Dagur - 10.03.1990, Síða 2
2 - DAGUR - Laugardagur 10. mars 1990
fréftir
Togarar Skagfirðinga við bryggju.
Sauðárkrókur:
Hegranes landar góðum afla
Drangey SK-1, togari Útgerð-
arfélagsins Skjaldar á Sauðár-
króki, er loks komin til heima
hafnar. Drangey hefur verið
sex vikur í siglingu. Togarinn
fór í slipp í Þýskalandi þar sem
tekinn var upp gír skipsins.
Hegranes togari Útgerðar-
félagsins Skagfirðings kom á
miðvikudag með hundrað og
tuttugu tonn til Sauðárkróks.
Aflinn var mest megnis
þorskur.
Skipverjar Drangeyjar notuðu
tímann sem Drangey var í slipp í
Þýskalandi til skoðunarferða.
Þeir ferðust um Þýskaland og
einnig fóru nokkrir til Danmerk-
ur og voru þar í fjóra daga.
Drangeyjan fór til veiða í gær
en Skafti fór út í fyrradag. Skag-
firðingur er á veiðum og ekki
væntanlegur fyrr en á miðvikudag.
Gísli Svan útgerðarstjóri Skag-
firðings er ný kominn úr kynning-
ar- og viðskiptaferð til Þýska-
lands. Þar kynnti hann sér mark-
aðsmál og viðskipti við þá fisk-
markaði þar ytra sem við verslum
mest við. kg
Sjúkrahúsið á Blönduósi
auglýsir eftir hjúkrunarfræðingum:
Spurt um sumarviimu en
erfíðara með fastar stöður
Húsavík:
Kolbeinsey með 3659 tonn
- verðmæti 138 milljónir á síðasta ári
Aðalfundur íshafs hf. var hald-
inn sl. fimmtudagskvöld. íshaf
er útgerðarfyrirtæki togarans
Kolbeinseyjar ÞH-10 og er
framkvæmdastjóri þess Krist-
ján Asgeirsson.
Á árinu 1989 nam afli skipsins
3659 tonnum, að verðmæti 138,2
milljónir króna. Alls var 31 veiði-
ferð farin á árinu, hófst sú fyrsta
þeirra 7. jan. en þeirri síðustu
lauk 3. des. og var þá allur kvóti
búinn. í heimahöfn var landað
3439 tonnum og var meðalverð
Sauðárkrókur:
Aðstöðuleysi skotmaima
- ekkert svæði til æfinga
innan bæjarmarkanna
Engin aðstaða er innan bæjar-
marka Sauðárkrókskaupstaðar
fyrir þá sem stunda skotfimi.
Þeir Króksarar sem stunda
leirdúfuskotfimi eða aðra teg-
und skotfimi verða að leita út
fyrir bæjarmörkin ef þeir ætla
að stunda íþrótt sína. Sam-
kvæmt lögreglusamþykkt er öll
meðferð skotvopna bönnuð
innan bæjarmarkanna og því
refsivert að stunda þar æflng-
ar.
Ekkert skotfélag er starfandi á
Sauðárkróki. Það er því vand-
kvæðum bundið fyrir bæjaryfir-
völd að úthluta svæði til æfinga.
Forsenda frá hendi bæjaryfir-
valda er að skotfélag sé til staðar.
Skotfélag þarf til að hafa eftirlit
og umsjón með svæðinu.
Skotmenn þurfa því að búa við
aðstöðuleysi eða stunda íþrótt
sína utan bæjarmarkanna þar til
þeir stofna til félagsskapar. kg
með útkomu af þessari breytingu
fyrir Vopnafjarðarhrepp. Helsti
ávinningur okkar er að losna við
stóra gjaldapósta eins og þátt-
töku í sjúkrasamlagi og að hluta
til skólatannlækningar. Að vísu
koma útgjaldaliðir á móti eins og
rekstrarkostnaður grunnskóla.
En ef á heildina er litið sýnist mér
breytingin vera til verulegra bóta
fyrir okkur,“ sagði Sveinn. „Það
sem sjáum frarn á eru aukin
framlög úr Jöfnunarsjóði. Þetta
byggðarlag hefur verið tiltölulega
tekjulágt, en með breytingunni
um áramót er gert ráð fyrir að
bæta tekjuvöntunina upp í
meðaltekjur Sambands íslenskra
sveitarfélaga. Þar fáum við veru-
lega búbót,“ sagði Sveinn Guð-
mundsson. óþh
„Ég er lukkuleg meö þaö að
við höfum fengiö nokkuð
margar fyrirspurnir um vinnu
í sumar. Hins vegar gengur
ekki eins vel aö ráða í fastar
stöður,“ sagði Sveinfríður
Sigurpálsdóttir, hjúkrunar-
forstjóri Sjúkrahússins á
Blönduósi.
Sjúkrahúsið hefur að undan-
förnu auglýst eftir hjúkrunar-
fræðingum til lengri eða
skemmri tíma og til sumarafleys-
inga. Að sögn Sveinfríðar hefur
alltaf gengið vel að ráða fólk til
sumarafleysinga en hins vegar
er annað uppi á teningnum með
fastar stöður. Nú eru hjúkr-
unarfræðingar ráðnir í 4,8 stöð-
ur á Blönduósi en heimild er til
ráðningar í 3-4 stöður til viðbót-
ar.
Þetta hefur þýtt það að starf-
andi hjúkrunarfræðingar hafa
bætt við sig bakvöktum á nótt-
unni. Þeir sofa í Sjúkrahúsitiu
og eru til reiðu ef eitthvað ber
Fjárhagsáætlun Vopnaflarðarhrepps á borði hreppsnefndar:
Verkaskipting og tekjustofinalög
koma vel út fyrir sveitarfélagið
„Fjárhagsáætlun er ekki frá-
gengin, en búið er að leggja
hana fram í hreppsnefnd,“
sagði Sveinn Guðmundsson,
sveitarstjóri á Vopnafirði.
„Það stendur til að halda fund
í hreppsnefnd alveg á næstunni,
en ég veit ekki hvort tekst að
afgreiða hana þar,“ sagði Sveinn.
Hann sagði að svigrúm til
framkvæmda væri kannski ekki
mikið, en hins vegar væri því
ekki að neita að bjartara væri
framundan með fjárhaginn í
kjölfar breytinga á lögum um
verkaskiptingu ríkis og sveitar-
félaga og tekjustofna sveitar-
félaga um síðustu áramót.
„Við erum nokkuð ánægðir
Erfiðlega gengur að manna í fastar stöður hjúkrunarfræðinga á Sjúkra-
húsinu á Blönduósi eins og á öðruni sjúkrahúsuni út uni land.
út af. Ef hins vegar tækist að
ráða í þessar stöður yrði komið
á venjulegum næturvöktum,
eins og gert er yfir sumartím-
ann.
Sveinfríður segist ekki hafa
einhlíta skýringu á því af hverju
gangi jafn erfiðlega og raun beri
vitni að manna í fastar stöður
hjúkrunarfræðinga út á landi.
Hún segir að þetta sé ekki
spurning urn launin og starfs-
aðstaða á ntörgum sjúkrahúsum
hafi verið bætt verulega á síð-
ustu árum og því ætti hún ekki
að fæla fólk frá. óþh
aflans 38,33 kr. Skipið fór í eina
siglingu til Þýskalands með 167
tonn, og seldi auk þess 52 tonn
erlendis af gámafiski og var með-
alverð þess afla 81,64 kr.
Sjóþyngsli í Breiðholti
Gríðarmikið fannfergi er í hesthúsahverfinu á Akureyri og hefur það gert
hestamönnum erfitt fyrir með að viðra klárana og hleypa þeim. Mynd: kl
Sveinn Guðmundsson.
Að meðaltali störfuðu 18 menn
hjá félaginu og námu launa-
greiðslur 53 milljónum króna á
árinu. Rekstur skipsins gekk
áfallalaust. í skýrslu stjórnar
kemur fram að framlegð út úr
rekstri fyrir afskriftir nemi tæp-
um 36 milljónum, sem er 24,6%
af tekjum og með því besta sem
gerist í rekstri minni ísfisktogara.
Tap ársins 1989 nemur rúm-
lega níu milljónum. í skýrslunni
segir að veltufjárhlutfall sé orðið
allt of lágt og þessu verði að
breyta á árinu 1990. Það verði
einungis gert með því að auka
Kolbeinsey ÞH-10 aflaði á sl. ári fyrir tæpar 140 milljónir króna.
verðmæti aflans eða að eigendur
taki á sig að greiða aukið hlutafé
til fyrirtækisins. Talið er að fyrir-
tækið hafi svigrúm til að fá hærra
verð fyrir aflann innanlands eða
selja stærri hluta aflans fyrir
hærra verð erlendis.
Á miðvikudag landaði Kol-
beinsey 85 tonnum af fiski á
Húsavík og mun einnig landa
aflanum úr næstu veiðiferð þar,
en síðan mum hún sigla til Þýska-
lands eftir eina ferð á karfaveið-
ar. IM