Dagur - 20.01.1990, Side 3
Laugardagur 20. janúar 1990 - DAGUR - 3
-I
fréftir
F
Skriður á kjarasamningaviðræður?
Forgangskrafa að samkomu
lagið verði gulltryggt
- segir Björn Snæbjörnsson varaformaður Einingar
Boðað hefur verið til formlegs
samningafundar með fulltrú-
um vinnumarkaðarins og
vinnuveitendum hjá Ríkis-
sáttasemjara á morgun. Að
undanförnu hafa farið fram
viðræður miili þessara aðila um
hugsanlegar leiðir til sam-
komulags um kjaramál og hef-
ur helst verið rætt um að fara
einhverskonar niðurfærsluleið.
Að sögn Björns Snæbjörnsson-
ar varaformanns Einingar, sem
einnig á sæti í framkvæmdastjórn
Verkamannasambands íslands,
eru aðilar vinnumarkaðarins ein-
huga um að forgangskrafa sé að
samkomulagið verði að vera
gulltryggt. „Það er von manna að
nú sé könnunarviðræðum lokið
og að hægt sé að setjast niður og
ræða málin fyrir alvöru,“ sagði
Björn í samtali við Dag.
Það sem sett verður á oddinn í
þéssum samningaviðræðum er að
það sem um verður samið verði
tryggt og er t.d. talað um að setja
lög á hámarksvexti í sambandi
við lækkun vaxta sem sömuleiðis
er forgangskrafa og er ljóst að
ekkert þýði að vera með hálfgild-
ings loforð. Þá er rætt um að
halda vöruverði niðri og fari
vöruverð t.d. upp fyrir ákveðin
mörk verði tryggingarákvæði í
samkomulaginu um bætur vegna
Sauðárkrókur:
Radíólínan
sameinast
Rafsjá
Tvær verslanir á Sauðárkróki
hafa nú verið sameinaðar. Um
er að ræða verslunina Radíó-
línuna og verslunina Rafsjá.
Fyrir sameiniguna seldi Rafsjá
heimilistæki ýmisskonar og smá-!
vöru tengda rafmagni en Radíó-
línan sent hafði aðsetur á hæðinni
fyrir ofan Rafsjá seldi hljómtæki
og hljóðfæri. Núna flyst öll starf-
semi Radíólínunnar á neðri hæð-
ina og býður því Rafsjá bæði upp
á heimilistæki og hljómtæki.
Að sögn Frímanns Guðbrands-
sonar framkvæmdastjóra Rafsjár
hf. var þetta eingöngu gert í hag-
ræðingarskyni.
Rafeindavirkinn, sem er við-
gerðarþjónusta fyrir raftæki,
verður áfram til húsa á efri hæð
Rafsjárhússins, þrátt fyrir breyt-
ingarnar. kj
Glerársundlaug:
Vígsluathöfii
ámorgun
Á morgun, sunnudaginn 21.
janúar, kl. 15 verður ný sund-
laug í Glerárhverfi formlega
vígð. Flutt verða ávörp og
hljómsveit frá Tónlistarskólan-
um leikur áður en athöfnin
hefst.
Sundfélagið Óðinn sér um
boðsund og með því sundi verður
laugin formlega tekin í notkun.
Síðan verður börnum úr Glerár-
hverfi leyft að fara út í og
almenningi gefinn kostur á að
skoða laugina. SS
þess.
Aðspurður um hvers konar
tryggingar rætt hefur verið um
nefndi Björn sem dæmi rauð
strik, samninga lausa ef þeir
verða brotnir eða verðtryggingu.
„Menn hafa ekki sett neina eina
aðferð framar annarri, þeir vilja
bara að samningar verði tryggð-
ir.“
Nú hefur verið horfið frá því
að fara algera núlllausn eins og
rætt hefur verið um að undan-
förnu og verður farið fram á lágar
kauphækkanir. Rætt hefur verið
um 3% hækkun á samningstím-
anum sem gæti verið eitt ár. En
hefur Björn trú á því að hægt
verði að sernja á þessum nótum?
„Það er alveg ljóst að það verður
að ríkja alger samstaða um það
innan ASÍ, BSRB og annarra
liópa að fara þessa leið, því ef
einhverjir skera sig úr og heimta
meira en um verður samið, er
þetta sprungið.“ VG
Endurteknirig
Vegna góðrar þátttöku
síðasta sunnudag höftim við
aftur opxð hús suxmudaghin
21. janúarfrákl. 14.00-17.00
Komið og kynnið ykkur
starfsemina á vorönn
I3ú stendur betur að vígi með skrifstofu-
tækninámið í farteskinu.
Allir veUcomnir — Veitingar.
Tökufræðslan Akureyri h£
Glerárgötu 34, IV. hæð, Akureyri, sími 27899.
Frá og með 1. janúar 1990 skulu starfsmenn greiða 4% iðgjald af öllum launum
til lífeyrissjóða og atvinnurekendur með sama hætti 6%. Til iðgjaldaskyldra launa
telst m.a. yfirvinna, ákvæðisvinna og bónus.
Með auknum iðgjaldagreiðslum ávinna sjóðfélagar sér aukinn lífeyrisrétt!
SLsj-
^ Lsj.
S Lsj.
^ Lsj.
S Lsj.
S Lsj.
S Lsj.
^ Lsj.
^ Lsj.
S Lsj.
^ Lsj.
^ Lsj.
S Lsj.
byggingamanna
Dagsbrúnar og Framsóknar
Félags garðyrkjumanna
framreiðslumanna
málm- og skipasmiða
matreiðslumanna
rafiðnaðarmanna
Sóknar
verksmiðjufólks
Vesturlands
Bolungarvíkur
Vestfirðinga
verkamanna, Hvammstanga
^Lsj.
S Lsj.
S Lsj.
SLsj.
S Lsj.
§5 Lsj.
s Lsj.
Sí Lsj.
S Lsj.
SLsj.
S Lsj.
E Lsj.
S Lsj.
stéttarfélaga í Skagafirði
Iðju á Akureyri
Sameining, Akureyri
trésmiða á Akureyri
Björg, Húsavík
Austurlands
Vestmanneyinga
Rangæinga
verkalýðsfélaga á Suðurlandi
Suðurnesja
verkafólks í Grindavík
Hlífar og Framtíðarinnar
bygg. iðnaðarmanna í Hafnarf.
SAMBAND ALMENNRA LÍFEYRISSJÓÐA
Samræmd lífeyrisheild