Dagur - 10.03.1990, Blaðsíða 17
efst í huga
Laugardagur 10. mars 1990 - DAGUR - 17
F
Hvað er að hjá „okkar“
mönnum í Tékkó?
Handbolti, handbolti, handbolti, er það
sem mér er efst í huga um þessar
mundir. íslenska landsliðið er að etja
kaþpi við bestu handknattleikslið heims
á úrslitakeppni HM í Tékkóslóvakíu og
ekki er hægt að segja annað en að
strákarnir „okkar'* hafi valdið vonbrigð-
um.
Margir handknattleikssérfræðingar
hafa komið úr felum og gefið skýringar á
því hvað hafi farið úrskeiðis í Tékkó. Mál
þessi eru rædd á vinnustöðum, sund-
stöðum, heimilum og annars staðar þar
sem fólk kemur saman og flestir ef ekki
allir vita nákvæmlega hvaö er að hjá
strákunum. Nú leikir liðsins eru sýndir
beint í Sjónvarpinu og því er auðvelt fyrir
landann að fylgjast með því sem gerist.
Bjarni Fel. hefur séð um að lýsa leikjun-
um og ekki er laust við aö farið sé að
gæta vonleysis hjá Bjarna og lái honum
hver sem vill. En það var nú einmitt
Bjarni sem átti að vera „lukkupolli" liðs-
ins í keppninni og meira að segja Bog-
dan þjálfari hafði lýst yfir ánægju með
það að Bjarni yrði á staðnum. En það
hefur ekki dugað til þessa en varla er við
Bjarna að sakast í því máli.
Ég er einnig að hugsa um að gerast
sérfræðingur og fræða lesendur um það
hvað mér finnst hafa farið úrskeiðis
framar öðru. Að mínu viti að hefur
stærsta vandamálið í keppninni verið
markvarslan. Hvorki Guðmundur Hrafn-
kelsson né Einar Þorvarðarson hafa náð
sér á strik í leikjum liðsins og ekki náö að
sýna neitt í líkingu við það sem t.d. Guð-
mundur sýndi í leikjum liðsins hér heima
skömmu fyrir keppni.
Annað sem ekki hefur verið í lagi, er
sóknarleikur þeirra Kristjáns Arasonar,
Sigurðar Gunnarssonar og Alfreðs Gísla-
sonar. Allir eru þeir lykilmenn liðsins í
sókninni og á meðan þeir ekki ná sér á
strik, er ekki von á góðu. Kristján og
Alfreö hafa hins vegar staðið sig vel í
vörninni en verið mjög mistækir í sókn-
inni. Það hefur því vakið furðu margra að
Bogdan skuli ekki láta þá Júlíus Jónas-
son, sem sýndi snilldartakta í leikjum hér
heima skömmu fyrir keþpnina og Sigurð
Sveinsson, sem einnig kann ýmislegt
fyrir sér í handbolta, spila meira í sókn-
inni.
En það hafa ekki allir leikmenn liðsins
spilað undir getu, Geir Sveinsson hefur
t.d. leikið mjög vel í keppninni, bæði í
vörn ,og sókn og verið að mínu mati jafn-
besti maður liðsins. Bjarki Sigurðsson
og Guðmundur Guðmundsson hafa einn-
ig staðið sig vel og Þorgils Óttar hefur átt
ágæta spretti.
í lokin er þó rétt aö taka fram, að það
er ósköp þægilegt fyrir mig og aðra að
sitja heima í stofu og gagnrýna strák-
ana. Ég þykist viss um að þeir hafi gert
sitt besta en einhvern veginn hafa hlut-
irnir ekki gengið upp, hverju svo sem um
er að kenna. Kristján Kristjánsson
Listamennirnir á æfingu í Davíöshúsi í vikunni. Frá vinstri: Lilja Hjaltadóttir, Margrét Bóasdóttir, Arnar Jónsson
Kristinn Orn Kristinsson. Mynd: kl
. jáTfH ]
» f f flff * i i I$ f| 11111 lllfifj í| í' IHIi
; \ i lailj
Dagskrá í Davíðshúsi nk. miðvikudags- og fimmtudagskvöld:
Ljóð Davíðs og sönglög
og fiðlutónlist Schuberts
Næstkomandi miðvikudags- og
fimmtudagskvöld kl. 20.30
bæði kvöldin fiytja lista-
mennirnir Arnar Jónsson,
leikari, Margrét Bóasdóttir,
sópran, Lilja Hjaltadóttir,
fiðla, og Kristinn Örn Kristins-
son, píanó, dagskrá í Davíðs-
húsi á Akureyri. Tónlistarfé-
lagið á Akureyri stendur fyrir
dagskránni.
Fjórmenningarnir flytja ljóð
Davíðs skálds frá Fagraskógi og
sönglög og fiðlutónlist eftir Franz
Schubert. Valin hafa verið söng-
lög við texta sem tengjast yrkis-
efnum Davíðs.
Á síðasta vetri gekkst tónlist-
arfélagið fyrir ljóða- og söngdag-
skrám í Davíðshúsið sem mæltust
vel fyrir.
Það skal tekið fram að vegna
takmarkaðs húsrýmis í Davíðs-
húsi er nauðsynlegt að panta
miða á dagskrána. Pöntunarsími
er 24234 eftir kl. 13. óþh
Gleymið ekki
að gefa smáfuglunum.
EinbýKshús!
Til sölu nýtt einbýlishús á Húsavík.
Skipti á húseign á Akureyri koma til greina.
Upplýsingar í síma 41916.
TölvusKráning!
Starfsmann vantar til afleysingar í eitt ár við
tölvuskráningu og ritvinnslu.
Laun samkvæmt launakerfi opinberra starfsmanna.
Umsóknir með upplýsingum um menntun og fyrri
störf sendist undirrituðum fyrir 20. mars 1990.
Nánari upplýsingar fást á skattstofu umdæmisins aö
Hafnarstræti 95 Akureyri.
Akureyri 08.03.1990
Skattstjóri Norðurlandsumdæmis eystra.
FJÓRÐUNGSSJUKRAHUSIÐ
J Á AKUREYRI
SJÚKRALIÐAR
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri óskar að ráða
sjúkraliða á Lyflækningadeild frá miðjum mars n.k.
Um vaktavinnu er að ræða.
Einnig vantar sjúkraliða í 100% dagvinnu á Geð-
deild F.S.A. við Spítalaveg. í starfinu felst dagleg
umsjón með hinum ýmsu þáttum deildarstarfsins,
auk umönnunar vistmanna.
Nánari upplýsingar gefur hjúkrunarforstjóri, Ólína
Torfadóttir eða hjúkrunarframkvæmdastjóri, Sonja
Sveinsdóttir, í síma 96-22100.
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri.
KRISTNESSPÍTALI
Hvernig væri aö breyta svolítið til og koma til starfa
meö áhugasömu fólki sem er önnum kafið viö að
byggja upp nýja endurhæfingardeild og endurbæta
eldra húsnæði?
Kristnesspítali er 10 kílómetra suður frá Akureyri í
afar heillandi umhverfi. Starfsmönnum sem búsettir
eru á Akureyri er séð fyrir akstri í og úr vinnu.
Hjúkrunarfræðingar - sjúkraliðar.
Nokkrar stöður eru lausar nú þegar, eða síðar eftir
samkomulagi. Einnig vantar hjúkrunarfræðinga og
sjúkraliða til sumarafleysinga. Barnaheimili og íbúð-
arhúsnæði til staðar. Upplýsingar gefur hjúkrunarfor-
stjóri í síma 96-31100.
Aðstoð við sjúkraþjálfun.
Staða aðstoðarmanns við sjúkraþjálfun er laus frá
og með 1. apríl n.k. Upplýsingargefurframkvæmda-
stjóri í síma 96-31100.
Kristnesspítali.
Vantar blaðbera
í Geislagötu, Eiðsvallagötu og syðri hluta
Norðurgötu.
iÝ
Eiginmaður minn,
SÉRA TRAUSTI PÉTURSSON,
og móðir mín,
SIGRÍÐUR SVEINSDÓTTIR,
verðajarðsunginn mánudaginn 12. mars kl. 13.30 frá Akureyr-
arkirkju.
Borghildur María Rögnvaldsdóttir.