Dagur - 20.01.1990, Side 7

Dagur - 20.01.1990, Side 7
Hvað er að gerast Laugardagur 20. janúar 1990 - DAGUR - 7 Ný skemmtidagskrá á Hótel Sögu - „Ómladí-Ómlada“ með Halla, Ladda og Ómari Um þessa helgi hefst á Hótel Sögu ný skemmtidagskrá sem hlotið hefur nafnið „Ómladí- ómlada". í frétt frá Hótel Sögu segir að „nokkrir af fremstu skemmtikröftum landsins- hrífi gesti með sér í bráðhressandi „sjóferð" þar sem stefnan sé tek- in á stanslaust fjör og haldið rak- leitt suður til „Horrimolinos“.“ Pað eru þeir félagar Halli, Laddi og Ómar Ragnarsson sem bera skemmtidagskrána uppi. Skipstjórihn er grínfræðingurinn Halli og þeir Laddi og Ómar bregða sér í allra sjókvikinda líki. Meðal farþega eru gleði- mennirnir Eddi og Elli; Leifur óheppni; hin þokkafulla Elsa Lund; Marteinn Mosdal; poka- Skákfélag Akureyrar: Hraðskákmót á sunnudag Skákfélag Akureyrar heldur hraðskákmót í félagsheimili sínu við Þingvallastræti næstkomandi sunnudag og hefst mótið kl. 14. Umhugsunartími er 5 mínútur á keppanda. Mótið er öllum opið, ungum sem öldnum, og er ástæða til að hvetja stofuskákmenn til að koma fram í dagsljósið og sýna hvað í þeim býr. Töfl og klukkur eru til reiðu á staðnum. Þá er bara að rifja upp mannganginn og drífa sig á staðinn. presturinn fjölþreifni; Magnús og Mundi; HLÓ flokkurinn og síð- ast en ekki síst magadansmær sem iðar í undirfögru skinninu. Þegar á leiðarenda er komið taka » Ragnar Bjarnason og hljómsveit- in Einsdæmi við stjórnvelinum og leika fyrir dansi fram á nótt. Miðaverð á skemmtun og í mat er kr. 3.900. Til hagræðis fyrir gesti utan af landi er einnig boðið upp á sérstaka helgarpakka með ferðum og gistingu í samvinnu við Flugleiðir og Arnarflug. Sýn- ingin verður öll laugardagskvöld frá og með 27. janúar. Tónleikar nk. sunnudag kl. 17 í Akureyrarkirkju: Passíukórinn og einsöngvarar flytja tvö verk eftír Vivaldi Passíukórinn á Akureyri undir stjórn Roars Kvam heldur tón- leika í Akureyrarkirkju nk. sunnudag 21. janúar kl. 17. Á efnisskrá eru tvö verk . eftir Antonio Vivaldi fyrir einsöngv- ara, kór og hljómsveit. Einsöngv- arar með kórnum verða Margrét Bóasdóttir sópran, Liza Lillicrap sópran, Þuríður Baldursdóttir alt og Michael Jón Clarke tenór. Hljómsveit skipuð félögum úr Kammersveit Ákureyrar leikur með og Björn Steinar Sólbergs- son leikur á orgel. Á tónleikunum verða flutt tvö kirkjuleg verk Vivaldis, Magni- ficat og Introduzione et Gloria. Antonio Vivaldi var ítalskur samtímamaður Bachs og Hand- els og starfaði lengst af við tón- listarkennslu á Ítalíu. Hann samdi mikinn fjölda tónverka, óperur, einleikskonserta og kirkjutónlist. Tónlist Vivaldis hefur notið mikilla vinsælda hér á landi um árabil og er skemmst að minnast að Kirkjukórarnir á Dalvík og Húsavík hafa nýverið flutt eitt hans þekktasta verk, Gloríu. Passíukórinn hefur starfað óslitið frá haustinu 1972 og hefur lengst af einbeitt sér að flutningi kórverka með hljómsveit og ein- söngvurum. Stefnt er að því að næsta verk- efni kórsins verði þátttaka í kon- sertuppfærslu á söngleiknum My Fair Lady með Kammersveit Akureyrar og fleiri kórum. Menntamálaráðuneytið Laus staða Staða lektors í félagsráðgjöf við félagsvísinda- deild Háskóla íslands er laus til umsóknar. Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins. Umsóknir, ásamt ítarlegri skýrslu um vísinda- störf umsækjenda, ritsmíðar og rannsóknir, svo og námsferil og störf, skulu sendar menntamála- ráðuneytingu, Hverfisgötu 6, 150 Reykjavík, fyrir 16. febrúar n.k. Námsvist í Sovétríkjunum Sovésk stjórnvöld munu væntanlega veita einum íslendingi skólavist og styrk til háskólanáms í Sovétríkjunum háskólaárið 1990-91. Umsóknum skal komið til menntamálaráðuneytisins, Hverfis- götu 6, 150 Reykjavík, fyrir 15. febrúar n.k. og fylgi staðfest afrit prófskírteina ásamt meðmæl- um. - Umsóknareyðublöð fást í ráðuneytinu. Rannsóknastyrkir EMÐO í sameindalíffræði Sameindalíffræðisamtök Evrópu (European Mol- ecular Biology Organization, EMBO) styrkja vís- indamenn sem starfa í Evrópu og ísrael til skemmri eða lengri dvalar við erlendar rann- sóknastofnanir á sviði sameindalíffræði. Nánari upplýsingar fást um styrkina í menntamálaráðu- neytingu, Hverfisgötu 6, 150 Reykjavík, og þar eru einnig fyrir hendi skrár um fyrirhuguð nám- skeið og málstofur á ýmsum sviðum sameinda- líffræði sem EMBO efnir til á árinu 1990. - Umsóknareyðublöð fást hjá Dr. J. Tooze, Exec- utive Secretary, European Molecular Biology Organization, 69 Heidelberg 1, Postfach 1022 40, Sambandslýðveldinu Þýskalandi. Límmiði með nafni og póstfangi sendanda skal fylgja fyrirspurnum. Umsóknarfrestur um langdvalar- styrki er til 16. febrúar og til 15. ágúst en um skammtímastyrki má senda umsókn hvenær sem er. Menntamálaráðuneytið, 12. janúar 1990. KRYDD í TILVERUNA Láttu það eftir þér að njóta lífsins á glæsilegu hóteli í Reykjavík um helgi eða virka daga: Gisting á Hótel Sögu þar sem aðstaðan er til fyrirmyndar. LjúffengurmaturíGrillinuogSkrúði. Lífogfjörí Súlnasalnum á laugardagskvöldum: Stórkostleg skemmtun, „Óm-la-dí Óm-la-da", með hinum fjölhæfu skemmtikröftum Ladda og Ómari Ragnarssyni ásamt þríréttuðum kvöldverði og dansleik. Afslöppun í heilsuræktinni, nuddpottinum og gufunni. Hárgreiðslu- og snyrtistofa á hótelinu o.m.fl. Á Hótel Sögu er allt á einum stað! Nánari upplýsingar eru veittar á sölu- og bókunardeild Hótels Sögu í síma 91 -29900. - lofar góðu!

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.