Dagur - 27.03.1990, Blaðsíða 14

Dagur - 27.03.1990, Blaðsíða 14
14 - DAGUR - Þriðjudagur 27. mars 1990 Mikil og almenn ánægja með undanúrslit íslandsmótsins í bridds á Akureyri: Sýnir að hægt er að halda svo viðamildð mót utan Reykjavíkur Sveit Ásgríms Sigurbjörnsson- ar frá Siglutirði ver heiður Norðlendinga og landsbyggð- arinnar í úrslitakeppni Islands- mótsins í bridds, sem fram fer í Reykjavík um páskana. Sveit Ásgríms tryggði sér farseðil í úrslitin með glæsilegri spila- mennsku og sigri í D-riðli undanúrslitakeppninnar, sem eins og kunnugt er fór fram í AJþýðuhúsinu á Akureyri um helgina. Mótið gekk í alla staði mjög vel og var mál manna að væri mótshöldurum til mikils sóma. Urslit í undanúrslitakeppninni lágu fyrir á þriðja tímanum á sunnudag. í stórum dráttum má segja að þau hafi verið „eftir bók- inni“. Auk sveitar Ásgríms Sig- urbjörnssonar tryggðu eftirtaldar sveitir sér sæti í úrslitakeppninni um páskana: Sveit Samvinnu- ferða-Landsýnar Reykjavík, Modern Iceland Reykjavík, Ólafs Lárussonar Reykjavík, Tryggingamiðstöðvarinnar Reykjavík og Símonar Símonar- sonar Reykjavík. Auk þessara sex sveita hafa sveitir Flugleiða og Verðbréfa- markaðar íslandsbanka þegar tryggt sér sæti í úrslitakeppninni. Röð og árangur sveitanna í undanúrslitakeppninni var ann- ars sem hér segir: A-RIÐILL Samvinnuferðir-Landsýn, Reykjavík B.M. Vallá Reykjavík - segir Helgi Jóhannsson, forseti Bridgesambands fslands Brynjólfur Gestsson Suðurland 117 Jón Þorvarðarson Reykjavík i 15 Pálmi Kristmannsson Austurland 111 Valtýr Jónasson Norðurland vestra 78 Trésíld Austurland 66 Gunnlaugur Kristjánsson Reykjavík 65 B-RIÐILL Modern Iceland Reykjavík 139 Harðar bakarí Vesturland 119 Delta Reykjavík 118 Grettir Frímannsson Norðurland eystra 117 Örn Einarsson Norðurland eystra 108 Friðþjófur Einarsson Reykjanes 91 Einar Svansson Norðurland vestra 71 Þorsteinn Bergsson Austurland 70 C-RIÐILL Ólafur Lárusson Reykjavfk 161 Tryggingamiðstöðin Reykjavík 151 Sigmundur Stefánsson Reykjavík 105 Ármann J. Lárusson Reykjavík 103 Ólafur Steinarsson Suðurland 91 Kristinn Kristjánsson Vestfirðir 79 Hinir snjöliu briddsbræöur og synir úr sveit Ásgríms Sigurbjörnssonar frá Siglufiröi. Þeir félagarnir verja heiður Norðlendinga og landsbyggðarinnar í úrslitakcppni Islandsmótsins í sveitakeppninni í bridds í Reykjavík um pásk- ana. Efri röð frá vinstri: Bogi Sigurbjörnsson, Jón Sigurbjörnsson og Anton Sigurbjörnsson. Neðri röð frá vinstri: Ólafur Jónsson (Sigurbjörnssonar), Asgrímur Sigurbjörnsson og Steinar Jónsson (Sigurbjörnssonar). Steinar var yngsti briddsspilarinn á mótinu á Akureyri og hann verður yngsti spilari í úrslitum á íslandsmóti um margra ára skeið. Frá leik Tryggingamiðstöðvarinnar og Ármanns J. Lárussonar í sjöundu og síðustu umferð. Við spilaborðið eru landsliðsspilararnir Guðmundur Péturs- son og Ásmundur Pálsson og Oddur Hjaltason og Jón Hilmarsson. Helgi Jóhannsson, forseti Bridge- sambands Islands. Ragnar Jónsson Reykjanes 77 Guðlaugur Sveinsson Reykjavík 54 D-RIÐILL Ásgrímur Sigurbjörnsson Norðurland vestra 152 Símon Símonarson Reykjavík 147 Sveinn R. Eiríksson Reykjavík 115 Júlíus Snorrason Reykjavík 109 Þórarinn Andrewsson Reykjanes 90 Anton Lundberg Austurland 69 Ævar Jónasson Vestfirðir 64 Ormarr Snæbjörnsson Norðurland eystra 63 Vel skipulagt mót Spilaðar voru sjö umferðir í undanúrslitakeppninni, tvær á fimmtudag, föstudag og laugar- dag og ein á sunnudag. Að sögn mótshaldara gekk mótið mjög vel og lögðu fjölmargir leið sína í Alþýðuhúsið til að fylgjast með skemmtilegri og spennandi keppni. Agnar Jörgensen frá Reykjavík var keppnisstjóri en um framkvæmd mótsins sá Bridgefélag Akureyrar í sam- vinnu við Bridgesamband íslands. Dagur hitti Helga Jóhannsson, forseta Bridgesambands íslands og forstjóra Samvinnuferða- Landsýnar, að máli eftir síðustu umferðina á sunnudag og innti hann eftir því hvernig honum hefði þótt til takast í fyrsta skipti sem undanúrslitakeppni íslands- mótsins í bridds er haldin utan Reykjavíkur. „Mér finnst mótið hafa gengið mjög vel,“ sagði Helgi. „Auðvit- að var maður svolítið uggandi því fiskborö með hreint ótrúlegu úrvali af fiski Ýsa ★ Þorskur ★ Lúða ★ Lax ★ Skötuselur ★ Tindabykkja ★ Blálanga ★ Rauðspretta ★ Fiskfars ★ Rækjufars ★ Ýsa í rækjusósu ★ Ýsa í humarsósu ★ Gráðostfyllt stórlúða ★ Fiskipaté, 4 tegundir. Matreiðslumenn gefa góðar ráðleggingar. Lágt vöruverð • Góð þjónusta WS4 KEA Hrísalundi Opið mánudaga, þriðjudaga, miðvikudaga, fimmtudaga frá kl. 9-18. Föstudaga frá kl. 9-19. Laugardaga frá kl. 10-14. Verið velkomin. óneitanlega var ákvörðun um að flytja mótið út á land mikið gagnrýnd. En allir þeir sem ég hef rætt við eru mjög ánægðir nteð hvernig til hefur tekist. Mót- ið var vel skipulagt og vel að öll- um hlutum staðið. Ég tel að það skemmtilegasta við þetta mót hafi verið það að hér voru menn saman allan tímann. Á mótum í Reykjavík tvístrast hópurinn að aflokinni hverri umferð. Hér höfðu rncnn betra tækifæri til aö kynnast og spjalla í friði. Þetta hafði í för með sér að spila- mcnnska var betri en ella.“ Helgi sagði að þetta mót sýndi og sannaði að sú ákvörðun stjórnar Bridgesantbandsins að flytja undanúrslitakeppnina norður til Akureyrar hafi verið rétt og hann væri sannfærður um að menn minntust hennar með ánægju einmitt vegna þess að hún hafi verið haldin utan höfuðborg- arsvæðiðsins. „Audvitað tókum við áhættu“ „Auðvitað tókum við áhættu og við gátum lent í vondu máli ef veðurguðirnir hefðu sett stór strik í reikninginn. En mérfinnst mest um vert að með þessu sönnuðum við að það er hægt að halda svo viðamikil mót annars staðar en í Reykjavík og í öðru lagi að fá upp vitund manna á því hver sé kostnaður utanbæjar- manna að sækja mót í Reykja- vík. Spilarar í Reykjavík hafa aldrei hugleitt þetta. Mér finnst út af fyrir sig árangur að heyra frá mönnum, sem aldrei hafa verið tilbúnir að styrkja utanbæjar- menn til þátttöku í mótum í Reykjavík, að þeir hafi nú skipt um skoðun.“ Spilamennskan í undanúrslita- keppninni var að sögn Helga nokkuð góð. Hann segir að briddsinn hafi verið í nokkurri lægð, cn nú megi merkja að menn séu að snúa vörn í sókn. Hann segir að endurnýjun hafi verið of hæg, of fáir ungir spilarar leysi þá gömlu af. „Mér hefur fundist mjög ánægjulegt að sjá fullt af ungu fólki fylgjast með keppninni. Borið saman við Reykjavík var miklu meira af ungu fólki hér í hópi áhorfenda. Staðreyndin er sú að hingað komu rniklu fleiri áhorfendur en Reykvíkingarnir gerðu sér grein fyrir. Þeir töldu að hér kæmi eng- inn og mótið yrði því steindautt. Þeir höfðu mjög rangt fyrir sér, sem því er að þakka að mótið var mjög vel kynnt í fjölmiðlum af þeim sem skipulögðu mótið. Ég leyfi mér að fullyrða að þetta mót hafi ekki fengið jafn góða kynn- ingu í mörg ár. Hefði mótið verið haldið í Reykjavík hefði það ekki þótt nein frétt.“ Forseti Bridgesambandsins stýrði sveit Samvinnuferða-Land- sýnar eins og herforingi og leiddi hana til yfirburðasigurs í A-riðli. „Ég er mjög sáttur við okkar frammistöðu. Við vorum komnir með ótrúlega góðan árangur þeg- ar við áttum tvær setur eftir og gátum tekið lífinu með nokkurri ró.“ Helgi sagði að árangur Siglfirð- inganna hefði ekki komið sér á óvart. Þeir hefðu lengi verið í fremstu röð og tveir kornungir spilarar í sveitinni væru stórefni- legir og ættu örugglega eftir að ná langt og spila í landsliði. óþh

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.