David Lee
skoraði strax á 7. mín. leiksins.
Heimamenn voru þó sterkari að-
ilinn í leiknum og Dalian Atkin-
son jafnaði fyrir liðið í síðari
Paul Farker hinn sterki varnar-
leikmaður Q.P.R. lék vel gegn
Norwich.
Erik Thorstvedt markverði Tott-
enham.
Æsispennandi leik Manchester
Utd. og Derby á Old Trafford
lauk með sigri Derby eftir mikil
átök. Steve Bruce miðvörður
Utd. var rekinn útaf strax á 11.
mín. fyrir að klippa niður Dean
Saunders sem var sloppinn í
gegn. Derby náði yfirburðum
sem liðið hélt til hálfleiks ef frá er
talið hörkuskot frá Mark Hughes
sem Peter Shilton í marki Derby
varði glæsilega. Derby náði for-
ystu á 23. mín. er Mark Wright
skallaði inn hornspyrnu Nick
Pickering og mörkin hefðu getað
orðið fleiri. En Utd. kom mjög
ákveðið til leiks eftir hlé og Gary
Pallister jafnaði á 48. mín. eftir
slaka vörn Derby. Leikmenn
Utd. drifnir áfram af áhorfendum
sóttu stíft og stefndu á sigur,
Hughes barðist vel, Mark Robins
lék mjög vel og bakvörðurinn
Lee Martin braust látlaust upp
vinstri vænginn þaðan sem hann
dældi sendingum fyrir markið hjá
Derby. En 15 mín. fyrir leikslok
sneri Derby vörn í sókn upp
vinstri kant, Mike Forsyth sendi
fyrir markið þar sem Nick Picker-
ing stýrði boltanum framhjá Jim
Leighton. Mark Wright hjá
Derby var síðan rekinn útaf 7
mín. fyrir leikslok fyrir brot á
Hughes, en 6 leikmenn voru bók-
aðir í leiknum sem Utd. var
óheppið að tapa.
hálfleik og þar við sat þrátt fyrir
góð færi. David Hirst fór illa með
góð tækifæri og klaufaskapur
hans ásamt markvörslu Beasant
kom í veg fyrir sigur Sheffield
liðsins.
í 2. deild mættust nágrannarnir
Middlesbrough og Sunderland,
en fyrir helgina var Sunderland í
þriðja sæti 2. deildar. Liðinu
tókst þó ekki vel upp að þessu
sinni og tapaði 3:0 í leik þar sem
uppúr sauð er þeim lenti saman
Mark Proctor hjá Middlesbrough
og Paul Hardyman hjá Sunder-
land. Þeim viðskiptum lauk með
Leikur Wimbledon gegn Ars-
enal var lítil skemmtun, lið
Wimbledon saknaði nokkurra
leikmanna og mestur tíminn fór í
aukaspyrnur, innköst og að
stumra yfir leikmönnum sem lágu
í valnum. Arsenal reyndi að leika
knattspyrnu, en leikmenn
Wimbledon gerðu allt til að
koma í veg fyrir allt slíkt og það
tókst þeim. Arsenal varð síðan
að fórnarlambi síðustu 5 mín.
leiksins, Nigel Winterburn bak-
vörður liðsins var þá borinn slas-
aður útaf og rétt í lokin urðu
Tony Adams fyrirliða liðsins á
mistök sem urðu til þess að Mic-
hael Bennett sem Wimbledon
keypti nýlega frá Charlton skor-
aði sigurmarkið. Mjög svo ósann-
gjörn úrslit og Perry Groves
hafði fyrr í leiknum átt hörkuskot
í stöngina hjá Wimbledon.
Q.P.R. átti leikinn gegn Nor-
wich og lék oft mjög vel. Colin
Clarke skoraði sigurmark Q.P.R.
tveim mín. eftir að hann kom
inná sem varamaður fyrir Mark
Falco. Hann elti þá að því er virt-
ist vonlausa sendingu, en vann
kapphlaupið við Bryan Gunn
markvörð Norwich og skoraði
auðveldlega. Ray Wilkins átti
miðjuna fyrir Q.P.R. og þeir
Paul Parker og Andy Sinton léku
mjög vel. Falco hafði náð forystu
fyrir Q.P.R. á 49. mín. með góðu
skoti, en Dale Gordon jafnaði
fyrir Norwich eftir mistök Alan
McDonald, Norwich náði þó
aldrei tökum á leiknum.
Coventry sem fékk svo slæma
útreið í bikarnum virtist vera að
reyna að sýna aðdáendum sínum
í leiknum gegn Crystal Palace að
þeir væru snjallir þrátt fyrir allt.
En leikur liðsins varð allt of flók-
inn og vörn Palace var ekki í
vandræðum með sóknarmenn
liðsins. Þó átti Mick Gynn skot í
þverslá fyrir Coventry, en 5 mín.
fyrir leikslok, eftir langt útspark
Steve Ogrizovic markvarðar
Coventry slapp David Speedie
innfyrir vörn Palace og skoraði
sigurmark liðsins.
2. deild
• Leeds Utd. jók forskot sitt á
toppi 2. deildar eftir mjög góðan
sigur á útivelli gegn Blackburn.
Simon Garner náði þó forystu
fyrir Blackburn á 3. mín. eftir
hornspyrnu. Þrátt fyrir yfirburði
tókst Leeds Utd. ekki að jafna
fyrir hlé, en Chris Fairclough
misnotaði dauðafæri fyrir liðið.
Lee Chapman tókst loks að jafna
fyrir Leeds Utd. í síðari hálfleik,
en hann var keyptur frá Notting-
ham For. í vikunni fyrir
því að Proctor var borinn útaf, en
Hardyman var rekinn af leikvelli.
Peter Davenport með skalla á 16.
mín., Bernie Slaven og Gary
Parkinson á síðustu mínútu skor-
uðu mörk Middlesbrough.
Nigel Winterburn bakvörður
Arsenal sem var borinn útaf á
laugardag gegn Wimbledon og
óttast var að hefði fótbrotnað er
ekki eins illa meiddur og fyrst var
talið. Hann gerir sér því enn von-
ir um að verða valinn í landsliðs-
hóp Englendinga fyrir H.M. á
Italíu í sumar, en sá hópur verð-
ur valinn innan skamms. Þ.L.A.
£400.000. Það var síðan fyrirlið-
inn Gordon Strachan sem skor-
aði sigurmark Leeds Utd. sem
varð fyrir því áfalli í leiknum að
Mel Sterland bakvörður var bor-
inn meiddur útaf.
• Brian Deane náði forystu fyrir
Sheffield Utd. á útivelli gegn Ips-
wich og það mark virtist ætla að
duga liðinu til sigurs, en Ipswich
tókst að jafna alveg í lokin.
• í 3. deild er Bristol City efst
með 44 stig, Notts County 43 stig
og Bristol Rovers hefur 42 stig. A
botninum eru Cardiff City með
26 stig, Blackpool og Mansfield
hafa 22 stig og Walsall hefur 21
stig. Þ.L.A.
Úrslit 1. deild
Charlton-Aston Villa 0:2
Coventry-Crystal Palace 1:0
Liverpool-Luton 2:2
Manchester Utd.-Derby 1:2
Nottingham For.-Millwall 3:1
Q.P.R.-Norwich 2:1
Sheffield Wed.-Chelsea 1:1
Southampton-Everton 2:2
Tottenham-Manchester City 1:1
Wimbledon-Arsenal 1:0
2. deild
Blackburn-Leeds Utd. 1:2
Bradford-Wolves 1:1
Brighton-Barnsley 1:1
Hull City-Bournemouth 1:4
Ipswich-Sheffield Utd. 1:1
Newcastle-Leicester 5:4
Plymouth-West Ham 1:1
Stoke City-Portsmouth 1:2
Swindon-Oldham 3:2
Watford-Oxford 0:1
W.B.A.-Port Vale- 2:3
Middlesbrough-Sunderland 3:0
3. deild
Birmingham-Bristol City 0:4
Blackpool-Notts County 0:0
Bristol Rovers-Mansfieíd 1:1
Bury-Preston 1:2
Cardiff City-Tranmere 0:0
Chester-Brentford 1:1
Fulham-Bolton 2:2
Huddcrsfield-Walsali 1:0
Leyton Orient-Shrewsbury 1:0
Northampton-Swansea 1:1
Reading-Crewe 1:1
Rotherham-Wigan 1:2
4. deild
Chesterfíeld-Carlisle 3:0
Exeter-Hartlepool 3:1
Gillingham-Doncaster 3:1
Grimsby-Torquay 0:0
Halifax-Colchester 1:1
Hereford-Cambridge 0:2
Lincoln-Aldershot 0:1
Peterborough-York City 1:1
Rochdale-Scunthorpc 3:0
Scarborough-Maidstone 0:1
Southend-Wrexham 2:1
Stockport-Burnley 3:1
Úrslit í vikunni
3. uinf. FA-bikarsins endurteknir
jafnteflisleikir.
Aston Villa-Blackburn 3:1
Bradford-Charlton 0:3
Crewe-Chelsea 0:2
Darlington-Cambridge 1:3
Derby-Port Vale 2:3
Everton-Middlesbrough 1:1
Liverpool-Swansea 8:0
Millwall-Manchester City 1:1
Norwich-Exeter 2:0
Oldham-Birmingham 1:0
Q.P.R.-Cardiff City 2:0
Jafiit á Hillsborough