Dagur - 24.01.1990, Side 4
4 - DAGUR - Miðvikudagur 24. janúar 1990
ÚTGEFANDl: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS
SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31,
PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI, SÍMI: 24222
ÁSKRIFT KR. 1000 Á MÁNUÐI
LAUSASÖLUVERÐ 90 KR.
GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMETRA 660 KR.
RITSTJÓRI: BRAGI V. BERGMANN (ÁBM.)
FRÉTTASTJÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON
RITSTJÓRNARFULLTRÚI: EGILL H. BRAGASON
BLAÐAMENN:
ANDRÉS PÉTURSSON (íþróttir),
KARL JÓNSSON (Sauöárkróki vs. 95-35960),
INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavik vs. 41585),
JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON, ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON,
STEFÁN SÆMUNDSSON, VILBORG GUNNARSDÓTTIR,
LJÓSMYNDARI: KRISTJÁN LOGASON
PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN
ÚTLITSHÖNNUN: RlKARÐUR B. JÓNASSON
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRlMANN FRlMANNSSON
DREIFINGARSTJÓRI:
HAFDlS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI 25165
FRAMKVÆMDASTJÓRI: HÖRÐUR BLÖNDAL
PRENTUN: DAGSPRENT HF.
SÍMFAX: 96-27639
Ríkisstjómin taki
þátt í að leysa vandann
Gríðarlegir erfiðleikar steðja að atvinnulífinu á
Þórshöfn. Greiðslustöðvunartímabil Útgerðar-
félags Norður-Þingeyinga rennur út um mán-
aðamótin og enn hefur engin lausn fundist á
rekstrarvanda fyrirtækisins. Ljóst er að vandinn
verður ekki leystur án utanaðkomandi aðstoðar.
Skuldir Útgerðarfélags Norður-Þingeyinga
vegna frystitogara fyrirtækisins, Stakfellsins,
eru tæpar 500 milljónir króna, rúmum 100 millj-
ónum króna hærri en líklegt söluverðmæti
skipsins. Til þess að hægt sé að reka skipið er
talið að skuldir þyrftu að lækka um 200-250
milljónir króna.
í fljótu bragði virðist um tvær leiðir að velja:
Annars vegar að lækka skuldir fyrirtækisins um
fyrrnefnda tölu og hins vegar að skipta á Stak-
fellinu og ódýrara skipi. í því sambandi hefur
helst verið rætt um ísfisktogara, en ýmsum
vandkvæðum er bundið að koma höndum yfir
slíkt skip nú og því er sú lausn talin fjarlæg. Haft
var eftir Guðmundi Bjarnasyni, heilbrigðisráð-
herra og 1. þingmanni Norðurlandskjördæmis
eystra, í Degi í gær, að ef sú leið yrði farin að
lækka skuldir væri um að ræða vanda upp á 200
milljónir. Heimamenn hefðu rætt um að safna
hlutafé að upphæð allt að 50 milljónum króna og
rætt hefði verið um að semja við kröfuhafa upp
á aðrar 50 milljónir. Þær 100 milljónir sem upp á
vantaði þyrftu að koma annars staðar frá, vænt-
anlega fyrir tilstuðlan ríkisvaldsins.
Það hefur þegar komið fram að Byggðastofn-
un hefur ekki bolmagn til að leysa vanda
Útgerðarfélags Norður-Þingeyinga nema fá til
þess sérstaka fjárveitingu. Ríkisstjórnin verður
því að hafa bein afskipti af rekstrarvanda
Útgerðarfélags Norður-Þingeyinga, eigi að
koma í veg fyrir gjaldþrot fyrirtækisins og þar
með að Stakfellið verði hugsanlega selt burt úr
byggðarlaginu. Vart þarf að fara mörgum orðum
um það hvílíkt áfall missir Stakfellsins yrði fyrir
Þórshafnarbúa. Atvinnulíf á staðnum yrði í
lamasessi og fólksflótti blasti við.
Það er áhyggjuefni hve víða erfiðleikar steðja
að atvinnulífi í Norðurlandskjördæmi eystra.
Rekstrarvandi Útgerðarfélags Norður-Þingey-
inga er því miður ekkert einsdæmi. Presthóla-
hreppur á við verulegan fjárhagsvanda að stríða
enda hefur atvinnulíf á Kópaskeri og nágrenni
orðið fyrir hverju áfallinu á fætur öðru síðustu
misseri. Sömu sögu er að segja af atvinnulífi víð-
ar í kjördæminu. Ríkisstjórninni er skylt að láta
vanda þessara byggðarlaga til sín taka og
leggja sitt af mörkum til þess að hann megi
leysa á farsælan hátt. BB.
Alþingismaðurmn og
130 þúsund lífeyrissjóðir
Snemma í desembermánuði
s.l. birtist í Degi grein eftir
undirritaðan scrn nefndist
„Lífeyrissjóðirnir og banka-
bókin góða.“ Þar var tekinn til
meðferðar sá málflutningur
sem staðið hefur undanfarin
misseri, að hagstæðara sé að
leggja lífeyrissparnað inn á
bankabók í stað aúverandi líf-
eyriskerfis.
Var varpað fram spurningum
um hver ætti að annast innheimtu
í bankabókina, hvaðan viðbótar-
lífeyrir vegna fráfalls eða örorku
ætti að koma og hvað ef eigandi
bókar yrði eltlri en bókin gerði
ráð fyrir.
Rætt var nokkuð um grund-
vallaratriði varðandi samhjálpar-
hugtakið þegar fráföll verða í
fjölskyldum og í þessu samhengi
rætt lítillega um hugtökin sér-
hyggju annarsvegar og samhjálp
og mannúð hinsvegar. Þá var í
stuttri málsgrein nefnd þings-
ályktunartillaga sem liggur fyrir
Alþingi um eigin eftirlaunasjóði
einstaklinga (bankabók) sem
kæmi í stað núverandi lífeyris-
kerfis. Þetta litla innskot varð svo
til þess að nokkrum dögum síðar
birtist grein eftir Guðna Ágústs-
son alþm. þar sem hann segist
vera að svara grein minni.
A.m.k. á tveimur stöðum ber
hann mér á brýn að ég hafi ekki
lesið það sem ég gerði að umtals-
efni eða að ég sé jafnvel ekki læs.
Ég ætla að lofa Guðna að vera
einurn á þessu lága plani en held
mig við efnisatriði.
Áðalatriði málsins er þetta:
Bankabókarhugmyndin ber ekk-
ert nýtt í sér og bætir í engu þá
galla sem eru á núverandi lífeyr-
iskerfi. Sparnaður á bækur og
fjárfesting í verðtryggðum papp-
íruni er engin nýjung. Það er
heldur engin nýjung að slíkur
sparnaður erfist. Þarna er verið
að nurla saman og spara til elliára
eins og fólk hefur gert eftir mætti
gegn um ár og aldir. En kemur
ekki í stað þeirrar samhjálpar
sem í lífeyriskerfinu felst.
Guðni segir mig rangfæra hug-
myndir sínar þegar hann tekur upp
úr grein minni orðrétt: „. . . en
ekki leggja neitt af mörkum með
þessum sparnaði til samhjálpar.“
Reyndar staðfestir hann sjálfur
síðar í grein sinni að ég hafi rétt
fyrir mér, því að hugmynd hans
er sú að það sem komi í stað
áhættulífeyrisins í núverandi
kerfi eigi að berast uppi af
almennri skattheimtu í raun.
Greinilega var óþægileg spurning
mín um það hvað yrði ef gamall
maður yrði eldri en bankabókin
hans góða gerði ráð fyrir. Niður-
staða Guðna er þó helst sú að þá
eigi lífeyririnn eingöngu að greið-
ast með aukinni skattheimtu -
þ.e. að bæta því á almannatrygg-
ingakerfið.
Hugmynd Guðna um að 8% af
iðgjaldinu fari inn á sparnaðar-
reikning o.g 2% í örorkusjóð til-
heyrandi almannatryggingakerf-
inu má alvegt eins kalla 8%
þvingaðan sparnað inn á bók og
2% skattlagningu til almanna-
trygginganna. Áunninn viðbótar-
lífeyrir sem svaraði til áhættulíf-
eyris yrði ekki til staðar - en það
er ekki síst hann sem gefur lífeyr-
iskerfinu gildi.
Fullyrðing Guðna og annarra
þeirra sem eru á sérhyggjulín-
unni í lífeyrismálum, um lítinn
sem engan rekstrarkostnað hins
nýja kerfis stenst engan veginn.
Það sýnir reyndar, þó svo hann
tali um þung viðurlög við því að
skila ekki inn á reikninga er frá-
leitt aö ætla að innheimta gangi
snurðulaust. Hún gerir það ekki
nú og mun ekki gera það þó
breytt verði um. Þvert á móti
stóreykst hættan á undandrætti
atvinnurekenda - ekki síst vegna
þess hve skila þarf í marga staði.
Að ætla skattstofum landsins að
gera þarna einfaldan samanburð
einu sinni á ári og haida því fram
að sú vinna fengist án endur-
gjalds er barnaskapur. Ég full-
yrði að reksturskostnaður hins
nýja kerfis yrði ekki minni en
hann er nú.
Guðni nefnir að fólk tapi líf-
eyrisréttindum. Því miður er það
til en það er í langflestum tilvik-
um vegna þess að atvinnurekandi
hefur ekki staðið skil á iðgjöld-
um. Og hvernig á svo að rök-
styðja að vanskil myndu minnka
við alla þá fjölgun innheimtuað-
ila sem ætlað er. Einhversstaðar
yrði örugglega að halda utan um
að peningarnir skili sér í bækurn-
ar góðu og yrði það þó sennilega
lítt framkvæmanlegt þar sem
sjóðirnir væru þá orðnir 130 þús-
und eða jafnmargir launþegum
landsins!
Fjárhagsleg trygging ævi-
kvöldsins og þeirra sem verða
fyrir áföllum á lífsleiðinni s.s.
makamissi og örorku gerist nú
með þrennum hætti einkum:
1. Grunnlífeyri frá Trygginga-
stofnun þar sem allir sitja við
sama borð.
2. Greiðslum úr lífeyrissjóðum,
þar sem hver fær í hlutfalli við
iðgjöld sem hann hefur greitt
til sjóðsins.
3. Sparnaði og frjálsum trygging-
um.
Það er af hinu góða að efnis-
legar umræður og rökræður eigi
sér stað um þessi mál. En hvergi
hef ég séð færð rök fyrir því
að skynsamlegt sé að hverfa frá
núverandi fyrirkomulagi í grund-
vallaratriðum. Hins vegar er þar
mörg verk að vinna við endur-
bætur og lagfæringar. Má þar
nefna óeðlileg áhrif tekjutrygg-
ingar á lífeyrisgreiðslur; tvískött-
un, þ.e. þegar tekna er aflað og
svo aftur þegar lífeyrir er látinn
mynda stofn til skatts svo og að
koma í gegn rammalöggjöf um
starfsemi lífeyrissjóða. Þessu til
viðbótar er margt s.s. jöfnun líf-
eyrisréttar og fækkun sjóða, með
því t.d. að koma á öflugum
landshlutasjóðum þar sem flestir
- helst allir - launþegar greiddu
til sama svæðissjóðsins.
Margt fleira mætti nefna. Ekki
skal hér efast um góðan vilja
Guðna Ágústssonar og þeirra
félaga um að láta gott af sér leiða
í þessum efnum. Ég efast heldur
ekki um að þeir gætu leitað sér
leiðsagnar og góðra ráða hjá fjöl-
mörgum sem þekkja til þessara
mála. Reyndar efast ég ekki
heldur um að við nánari athugun
komist þeir að þeirri niðurstöðu
að skynsamlegra sé að leita
lausna eftir leiðum samhjálpar og
mannúðar í stað einstaklings- og
sérhyggju. Af því höfum við nóg
nú þegar.
En niðurstaðan hlýtur að verða
sú að skynsamlegra sé að fækka
sjóðunum en að fjölga þeim í 130
þúsund.
Jón Karlsson.
Höfundur cr for.stööumaður Lífcyrissjóðs stctt-
arfclaga í Skagafirdi.
[rmg
Licrin
Lítúymsjöds
Lkagafíröí Jón
l;reín i Dag 5.
f Nögmnni J.»t-
bankahökín
I ð <m»at> hvort
Indwi ekki hirt
' lcsa þá þings*
ftann gcrir aö
I|)á hitt ad h.mn
Piuptiytnlnnar.
j >irtar greinarnar
I Trcmcimingiirnir
Ilokkmmi hugsu
jcigín cftíriaunii*
jmd.
|‘»f ícvt§t;trls cign*
lilingnr cigin eftir-
r i uimjdn hanka,
L? cúa J’ufírid iiÁiLi
\iía hlottd tilskihn
T'tirtaunareíkning-
Vi ctnstakiingi út
greitkt idgjaki
[.’Hnm lamtiiickj'
I ?« og teíbniiðttm
j'rra tem sjáH*
» itkstur stunda.
|u skiptingvt hjá
lem slumla sjátf-
T kstur. skuin 6%
f urekanda cn 4%
er
ióni Karlssyni svarað
I
tisjöðanna og tdja aö bæði
söfnunar|>a*it» cftírlau«annu og
trvggingnrjwtti llTcyríss|oöanna
verdi hctur Ixtrgid á cftír cn áöur.
Hvttrs vcgna er ýmsum |xún» vcm
lifcyrtJWjóöunum stjörna «vo
mikilvægt að rangfaira hugmynd-
ímar scm nu itggja fyrir Al^ngi
og revna eins «g lón Karlsson
cerír. u»tm n?gi» „en ckkt lcggja
.gyö bcssutn
hieð tærí til samhjáipaj
Jön íuiiyróir <»ö
gleymt: fxíita svttír i
Jön helur lcsiö þin l
encki vp> r hann c J
maðui : „Hvadan ú -
Ixátarlffeyrir vegna
og örorku sem nú <;»
lífcyimjödumm»
bantalífcyri?" Hét
fnim á paö a<> flj
hugsttöu fyrír þcssul
fwtti » starfi hlcyrissl
„Ennfremur spyr Jl
gamall maöur vcröui j
hankatxikm góöa
fyrir?" JMta c» eíttl
tnstrgir uúta tvar sér 3
sagl sv'tn svu, víð sutril
ný'j a kerft myndi h v f
<úg:a rníkla penitiga.il
I tiI 20 mílljónir. cutstaf
á slfba uppha'ö er efj
skeri studduT «uk cilí’j
heí ég hugicitt hvo,'
tólk íia-r jívl uö veri\
lata t'ytgja þessu kcr
jxutf» aídur fenet Sé'
I Iramf&'tslu (tekjutry
rfkínu.
Ég víl svo ;»ö lokun
Karíssyni fyrir f>aö aö1
umneöuna um þctta
en auövitaö harma éy
amli grejn hans vju.1