Dagur - 26.01.1990, Blaðsíða 1

Dagur - 26.01.1990, Blaðsíða 1
73. árgangur Akureyri, föstudagur 26. janúar 1990 18. tölubiaö Venjulegir og demantsskornir B trúlofunarhringar Afgreíddir samdægurs f GULLSMKNR SIGTRYGGUR & PÉTUR AKUREYRI „Eignir þeirra einstaklinga sem eru 65 ára og eldri eru um 100 milljarðar, bæði í fasteign- um og öðrum eignum. 3A þess- ara verðmæta eru í eigu íbúa í Reykjavík og á Reykjanesi. Eðlilegt er að þetta fólk fái sjálft að njóta þessara eigna á efri árum og því er mikilvægt að stefnumörkun í húsnæðis- og lánamálum aldraðra taki mið af þessum forsendum,“ segir í áliti nefndar um hús- næðismál aldraðra sem skilaði af sér til félagsmálaráðherra í gær. Nefndin var sammála um að stórstígar framfarir hafi orðið á húsnæðismálum aldraðra á síð- astliðnum árum. I skýrslu sinni bendir nefndin á sérstakan lána- flokk til að auðvelda fólki, 60 ára og eldri, að komast í sérhannaðar þjónustuíbúðir, kaupleigukerfið, húsbréfakerfið o.fl. Pó bendir nefndin á að í of mörgum tilfell- um hafi illa verið staðið að undir- búningi framkvæmda, byggt hafi verið of dýrt húsnæði, markmið í öryggis- og þjónustumálum hafi verið óljós, eignafyrirkomulag íslensku bók- menntaverðlaunin: Bókin „Yfir heiðanmorgim“ útnefiid Frú Vigdís Finnbogadóttir, forseti Islands, veitti í gær Stefáni Herði Grímssyni ís- lensku bókmenntaverðlaun- in fyrr bók ársins 1989 „Yfir heiðan morgun“. Stefáni voru afltent verðr launin í hófi í Reykjavík síð- degis í gær. Formaöur dóm- nefndar var Gylfi P. Gíslason en aðrir nefndarmenn voru Pétur Gunnarsson, Einar Bjarnason, Snorri Jónsson og Ástráður Eysteinsson. Við sama tækifæri afhenti Svavar Gestsson, mennta- málaráðherra, verölaun í sam- keppni sem fram fór á vegum Féiags íslenskra bókaútgef- enda og menntamálaráðuneyt- isins í grunnskólum landsins um ritgerð, smásögu cða ljóð í tilefni barnabókaviku og mál- ræktarátaks 1989. Af þeim fengu nokkur börn af Noröur- landi verðlaun cn þau voru Björn Vignir Sigurðsson Laugabakkaskóla í Miðfirði, Guðmundur Brynjar Guð- mundsson grunnskólanum á Blönduósi og Anna Pála Sverrisdóttir úr sama skóla. JÓH Bílageymsla í Qölbýlishúsi við Hjallalund 18-22 á Akureyri innsigluð í gær: „Ekki veijandi að nota þessa geymslu" Jón Geir Ágústsson, bygginga- fulltrúi Akureyrar, Tómas Búi Böðvarsson, slökkviliðsstjóri, og Valdimar Brynjólfsson, heilbrigðisfulltrúi, innsigluðu í gær bílageymslu fjölbýlishúss númer 18-22 við Hjallalund á Akureyri. Ástæða lokunarað- gerðanna er að bílageymslan uppfyllir ekki bygginga-, eld- varna-, og heilbrigðisreglu- gerðir. S.S. Byggir, bygginga- verktaki hússins, óskaði í gær með bréfi eftir því að leyfð yrði lágmarks umferð um bíla- geymsluna á meðan málum væri komið í viðunandi horf. Peir þremenningar innsigluðu bílageymsluna kl. 14 í gær. Settir voru niður tveir stórir steypu- klumpar og á milii þeirra strengd- ur aðvörunarspotti og keðja. Frá steinunum var þannig gengið að tveir íbúar í hjólastól í húsinu gætu farið inn í geymsluna. Fjöldi íbúa í blokkinni fylgdist með aðgerðunum og sama má segja um forsvarsmenn S.S. Byggis. Afgreiðslu á deiliskipulagi fyr- ir Norðurgötu 55, 60 og 62 var frestað á fundi skipulagsnefnd- ar Akureyrarbæjar sl. mið- vikudag og búist er við að nefndin geri bókun um málið á fundi í næstu viku. Eins og Dagur skýrði frá sl. Að aflokinni lokun bílageymsl- unnar settust þremenningarnir á rökstóla með forráðamönnum S.S. Byggis, fulltrúum húsfélags- ins í Hjallalundi 18-22 og fleir- um. Engin niðurstaða fékkst á fundinum, sem stóð í um klukku- stund. Valdiinar Brynjólfsson, heil- brigðisfulltrúi, segir að loftræst- ingu í bílageymslunni sé ábóta- vant. „Þarna er verið að nota óloftræsta geymslu og við teljum að útblástur bifreiða sé það hættulegur, sérstaklega hvað varðar kolmonoxíð-mengun, að það geti verið lífshættulegt að vera þarna inni. Þess eru dæmi að fólk hafi dáið af völdum slíkrar mengunar. Mér finnst ekki verj- andi að nota þessa geymslu og setja íbúana með því í hættu. Við töldum rétt að loka geymslunni til þess að ýta á eftir að þessum hlutum sé komið í lag,“ segir Valdimar. Hann segist ásamt slökkviliðs- stjóra og byggingafulltrúa hafa miðvikudag hafa komið fram athugasemdir frá eigendunt húss nr. 55 við Norðurgötu við deili- skipulagstillöguna eins og hún liggur nú fyrir. Skipulagsnefnd tekur afstöðu til framkominna athugasemda og frá nefndinni fer málið til endanlegrar afgreiðslu í bæjarstjórn. óþh sent bréf dagsett 12. janúar til húsfélagsins og S.S. Byggis þar sem lagt var bann við notkun bílageymslunnar. Hann sagði að bréfinu hefði ekki verið sinnt og bygginganefnd og heilbrigðis- nefnd bæjarins hafi síðan þann 17. janúar samþykkt lokunarað- gerðir. Daginn eftir segir Valdi- mar að leitað hafi verið eftir því „Við erum ekki búnir að byggja húsið og verðum að fá tíma til að klára það. Það er erfitt að neita fólki um að fara inn þegar húsið er komið þetta langt,“ sagði Sigurður Sigurðs- son, byggingameistari hjá S.S. Byggi í gær. Sigurður sagði það út af fyrir sig gagnrýnisvert að íbúum skyldi hleypt inn í húsið áður en öllum öryggisþáttum, samkvæmt reglu- gerð, væri fullnægt. „En það verður þá að láta jafnt yfir alla ganga í bænum. Sem dænii kom fram á fundi okkar með slökkvi- liðsstjóra, byggingafulltrúa og heilbrigðisfulltrúa að meira að segja bæjarskrifstofurnar væru ekki löglegar sainkvæmt bruna- reglugerð." Sigurður segir að málum verði vitaskuld komið á hreint um leið og fyrir liggi blöð sem þurfi að vinna eftir við uppsetningu loft- ræstikerfis í bílageymsluna. við bæjarfógeta að hann fylgdi banninu eftir. Síðastliðinn mið- vikudag kynnti fógeti bréflega að hann teldi ekki ástæðu til harðra aðgerða en benti jafnframt á að viðkomandi embættismenn hefðu heimild til að innsigla húsnæðið. Sama dag var S.S. Byggi og húsfé- laginu tilkynnt um lokunarað- gerðirnar í gær. óþh Hann segist ekki geta pantað loftræstikerfi frá Reykjavík fyrr en tilskilin plögg liggi fyrir. „Það mun ekki standa á okkur að koma þessu í samt lag þegar hægt er,“ segir Sigurður. óþh Sigurður Sigurðsson. Norðurgötu-/Hagkaupsmálið: Afgreitt frá skipu- lagsnefnd í næstu viku Sigurður Sigurðsson: „Það verður að láta jafiit yfír aJla ganga“ vandasamt og fjárhagsgrundvöll- ur í molum. Mikill meirihluti fólks yfir 65 ára aldri býr við góða eignastöðu. Þetta fólk býr í eigin húsnæði, skuldlitlu eða skuldlausu. Þó eiga á sjötta þúsund einstaklingar á þessum aldri ekki fasteignir og margir þcirra búa við mjög ótryggar aðstæður. Áf þeim tillögum sem nefndin leggur til varðandi húsnæðismál aldraðra má nefna að fræðslu- starfsemi um valkosti verði stór- aukin, að ráðgjöf verði aukin fyr- ir þá sem standa í byggingum fyr- ir aídraða, að gerð verði könnun á reynslu af eignaformi í íbúðum í sambyggingum aldraðra og að aukin áhersla verði lögð á aðgang eldra fólks að heimaþjónustu, dagvistun eða dægradvöl. JÓH Frá innsiglun bílageymslunnar við Hjallalund í gær. Á innfelldu myndinni sést innsigli slökkviliðsstjóra, heilbrigðisfulltrúa og byggingafulltrúa Akureyrarbæjar. Myndir: kl Húsnæðismál aldraðra: Eignir fólks yfír 65 ára aldri um 100 milljarðar - stórstígar framfarir taldar hafa orðið í húsnæðismálum aldraðra á síðustu árum

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.