Dagur - 05.04.1990, Blaðsíða 3
Fimmtudagur 5. apríl 1990 - DAGUR - 3
fréttir
Átta sagt upp á Forstjóraskrifstofu og Fjárhagsdeild Sambandsins:
Yfirstjóm fjárniála færð undir Forstjóraskrifstofu
- Fjárhagsdeild lögð niður sem sérstök deild
Vegna slænirar rekstraraf-
komu Sambandsins og brýnnar
nauösynjar þess að draga úr
rekstrarkostnaði eins og kostur
er, þ.á.m. sameiginlegum
kostnaði vegna yfirstjórnunar,
hefur 8 starfsmönnuni á For-
stjóraskrifstofu og í Fjárhags-
deild fyrirtækisins verið sagt
upp störfum. Jafnframt hefur
verið ákveðið að Fjárhagsdeild
Sambandsins verði lögð niður
sem sjálfstæð deild og fjár-
málastjórn færð undir for-
stjóra.
Atvinnumálanefnd Akureyrarbæjar:
Gerir tillögu að stefmimótun
í atviimumálum til ársins 2010
Atvinnumálanefnd Akureyrar-
bæjar vinnur nú að tillögu að
Akureyri:
Kvennafrainboðið
ekki tilbúið
Kvennaframboðið á Akureyri
er ekki enn tilbúið með fram-
boðslista vegna bæjarstjórnar-
kosninganna 26. maí. Konurn-
ar vinna nú að röðun á listann.
„Við þurfum ekki að vera bún-
ar að leggja listann fram fyrr en
mánuði fyrir kosningar, þannig
að við erum ekkert að flýta okkur
og höfum ekki sett okkur nein
tímamörk,“ segir Gunnhildur
Bragadóttir, en hún hefur unnið
að undirbúningi frantboðsins.
Iieildarstefnumótun í atvinnu-
málum til ársins 2010. Tillaga
nefndarinnar verður lögð inn-
an tíðar fyrir bæjarstjórn
Akureyrar til umfjölliinar og
samþykktar.
Hólmsteinn Hólmsteinsson,
formaður atvinnumálanefndar,
segir að stefnumótunin sé viða-
mikil og vinna við hana hafi tekið
drjúgan tíma að undanförnu.
„Þarna er gerð heildaráætluii til
lengri tíma í atvinnumálum. Það
er nauðsynlegt að til sé á blaði
hvert menn eigi að stefna og
hvert sé sameiginlegt markmið í
atvinnumálum," sagði Hólm-
steinn.
Fleiri nefndir bæjarins hafa
veriö að vinna að stefnumótun og
nægir í því sambandi að nefna
æskulýðsráð. óþh
Kosið 9.
Félagsmálaráðuneytiö hefur
að ósk hlutaðeiganda sveitar-
stjórna heimilað að almennar
sveitarstjórnarkosningar fari
fram 9. júní 1990 í 50 sveitar-
félögum. I llestum tilfellum er
um að ræða minni hreppa víðs
vegar um landið. í öðrum
sveitarfélögum skulu kosning-
ar til sveitarstjórna fara fram
26. maí 1990.
Alls hafa 18 hreppar á
Norðurlandi fengið leyfi til að
seinka kosningum til 9. júní og
eru þeir á svæðinu frá Vestur-
Starfsemi Forstjóraskrifstofu
grcinist nú í þrennt. fjármál, hag-
sýslu og starfsmannaþjónustu.
Fjármáladeild annast stjórnun
fjármála, rekstur fasteigna og
eignahluta. Hagdeild annast unt
samræmda upplýsingagjöf og
rekstrareftirlit en Starfsmanna-
þjónustan sér um starfsmanna-
mál, fræðslu- og kynningarmál.
Björn Ingimarsson, hagfræð-
ingur, hefur verið ráöinn fjár-
málastjóri Sambandsins. Björn
hefur starfað hjá Sambandinu frá
árinu 1984, fyrst í Kaupfélags-
deild og síðan Fjárhagsdeild.
Starfsmannastjóri er Erling
Aspelund. Erling hefur starfað
hjá Sambandinu frá árinu 1988,
sent fulltrúi forstjóra og þá ann-
aðist hann einnig sameiginleg
starfsmannamál fyrirtækisins.
Hagdeild lýtur stjórn Siguröar
Gils Björgvinssonar, hagfræö-
ings. Sigurður hóf störf hjá Sant-
bandinu áriö 1974 og hefur start'-
að í ýmsum deildum fyrirtækis-
ins.
Þcssar breytingar eru þáttur í
hagræðingaraðgerðum innan
Sambandsins, sem miða að mark-
vissari stjórnun og sparnaði í
rekstri.
júní í 50 hreppum
Húnavatnssýslu og austur í Norð-
ur-Þingeyjarsýslu. Þessir hreppar
eru:
Vestur-Húnavatnssýsla:
Staðarhreppur
Fremri-Torfustaðahreppur
Y t r i -Torf u s t aða h re p p u r
Kirkjuhvammshreppur
Þorkelshólshreppur
Austur-Húnvatnssýsla:
Sveinsstaðarhreppur
Skagahreppur
Skagafjarðarsýsla:
Skefilsstaðahreppur
Skarðshreppur
Lý t i ngsst aða h reppur
Eyjarfjarðarsýsla:
,Skriöuhreppur
Öxnadalshreppur
Suður-Þingeyjarsýsla:
Hálshreppur
Bárðdælahreppur
Reykdælahreppur
Norður-Þingeyjarsýsla:
Öxarfjarðarhreppur
Presthólahreppur
Svalbarðshreppur
EHB
Bókamarkaðurinn
á Akureyri:
Búið að selja
á milli 25 og 30
þúsund bækur
Gífurleg sala hefur verið á
Bókamarkaði Félags íslenskra
bókaútgefenda seni staðið hef-
ur yfir síðustu vikur á Akur-
eyri. Frá því að markaðurinn í
Glerárgötunni opnaði, hafa
selst þar á inilli 25 og 30 þús-
und bækur, sem lætur nærri að
um tvær bækur hafi verið
keyptar á hvern íbúa bæjarins.
Það er því greinilegt að Akur-
eyringar og nærsveitamenn hafa
ennþá gaman af bókinni. Nú er
farið að síga á seinni hluta mark-
aðarins en síðasti söludagurinn er
á sunnudaginn kemur og þá verð-
ur opið eins og aðra daga vikunn-
ar til kl. 19.00.
Bókaormunt gefst því enn
tækifæri á að gera góð bókakaup
og ef að líkum lætur, eiga margir
eftir að koma við í Glerárgötunni
og kaupa sér einhverja titla. -KK
Blöndóus:
Kosið um opnun
áfengisútsölu
Kosið verður uin opnun áfeng-
isútsölu á Blönduósi samhliða
bæjarstjórnarkosningum þann
26. maí nk.
Tillaga um þetta var borin upp
og samþykkt samhljóða á fundi
bæjarstjórnar Blönduóss sl.
þriðjudag. óþh
m vutþú #
losna vid virðisaukaskatt ?
Samkvœmt reglugerð um virðisaukaskatt er heimilt að
draga skattinn írá við kaup á nýrri sendibiíreið, sé hún
eingöngu notuð vegna skattskyldrar starfsemi.
Héi er tœkiíœri til aukinnar hagkvœmni í rekstri.