Dagur


Dagur - 03.04.1990, Qupperneq 2

Dagur - 03.04.1990, Qupperneq 2
2 - DAGUR - Þriðjudagur 3. apríl 1990 fréttir i Hafísinn lokar hefðbundnum siglingaleiðum: Mánafoss varð að snúa við út af Straumnesi á leið til Akureyrar Mánafoss, strandflutningaskip Eimskipafélags Isiands, kom til Akureyrar snemma á I sunnudagsmorgun eftir óvenjulega siglingu. Skipið átti | samkvæmt áætlun að koma til Akureyrar á föstudagsmorgun, en þegar Mánafoss var staddur úti fyrir Straumnesi varð að snúa honum við vegna hafíss og sigla suður og austur fyrir landið, til Akureyrar. Petta er í annað skiptið í vetur sem Mánafoss verður að snúa við vegna hafíss á leið til Akureyrar, en fyrra tilvikið var urn jólaleyt- ið. Að öðru jöfnu heyrir það til sjaldgæfra undantekninga að skipið haldi ekki áætlun, en starfsfólk Eimskipafélagsins legg- ur sig fram um að erfiðleikar eins og af völdum hafíss bitni ekki á þjónustunni við landsbyggðina. Arngrímur Guðjónsson, skip- stjóri á Mánafossi, segir að þeir hafi farið frá Reykjavík á mið- vikudagskvöld áleiðis til Isafjarð- ar með viðkomu í Ólafsvík, en þá hafði brottför tafist um einn dag vegna suðvestan roks. Eftir að skipiö hafði losað vörur á ísafirði var leiðinni heitið til Akureyrar, en þegar Mánafoss var staddur út af Straumnesi um kl. 19.00 á fimmtudagskvöld var þar þéttur og þykkur ís. ístungan var komin út að Bolungarvík, en mílurenna var opin við Stigahlíð. Par komst Mánafoss í gegn, en auk þess var mílu breið renna við Barða, og þar var farið í gegn. „Þetta mátti varla seinna vera, tel ég, að við snérum við út af Straumnesi. Þá hófst sigling suð- ur fyrir landið, því fréttir stað- festu að allt væri orðið ófært og útlitið ekki gott næstu daga. Við komum að Dyrhólaey kl. 18.00 á föstudag, voru úti fyrir Skrúð kl. 9.00 á laugardag og komum að Hrísey kl. 3.45 á sunnudags- morgun. Að öllu eðlilegu hefðum við átt að vera komnir til Akur- eyrar á föstudagsmorgun, en töfðumst um tvo sólarhringa vegna hafíssins,“ segir Arngrím- ur skipstjóri. Venjuleg eða bein siglingaleið frá ísafirði til Akureyrar er 169 sjómílur, en leiðin sem Mánafoss varð að fara að þessu sinni er 728 sjómílur. Arngrímur Guðjónsson hefur starfað í 45 ár hjá Eimskip. Hann byrjaði sem háseti á gantla Brú- arfossi árið 1945, fór í Stýri- mannaskólann 1948-'50 og hefur eftir það verið skipstjóri og stýri- maður á mörgum skipum félags- ins. Hann tók við Mánafossi í fyrra, en þar á undan var Arn- grímur skipstjóri á Dettifossi, í Eystrasaltssiglingum. „Mánafoss er gott og lipurt skip og hentar einkar vel til strandferða,“ segir hann. EHB Arngrímur Guújónsson skipstjóri í brúnni. Mynd: ehb Stjórn Slippstöðvarinnar: Fiskveiðasjóður brást hlutverki sínu Sauðárkrókur: Togaramir Skafti og Skag firðingur fyrir vestan „Stjóm Slippstöðvarinnar tel- ur afgreiðslu Fiskveiðasjóðs á máli Meleyrar h.f. óeðlilega og að svo virðist sem gert sé upp á milli útgerða eftir því hvort verið er að sækja um lán til smíða á skipi innanlands eða erlendis,“ segir í ályktun stjórnar Slippstöðvarinnar á Akureyri sem kom saman til fundar síðastliðinn föstudag. Stjórn stöðvarinnar ræddi þá nýju stöðu sem komin er upp í sölumálum á raðsmíðaskipi stöðvarinnar eftir að Meleyri á Hvammstanga hætti við að kaupa skipið. í tilkynningu frá stjórn- inni segir að Fiskveiðasjóður hafi helgi var sjö starfsmönnum úti- bús Kaupfélags Eyfírðinga á Dalvík sagt upp störfum síðast- liðinn fimmtudag. Að sögn Rögnvaldar Skíða Friðbjörns- sonar, útibússtjóra á Dalvík verður breyting á skrifstofu- haldi bæði á bifreiðaverkstæði sett Slippstöðinni og Meleyri ýmis önnur skilyrði en þau að Meleyri greiddi 22% af óskiptum afla til stofnfjársjóðs fiskiskipa og greiddi þegar í stað öll vanskil við Fiskveiðasjóð. Þessi skilyrði hafi orðið til þess að fyrirtækið hvarf frá kaupum og standi Slipp- stöðin nú uppi verkefnalaus til næstu mánaðamóta. „Stjórn Slippstöðvarinnar hef- ur ekki fengið viðhlítandi skýringar á afgreiðslu Fiskveiða- sjóðs og á meðan þær koma ekki fram verður stjórn Slippstöðvar- innar að álykta að Fiskveiðasjóð- ur hafi í þessu máli brugðist hlut- verki sínu,“ segir í ályktun stjórnarinnar. JÓH og í útibúinu sjálfu. Á skrifstofu útibúsins var sagt upp skrifstofustjóra og tveimur starfsmönnum öðrum. Eftir breytingarnar fer útibússtjóri með stjórn skrifstofunnar. Til viðbótar var einum starfsmanni útibúsins sagt upp. Breyting verður ennfremur Togararnir Skafti SK-3 og Skagfirðingur SK-4 hafa aflað vel að undanförnu. Skafti var með hundrað og fímmtán tonn og Skagfírðingur með hundrað og fimm í gærdag. Verra er að siglingaleiðin fyrir Vestfirði er lokuð af hafís og því óvissa um hvar þeir landa afla sínum. gerð á stjórn Bílaverkstæðis Dal- víkur. Staða forstöðumanns verður lögð niður og ennfremur var sagt upp tveimur öðrunt starfsmönnum verkstæðisins. Stjórn verkstæðisins verður eftir þessar skipulagsbreytingar í höndum verkstjóra deildanna, í samvinnu við útibússtjóra. JÓH Skagfirðingur á löndunardag á Sauðárkróki á föstudag og Skafti á mánudag. Ef hafísinn rekur ekki frá siglingaleiðinni fyrir Vestfirði er ólíklegt að togararnir landi í heimahöfn. Hegranes SK-2 er á leiðinni til Þýskalands með 190 tonna afla. Hegranesið á söludag þann sjötta og búast má við að hátt verð fáist fyrir aflann eins og jafnan í páskaföstunni. Drangey SK-1 er á leið á miðin og fer væntanlega austur fyrir land vegna hafíssins fyrir vestan. kg Uppsagnir hjá ÚKEA á Dalvík: Breytingar á stjóm skrif- stofu og bflaverkstæðis Eins og fram kom í Degi fyrir Aðalfundur Kaupmannafélags Akureyrar og nágrennis: Kostnaður vegna greiðslukortaviðskipta baráttumál Aðalfundur Kaupmannafélags Akureyrar og nágrennis var haldinn sl. laugardag. A fund- inum var Ragnar Sverrisson endurkjörinn formaður og sömuleiðis stjórn hans, en hana skipa þeir Jón Ellert Lár- usson, Þorsteinn Thorlacíus, Hrafn Hrafnsson og Birkir Skarphéðinsson. Að sögn Ragnars Sverrissonar formanns, mættu á fundinn full- trúar frá Vátryggingafélagi Islands og Kaupmannasamtökum Islands og kynntu samning sem gerður hefur verið milli þessara aðila á ákveðinni pakkatrygg- ingu. Fyrir utan venjuleg aðal- fundarstörf var sömuleiðis rætt unt mikilvægi þess að lagafrum- vörp um breytingar á lögum um greiðslukortaviðskipti verði afgreidd sem fyrst, en þau gera m.a. ráð fyrir að ná kostnaði vegna þessara viðskipta niður þannig að viðskiptavinurinn taki meiri þátt í honum. Um 70 aðilar eru félagsmenn í Kaupmannafélagi Akureyrar og nágrennis og eru það kaupmenn af öllu Eyjafjarðarsvæðinu. VG Akureyri: Bæjarmála- punktar ■ Jafnréttisnefnd leggur til að höfðu samráði við STAK, að Guðríður Adda Ragnars- dóttir sálfræðingur verði ráðin í stöðu jafnréttis- og fræðslu- fulltrúa. Bæjarráð hefur sam- þykkt tillögu nefndarinnar. ■ Bæjarráð hefur falið bæjar- stjóra aö ganga til santninga við ábúendur jarðarinnar Ytra- Krossaness um kaup Akureyr- arbæjar á eignarhluta þeirra í jörðinni. ■ Bæjarráði hefur boxist . erindi frá verkefninu; Brjótum múrana, þar sem boðað er til íslenskrar lokaráöstefnu verk- efnisins dagana 20. og 21. apríl n.k. og er bæjarfulltrúum boðið að sækja ráöstefnuna sem fram fer í Álþýðuhúsinu á Akureyri. ■ Stjórn vcitustofnana hefur borist erindi, þar sem farið er fram á að Útgerðarfélag Ak- ureyringa fári keypta umfram- orku frá R.A. til upphitunar á húsnæði og neysluvatni unt nætur og helgidaga. Formanni stjórnarinnar var falið að taka upp viðræður við ÚA um þessi mál. ■ Stjórn veitustofnana hefur einnig borist erindi frá Raf- tákni h.f. fyrir hönd Mjólkur- samlags KEA, um möguleika á að fá keypta raforku á afgangsorkutaxta til gufufram- leiðslu. Rafveitustjóra var fal- ið að vinna að þessu máli. ■ Menningarmálanefnd hef- ur samþykkt í framhaldi af til- lögu Valgarös Stefánssonar um starfslaun bæjarlista- manns, að auglýsa eftir umsóknum um starfslaun í 6 mánuði, frá 1. júlí að telja. Um þessi staríslaun geta að- eins sótt listamenn búsettir og starfandi á Akureyri. ■ Menningurináluncfnd hcf- ur borist bréf frá Kristni G. Jóhannssyni listmálara, þar sem hann tilkynnir gjöf á mál- verki sínu af Einari Kristjáns- syni rithöfundi frá Hermund- arfelli, nteð ósk um að lista- verkið verði varðveitt á Amts- bókasafni. ■ Skólanefnd hcfur verið kynnt bréf frá kennurum við Barnaskóla Akureyrar til bæjarstjórnar, þar sem þeir lýsa óánægju sinni með hversu litlum fjármunum er áætlað að verja til viðhalds og cndurnýj- unar í skólanum árið 1990. ■ Skólanefnd hefur borist erindi frá unglingaráði hesta- mannafélagsins Léttis, varð- andi kennslu í hestamennsku sem valgrein í 9. bekk grunn- skólans. Nefndin samþykkir að bcina því til þeirra skóla sem cru rneð unglingadeildir aö þcir kanni, í samráði við ungiingaráð Léttis, möguleika á að bjóða upp á slíktt valgrein í 9. bekk. ■ Umhverfísnefnd hefur að uppfylltum vissum skilyrðum sem landbúnaðarráöuneytið setur, lagt blessun sína yfir umsókn Ferðaskrifstofu Akur- eyrar um að koma á laxveiði í Leirutjörn.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.