Dagur


Dagur - 24.01.1990, Qupperneq 1

Dagur - 24.01.1990, Qupperneq 1
Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar: Rekstrargjöld bæjarsjóðs nema 918 miUjómim króna Bæjarstjórn Akureyrar tók frumvarp að fjárhagsáætlun ársins 1990 til fyrri umræðu á fundi sínum í gærkvöld. I ræðu Sigfúsar Jónssonar, bæjar- stjóra, segir að afkoma bæjar- ins hafi verið nokkuð góð síð- astliðið ár, ef frá er talinn rekstur Hitaveitu Akureyrar og Krossanesverksmiðjunnar. Tekjur bæjarsjóðs eru áætlað- ar 1.298 milljónir kr., rekstrar- gjöld 918,3 milljónir, gjöld sam- tals 1.235 milljónir króna. í áætlun um eignabreytingar hjá bæjarsjóði kemur fram að 259 milljónir króna eru ætlaðar til þess liðar en ekki gerð tillaga um skiptingu fjárins að svo Erfið Qárhagsstaða Völsungs til umræðu í Bæjarstjórn Húsavíkur: Lánveiting til félagsins samþykkt Málefni íþróttafélagsins Völs- ungs komu til umræðu á fundi Bæjarstjórnar Húsavíkur í gær. Nefnd hefur verið skipuð af bæjarráði til samninga við félagið og gert hefur verið uppkast af rekstrar- og sam- starfssamningi. Samningum er ekki lokið en í kvöld er fyrir- hugaður fundur nefndarinnar með forsvarsmönnum Völs- ungs. Ljóst er að Völsungur á við fjárhagsvandræði að stríða og á fundi bæjarstjórnar í gær, var samþykkt ineð 7 atkvæðum, sam- þykkt frá bæjarráði um að bæjar- sjóður veitti ÍFV lán að fjárhæð 1,2 milljón króna, sem falli í gjalddaga 5. apríl. Kristján Ásgeirsson bar fram tillögu þess efnis, að málinu yrði vísaö aftur til bæjarráðs til frek- ari skoðunar, ásamt málinu í heild en sú tillaga var felld. Tryggvi Finnsson sagði Ijóst að þó þessi lánsheimild væri sam- þykkt, þyrfti að gera eitthvað betur við félagið. IM stöddu. Nokkur verkefni eru þó bundin fyrri ákvörðunum, t.d. munu 67,2 milljónir renna til VMA og 14,5 millj. til FSA. Fá eru ótalin framlög til að Ijúka byggingu dagvista í Þverholti og til þjónustukjarnans í Víðilundi. Ljóst er að kostnaður verður vegna undirbúnings og byrjunar- framkvæmda við nýja slökkvi- stöð nálægt Akureyrarflugvelli. Rekstrargjöld bæjarsjóðs eru áætluð 918,3 milljónir króna, eins og áður sagði, eftir að fjár- magnsgjöld hafa verið dregin frá og tillit tekið til breytinga á útgjaldahlið áætlunarinnar. Gjaldfærð fjárfesting var upp- haflega áætluð 67 millj. kr. en við endurskoðun var sú tala hækkuð í 88 rúmar milljónir. 31. desem- ber var bókfærður kostnaður orðinn 101,5 milljónir króna, rúmar 13 milljónir umfram áætl- un, en orsök þess er að gatna- gerðargjökl stóðust ekki áætlun og að kostnaður varð meiri en ráðgert var við gatna- og holræsa- gerð. Nánar verður gerð grein fyrir frunivarpinu síðar í Degi ásamt framsöguræðu bæjar- stjóra. EHB .#4* íi Fokið í flest skjól. Mvnil: KL Akureyrarbær, þrotabú Híbýlis og Helgamagrastræti 53: Deilan verður lögð fyrir skiptarétt - margar fyrirspurnir á fyrsta skiptafundinum Loðnuveiðarnar: Engiim bátur til norð- lenskra hafha Loðnumiðin eru í grennd við Hvalbak þessa dagana og fara loðnubátarnir því inn á hafnir á Austfjörðum og til Vestniannaeyja. I>á landaði einn heimabátur á Akranesi en enginn bátur hefur látið sjá sig í norð- lenskum höfnum. Þær upplýsingar fengust hjá Loðnunefnd í gær að ekki hefði verið landað loðnu á Norðurlandi síðan í síðustu viku, eða síðan Örninn land- aði 19. janúar. Loðnu- verksmiðjur norðanlands eru þvf að verða hráefnislitlar og forsvarsmenn þeirra óska þess væntanlega að miðin færist norðar á nýjan leik. Rannsóknaskipiö Bjarni Sæmundsson hefur verið við bryggju á Akureyri en leið- angursmenn voru m.a. að leita að loðnu upp með Austfjörð- unum, cn ekki er Ijóst á þess- ari stundu hvort miðin séu að færast norður á bóginn. SS Nokkrir kröfuhafar í þrotabú Híbýlis hf. og fulltrúar þeirra mótmæltu afstöðu bústjóra til krafna á fyrsta skiptafundi í búinu í gær. Ásgeir Pétur Ásgeirsson, skiptaráðandi, svaraði fyrirspurnum og skráði bókanir en annar fundur verð- ur haldinn fljótlega. í skýrslu bústjórans, Brynjólfs Kjartanssonar hrl., segir m.a. að krafa sé gerð vegna vanefnda Híbýlis vegna verks við FSA, en þrotabúið eigi eina milljón króna útistandandi vegna íbúðabygg- inga við Víðilund. Verksamningi vegna sundlaugar í Glerárhverfi hafi verið slitið án greiðslu til búsins og án kröfu bæjarsjóðs vegna verksamningsslita. I Helgamagrastræti 53 er deilt um eignarrétt að framkvæmdum að upphæð rúmar 28 milljónir króna. Byggingin hafi verið afhent Akureyrarbæ í bili til að firra tjóni en ákveðið að leggja deiluna undir skiptarétt. Tapi Akureyrarbær málinu mun hann kaupa umræddan eignarhluta af búinu með fyrirfram ákveðnum skilmálum; 70% útborgun á árinu og eftirstöðvar með skuldabréfi til 5 ára. Aðrar eignir búsins munu flest- ar veðsettar. Nokkuð hefur þegar verið selt, en afgangurinn fer á uppboð 10. febrúar. Á fundinum voru gerðar all- margar fyrirspurnir til skiptaráð- anda. Árni Pálsson lögmaður gerði fyrirspurn um hvort ekki Flugmálaáætlun: Húsavíkurflugvöllur í fvrsta flokk - burðarþol athugað og völlurinn lengdur í 1800 metra Þingsályktunartillaga um fjögurra ára flugmálaáætlun var lögð fram á Alþingi sl. mánudag. í þessari flugmála- áætlun er gert ráð fyrir að Húsavíkurvöllur færist upp úr öðrum flokki og í fyrsta flokk flugvalla, en það er brautar- lengd sem ræður flokkun þeirra samkvæmt alþjóðlegum staðli. Gert er ráð fyrir fjög- urra milljóna króna fjárveitingu til Húsavíkurflugvallar á þessu ári, til undirbúnings lengingar vallarins um 300 m. Brautin er nú 1500 m en á að lengjast til suðurs og verður 1800 m að þessum áfanga loknum. Burðarþolsrannsóknir þurfa að fara fram á vellinum. Áð sögn Jóhanns H. Jónssonar, hjá Flug- málastjórn, er Aðaldalshraun ákaflega gróft og í því geta leynst gjótur og hraunhellar neðanjarð- ar. Pó völlurinn beri vel þær vélar sem á honum lenda í dag, treysta menn ekki að völlurinn haldi 80- 100 tonna þotu, því eru líkur á að styrkja þurfi völlinn verulega til að hann geti þjónað slíku flugi. Burðargeta vallarins verður því fyrst athuguð með borunum, og ef afgangur verður af þessari fjögurra milljóna króna fjárvcit- ingu verður hafist handa við leng- ingu vallarins. Fjárveiting til gerðar slitlags á Húsavíkurvöll er ekki inni á þcss- ari fjögurra ára áætlun, og ekki heldur áform um lagningu bund- ins slitlags á plön við flugstöðina. Á Egilsstöðum er verið að byggja nýjan flugvöll. Fyrirhugað er að Ijúka byggingu vallarins síðari hluta árs 1991 eða fyrri hluta árs 1992. Þar er um að ræða 2000 m langa braut, en síðan ligg- ur fyrir samþykkt ríkisstjórnar um að lengja völlinn upp í 2700 m. Fjárveitingar í það verkefni eru á áætlun fyrir árin 1992 og 1993. Reiknað er með að bundið slitlag verði lagt á völlinn. IM væri búið að afmá einhliða yfir- lýsingu Akureyrarbæjar frá fcbrúar 1989 varðandi eignar- heimild að Helgamagrastræti 53 úr vcðmálabókum, en hann taldi nauðsynlegt að ógilda yfirlýsing- una. Hreinn Pálsson, lögmaður Akureyrarbæjar, benti á að yfir- lýsing þessi hefði legið mánuðum saman hjá þinglýsingardómara, óafgreidd. Taldi hann ekki rétt að afmá hana. Haukur Haraldsson mótmælti því að kröfu teiknistofu sinnar að upphæð 5,4 milljónir króna væri hafnað af bústjóra. Oddur Halldórsson frá Blikk- rás hf. spurðist fyrir um hvers vegna verkstæðisbygging Híbýlis að Óseyri hefði ekki verið inn- sigluð um leið og gjaldþroti var lýst yfir og vinna hefði haldið þar áfram. Einnig spurði hann um hvað orðið hefði af flísum sem skilað var á byggingarstað í sund- lauginni og hvort ekki stæði til að rifta ýmsum greiðslum sem inntar voru af hendi síðustu dagana fyr- ir gjaldþrot. Skiptaráðandi taldi ekki nauð- synlegt að innsigla verkstæðið eftir að hafa skoðað það, þar hefðu aðallega verið trésmíðavél- ar, komnar til ára sinna. Á fundinum kom fram að þrotabúið myndi höfða riftun- armál í þeim tilvikum að grunur léki á að skuldareigendum hefði verið mismunað fyrir gjaldþrotið. Slíkt yrði að ineta sérstaklega í hverju tilviki. EHB

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.