Dagur - 03.04.1990, Side 7
I
Þriðjudagur 3. apríl 1990 - DAGUR - 7
Auður Hjaltudótlir varð íslandsineistari í vaxtarrækt um hclgina. Auður
hefur aðeins stundað vaxtarrækt í 15 mánuði. Mynd: ki
Blak:
íslandsmótið í vaxtarrækt:
Tveir titlar norður
- Auður og Anna Birna íslandsmeistarar í sínum flokkum
Ef farið er yfir árangur Akur-
eyringanna þá urðu þær Auður
og Hanna Birna íslandsmeistarar
í sínum flokkum eins og fyrr
segir, Anna Pétursdóttir varð
önnur í -52 kg flokki og Jón
Norðfjörð annar í -80 kg flokki.
Að auki var Auður í 2. sæti í
heildarkeppni kvenna og Anna í
3. sæti.
Keppt var í fjórum karlaflokk-
um og þremur kvennaflokkum.
Kristján Ársælsson frá Reykjavík
varð sigurvegari í -70 kg flokki og
hann fékk einnig verðlaun fyrir
bestu sviðsframkomuna. Gestur
Helgason frá Reykjavík sigraði í
-80 kg flokki en sá flokkur var
rnjög sterkur og fjölmennur að
þessu sinni. f -90 kg flokki sigraði
Guðmundur Bragason frá
Reykjavík eftir harða keppni og
hann varð einnig íslandsmeistari
í opnum flokki. Loks varð ívar
Hauksson frá Reykjavík íslands-
meistari í +90 kg flokki.
Hjá konunum varð Inga Stein-
grímsdóttir úr Reykjavík sigur-
vegari í +57 kg flokki og hún
sigraði einnig í heildarkeppni
kvenna eftir harða keppni við
Auði Hjaltadóttur.
Óvenju fáir Akureyringar tóku
þátt í mótinu að þessu sinni en
þeir hafa yfirleitt átt 30-40% af
keppendunum á íslandsmótinu.
Sem dæmi um hvílíkt stórveldi
Akureyri hefur verið í vaxtar-
ræktinni á síðustu árum má nefna
að eftir mótið í fyrra höfðu Akur-
eyringar unnið 43% af öllum titl-
um frá upphafi. Reikna má með
að það hlutfall raskist eitthvað nú
þar sem svo fáir þátttakendur
voru frá Akureyri að þessu sinni.
Akureyringar náðu ágætum
árangri á íslandsmótinu í vaxt-
arrækt sem fram fór í Reykja-
vík á sunnudaginn. 4 keppend-
ur frá Akureyri tóku þátt í
mótinu og og kræktu þeir í 2
gullverðlaun og 3 silfurverð-
laun. Auður Hjaltadóttir varð
,íslandsmeistari í -52 kg flokki
og Hanna Birna Sigurbjörns-
dóttir í -57 kg flokki. Auður
sigraði sem kunnugt er í
keppni í B-flokki fullorðinna
sem fram fór á Akureyri fyrir
rúmri viku.
Friðjón Jónsson reynir hér undirhandarskot að marki KR. Páll Ólafsson er
til varnar. Mynd: kl
Handknattleikur, 1. deild:
Þriðji KA-sigurinn í röð
Sigur og tap hjá
KA gegn Breiðabliki
draumurinn um sæti í úrslitum bikarkeppninnar úr sögunni
sögðu til sín hjá KA-liðinu. Þeg-
Staða KA-liðsins í 1. deildinni
í handknattleik vænkaðist enn
um helgina þegar liðið vann
sinn þriðja sigur í röð, að þessu
sinni gegn KR. Leikurinn fór
fram í íþróttahöllinni á Akur-
eyri og lauk honum með
þriggja marka sigri heima-
manna, 22:19. Sigurinn var
tvímælalaust verðskuldaður en
að sama skapi ekki jafn örugg-
ur og tölurnar gætu gefið til
kynna.
KA-liðið byrjaði mjög vel og á
tímabili leit jafnvel út fyrir að
stórsigur þess væri í uppsiglingu.
Liðið náði fljótlega þriggja
marka forystu, 4:1, en þá tóku
KR-ingar við sér. Munurinn var
síðan 3-4 mörk alveg til loka hálf-
leiksins en þá kom slæmur katli
hjá KA-mönnum sem KR-ingar
nýttu sér til að minnka muninn í
eitt mark fyrir hlé, 11:10.
KR-ingar skoruðu fyrsta mark-
ið í síðari hálfleik en KA-menn
náðu forystunni á ný og héldu
henni fram í miðjan hálfleikinn
en þá jöfnuöu KR-ingar aftur,
16:16. Þá upphófst mikið tauga-
stríð sem KÁ-menn unnu, þeir
léku skynsamlega síðustu mínút-
urnar og uppskáru sigur.
Þrátt fyrir sigur er ekki hægt að
segja að KA-liðið hafi átt góðan
dag. Axel Stefánsson var besti
maður liðsins, varði að vísu lítið í
fyrri hálfleik en hrökk í gang í
þeim seinni og varði þá 10 skot,
þar af eitt víti. Pétur Bjarnason
átti stórleik í fyrri hálfleik en
hvarf algerlega í þeim seinni en
þá tók Erlingur Kristjánsson við
og dreif liðið áfram með stórgóð-
um leik jafnt í sókn sem vörn.
KR-liðið var slakt og flaut
algerlega á tveimur mönnum,
þeim Páli Ólafssyni og Stefáni
Kristjánssyni. Varnaleikur liðsins
var ótrúlega lélegur framan af
leiknum en batnaði þegar á leið.
Reyndar var sóknarleikurinn
heldur ekki upp á marga fiska
framan af sem sést kannski best á
því að liðið skoraði aðeins eitt
mark fyrstu 12 mínútur leiksins.
Páll var yfirburðamaður í liðinu
og Stefán skoraði drjúgt en aðrir
voru slakir.
Dómarar voru Gísli Jóhanns-
son og Hafsteinn Ingibergsson og
vantaði mikið upp á að þeir réðu
við hlutverk sín.
Mörk K.A: Erlingur Kristjánsson 7/2,
Pétur Bjarnason 5, Friðjón Jónsson 4,
Karl Karlsson 3, Jóhannes Bjarnason 2
og Sigurpáll Árni Aðalsteinsson 1.
Mörk KR: Páll Ólafsson 7/1, Stefán
Kristjánsson 7/2, Sigurður Sveinsson 2,
Konráð Ólafsson 1, Guðmundur Pálnta-
son 1 og Þorsteinn Guöjónsson 1.
Kvennalið KA í blaki lék um
helgina tvo leiki gegn Breiða-
bliki, annan í íþróttahúsi Gler-
árskóla á föstudagskvöld og
hinn í íþróttahöllinni á Akur-
eyri á laugardag. Fyrri leikur-
inn var liður í undanúrslitum
Bikarkeppninnar í blaki en sá
seinni síðasti leikur liðanna í
úrslitakeppni 1. deildar. Liðin
deildu sigrunum bróðurlega en
segja má að KA-liðið hafi unn-
ið „vitlausan“ leik því það
hafði fyrst og fremst ætlað sér
að sigra í bikarleiknum og
komast þannig í úrslit. $á leik-
ur tapaðist hins vegar en það
var bót í máli að sigur vannst í
seinni leiknum og var það
fyrsti sigur KA á Breiðabliki í
vetur.
Breiðablik vann fyrstu hrinu í
bikarleiknum 15:8 en þá fóru
KA-stúlkurnar í gang og unnu
næstu tvær, 15:10 og 15:7. KA
komst síðan í 12:8 í fjórðu hrin-
unni og sigur var í sjónmáli en þá
fóru taugarnar að segja til sín,
Breiðablik náði að jafna og vinna
síðan 16:14. Fimmta hrinan var
jöfn framan af en í lokin seig
Breiðablik fram úr og sigraði
15:12.
KA-liðið hefði allt eins átt sig-
ur skilið í þessari viðureign.
Reynsluleysið sagði hins vegar til
sín, taugarnar þoldu ekki álagið
þegar mest á reið og því fór sem
fór.
Leikurinn á laugardaginn var
um margt líkur þeim fyrri. KA
vann fyrstu tvær hrinurnar, 15:12
og 17:15 en Breiðablik vann
næstu tvær, 15:5 og 15:11. Þá
vaknaði KA-liðið til lífsins á ný
og vann sannfærandi sigur í síð-
ustu hrinu, 15:7.
Enn voru það taugarnar sem
ar leikurinn hófst var í raumnni
engin pressa á liðinu þar sem
leikurinn skipti í sjálfu sér engu
máli. Allt gekk því vel framan af
en þegar grillti í 3:0 sigur varð
pressan of mikil og Breiðablik
náði undirtökunum. KA-liðið
náði þó að rétta úr kútnum í lok-
in og það réði úrslitum.
Karitas Jónsdóttir smassar hér yfir netið.
Mynd: KL