Dagur - 24.01.1990, Page 3
fréffir
Miðvikudagur 24. janúar 1990 - DAGUR - 3
r-
Bæjarstjórnarkosningar á Sauðárkróki:
Undirbúningur að komast á fuilt
- ekki eitt einasta prófkjör
Undirbúningur vegna bæjar-
stjórnarkosninga á Sauðár-
króki er nú hafínn eða að hefj-
ast hjá þeim flokkum sem þar
bjóða fram. Ekki virðast próf-
kjörin vera vinsæl meðal
flokksfélaganna, heldur er ein-
göngu um uppstillingar að
ræða. Búast má við einhverj-
um breytingum en á þcssari
stundu er ekki Ijóst hverjar
þær verða.
Alþýðuflokkur
Alþýðuflokksmenn munu ekki
efna til prófkjörs eða skoðana-
könnunar heldur mun uppstill-
ingarnefnd stilla nöfnum upp á
lista. Ekki er húist við neinum
teljandi breytingum á listanum
frá síðustu kosningum að sögn
Péturs Valdimarssonar formanns
Alþýðuflokksfélags Sauðár-
króks. Hann sagði að fólk væri
ánægt með hlutina eins og þeir
væru í dag og því væri ekki stefnt
að neinunt meiriháttar breyting-
um.
Björn Sigurbjörnsson skóla-
stjóri Gagnfræðaskólans situr nú
í bæjarstjórn sem fulltrúi
Alþýðuflokksins og sagði hann í
samtali við Dag að ekkert væri
ákveðið unt það hvort hann gæfi
kost á sér til áfranthaldandi setu í
bæjarstjórninni. Það yrði ákveð-
ið síðar í mánuðinum.
Framsóknarflokkur
Framsóknarmenn munu heldur
Magnús Sigurjónsson, Framsóknar-
flokki.
Jón E. Friðriksson, F'ramsóknar-
flokki.
Pétur Pétursson, Framsóknar-
flokki.
IJjörn Sigurbjörnsson, Alþýðu-
flokki.
Hörður Ingimarsson, K-lista.
ekki verða nteð prófkjör eða
skoðanakönnun. Par mun sér-
stök uppstillingarnefnd gera til-
lögur um menn í sæti. Álit nefnd-
arinnar fer svo inn á borð trúnað-
arráðs sem samþykkja þarf upp-
stillinguna til að hún nái fram að
ganga. Að sögn Sighvatar Torfa-
sonar er stefnt að því að búið
verði að raða endanlega niður
um miðjan næsta mánuð.
Ekki er Ijóst hvort núverandi
bæjarfulltrúar munu gefa kost á
sér áfram en þeir eru þrír talsins:
Magnús Sigurjónsson, Jón E.
Friðriksson og Pétur Pétursson.
Það munu þeir ákveða í samráði
við sfna flokksfélaga.
Sjálfstæðisflokkur
Sjálfstæðismenn telja ekki grund-
völl fyrir prófkjöri innan sinna
raða og því var uppstillingar-
nefnd kosin og situr hún nú að
störfum. Hún skilar svo af sér til
fulltrúaráðsins sem hafnar eða
samþykkir uppstillingu nefndar-
innar.
Vigfús Vigfússon tjáði Degi að
þessu verki yrði hraðað sent kost-
ur væri. Hann bjóst við einhverj-
um breytingum en þær yrðu ekki
stórvægilegar. Þorbjörn Árnason
lét af störfum í bæjarstjórn á síð-
asta ári vegna anna í starfi og
Ijóst að hann mun ekki taka þátt
í komandi kosningabaráttu. Árni
Egilsson tók sæti hans.
Vigfús sagði að ekki kæmist á
hreint hvort að núverandi full-
trúar flokksins í bæjarstjórn gæfu
kost á sér áfram fyrr en uppstill-
ingarnefnd hefði lokið störfum
sínum.
Alþýðubandalagið
Alþýðubandalagsfólk er þessa
stundina með uppstillingarnefnd
í gangi og mun hún skila af sér
innan skamms. Ekki reyndist
áhugi á prófkjöri innan þeirra
raða og sagði Sveinn Allan
Morthens í samtali við Dag að
menn hefðu ekki séð ástæðu til
þess því enginn ágreiningur væri
um listann. Sveinn bjóst ekki við
stórkostlegum breytingum á list-
anum frá síðustu kosningum en
þær yrðu sjálfsagt einhverjar.
Anna Kristín Gunnarsdóttir, Al-
þýöuhandalagi.
Hann sagði að Anna Kristín
Gunnarsdóttir sem nú situr í
bæjarstjórn fyrir Alþýðubanda-
lagið muni gefa kost á sér til
áframhaldandi setu þar.
K-listi óháðra
K-listinn á nú einn fulltrúa í
bæjarstjórn, Hörð Ingimarsson.
Hörður sagði að þeir K-lista-
menn væru nú að skoða málin og
ekkert kæmist á hreint fyrr en í
næsta mánuði. Hann sagðist ekki
vilja gefa neitt út unt það hvort
hann yröi áfram í baráttunni en
ntikil breidd væri innan hópsins
og búast mætti við K-listanum
sterkum til leiks. kj
Árni Egilsson, Sjálfstæöisflokki.
Aðalheiöur Arnórsdóttir, Sjálf-
stæðisflokki.
Knútur Aadnegard, Sjálfstæðis-
flokki.
Bújörð til leigu
Góður kvóti.
Upplýsingar í síma 96-26707.
Þorrafagnaður
Laugardaginn 27. janúar nk. gengst Styrktarfé-
lag vangefinna á Norðurlandi fyrir hinum árlega
Þorrafagnaði í Lundarskólanum.
Borðhaldið hefst kl. 18.00 og eru allir þroska-
heftir boðnir sérstaklega velkomnir.
Stjórn S.V.N.
SKIPULAG RÍKISINS
IAUGAVEGI16ó, 105 REYKJAVlK - S. 29344
AUGLÝSING
um svæðisskipulag Eyjafjarðar 1989-2009.
Samkvæmt 17. gr. skipulagslaga nr. 19/1964 er hér
með lýst eftir athugasemdum við tillögu að svæðis-
skipulagi Eyjafjarðar 1989-2009.
Skipulagstillaga þessi nær yfir núverandi og fyrir-
hugaða byggð á skipulagstímabilinu í þeim sveitar-
félögum við Eyjafjörð sem aðild eiga að samvinnu-
nefnd um svæðisskipulag. Svæðisskipulagstillagan
nær ekki til Glæsibæjarhrepps, þar sem hann á ekki
aðild að samvinnunefndinni. Landnotkun þar er
engu að síður sýnd til samræmis.
Tillaga að svæðisskipulagi Eyjafjarðar 1989-2009
ásamt greinargerð liggur frammi almenningi til sýnis
frá 24. janúar til 7. mars nk. og er öllum heimilt að
skoða hana á þeim sýningarstað sem þeir kjósa.
Oddvitar veita upplýsingar um opnunartíma, þar
sem ekki er opið á venjulegum skrifstofutíma.
Sýningarstaðir eru:
1. Dalvík, bæjarskrifstofur, Ráðhúsi Dalvíkur.
2. Svarfaðardalshreppur, hreppsskrifstofur, Húsa-
bakka.
3. Árskógshreppur, hreppsskrifstofur, Melbrún 2.
4. Arnarneshreppur, kaffistofa fiskverkunarinnar,
Hjalteyri.
5. Skriðuhreppur, hjá oddvitanum að Öxnhóli.
6. Öxnadalshreppur, samkomuhúsinu hjá Þverá.
7. Akureyri, bæjarskrifstofur, Geislagötu 9.
8. Hrafnagilshreppur, skrifstofur hreppanna,
Syðra-Laugalandi.
9. Saurbæjarhreppur, skrifstofur hreppanna,
Syðra-Laugalandi.
10. Öngulsstaðahreppur, skrifstofur hreppanna,
Syðra-Laugalandi.
11. Svalbarðsstrandarhreppur, Samvinnubankan-
um, Svalbarðseyri.
12. Grýtubakkahreppur, hreppsskrifstofur, Gamla
skólahúsinu.
13. Hálshreppur, þingstað hreppsins að Skógum.
14. Skipulag ríkisins, Glerárgötu 30, Akureyri.
Athugasemdum við skipulagstillöguna skal skila
á einhverjum framangreindra staða fyrir 21.
mars 1990 og skulu þær vera skriflegar.
Þeir sem ekki gera athugasemdir innan tilskilins
frests teljast samþykkir tillögunni.
Samvinnunefnd um skipulagsmál Eyjafjarðar.
Skipulagsstjóri ríkisins.
Gleymið ekki
að gefa smáfuglunum.