Dagur


Dagur - 03.03.1990, Qupperneq 2

Dagur - 03.03.1990, Qupperneq 2
2 - DAGUR - Laugardagur 3. mars 1990 fréttir Akureyri: r- Steftit að flutningi Yleiningar suður í Biskupstungur í vor - framleiðslan aukin verulega á nýjum stað Stefnt er að því að flytja verk- smiðju Yleiningar hf. frá Akureyri að Reykholti í Bisk- upstungum á vordögum. Reist verður um 1400 fermetra verk- smiðjuhús syðra og mun fram- leiðsla fyrirtækisins aukast í kjölfar flutninganna. Hlutafélagið Yleining hf. var stofnsett um síðustu áramót, en fram að því hafði Sæplast hf. á Dalvík framleitt polyúretan-ein- ingar. Fyrirtækið er og hefur ver- ið til húsa í leiguhúsnæði við Tryggvabraut á Akureyri og var tekin ákvörðun um að flytja höfuðstöðvarnar suður yfir heið- ar og byggja það upp í Biskups- tungum. Að sögn Sigurðar Guð- mundssonar, framkvæmdastjóra, er ekki ljóst hvenær af flutning- unum getur orðið, það ráðist m.a. af verkefnastöðu og hversu vel gengur að byggja nýtt verk- smiðjuhús syðra. Ákveðið er að fyrirtækið reki sameiginlegá söluskrifstofu með fyrirtækinu Límtré hf. í Reykja- vík. Að sögn Sigurðar er ætlunin að auka verulega framleiðslu fyrir- tækisins á nýjum stað. Eftir sem áður verður lögð áhersla á polyúretan-einingarnar og frysti- og kælikiefa, en auk þeirra verða framleiddar einingar úr tré og steinull með framleiðsluleyfi frá dönsku fyrirtæki, Taasinge-tre. Um 150 aðilar eiga hlut í Yleiningu hf., bæði syðra og hér nyrðra. Hlutafé þess er 50 millj- ónir króna og er Sæplast hf. á Dalvík stærsti einstaki hluthafinn með um þriðjung hlutafjár. Þá leggja nokkrir einstaklingar hér í púkkið. Sigurður telur að staða Yleiningar hf. sé sterk, til marks um það hafi fyrirtækið um 50% eiginfjárstöðu. Sigurður segir að nokkrir af starfsmönnum Yleiningar hf. á Akureyri muni fylgja fyrirtækinu suður, að minnsta kosti til að miðla þekkingu til nýrra starfs- manna. Sigurður tók fram að stærsti hluthafinn, Sæplast hf., hafi lagt á það áherslu að fyrirtækið yrði byggt upp utan höfuðborgar- svæðisins. Hann segir að auðvit- að sé slæmt fyrir Akureyri á tím- Léttisfélagar! LETTIH . V \AKWtVB/ Áður auglýstur aðalfundur Léttis verður haldinn sunnudaginn 11. mars, kl. 13.30 í Skeifunni. Dagskrá: Inntaka nýrra félaga. Venjuleg aðalfundarstörf. Tillögur til lagabreytinga. Tillaga um inngöngu Léttis í L.H. Önnur mál. Veitingar - Félagar fjölmennið. Stjórn Hestamannafélagsins Léttis. Verkalýðsfélagið Eining Félagsmálanámskeið Nú er tækifæri til að læra hvernig á að skamma náungann úr ræðustóli. Fræðslunefnd Vlf. Einingar mun halda félagsmálanámskeið dagana 23.-25. mars n.k. að Skipagötu 14, 2. hæð. Námskeiðið stendur yfir: föstudag frá kl. 20.00-22.30 laugardag frákl. 9.00-17.00 sunnudag frákl. 10.00-16.00 Farið verður í undirstöðu ræðumennskunnar, svo sem að semja ræðu, ræðuflutning, framkomu í ræðustól, þátttöku í umræðum, rökræður, fundar- reglur og fundarstjórn. Einnig verður leiðbeint um framsögn og raddþjálfun. Þátttakendur vinna í hóp- um og æfingar eru léttar og skemmtilegar. Kennslu- gögn verða bókin, „Þú hefur orðið“ og einnig fjölrit- að efni. Leiðbeinendur verða frá MFA. Hámarksfjöldi þátttakenda er 18. Námskeiðið er félagsmönnum að öllu leyti að kostnaðarlausu. Tilkynning um þátttöku þarf að hafa borist til skrif- stofu Einingar fyrir kl. 17.00 föstudaginn 16. mars n.k. í síma 23503. Fræðslunefnd Einingar. um þrenginga í atvinnulífi að missa fyrirtækið úr bænum, en atvinnuástand sé ekki síður slæmt í uppsveitum Árnessýslu og því sé vonast til að Yleining hf. verði mikilvæg stoð í styrk- ingu byggðar á því svæði. óþh Miklar endurbætur hafa verið gerðar á húsnæði Portsins og þar og góð aðstaða fyrir bílasölu og markaðsstarfsemi. er nú björt Mynd: KL Stefán Sigurðsson og íþróttafélagið Þór: Portið opnað í dag í dag verður hleypt af stokkun- um nýjung í verslunargeiran- um á Akureyri er Portið tekur til starfa. Hér er um að ræða samstarfsverkefni Stefáns Sig- urðssonar á Hótel Stefaníu og íþróttafélagsins Þórs. í Port- inu er björt og rúmgóð bílasala og markaður fyrir alls kyns vörur og kynningar og er sá hluti starfseminnar norðlenskt bergmál af Kolaportinu í Reykjavík. Rúnar Antonsson, gjaldkeri knattspyrnudeildar Þórs, sagði að vissulega renndu menn blint í sjóinn með því að koma slíkum markaði á fót, en hann kvaðst bjartsýnn á að undirtektir yrðu góðar. I Portinu verða básar og borð fyrir 20-30 aðila og markað- urinn verður opinn á laugardög- um frá kl. 10-16. Portið er til húsa í verksmiðju- hverfinu við Glerá og í gær var verið að leggja lokahönd á frá- gang innanhúss. Rúnar sagði að Portið væri orðið bjart og skemmtilegt og hann átti von á að básarnir yrðu eftirsóttir, a.m.k. hefðu fjölmargir aðilar sýnt þessu framtaki áhuga. „Þetta er kjörið tækifæri fyrir þá sem vilja koma vörum sínum á framfæri, t.d. alveg upplagt fyrir ungt athafnafólk að kaupa gamla lagera af heildverslunum og selja í Portinu. Hér geta allir fengið rafmagn og verið með matvæla- kynningar og fleira. Einnig má hugsa sér að ýmis félög troði hér upp og kynni starfsemi sína,“ sagði Rúnar. Meðal þess sem verður á boð- stólum á fyrsta starfsdegi Portsins má nefna leðurvörur, skinnavör- ur, efni, bækur, blóm, matvæli, sælgæti o.fl. Nokkrir aðilar verða með vörukynningar. Rúnar sagði að þeir sem leigðu bása eða borð í Portinu fengju aðstoð við að koma vörum sínum fyrir og einnig aðstoð við að ganga frá eftir lokun, en þá er bara að sjá hvernig til tekst. SS Þrír skálkar lognuðust út af: Áfall fyrir Leik- félag Sigluflarðar Leikfélag Siglufjarðar varð að hætta æfingum á leikritinu „Þrír skálkar“ vegna þess að skipta þurfti um leikara í einu hlut- verki og þrátt fyrir mikla leit fannst enginn í staðinn sem virtist reiðubúinn að Ijá félag- inu krafta sína. Leikfélagið varð því að hætta við uppsetn- inguna og senda frá sér leik- stjórann, Carmen Bonitz. „Þessi endasleppu lok uppsetn- ingarinnar á „Þrem skálkum“ eru mikið áfall fyrir leikfélagið á Siglufirði jafnt félagslega sem fjárhagslega. Að sjálfsögðu var ekki um annað að ræða en að greiða leikstjóranum fyrir um- saminn tíma,“ segir Haukur Ágústsson, formaður Menningar- samtaka Norðlendinga, í frétta- bréfi samtakanna. Haukur segir það sorglegt að í jafn fjölmennu byggðarlagi og Siglufirði skuli ekki vera unnt að fá einn einasta mann til liðs við Glerárkirkja: Æskulýðsdagur á morgun Á morgun, sunnudag, er hinn árlegi Æskulýðsdagur þjóð- kirkjunnar. Víða í kirkjum landsins verður dagurinn haldinn hátíðlegur og ungt fólk aðstoðar á mörgum stöðum. í Glerárkirkju verður miðnæt- ursamvera með dagskrá sem unglingar úr æskulýðsfélögum Glerárkirkju og Akureyrarkirkju hafa undirbúið. Mikill og fjörugur söngur verð- ur alls ráðandi og fram mun koma unglingahljómsveit sem leikur kristileg lög með tilheyr- andi boðskap. Ungt fólk mun vitna um trúarreynslu sína og sameinast verður í bæn fyrir friði í heiminum. Eftir að dagskránni lýkur býð- ur Æskulýðsfélag Glerárkirkju til smá veitinga svo enginn fari svangur heim. Á morgun, sunnudag verður barnasamkoma í kirkjunni, og verður glatt á hjalla eins og venjulega. Barnasamkoma hefst kl. 11. Klukkan 14 verður svo æskulýðs- og fjölskylduguðs- þjónusta í Glerárkirkju þar sem ungt fólk verður við stjórnvölinn. Tveir unglingar sem hafa verið í leiðtogahlutverkum í barna- og æskulýðsstarfi kirkjunnar í vetur, þau Ása Arnaldsdóttir og Jóhann H. Þorsteinsson flytja hug- leiðingar. Unglingar úr æskulýðs- félaginu lesa og leiða sönginn sem verður miðaður við yngra fólkið. Það er mikilvægt að foreldrar taki sig til og drffi sig með börn- um sínum til kirkju og sameinist á þessum degi undir yfirskrift æskulýðsdagsins Líf og friður. Fjölskyldur væntanlegra ferm- ingarbarna eru sérstaklega minntar á þennan dag, en að sjálfsögðu eru allir velkomnir í kirkjuna, bæði í messuna, barna- samkomuna sem og miðnætur- vökuna á laugardagskvöldið. svo ágætan félagsskap sem leik- félag bæjarins er. Félagar í Leikfélagi Siglufjarð- ar ætla þó ekki að gráta Björn bónda heldur safna liði og er fyrirhugað að setja upp kabarett með leiknum atriðum og söng. Sýningar verða væntanlega eftir páska. Carmen Bonitz hefur þegar verið ráðin til þess að starfa með félaginu næsta haust. Þá mun hún leiðbeina á námskeiði og jafnvel setja upp sýningu í framhaldi af því. SS Leikfélag Hvammstanga: „Nítjándijúní“ fhimsýndur - gamanleikur fyrir alla Qölskylduna Leikfélag Hvammstanga frum- sýndi í gær lcikritið „Nítjándi júní“. Leikritið er léttur gam- anleikur eftir þær Iðunni og Krístínu Steinsdætur. Alls taka tíu leikarar þátt í sýningunni, sjö konur og þrír karlmenn. Við sýninguna starfa rúmlega tuttugu manns og eru það allt heimamenn á Hvammstanga. Leikstjórn er í höndum Oktavíu Stefánsdóttur frá Reykjavík. Leikritið gerist kvenréttinda- daginn nítjánda júni og fjallar um einn dag í lífi húsmóðurinnar Önnu. Anna xúar út að skemmta sér en ýmislegt fer öðruvísi en ætlað er. Með aðalhlutverkið, hlutverk Önnu, fer Bjarney Valdimarsdóttur. Nokkrir söngv- ar eru í leikritinu,undirleik á píanó og söngstjórn er í höndum Elínborgar Sigurgeirsdóttur. Leikritið „Nítjándi júní“ hefur verið sett upp einu sinni áður. Það var á Hornafirði og leikstýrði Oktavía Stefánsdóttir einnig þeirri uppfærslu. Að sögn Ásdfsar Pálsdóttur, formanns Leikfélags Hvamms- tanga er „Nftjándi júní“ létt fjöl- skyldukómedía sem allir geta haft gaman af. kg

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.