Dagur - 24.01.1990, Síða 11

Dagur - 24.01.1990, Síða 11
Miðvikudagur 24. janúar 1990 - DAGUR - 11 -I íþróttir Hafsteinn ÍKA Hafsteinn Jakobsson knatt- spyrnumaður frá Ólafsfirði hefur ákveðið að ganga til liðs við Islandsmeistara KA í 1. deildinni í knattspyrnu. Haf- steinn, sem er 26 ára gamall, hefur alltaf leikið með Leiftri og á að baki 18 leiki í 1. deild með félaginu. Hafsteinn staðfesti í samtali við Dag að hann hyggði á félaga- skipti yfir í KA. „Það er reyndar ' ekki búið að skrifa undir félaga- skiptin en það stefnir allt í að ég skipti um félag." Stefán Gunnlaugsson formað- ur knattspyrnudeildar KA sagði að þeim væri mikill fengur í að fá Hafstein í sínar raðir. „Hann er sterkur leikmaður og þar að auki góður félagi þannig að við erum í sjöunda himni með þessi félaga- skipti." Hafsteinn er mjög sterkur miðjumaður og ætti að geta fyllt vel í skarð Jóns Kristjánssonar, sem hefur sem kunnugt er lagt skóna á hilluna. Að santa skapi er þetta missir fyrir Leiftursliðið en Hafsteinn hefur verið lykil- maður í liðinu undanfarin ár. Hafsteinn er nú einn af bestu mönnunum í KA-liðinu í blaki og eiginkona hans, Birgitta Guð- jónsdóttir, er einnig ein af lykil- manneskjunum í kvennaliði KA í blaki. Þau búa á Akureyri og það hefur sjálfsagt átt sinn þátt í því að Hafsteinn ákveður að leika með KA-liðinu í knattspyrriunni. Hafsteinn Jukobsson. Halldór Áskelsson segist vera spenntur að fara til Belgíu. Skíði: íslandsgangan hefst á laugardaginn íslandsgangan í skíðagöngu fer brátt í gang. Gangan saman- stendur af fimm keppnum víðs- vegar um land. Fyrsta gangan fer fram á laugardaginn en það er Skógargangan á Egilsstöð- um og er hún 20 km. Skráning fer fram í síma 97-11891 og 97- 11470. A Egilsstöðum verða gengnir 20 km en einnig verður boðið upp á 10,5 og 2,5 km hringi. Hér er um að ræða trimmkeppni fyrir almenning og eru verðlaun veitt fyrir flokka kvenna ot karla 17- 34 ára, 35-49 ára og 50 ára og eldri. Þaö er ÚÍA scm stendur að Skógargöngunni. Stig í Islandsgöngunni eru aðeins reiknuð fyrir lengstu gönguna á hverjum stað en í öll- Knattspyrna: Halldór til Lokeren - „er spenntur að líta á aðstæður,“ segir hann Belgíska knattspyrnuliðið Lokeren hefur boðið Halldóri Askelssyni að koma til félags- ins og mun Halldór að öllum líkindum halda utan á laugar- daginn og dvelja hjá félaginu í 10 daga. Sama félag hafði einnig áhuga á að fá Halldór til sín í fyrra en þá liafði Akureyr- ingiirinn ekki áhuga á að fara. „Aðstæður hafa breyst hjá mér síðan í fyrra þannig að ég hef mikinn áhuga á aö fara og líta á aðstæður hjá telaginu," sagði Halldór í samtali við Dag. „Mér skilst að Lokeren sé að selja ein- hverja af útlendingum hjá sér og og að stjórnin sé að stokka eitthvað upp í leikmannamálum. Það verður hins vegar bara að ráðast hvort ég fell inn í þeirra áætlanir en þetta er spennandi dæmi og ég fer til Belgíu með opnu hugarfari," bætti hann við. Lokeren er nú unt miðja deild í Belgíu en hefur staðið sig vel í Bikarkeppninni og sló m.a. meist- ara Mechelen út úr keppninni. Liðið er skipað ungum leikmönn- um og hefur staðið sig vonum framar miðað við reynslu leik- mannanna. Ef Halldór fer til félagsins mun að öllum líkindum verða gerður leigusamningur við liann fram á vor og ef báðum aðiium líkar samstarfið verður geröur 2 ára samningur viö drenginn. „Þaö er auðvitað erfitt aö fara þarna út alveg æfingalaus því ég hef ekki spilaö alvöruleik síðan í október. En þeir hringdu á laug- ardaginn og vildu fá mig strax út þannig það það verður aö láta slag standa og vona að dæmið gangi upp,“ sagði Halldór Ás- kelsson. Afmælishátíð Tindastóls: Stjömuleikur á Króknum - bestu leikmenn úrvalsdeildarinnar mæta Næstkomandi föstudag verður stjörnuleikur í körfuholta á Sauðárkróki í tilefni af 25 ára afmæli körfuboltans þar í bæ. Á leik Tindastóls og Hauka í Úrvalsdeildinni um daginn völdu áhorfendur sitt eigið stjörnulið sem þeir óskuðu eft- ir að kæmi og léki við heima- menn á þessum tímamótum. Þátttakan í kjörinu var mjög góð og skiluðu næstum allir seðl- unum útfylltum að leik loknum. Þeir tíu sem áhorfendur völdu eru: Teitur Örlygsson og ísak Tómasson Njarðvík, Axel Niku- lásson, Páll Kolbeinsson og Guðni Guðnason KR, Sigurður Verða Völsungar ekki með? Órói á Húsavík Á fundi í kvöld á Húsavík verður e.t.v. ákveðið hvort Völsungar senda lið til keppni í 3. deildinni í knatt- spyrnu næsta sumar. Mikill órói hefur verið í knatt- spyrnumálum í bænurn eftir að liðið féll niður í 3. deild og hafa menn ekki verið sam- mála um til hvaða aðgerða á að grípa til að rífa upp starfið í knattspyrnunni. Frestur til að tilkynna þátt- töku í íslandsmótinu í knatt- spyrnu rann út á laugardaginn og staðfesti Gísli Gíslason starfsmaður KSÍ að Völsungar hefðu ekki sent inn þátttöku- tilkynningu. Einnig kvaðst hann ekki hafa hcyrt neitt frá Húsvíkingunum en tók það þó fram aö oft væru liö sein á sér að skila og væri ekki hundraö í hættunni þótt tilkynning bærist ekki fyrr en í lok þessarar viku. Ingólfur Freysson formaður Völsungs og Ævar Ákason for- rnaður knattspyrnudeildarinnar kváðust ekki vilja tjá sig neitt um þctta ntál enda væri það á viðkvæmu stigi. Þó kvaðst Ævar vera búinn að senda inn þátt- tökutilkynningu til KSÍ fyrir alla flokka. Samkvæmt heimildum Dags var hugmyndin um að scnda ekki meistaraflokk til keppni á næsta keppnistímabili, en ein- beita sér þess í stað að starfsemi yngri flokkanna, rædd af fullri alvöru innan félagsins. Ekki voru allir sammála þessari hug- mynd og bentu á að meistara- flokkurinn væri andlit félagsins út á við og það væri sá hópur sem yngri strákarnir litu upp til. Inn í þessa umræðu hafa blandast samningaviðræður ntilli Völsungs og bæjarfélagsins um skiptingu kostnaðar vegna starfsemi félagsins. Finnst mörgurn Völsungum lítill skiln- ingur ríkja hjá bæjaryfirvöldum á uppeldishlutverki íþrótta- félags en bærinn bendir á að á tíntum samdráttar veröi allir að sætta sig við tekjuskerðingu. Ingimundarson og Guðjón Skúlason ÍBK, Henning Henn- ingsson og Pálmar Sigurösson Haukum og Guðmundur Braga- son Grindavík. Einhver forföll verða líklega í þessunt hópi en alls unt 20 leik- menn komust á blað og því cr af nógu að taka. Samhliða leiknum verður gefiö út sérstakt afmælisblað þar sent 'rakin er í stórum dráttum saga körfuknattleiks á Sauðárkróki allt frá árunum eftir 1960. Á leikinn verður boðið mörg- um góðum gestum eins og Koj- beini Pálssyni formanni KKÍ, gömlum leikmönnum og svo Ein- ari Bollasyni sent stýra mun stjörnuliðinu af sinni alkunnu röggsemi. Það er því rík ástæða fyrir Skagfirðinga að fjölmenna í íþróttahúsið á föstudag og berja augum bestu körfuknattleiks- inenn landsins. kj Bo fer heim: Óvíst með annan leikmann Það er ákveðið að Bo Heiden inun ekki leika meira nieð Tindastólsliðinu í körfuknatt- leik. Það var ákveðið á fundi á niánudagskvöldið og mun Bo halda til síns heima næstu daga. Að sögn Kristbjörns Bjarna- sonar formanns körfuknattleiks- deildar UMFl’ er ekki ljóst á þessari stundu hvort annar út- lendingur verður fenginn til að fylla skarð Bo Heidens, en þau mál eru í athugun. kj/AP um göngunum er gefinn kostur á styttri vegalengdum. Reglur og nánari upplýsingar fást hjá skíða- ráðum um land allt. Fjaröargangan í Ólafsfirði fer fram 17. fcbrúar. Lambagangan á Akureyri fer frant 10. mars, Bláfjallagangan í Reykjavík fer fram 24. mars og Fossavatns- gangan á Isafirði fer fram 5. maí. Allar göngurnar er með hefð- bundinni aðferð. Einar Ólafsson frá ísafirði. Staðan 1. deild Valur FH Stjarnan KR ÍBV ÍR Víkingur KA Grótta HK 12 10-1- 12 10-1- 12 7-2- 12 12 12 12 12 12 12 6-3' 4-3 4-2' 2- 3 3- 1 3-1 1-3 1 318:265 21 1 321:273 21 3 276:249 16 3 262:260 15 •5 284:280 11 ■6 258:264 10 ■7 266:284 7 ■8 269:296 7 ■8 246:281 7 ■8 242:290 5 Markahæstu inenn: Rrvnjur Harðarson Val 93/26 Sigurður Gunnarsson ÍBV 82/17 Magnús Sigurðsson HK 80/33 Gylfi Rirgisson Stj. 75/13 Hulldór Ingólfsson Gróttu 72/35 Sigurður B jarnason Stj. 69/12 Erlingur Kristjánsson KA 69/23 2. deild Frain 12 11-1-0 298:244 23 Haukar 12 7-1-4 311:269 15 FH-b 12 7-0-5 288:299 14 UBK 12 6-0-6 262:264 12 Selfoss 12 5-2-5 273:284 12 Þór 11 4-3-4 259:253 11 Valur-b 10 5-0-5 237:229 10 ÍBK 12 4-1-7 255:264 9 UMFN 10 2-1-7 230:274 5 Árinann 11 1-1-9 222:271 3 2. deild kvenna Selfoss 12 10-0-2 257:206 20 UMFA 12 7-0-5 227:207 14 ÍBV 10 6-1-3 191:185 13 ÍBK 10 5-1-4 187:166 11 ÍR 12 4-1-7 246:268 9 Þór 8 1-1-6 130:160 3 Þróttur 8 1-0-7 127:173 2

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.