Dagur - 10.03.1990, Page 10
10 - DAGUR - Laugardagur 10. mars 1990
Laugardagur 10. mars 1990 - DAGUR - 11
„Þuijum alltafað eiga vonina
til að geta bœtt okkuf
- segir Sigurður Hallmarsson, leikstjóri
Leikfélag Húsavíkur frumsýnir Land míns fööur um næstu helgi.
Sigurður Hallmarsson leikstýrir verkinu og við fengum hann til
að koma í helgarviðtalið, þó hann segði að uppsetning á leik-
húsverki væri hópvinna, og því væri ekkert sjálfsagðara að tala við
leikstjórann en einhvern annan úr hópnum. Sigurður vildi heldur
ekkert ræða við okkur um listamannalaunin sem leikstjór-
anum voru úthlutuð á dögunum. En einn félagi Sigurðar úr
leikhúsinu hældi honum mjög við okkur, fyrir hæfileika við að
segja fólki til og ná fram túlkun sem við ætti og sagði að hann væri
næmur á að sjá hæfileika hjá fólki, þó það sjálft hefði ekki
hugmynd um að það byggi yfir þeim. Sigurð sjálfan skortir ekki
hæfileika á ýmsum sviðum; hann er listmálari, tónlistarmaður,
skemmtikraftur og eftirherma, hestamaður. En í dag spjöllum við
fyrst og fremst við leikarann, leikstjórann og félagann í Leikfélagi
Húsavíkur - Sigurð Hallmarsson.
Sigurður er kvæntur Herdísi Birgisdóttur
frá Húsavík. Hún stundaði nám við
Leikskóla Lárusar og hefur leikið mörg
eftirminnileg hlutverk á fjölum Sam-
komuhússins. „Hún er mér hollur og
góður ráðgjafi í sambandi við leikstjórnina og
sömuleiðis rullur sem ég hef æft. Hún er minn
besti gagnrýnandi, stundum hörð en sanngjörn."
Herdís og Sigurður eiga þrjú börn sem öll hafa
komið á leiksvið; Hallmar, leikhússtjóra Borgar-
leikhússins, Katrínu, óperusöngkonu sem kennir
við Söngskólann í Reykjavík og Aðalbjörgu,
læknaritara á Húsavík.
Skömmuðumst okkar eitthvað
smávegis
Sigurður er fæddur og uppalinn á Húsavík. Hann
var eina barn hjónanna Jónínu Katrínar Sigurð-
ardóttur og Hallmars Helgasonar. Þau bjuggu
allan sinn búskap á Helgastöðum, sem nú er
Mararbraut 21. Hallmar var sjómaður. „Ég ólst
upp við að sjá bátana koma og fara, og ég man
aldrei eftir föður mínum í landi, ef það var sjó-
veður.“
- Hvenær manstu fyrst eftir þér og við hvað?
„Ég man eftir jarðskjálftunum 1934, ég varð
ofboðslega hræddur og man hvar ég var staddur
þegar þeir komu. Pað er fyrsti atburðurinn sem
ég man fyrir víst, en margt frá bernsku er ég ekki
viss um hvort ég man, éða hvort hefur verið lýst
fyrir mér svo ljóslifandi að mér finnist vera um
upplifun að ræða.
Ég átti marga leikfélaga. Krakkahópurinn hélt
sig mikið syðst á bakkanum. Rétt sunnan við
byggðina var fjárréttin og síðan tóku við Börðin
með kartöflugörðunum. Petta var allt saman eitt
opið leiksvæði sem krakkarnir höfðu til eigin ráð-
stöfunar. Það var stutt í fjöruna framan við bakk-
ann og þar var miklu meiri sandfjara en er í dag.
Hér var enginn leikskóli, né dagheimili, við rák-
um þetta sjáfir krakkarnir og hópurinn var sam-
heldinn.
Við fundum upp ýmsa leiki sem ég hef ekki vit-
að til að iðkaðir hafi verið annars staðar, hvorki
fyrr né síðar. Á bakkanum áttum við bátasmið,
hann sagaði út báta úr kassafjölum, svonefnda
fjörubáta sem við undum við tímunum saman í
fjörunni. Þetta var Hreinn Helgason í Jörfa.
Hann þekkti alla báta og ég held að hann hafi
kunnað sjómannaalmanakið utanbókar."
- Voruð þið prakkarar?
„Auðvitað vorum við prakkarar, það hefur
æfinlega verið. Við vorum ekki með illkvittin
prakkarastrik, því okkur var ekki illa við neinn
og ég held að fáum hafi verið illa við okkur. En
einu sinni strengdum við þó snúru yfirgötuna hjá
Sólheimum, þá lá Melgatan niður hjá Hulduhól
og niður að Helgastöðum. Kári Arnórs, Hörður
bróðir hans og ég, strengdum snúru þvert yfir
götuna og það kom kona með hænu í fanginu að
ofan. Við biðum eftir því að hún gengi á snúr-
una, en um leið kom Arnór heitinn að neðan og
varð var við þetta. Konan sá snúruna og stopp-
aði, en Arnór hljóp á eftir okkur suður öll Börð.
Þar hlupum við Hörður niður í skotgrafir og eftir
skotgröfunum sem Bretarnir höfðu grafið vestast
á Börðunum. Þar kom að báðir aðilar þreyttust
og hættu að hlaupa og það var ekki gert stórt mál
úr þessu. Arnór var ekki þesslags maður. Þó man
ég að við skömmuðumst okkar eitthvað smávegis
fyrir uppátækið, og sáum það síðar að slys hefði
getað hlotist af þessum prakkaraskap.“
- Á þessum árum var að alast upp kynslóð
sem síðan hefur sett mjög svo svip á bæjarlífið. 1
þeim hóp ert þú og margir þínir leikfélagar, en
hvað veldur því hvað áberandi mörg ykkar hafið
orðið til að takast á við verkefni sem eftir er
tekið, bæði í leik og starfi?
„Kannski stafar þetta að einhverju leyti af því
að þegar þeir sem þá voru að alast upp komust til
vits og ára, þá opnaðist þeim leið í gegn um
skólakerfið. Fátækum opnaðist leið í gegn um
hérðasskólana sem spruttu upp víða um land. Því
munu fleiri úr þessum hópi hafa fengið tækifæri
til að njóta sín, heldur en áður var.“
I snjókasti við breska herinn
- Eftir æfingu á Land míns föður í Samkomu-
húsinu um daginn barst það í tal að þú myndir
eftir stríðsárunum á Húsavík.
- Ég man eftir komu Bretanna og þá bar
margt nýstárlegt fyrir augu. Það vildi þannig til
að Bretarnir höfðu vetursetu í næsta húsi við
okkur, Sandfelli. Þess vegna var strákaskarinn í
nokkuð nánu sambýli við þá, og við skutumst á
snjókúlum. Þeir höfðu ekki iðkað snjókast og við
strákpattarnir reyndumst þeim ekkert síðri í því,
þó við reyndum ekki önnur skot. Bretarnir voru
okkur afskaplega vinsamlegir, en okkur þótti
vissara að halda okkur í hæfilegri fjarlægð þegar
þeir fóru á heræfingu. Þegar þeir æfðu notkun
byssustingja hengdu þeir upp heypoka og brun-
uðu á þá með stingjunum. Þá þóttumst við sann-
færðir um að nú væru þeir orðnir brjálaðir fyrir
fullt og fast og mig minnir að við höfum hlaupið
suður í Mundlaugarlá - til að vera sem allra
fjærst þessum ósköpum. Ég varð alveg skelfingu
lostinn fyrst þegar ég sá þetta, en seinna, þegar
slík æfing var haldin, vorum við mikið nær og
hlógum, því okkur fannst þetta stórfurðulegar
aðfarir.“
- Reynduð þið að spjalla við hermennina og
fenguð þið nammi?
„Þeir höfðu nú ekki mikið greyin, bresku her-
mennirnir voru afskaplega fátækir, en við reynd-
um að spjalla við þá og þeir við okkur. Mr. Cook
var yfirmaður þeirra, hann bjó í Hjarðarholti og
hafði með sér kokk sem hét Harry. Harry komst
upp á lag með að tala íslensku, þetta var fljótfær
náungi og opinn, og okkur fannst hann skemmti-
legur.
Eftir stríðið fréttum við að þeir Bretar sem
hérna voru hefðu farist við Dunkirk."
- Hafði koma og dvöl hermannanna á Húsa-
vík mikil áhrif á unglingana sem þá voru að alast
upp?
„Ég held að hún hafi haft lítil áhrif á okkur.
Þeir komu margir fyrst, en svo voru hér 10-14
menn í Sandfelli, og lífið hélt áfram að ganga
sinn vanagang. Þeir stóðu á verði suður á
bökkunum, við endann á skotgröfunum við byrgi
sem stóð neðar en þar sem verslunin Kjarabót er
nú. Við máttum ekki trufla þá á verðinum og
sjálfsagt hafa þeir verið að fylgjast með skipa-
komum. Ég man ekki eftir neinu nema jákvæðu
í samskiptum Bretanna við Húsvíkinga, og upp-
setningin á Land míns föður rifjar margt upp,
mér til mikillar ánægju.“
- Hverju breytti koma hersins og stríðið fyrir
íslensku þjóðina?
„Skyndilega varð til nóg vinna handa öllum og
það hvatti til aukinnar verkmenningar, sérstak-
lega á sviði bygginga. Á þessum árum var tekinn
upp sérstakur unglingataxti fyrir 14-16 ára, aðal-
lega var hann notaður við byggingavinnu. Áður
hafði verið litla vinnu að fá fyrir unglinga, helst
línuvinnu, en ef þeir fengu aðra vinnu voru þeir
á svokölluðu kvenmannskaupi. Ég man að ég
fékk greitt eftir unglingataxtanum þegar verið
var að byggja fyrstu verkamannabústaðina hér, á
Brávöllunum.
Herinn flutti ýmislegt með sér til landsins.
Bílainnflutningur óx, hertrukkarnir komu, sem
síðan í áratugi reyndust traustastir til mjólkur-
flutninga á vetrum.
Með nægri vinnu handa öllum komu peningar
til framkvæmda, t.d. var geipilega mikið byggt á
Húsavík á árunum frá 1944-50.“
Með leikmyndir í sköflunum
Það mun hafa verið 1943 sem Sigurður lék sitt
fyrsta hlutverk, sem smali í Manni og konu, með
Leikfélagi Húsavíkur.
„Mér fannst það vera ævintýri, heilmikil og
skemmtileg upplifun. Sigurður Kristjánsson var
leikstjóri, en hann var lengi driffjöður í starfsemi
Leikfélags Húsavíkur og einnig í Karlakórnum
Þrym. Seinna tók ég þátt í Spanskflugunni, með-
an ég var í gagnfræðaskólanum. Ég fór í skóla
suður og tók ekki þátt í sýningu hér aftur fyrr en
1949, þá settum við upp Galdra-Loft, en síðan
hef ég tekið þátt f þessu óslitið þau ár sem ég hef
verið hér á Húsavík."
Sigurður getur þess ekki að hann leikstýrði og
lék aðalhlutverkið í Galdra-Lofti, aðeins 19 ára
gamall, en með eins vetrar nám í Leikskóla Lár-
usar Pálssonar að baki. í þessari sýningu fór
Herdís með hlutverk Dísu og Aðalbjörg, móðir
hennar, var einnig með hlutverk.
- Ég hef heyrt að vel hafi til tekist við upp-
setningu verksins. Var þetta ekki í mikið ráðist af
svo ungum manni?
„Það var mjög vel lagt í þessa sýningu. Jóhann
Björnsson, myndlistarkennari og myndskeri,
málaði tjöld og sá um leikmyndina, af sömu natni
og hann hafði alltaf gert. Við beittum ljósum, og
þetta var kannski í fyrsta skipti sem reynt var að
breyta til með notkun Ijósa. Það var Jóhannes
Haraldsson sem sá um ljósin og reyndist hug-
kvæmur.
Ég hafði ekki vit á því þá að mikið væri í ráðist
og hafði ekki forsjá til að hugsa um það á þessum
árum. Þá var mikið erfiði að setja upp leiksýning-
ar hér í Samkomuhúsinu vegna þess að ætíð
þurfti að fjarlægja allar leikmyndir út úr húsinu
vegna árshátíða, samkomuhalds eða annarrar
starfsemi sem í húsinu var. Neðri hæðin var
íþróttasalur, og eiginlega furðulegt að hægt skyldi
vera að drífa áfram leikstarfsemi í húsinu við þær
aðstæður sem þá voru. Þó við höfum núna ráð-
stöfunarétt yfir húsinu og þurfum ekki að henda
leikmynd út í skafl vegna annarra samkoma, þá
er það bara svo að á þessum árum hafa kröfurnar
til leikstarfsemi aukist svo mikið, að þetta er
mjög erfitt, svo ekki sé meira sagt. Mestu örðug-
leikarnir, fyrir utan plássleysið og þrengslin, eru
að lýsa stykkið svo eitthvað vit sé í. Til þess er
lofthæðin ekki nægjanleg. Ljósin eru svo nálægt
Ieikurunum að þau eru heit og óþægileg. Vegna
nálægðar Ijósanna, eru kastararnir farnir að
dreifa svo lítið, að við verðum að hafa þá fleiri
svo menn séu ekki alltaf að ganga í gegnum
skuggahögg á sviðinu.
Miðað við þá miklu starfsemi sem verið hefur
hjá leikfélaginu, væri hægt að halda að hægt
hefði verið að skapa starfseminni betri skilyrði.
Einhvern veginn hefur það ekki verið svo, og við
höfum alltaf sagt að þetta hafi verið gert áður og
hljóti eins að vera hægt nú. Meðan við höfurn
fólk sem gætir ekki forsjálni við þessa hluti þá
kannski gengur þetta upp, en ég veit ekki hvað
það gengur lengi.“
Ef listin er einhvers virði
Samkomuhúsið er byggt 1929, sama ár og Sigurð-
ur fæddist. Hann segir að húsið sé löngu orðið
óviðunandi. í kjölfar Kópaskersskjálftans 1975,
segir Sigurður að húsinu hafi verið lokað á þeim
forsemdum að það hefði ekki nægjanlegt burðar-
þol til að forsvaranlegt væri að setja inn í það
fólk. Burðarþolið hafi þó magnast í húsinu fyrir
einhverja tilviljun, þannig að húsið var opnað
aftur og hefur verið opið síðan.
- Það stóð til að byggja leikhússal við Félags-
heimilið og andyri hans í rauninni þegar byggt, er
ekki svo?
„Þegar byrjað var ábyggingu Félagsheimilisins
var mikið deilt um hvorn salinn ætti að byggja
Hjónin, Sigurður Hallniarssun og Herdís Birgisdóttir, í hlutverkum sínum í Júno og páfuglinn eftir
Sean O’Casey.
fyrst, kvikmyndasalinn eða veitingasalinn. Ég
hélt því fram þá, að við þyrftum að byggja leik-
húss- og kvikmyndasalinn vegna þess að annað
þyrftu félög ekki að byggja, hótel myndi byggja
veitingasal því það væri útilokað að reka hótel á
staðnum öðruvísi en að það hefði veitingasal.
Raunin varð sú að við byggðum veitingasalinn,
og hótel við liann og það hefur dugað okkur
síðan. Nú er búið að leggja Félagsheimilasjóð
niður og ég tel næsta öruggt að ekki verði byggt
leikhús við Félagsheimilið. Þetta marka ég af því
að það er búið að þrengja að þessari byggingu á
margan veg, bílastæði eru ónóg og mér finnst alls
ekki líklegt að þarna verði byggt það leikhús sem
fyrirhugað var.“
- Er draumurinn um nýtt leikhús þá alveg
dáinn?
„Ég vil nú ekki segja það. Það má kannski
byggja leikhús annars staðar og Leikfélag
Reykjavíkur sýndi það vestur á Granda að það er
hægt að leika í skemmum, bara að húsrýmið sé
nóg. Salur þarf ekki að vera svo geipilega fínn,
svo hægt sé að leika þar, og sena ekki svo flott,
hún þarf bara að búa yfir því rými sem nauðsyn-
legt er til að leika á, og til að geyma leiktjöld
milli þátta.
Hins vegar viljum við að leikhúsgestir á Húsa-
; vík geti notið þess að vera í leikhúsi og að það
fari vel um þá. Ég játa það, að mér eru það sár
vonbrigði að ekki skyldi vera byggt við Félags-
heimilið. Ég er vel kunnugur þeirri vinnu sem allt
það fólk hefur lagt á sig sem nálægt leikstarfsemi
hefur komið, því það að koma upp stórri leiksýn-
ingu er geysileg vinna. Þó fólkið geri sér þetta til
dægrastyttingar finnst mér oft að tíminn sem í
. þetta fer þyrfti ekki að vera svona mikill, ef
aðstaðan væri betri. Ef leiksviðið og allt sem því
tilheyrir væri rýmra, væri þetta mikið auðveld-
ara. Þrátt fyrir alla þessa vinnu getur árangur
þarna aldrei verið eins góður og við vildum að
hann væri, og eins og hann gæti verið ef aðstæður
væru fyrir hendi með þeim starfsafla sem þarna
er. Ég er næsta viss um að það leikfélag er ham-
ingjusamt sem á yfir eins miklu af góðum starfs-
kröftum að ráða eins og Leikfélag Húsavíkur.
Það er synd fyrir Húsavík, að eiga þessa
starfskrafta sem eru reiðubúnir að fórna öllum
sínum frítíma, lungann úr vetrinum og vel það,
fyrir þessa starfsemi. Ef þessi starfsemi, leik-
starfsemi yfirleitt, og listin yfirleitt er einhvers
virði fyrir mannlíf á Húsavík, þá er það synd að
við skulum ekki bera gæfu til að geta búið betur
að þessari starfsemi og þessu fólki. Þó Samkomu-
húsið hafi verið gott svarar það engan veginn
þeim kröfum sem við gerum til sýninga í dag, svo
mikið hafa kröfur okkar aukist með tilkomu
sjónvarps og góðra leikhúsa."
Yetrar- og stórhríðarstarf
Sigurður er viljugri að ræða um aðstöðuleysi
félaganna í leikfélaginu, heldur en um eigin afrek
á sviði Samkomuhússins. Þó hann væri aðeins
búinn að vera einn vetur í Leikskóla Lárusar
Pálssonar þegar Galdra-Loftur var settur á svið,
þá lauk hann þaðan prófi eftir þriggja vetra nám,
sem stundað var jafnhliða námi í Kennaraskólan-
um.
„Það hagaði svo til að Leikskólinn var þá eftir-
miðdagsskóli og kvöldskóli, þetta kom niður á
heimanámi fyrir Kennaraskólann, en það varð að
hafa það. Ég kunni afskaplega vel við mig í Leik-
skóla Lárusar og fannst ég læra þar mikið, en
fann þó betur, löngu eftir að ég var farinn úr
skólanum, að þá var að koma til mín við hinar
ýmsustu aðstæður, ýmislegt sem Lárus sagði. Það
var alltaf hægt að gogga eitthvað upp úr vitund-
inni sem hann hafði sagt og þetta sýnir að hann
var frábær kennari. Þetta eru fleiri nemendur
hans sammála mér um, en því miður misstum við
hann of snemma."
- Hvaðan kom þér hvötin til að fara til leiklist-
arnámsins?
„Það voru leikarar á heimili mínu í bersku. Afi
minn, Helgi Flóventsson, lék mikið og var lengi
skemmtikraftur hér á Húsavík. Einnig lék móðir
mín og ég býst við að ég hafi orðið fyrir áhrifum
af því. Ég fékk snemma áhuga fyrir leikhúsi en á
þeim árum stóð ekki til að hægt væri að leggja
þetta fyrir sig sem atvinnu. Leikfélag Reykjavík-
ur var þá öðrum þræði áhugamannafélag og ég
tók þátt í sýningum þar sem stadisti, meðan ég
var í skólanunt hjá Lárusi, og hafði gaman af.
Þegar kom fram í maí og ég gekk yfir grasið á
Klambratúni, þá fór ég að fá heimþrá og fannst
útilokað að lokast inn í leikhúsi yfir sumarið,
fannst þetta frekar vera vetrar- og stórhríðar-
starf.“
Litlu hlutverkin krefjast oft meira
- Segðu mér frá starfinu með Leikfélagi Húsa-
víkur.
„Þrátt fyrir örðugar aðstæður á ég ágætar
minnigar frá starfinu í þessu gamla Samkomu-
húsi og langt í frá að ég vildi vera án þejrra minn-
inga. Það hefur oft verið talað um það að ef við
fengjum stærra hús, þá tapaðist þetta andrúms-
loft sem er í gamla húsinu. Þetta er auðvitað bull,
andrúmsloft eins húss er ekkert annað en andi
þeirra sem þar vinna, starfa og eru. Hús er vitn-
isburður um þá alúð sem lögð er í að gera það
vistlegt og aðlaðandi, og Leikfélag Húsavíkur er
sannarlega búið að gera mjög mikið í húsinu.“
Þau eru orðin mörg hlutverkin hans Sigurðar.
Flestir minnast líklega Tevje í Fiðlaranum á þak-
inu, en einnig man fólk Púntila vel, sýningarnar á
Júnó og páfuglinum og Tehúsi ágústmánans, og
herprestinn í Góða dátanum Sveik, svo fátt eitt
sé nefnt og ekki farið út fyrir svið Samkomuhúss-
ins. „Hlutverk sem ég hef leikið hafa í sjálfu sér
öll verið aðalhlutverk í mínum huga. Þau hafa
skipt mig mestu máli af hlutverkunum þegar ég
hef verið að leika þau og þá er alveg sama hvaða
hlutverk það eru. Það þarf að leika litlu hlutverk-
in engu síður en hin, þau krefjast oft miklu meira
og hafa færri orð til að koma sínum karakter til
skila og þrengri ramma.“
- Er eitthvað það verk á þínum ferli sem þér
finnst vænst um, eða sem þú telur þig hafa lært
mest af?
Hallmarsson
í hlutverki Tevje.
Fiðlarinn á pam.-
„Mér finnst ég hafa lært af þessu öllu, enþegar
upp er staðið veit ég ekki hvað ég hef lært. Ég hef
kannski lært það að við þurfum alltaf að eiga
vonina til að geta bætt okkur, og til að geta bætt
okkur þurfum við alltaf að leggja okkur fram, og
vera reiðubúin til að endurskoða unnið verk.
Mér hefur oft fundist sárt, kannski mánuði eftir
að ég hef leikið hlutverk, þegar ég sé að eitthvað
hefði auðvitað átt að gera öðruvísi en það var
gert, það hefði farið betur. Ég held að þetta nagi
alla sem fást við einhverskonar sköpun, það
kemur alltaf að tíma endurskoðunarinnar. Auð-
vitað hljóta allir að eiga sín góðu og slæmu
tímabil en þegar ég hætti að hafa gaman af því að
leika, þá ætla ég að hætta. Það sem við áhuga-
leikararnir höfum að gefa er leikgleðin, og það er
sú leikgleði sem oft hrífur menn með sér.“
- Er leiksýning ekki nokkurs konar spegill á líf-
ið og tilveruna, og ef svo er lærir þá leikhúsmað-
urinn ekki mikið um lífið og tilveruna, svona á
nokkrum áratugum?
„Jú, ætli það ekki. Leiksýning þvingar leikar-
ann til að hugsa um iífið og tilveruna frá þeim
sjónarhóli sem persónan sem hann er að túlka sér
hana. Því margvíslegri persónur sem við lendum
í að túlka, því margvíslegri sjónarhorn fáum við,
en að vísu í gegn um rithöfundinn. Þegar best
lætur erum við leidd í sannleikann um þessa
hluti, með aðstoð leikstjórans. En það er bara
sannleikurinn frá einni hlið."
Leikstjórastarfíð er krefjandi
Að loknu námi starfaði Sigurður eitt ár sem
kennari á Eskifirði og annað ár á Akureyri en
síðan kom hann til Húsavíkur, starfaði fyrst sem
kennari, síðan sem skólastjóri Barnaskólans,
ákvað að hætta 1987 en tók þá við fræðslustjóra-
stöðunni og gegndi því embætti í tvö ár.
Sigurður segir að sér hafi alltaf líkað vel að
kenna, og að við eigum góða krakka sem hlýi sér
oft með viðmóti sínu þegar hann mæti þeim á
götu. Þegar Siguður hætti sem skólastjóri ætlaði
hann að starfa við að aðstoða kennara í dreifbýl-
inu við að setja upp sýningar, m.a. fyrir árshátíð-
ir og skemmtanir í skólunum, en þá kom fræðslu-
stjórastaðan til.
Um tildrög uppsagnar sinnar sem skólastjóra,
segir Sigurður að leikstjórastarfið sé svo krefj-
andi, að einfaldlega sé ekki hægt að sinna öðru á
meðan. Sér hafi oft verið búið að falla ilía að vera
klofinn milli þess að vera kennari og leikstjóri.
„Mér fannst kominn tími til að velja annað
hvort, og mér fannst ég ekki geta íagt leik-
starfsemina á hilluna.“
í ágúst hélt Sigurður til Færeyja, þar sem hann
sviðsetti Síldin kemur-síldin fer, eftir Iðunni og
Kristínu Steinsdætur, í Klakksvík. Sýningin þótti
takast vel, metaðsókn hefur verið og verkið verið
sýnt milli 30-40 sinnum, og enn er verið að sýna
það. Sigurður er ekki alveg ókunnur síldar-
stemmningunni, hann var fjórar vertíðir á síld og
vann auk þess á síldarplaninu hjá Ugga, m.a.
með Ingimundi Jónssyni, og segir að þeir eigi
þaðan margar ánægjulegar minningar. „En ég
var ekki til sjómennsku fallinn. Ég var alltaf sjó-
veikur og með sjóriðu, en vinnan til sjós líkaði
mér vel og jannst veiðarnar spennandi og
skemmtilegar. Það hefur verið mér gott vega-
nesti sem leikstjóra hvað ég hef gripið í mörg
störf í þjóðfélaginu, en til slíks hafa kennarar
tækifæri á sumrin."
Get eiginlega hvergi verið
á frumsýningu
- Nú leikstýrir þú fjölmennustu leiksýningu sem
sett hefur verið upp á Húsavík, leikverki með
söngvum og dansi þar sem alls 47 flytjendur
koma fram.
„Til liðs við okkur hafa komið unglingar úr
Framhaldsskólanum, sem hafa starfað þar undir
ágætri leiðsögn Einars Þorbergs. Þegar við vinn-
um með þessu unga fólki finnum við hve ómetan-
legt starf það er sem hann vinnur þar í raun og
veru, því unglingarnir hafa brennandi áhuga til
þátttöku í svona sýningu og ég er viss um að
þarna erum við á réttri leið.
Ég hef trú á að þetta verk verði mikið sótt því
það er ótrúlega mikil fjölbreytni í þessari sýn-
ingu. Svona verk geta ekki aðrir skrifað en þeir
sem þekkja mjög vel möguleika leikhússins, og
Kjartan Ragnarsson hefur margoft sýnt hve mik-
ill leikhússmaður hann er. Mér finnst stórkost-
legt hve vel Atli Heimir nær stíl þessa tíma í
músíkinni. David Thompson sér um tónlistina og
það er ómetanlegt fyrir leikfélagið að fá slíkan
mann til samstarfs. Einar Þorbergsson sér um
dansana, og það er ánægjulegt fyrir félagið að fá
svo samvirka krafta til þessa átaks og ég er þeim
þakklátur fyrir samstarfið.“
- Hvernig líður leikstjóranum Sigurði Hall-
marssyni á frumsýningarkvöldi?
„Á frumsýningu vil ég helst ekki láta neinn sjá
hvernig mér líður. Ég vildi helst geta verið alls
staðar, en get eiginlega hvergi verið, og allra síst
í salnum.“ IM