Dagur - 03.04.1990, Side 15

Dagur - 03.04.1990, Side 15
Þriðjudagur 3. apríl 1990 - DAGUR - 15 myndasögur dags (L ARLANP Allt i lagi til- Er þetta ekki raunafélagi... róman- Fyrsta verkefn- tískt?... 1 iö okkar er að ÍTilrauna- , kryfja frosk.y félagar! ~ ' <1 4 ANDRÉS ÖND HERSIR BJARGVÆTTIRNIR ... ég skal ná þessum hvitu górillum fyrir þig! En ég þarf tryggingar... Allan' kostnaö auk venjulegu greiðslunnar, finn þær eöa ekki! T Cárr! Þetta er' # Ekkert apríl- gabb í Degi Ekki áttum við á Degi þess kost að spila svolítið með lesendur blaðsins þann 1. apríl s.l. Við vorum svo oheppin að daginn bar uppá sunnudag og Dagur kemur ekki út á sunnudögum eins og flestum er kunnugt. Það hefur löngum verið venja hjá fjölmíðlum að láta lands- menn hlaupa 1. apríl. Ríkis- útvarpið og Sjónvarpið voru með sömu aprílfréttina og varð það örugglega til þess að gera hana trúverðugri. Var sagt frá skemmdum á Bessastaðastofu í jarð- skálftunum um daginn og þeirri hugmynd að hætta við endurbætur á stofunni en byggja þess í stað nýja gler- höll undir forseta vorn. Þá skilst umsjónarmanni S&S að Stöð 2 hafi sagt frá bílakaupum ráðherra og ákvörðun þeirra að skipta á ameriskum eðalvögnum yfir í tékkneska Skoda Favorit. Sú frétt hefði mátt vera sönn. # Enn er rifist um Þjóðleik- húsið Þeir eru enn að rífast út af Þjóðleikhúsinu fyrir sunn- an. Nú hefur verið lögð fram þingsályktunartillaga þess efnis að hætt verði við að breyta svölum og sal húss- ins. Þess í stað fari fram nauðsynlegt viðhald og við- gerðir á húsinu og aðgengi fyrir fatlaða verði bætt. Þ^ verði kappkostað að þessar aðgerðir hafi sem minnsta röskun í för með sér á starf- semi hússins. Það virðist ætla að verða erfitt fyrir menningarpostul- ana fyrir sunnan að komast að samkomulagi um fram- kvæmdir við húsið. Umsjón- armaður S og S leggur til að Þjóöleikhúsið verði rifið og lóðin notuð undir bílastæði fyrir Ijósmyndastofuna gegnt húsinu. Þá þyrfti ekki að rífast meira um hvaða lagfæringar ætti að gera á húsinu og allir yrðu ánægð- ir. - Og um leið myndu bíla- stæðamál í miðborginni batna til muna. # Erfiður vetur senn að baki Veturinn hér á Akureyri hef- ur verið ótrúlega leiðinleg- ur, enda veðrið verið með allra leiðinlegasta móti. Flugsamgöngur hafa geng- ið mjög brösuglega framan af vetri og þá sérstaklega um helgar. Ferðamenn hafa átt erfitt með að komast til bæjarins og þeir sem hafa komist, hafa þá átt erfitt með að komast aftur til sinna heimkynna. En framundan er sumarið og vonandi fáum við Norðlendingar gott sum- ar og marga ferðamenn í heimsókn, jafnt innlenda sem erlenda. dagskrá fjölmiðla Sjónvarpið Þriöjudagur 3. apríl 17.50 Súsí litla (4). (Susi.) 18.05 Æskuástir (6). (Forelska.) 18.20 íþróttaspegill (7). 18.50 Táknmálsfréttir. 18.55 Yngismær (83). 19.20 Bardi Hamar. 19.50 Bleiki pardusinn. 20.00 Fréttir og veöur. 20.35 Tónstofan. Magnús Einarsson spjallar vid Braga Hlíðberg harmónikuleikara sem leikur nokkur lög á nikkuna. 21.00 Lýðræöi i ýmsum löndum. (Struggle for Democracy.) Fyrsti þáttur. Ný kanadísk þáttaröð í 10 þáttum. Umsjónarmaður þáttanna, Patrick Watson, leitar svara við spurningum eins og: Hvar hófst lýðræðið, hvernig gengur það fyrir sig, veikleikar þess og framtíðar- horfur? 21.55 Nýjasta tækni og visindi. Sýnd verður m.a. mynd um jarðfræðikort af íslandi. 22.05 Mannaveiðar. (The Contract.) Fyrsti þáttur. Bresk njósna- og spennumynd í þremur þáttum, byggð á sögu Geralds Seymours. Aðalhlutverk: Kevin McNally, Bernard Hepton og Hans Caninenberg. Kaldastríðsátök þar sem meginmarkmið- ið er að ná austur-þýskum visindamanni lifandi vestur yfir járntjald. 23.00 Ellefufréttir. 23.10 Umræöuþáttur - Streita. Fjórði apríl verður sérstakur heilbrigðis- dagur undir kjörorðinu streitulaus dagur. Umræðum stjórnar Ragnheiður Davíðs- dóttir. 23.50 Dagskrárlok. Stöð 2 Þriðjudagur 3. apríl 15.30 Of margir þjófar. (Too Many Thiefs.) Hörkugóð spennumynd með úrvals leikurum. Aðalhlutverk: Peter Falk, Britt Ekland, David Carradine og Joanna Barnes. 17.05 Santa Barbara. 17.50 Jógi. (Yogi’s Treasure Hunt) 18.10 Dýralíf í Afríku. (Animals of Africa.) 18.35 Bylmingur. 19.19 19:19. 20.30 Skiðastjörnur. Allir komnir á skíðin og i skóna? Stjörn- urnar eru líka rétt að leggja i brekkurnar. Handrit og kennsla: Þorgeir Daníel Hjaltason. 20.40 A la Carte. Þá er hann Skúli Hansen kominn aftur í eldhúsið hjá okkur hérna á Stöð 2. í kvöld ætlar hann að matreiða kjúklinga- lifur, eldsteikta í koníaki, sem forrétt og ofnbökuð rauðsprettuflök i ölsósu í aðal- rétt. 21.15 Við erum sjö. (We Are Seven.) 22.10 Hunter. 23.00 Tíska. (Videofashion.) 23.30 Algjörir byrjendur. (Absolute Beginners.) Bráðfjörug mynd með vinsælli tónlist. Aðalhlutverk: David Bowie, James Fox, Patsy Kensit, Eddie O’Connell, Sade Adu og Steven Berkoff. 01.10 Dagskrárlok. Rás 1 Þriðjudagur 3. april 6.45 Veðurfregnir • Bæn. 7.00 Fréttir. 7.03 í morgunsárið. - Baldur Már Arngrímsson. Fréttayfirlit kl. 7.30 og 8.30, fréttir kl. 8.00 og veðurfregnir kl. 8.15. Auglýsingar laust fyrir kl. 7.30, 8.00, 8.30 og 9.00. 9.00 Fréttir. 9.03 Litli barnatíminn: „Eyjan hans Múmínpabba" eftir Tove Jansson. Lára Magnúsardóttir les (22). 9.20 Morgunleikfimi. 9.30 Landpósturinn - Frá Vestfjörðum. Umsjón: Finnbogi Hermannsson. 10.00 Fréttir. 10.03 Neytendapunktar. 10.10 Veðurfregnir. 10.30 Ég man þá tið. Hermann Ragnar Stefánsson kynnir lög frá liðnum árum. 11.00 Fréttir. 11.03 Samhljómur. 11.53 Á dagskrá. 12.00 Fréttayfirlit • Auglýsingar. 12.10 Hver á fiskinn í sjónum? Fyrsti þáttur af sex um kvótafrumvarpið: Verndun og nýting fiskistofnanna. Umsjón: Guðrún Eyjólfsdóttir. 12.20 Hádegisfréttir. 12.45 Veðurfregnir • Dánarfregnir • Aug- lýsingar. 13.00 í dagsins önn - Hvað finnst þroska- heftum? Umsjón: Guðrún Frímannsdóttir. (Frá Akureyri) 13.30 Miðdegissagan: „Spaðadrottning“ eftir Helle Stangerup. Sverrir Hólmarsson les eigin þýðingu (3). 14.00 Fréttir. 14.03 Eftirlætislögin. Svanhildur Jakobsdóttir spjallar við Jör- und Guðmundsson sem velur eftirlætis- lögin sin. 15.00 Fréttir. 15.03 Vídalínspostilla sem aldarspegill. 15.45 Neytendapunktar. 16.00 Fréttir. 16.03 Dagbókin. 16.08 Þingfréttir. 16.15 Veðurfregnir. 16.20 Barnaútvarpið. 17.00 Fréttir. 17.03 Tónlist á siðdegi - Schubert og Beet- hoven. 18.00 Fréttir. 18.03 Að utan. Fréttaþáttur um erlend málefni. 18.10 Á vettvangi. 18.30 Tónlist • Auglýsingar • Dánarfregnir. 18.45 Veðurfregnir • Auglýsingar. 19.00 Kvöldfréttir. 19.30 Auglýsingar. 19.32 Kviksjá. 20.00 Litli barnatíminn. 20.15 Tónskáldatími. 21.00 Innhverf ihugun. 21.30 Útvarpssagan: „Ljósið góða“ eftir Karl Bjarnhof. Arnhildur Jónsdóttir les (11). 22.00 Fréttir. 22.07 Að utan. Fréttaþáttur um erlend málefni. 22.15 Veðurfregnir • Dagskrá morgun- dagsins. 22.20 Lestur Passíusálma. Ingólfur Möller les 43. sálm. 22.30 Leikrit vikunnar: „Ég heiti Lísa“ eft- ir Erling E. Halldórsson. 23.15 Djassþáttur. - Jón Múli Árnason. 24.00 Fréttir. 00.10 Samhljómur. 01.00 Veðurfregnir. Rás 2 Þriðjudagur 3. april 7.03 Morgunútvarpið - Úr myrkrinu, inn í ljósið. Leifur Hauksson og Jón Ársæll Þórðarson hefja daginn með hlustendum. 08.00 Morgunfréttir. - Morgunútvarpið heldur áfram. 9.03 Morgunsyrpa. Áslaug Dóra Eyjólfsdóttir. 11.03 Gagn og gaman með Jóhönnu Harðardóttur. Með Jóhönnu eru Bryndís Schram og Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir. Molar og mannlifsskot í bland við góða tónlist. Þarfaþingið kl. 11.30 og aftur kl. 13.15. 12.00 Fréttayfirlit • Auglýsingar. 12.20 Hádegisfréttir. - Gagn og gaman heldur áfram. 14.03 Brot úr degi. Eva Ásrún Albertsdóttir. 16.03 Dagskrá. Dægurmálaútvarp. Stefán Jón Hafstein, Guðrún Gunnars- dóttir, Kristín Ólafsdóttir og Sigurður Þór Salvarsson. - Kaffispjall og innlit upp úr kl. 16.00. - Stórmál dagsins á sjötta tímanum. 18.03 Þjóðarsálin, þjóðfundur i beinni útsendingu, sími 91-38500. 19.00 Kvöldfréttir. 19.32 Zikk zakk. Umsjón: Sigrún Sigurðardóttir og Sigríður Arnardóttir. 20.30 Gullskifan. Að þessu sinni „Betra en nokkuð annað“ með Todmobile. 21.00 Rokk og nýbylgja. 22.07 „Blítt og létt..." Gyða Dröfn Tryggvadóttir rabbar við sjó- menn og leikur óskalög. 23.10 Fyrirmyndarfólk lítur inn til Éinars Kárasonar í kvöldspjall. 00.10 í háttinn. Ólafur Þórðarson leikur miðnæturlög. 01.00 Næturútvarp á báðum rásum til morguns. Fróttir eru sagðar kl. 7, 7.30, 8, 8.30, 9, 10, 11, 12, 12.20, 14, 15, 16, 17, 18, 19, 22 og 24. Næturútvarpið 01.00 Áfram ísland. 02.00 Fréttir. 02.05 Snjóalög. 03.00 „Blitt og létt..." 04.00 Fróttir. 04.05 Glefsur. 04.30 Veðurfregnir. 04.40 Á vettvangi. 05.00 Fróttir af veðri, færð og flugsam- göngum. 05.01 Bláar nótur. 06.00 Fréttir af veðri, færð og flugsam- göngum. 06.01 Norrænir tónar. Ríkisútvarpið á Akureyri Þriðjudagur 33. april 8.10-8.30 Svæðisútvarp Norðurlands. 18.03-19.00 Svæðisútvarp Norðurlands. Hljóðbylgjan Þriðjudagur 3. apríl 17.00-19.00 Pálmi Guðmundsson fylgir ykkur heim úr vinnunni með ljúfri tónlist. Fróttir kl. 18.00.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.