Dagur - 03.03.1990, Page 12
436 ft _ Mf* P O rrr*r»km»r«.frA K
12 - DAGUR - Laugardagur 3. mars 1990
mntnrkrnknr
„Matarkrókur“ vikunnar:
„TrölIkonuuppskrift“
bæjarfulltrúans
- Úlfhildur Rögnvaldsdóttir
býður upp á baunabuff
Skíðaparadís
í Edensgarði
Hallfreður
Örgumleiðason:
Það er Úlfhildur
Rögnvaldsdóttir,
bæjarfulltrúi Fram-
sóknarflokksins, sem
er í matarkróknum að
þessu sinni en hún tók
áskorun Þórarins E.
Sveinssonar sem reið á
vaðið fyrir hálfum
mánuði. Úlfhildur seg-
ist hafa gaman af
matargerð og þá sér-
staklega að prófa
eitthvað nýtt. „Ég geri
mikið af því að elda og
sé eiginlega alveg um
það á heimilinu þrátt
fyrir að sonur minn sé
lærður matreiðslumað-
ur.“
Úlfliildur segist hafa mjög gam-
an af að elda fiskrétti þrátt fyrir
að hún bjóði ckki upp á einn
slíkan að þessu sinni heldur
varð baunabuff fyrir valinu. í
það notar Úlfhildur yfirleitt
þrjár tegundir af baunum en
hægt er að nota brúnar, grænar,
hvítar, soja- og linsubaunir.
Uppskriftin er á þessa leið:
Baunabuff
6-7 dl baunir
2 dl sojamjöl
2 dl kjöthakk (má sleppa)
2 egg
salt, pipar og kjötkraftur.
Baunirnar eru lagðar í bleyti.
Síðan eru þær soðnar, annað
hvort það vel að hægt er að
stappa þær eða þær eru settar í
mixara. Mjölinu, eggjunum og
kjöthakkinu blandað út í og úr
þessu eru gerðar frekar þunn
buff. Peim er síðan velt upp úr
hveiti og steikt á pönnu. Gott er
að steikja lauk og bera fram
með þessu og einnig er gott að
hafa með þessu hrærðar kartöfl-
ur og salat.
„Það má eiginlega segja að
þctta sé hálfgerð trölliconu-
uppskrift, svo stór er hún. Ég
hef oft lítinn tíma og gcri því
stóra uppskrift og frysti afgang-
inn sem gott er að grípa til þeg-
ar tíminn er naumur. Ef að fólk
vill reyna þetta má benda því á
að minnka uppskriftina um
helming. En þetta er mjög gott
og þetta er bæði hollt og ódýrt.“
Úlfhildur er einnig með
uppskrift að salatsósu og for-
rétti.
Salatsósa
(einnig mjöggóð með nautakjöti
og sem ídýfa fyrir kcx)
100 g majones
100 g súrmjólk
1 lítill biti af gráðosti
hvítlauksduft.
Majones og súrmjólk hrært
saman, gráðosturinn rifinn út í
og bragðbætt nteð hvítlauks-
duftinu.
Forréttur
Reyktur lax, skorinn í sneiðar
Rœkjusalat eftir eigin höfði
(gœta /)ess að það sé ekki of
þunnt).
Á hverja sneið er sctt salat og
sneiðinni síðan rúllað upp. Síð-
an er snittupinna stungið í og
með þessu er borið ristað
brauð.
Úlfhildur skorar á hjónin
Lindu og Jakob Björnsson.
„Mér finnst Jakob svo matar-
legur auk þess sem ég gruna
konuna hans um að eiga eitt-
hvað spennandi og óvenjulegt í
fórum sínum,-' sagði Úlfhildur
Rögnvaldsdóttir. Þau hjónin
hafa tekið áskoruninni og verða
því í matarkróknum eftir hálfan
mánuð. JHB
Góðan daginn, ágætu lesend-
ur. Ég mun flytja ykkur hug-
leiðingar mínar hálfsmánaðar-
lega í þessum nýja Helgar-
Degi. Þrátt fyrir breytingar á
blaðinu, sem fela m.a. í sér
aukna þykkt, þá verða engar
breytingar á viðhorfum
mínum. Sem fyrr get ég skrifað
um allt milli himins og jarðar
án þess að verða víttur af
flokksbræðrum mínum því þá
á ég enga. Félagasamtök geta
heldur ekki stillt mér upp við
vegg því ég er ekki meðlimur í
neinum slíkum samtökum.
Það er helst þjóðkirkjan sem
gæti hengt haus, en það er ekki
mikil hætta á afskiptum frá
henni þar eð ég er velviljaður f
hennar garð. Já, það er gott að
vera frjáls, eins og Mandela
sagði, eða var það Havel?
Fyrir löngu staðhæfði ég að
það hefði aldrei komið til
greina að reisa álver við
Eyjafjörð í þessari lotu en ekki
vildu ráðamenn við fjörðinn
græna trúa þessu og héldu
áfram að ólmast. Menn úr
ýmsum flokkum voru fengnir
til að halda fund á Akureyri og
lýsa því yfir að Eyjafjörður
hentaði mjög vel fyrir stórt
álver og varla væri hægt að
ganga framhjá honum. Orð
stjórnmálamanna eru sem bet-
ur fer sjaldan tekin upp í sagn-
fræðiritum því þá væri sagan
enn ótrúlegri en ella. Því verð-
ur þó ekki á móti mælt að
gauragangur Eyfirðinga hefur
hleypt lífi í þjóðmálaum-
ræðuna og nú eru sjálfstæðis-
menn í Hafnarfirði orðnir
hræddir. Þeir boðuðu til fund-
ar á dögunum og á þeim bæ er
litið á það sem vinstri villu ef
álver verður reist annars staðar
en í Straumsvík. Umræðan
hefur þannig leitt nokkuð gott
af sér; bilið milli höfuðborgar-
svæðisins og landsbyggðarinn-
ar hefur breikkað og nú er það
líka flokkspólitískt.
Ekki var meiningin að
þreyta ykkur með of miklu
þjóðmálafargani og sendi ég
álverspakkann fúslega aftur til
Alþingis og tek upp léttara
hjal. Það tengist skíðaparadís-
inni í Hlíðarfjalli ofan Akur-
eyrar. Þessi paradís Iíkist mjög
Edensgarði mestan hluta
ársins, grænar hlíðar og snjó-
Iaus gil, forstöðumanninum til
mikillar hrellingar. Vertíðin
byrjar síðan með stanslausri
snjókomu og aftakaveðri í lok
janúar og stendur þessi ótíð
fram í mars. Um helgar er
veðrið verst og vonlaust að
fara á skíði. í marslok kemur
einn góður laugardagur með
glampandi sól og frábæru
skíðafæri. Þá flykkjast þúsund-
ir manna upp í Fjall og hugsa
sér gott til glóðarinnar, en
hvað gerist?
Lyftukostur hefur verið
endurbættur og skíðasvæðið
getur með sæmilegu móti tekið
þennan fjölda án þess að til
stórvandræða komi. En menn
gleymdu að hugsa fyrir einu;
bílastæðum. Umferðarfargan-
ið á laugardegi sem þessum er
það alversta sem ég hefi kynnst
og man ég þó vel föstudags-
öngþveitið í Reykjavík. Hvers
vegna í ósköpunum höfðu
ráðamenn Skíðastaða ekki
rænu á því að ryðja svo sem
eitt veglegt bílaplan til viðbót-
ar fyrir vertíðina? Eins og
ástandið er nú situr maður
fastur í bíl sínum á miðri leið,
kemst hvorki aftur á bak né
áfram, og þrautalendingin er
að leggja bílnum og ganga með
skíðaútbúnaðinn hálfa leið.
Skíðaparadísin þrífst samt
vel á svona dögum. Akureyr-
ingar streyma í Fjallið og höf-
uðborgarbúar bregða sér í
pakkaferðir. Nú er meira að
segja verið að auglýsa Hlíð-
arfjall erlendis, ekki síst þar
sem snjóinn hefur vantað. En
snjórinn er ekki allt, til eru
hlutir á borð við aðbúnað og
skipulagningu.
Jæja, paradísin nær nokkr-
um góðum helgum frá mars-
lokum og fram eftir aprílmán-
uði. Loks þegar glitta fer í
maísólina og veður gefur til
skíðaiðkunar, snjórinn er enn
nægur, þá pakka paradísar-
menn niður í töskur sínar, loka
staðnum og fara heim. Ballið
er búið. Þetta er auðvitað hið
alversta mál og ég vil bara
skora á ferðamannafulltrúann
okkar að beita sér fyrir úrbót-
um. Hann verður líka að ná
betri samningum við veður-
guðina en forstöðumaðurinn
hefur gert. Ég skora líka á
bæjarstjórann að gera eitt-
hvað, ég veit bara ekki hvað.
Hallfreður byrjar á pólitískum nótum í dag en fer síðan að gagnrýna veðurfarið í Hlíðarfjalli og skort á bílastæðum.
Vill hann að ferðamálafulltrúi og bæjarstjóri láti til sín taka.