Dagur - 03.03.1990, Blaðsíða 20
„Þetta er eins og
á fraktskipi“
- segir Guðmundur Garðarsson
á Guðmundi Ólafi ÓF
„Við erum hér þvert út af Barð-
anum á leið til Ólafsfjarðar
með fullfermi,“ sagði Guð-
mundur Garðarsson á loðnu-
skipinu Guðmundi Ólafi ÓF
þegar Dagur sló á þráðinn til
hans í gærmorgun. Mestur tími
Helgarveðrið:
Norðanáhlaup!
- betra á morgun
Blíða gærdagsins verður brotin
upp með norðanáhlaupi í dag.
Ostýrilát lægð mun æða yfír
land vort, slengja haianum yfír
Norðurland og dengja snjó-
komu og norðanstrekkingi yfír
menn og málleysingja.
Þetta er í stuttu máli boðskap-
ur Veðurstofu íslands í dag. Á
morgun verður lægðin þurrausin
og hverfur þá út í veður og vind.
Eftir stendur hið besta veður. Já,
veðurfræðingarnir segja að
sunnudagurinn líti vel út fyrir
Norðlendinga, einnig mánudag-
urinn og jafnvel þriðjudagurinn
líka. Gott mál. SS
hjá loðnuskipunum þessa dag-
ana fer í siglingar til og frá
miðunum en minnstur tíminn
fer í veiðarnar sjálfar.
„Þetta er sólarhringsstím heim
aftur en við vorum um fjóra tíma
að fylla. Mestur tími fer því
■í keyrsluna, þetta er eins og á
fraktskipi,“ sagði Guðmundur.
Hann sagði að þessar löngu
siglingar gætu orðið nokkuð
þreytandi en því væri ekki að
neita að í svona mikilli veiði væri
vinnan létt. „Við eruin ekkert að
streða við að taka stór köst held-
ur höfum þetta hæfilegt, 350-400
tonn í kasti.“
Guðmundur Ólafur hefur
landað stærstum hluta afla síns
hjá loðnuverksmiðju Hraðfrysti-
húss Ólafsfjarðar og hefur verk-
smiðjan haldist nánast alveg í
fullum gangi eftir áramót með
þessum afla.
Guðmundur segir að afli skips-
ins á vertíðinni sé kominn í tæp
12 þúsund tonn og farið sé að
styttast í vertíðarlokin. „Já, við
eigum eftir fjóra túra þannig að
þetta verður búið um miðjan
mánuðinn,“ sagði Guðmundur.
JÓH
Hópur leikara sem þátt mun taka í sýningu Leikfélags Akureyrar á nýju leikriti Böðvars Guðmundssonar kom sam-
an í leikhúsinu í fyrrakvöld. Æfíngar eru nú að komast í fullan gang á þessu verki sem unnið er upp úr bókum
Tryggva Emilssonar. Hér á myndinni sjást leikararnir ásamt leikstjóra sínum, Þráni Karlssyni. Mynd: kl
Tímamót í rækjuvinnslu á Siglufirði:
Þonnóður rammi gerir
sammng við Siglunes hf.
Strákagöng:
Biðu í göngimum meðan
gert var við dymar
Dyrnar Siglufjarðarmegin á
Strákagöngum tóku óvænt
frumkvæði í fyrrakvöld og lok-
uðu göngunum. Bilun varð í
búnaðinum og mátti fólk sem
var á leið til Siglufjarðar bíða
meðan viðgerðarmenn voru
kallaðir út.
Samkvæmt upplýsingum frá
lögreglunni á Siglufirði stjórnast
lokunarbúnaðurinn af geisla
þannig að ef geislinn er rofinn þá
opnast dyrnar. Einhver bilun
varð í búnaðinum þannig að þrátt
fyrir að bíll færi í geislann inni í
göngunum þá hreyfðust dyrnar
hvergi. í þessu tilfelli reyndist
ekki unnt að opna dyrnar með
handafli og því mátti fólkið bíða
inni í göngunum uns viðgerð var
lokið. JÓH
Ákveðið hefur verið að efna til
orlofsferðar til Benedorm á
Spáni en ferðin verður farin á
vegum stéttarfélaganna í
Alþýðuhúsinu á Akureyri.
Vegna mjög hagstæðra samn-
inga við Samvinnuferðir-Land-
sýn er verð í ferðina einstak-
lega gott og njóta eftirlauna-
Samstarfssamningur hefur ver-
ið undirritaður milli Þormóðs
ramma hf. og Sigluness hf., en
Þormóður rammi hefur tekið
verksmiðjuhús Sigló á leigu af
fjármálaráðuneytinu. Áfram
verður unnið að því að fínna
framtíðarlausn á málefnum
rækjuverksmiðjunnar, en leigu-
samningarnir gilda út októ-
bermánuð.
þegar sérstaks afsláttar.
Samskonar ferð var farin í
fyrra og þótti hún heppnast ein-
staklega vel. Fullbókað var í þá
ferð og er búist við að sama verði
uppi á tengingnum nú. Ferðatil-
högun verður á þá leið, að flogið
verður í beinu leiguflugi frá Ak-
ureyri þann 19. mars nk. og dval-
ið á íbúðarhóteli á Benedorm í 3
hætti starfrækslu rækjuverksmiðju
á Siglufirði síðasta haust hefur
ríkt mikil óvissa um hvaða aðili
myndi hafa með þennan rekstur
að gera. Tvö félög, Siglunes og
Sunna, lýstu áhuga á að taka við
rekstrinum, en nú hefur stærsti
útgerðaraðili bæjarins, Þormóð-
ur rammi hf., tekið við rekstrin-
um með samingi við fjármála-
ráðuneytið.
vikur. Að því loknu er vitaskuld
flogið beint til Akureyrar aftur.
Eins og fram kemur í auglýs-
ingu í blaðinu í gær, ganga eftir-
launaþegar fyrir um sæti í ferðina
til 7. mars nk. en eftir það geta
félagar í ofangreindum stéttarfé-
lögum bókað far á afar hagstæðu
verði. VG
Sigló við Norðurgötu á nauðung-
aruppboði fyrir 90 milljónir
króna á sl. ári. Hvorki Sunna né
Siglunes virtust hafa bolmagn til
að kaupa verksmiðjuhúsið af
ríkissjóði á því verði, en vitað var
að báðir aðilarnir höfðu áhuga á
að fá húsið leigt, að ákveðnum
skilyrðum uppfylltum.
Stærsti hluti vinnslulínunnar er
í eigu sænsks kaupleigufyrirtækis,
en samkvæmt samningi Þormóðs
ramma og Sigluness er greidd
ákveðin leiguupphæð fyrir afnot
af tækjunum á umræddu tímabili.
Ekki er vitað annað en að
rækjuvinnsla geti hafist fljótlega í
verksmiðjunni, og þar með er
þeirri óvissu lokið sem ríkt hefur
um atvinnu liðlega þrjátíu
starfsmanna, sem áður störfuðu
hjá Siglunesi hf.
„Við tökurn allan pakkann á
leigu af Siglunesi, en þeir verða
áfram söluaðilar að hluta frain-
leiðslunnar. Þetta er hugsað sem
skref á þeirri braut að finna fram-
tíðarlausn fyrir verksmiðjuna,“
segir Róbert B. Guðfinnsson,
forstjóri Þormóðs ramma hf.
EHB
Allt frá því að Siglunes hf. Ríkissjóður keypti húseign
Stéttarfélögin í Alþýðuhúsinu:
Vetrarorlofsferð endurtekin
- flogið beint frá Akureyri til Spánar
íslendingar mæta Júgóslövum á HM í Tékkó í dag:
Ekki spurning að víð verðuin að vinna þennan leik
- segir Alfreð Gíslason stórskytta íslenska liðsins
íslendingar mæta heims-
meisturum Júgóslava í dag á
heimsmeistaramótinu í hand-
knattleik sem nú stendur yfír
í Tékkóslóvakíu. Leikurinn
er jafnframt þriðji og síðasti
leikur þessara liða í riðla-
keppninni. Þessi leikur skipt-
ir gífurlega miklu máli fyrir
bæði liðin og má búast við
hörkuviðureign. ísland og
Júgóslavía leika í c-riðli
keppninnar ásamt Kúbu og
Spáni og mætast þær þjóðir í
innbyrðisviöureign í dag.
„Það er ekki spurning að við
verðum að vinna leikinn við
Júgóslava, því Kúbuntenn gætu
alveg eins tekið upp á því að
vinna Spánverja, enda með
mjög vaxandi lið,“ sagði lands-
liðsmaðurinn Alfreð Gíslason í
samtali við Dag.
„Leikurinn gegn Spánverjum
var ekki nógu góður af okkar
hálfu og við náðum t.d. ekki að
nýta hraðupphlaupin á meðan
Spánverjarnir skoruðu sex
inörk úr slíkum færum. En
þetta tap fyrir Spánverjum þarf
ekki endilega að skipta máli,
því við höfum alla burði til þess
að vinna bæði A-Þjóðverja og
Pólverja í milliriðlinum,1' sagöi
Alfreð.
Spánverjar eru efstir í c-riðli,
hafa unnið báða leiki sína, gegn
Júgóslövum og íslendingum
með eins marks mun. íslending-
ar eru í öðru sæti riðilsins með 2
stig, eftir sigurinn á Kúbumönn-
um í fyrsta leik, Júgóslavar í
þriðja sæti með jafnmörg stig
eftir sigurinn á Kúbumönnuin,
sem sitja á botni riðilsins án
stiga.
Eins og staðan er í dag, er
líklegast að liðin sex sem fara í
milliriðii úr c- og d-riðli verði;
Spánverjar og Sovétmenn sem
þegar hafa tryggt sér sæti þar og
síðan íslendingar, Júgóslavar,
A-Þjóðverjar og Pólverjar.
Leikur íslands og Júgóslavíu
hefst kl. 16 í dag og verður hann
að sjálfsögðu sýndur beint í
Sjónvarpinu. - Og nú er bara að
vona að strákunum „okkar"
takist vel upp og rúlli yfir sjálfa
heimsmeistarana. -KK