Dagur - 05.04.1990, Blaðsíða 8

Dagur - 05.04.1990, Blaðsíða 8
8 - DAGUR - Fimmtudagur 5. apríl 1990 Starfsdeildirnar í Löngumýri 9 og 15 á Akureyri: Opnir dagar í Dynheiimim Um næstu helgi stendur mikið til hjá nemend- um og kennurum við Starfsdeildirnar að Löngumýri 9 og 15 á Akureyri. Þá verða haldnir Opnir dagar í Dynheimum, en undan- farnar vikur og mánuði hefur verið unnið við undirbúning. Haldin verður myndlistarsýning í Dynheimum þessa daga, og eru myndirnar til sölu. Gestum býðst einnig að kaupa kaffi og kökur, en allur ágóði rennur í ferðasjóð starfs- deildanna. Ætlunin er að halda til Danmerkur í vor, nánar tiltekið í heimsókn til skóla í vina- bæ Akureyrar, Randers. Einnig verður tónlist- aruppákoma í tengslum við sýninguna, báða sýningardagana. Opnir dagar í Dynheimum verða laugardaginn 7. og sunnudaginn 8. apríl, báða dagana klukkan 14.00 til 18.00. Tónlistaruppá- koman er klukkan 14.30, báða sýningardagana, eins og áður sagði. Forstöðumaður Löngumýrar- skólans, Magni Hjálmarsson, hefur ásamt Sólveigu Baldurs- dóttur, myndhöggvara, og Krist- jáni Pétri Sigurðssyni, starfs- manni og leiðbeinanda, borið hita og þunga þess að stjórna undirbúningi fyrir Opnu dagana. Þau segja að mjög ánægjulegt hafi verið að starfa með nemend- um í Löngumýri við þetta verk- efni, og hafi sú vinna þegar skilað góðum árangri. En fleiri leggja hönd á plóginn til að nemendur í Löngumýri komist í Danmerkurferðina, því Norræna félagið á íslandi hefur ákveðið að veita styrk að upphæð 6.000,- krónur á hvern nemanda vegna nemendaskipta, en Danirnir munu heimsækja þá síðar. Myndlistin þroskar og styrkir sjálfsvitundina Sólveig var fyrst beðin um að lýsa verkefnum nemendanna. „Þetta eru margvísleg myndverk, unnin með teiknun, málun og tússi, en markmiðið er að auka sjálfsvit- undina. Þau læra að þekkja sjálf sig betur og að skynja umhverfið á nýjan hátt. Allt verkar þetta í þá átt að þroska þau sem ein- staklinga.“ - Hvernig finnst þér að vinna með þessum nemendum? „Það er mjög gaman og spenn- andi. Þau eru jákvæð og mér finnst auðvelt að koma að gagni. Hér er um sérstætt verkefni að ræða, finnst mér, en einnig mjög gefandi. Mér finnst það mjög einstakl- ingsbundið hversu mikla tilsögn þessir nemendur þurfa, en þau hafa mikið í sér sjálf og eiga ekki í erfiðleikum með að setjast nið- ur til að teikna. Þeim virðist það vera mjög eðlilegt eða náttúru- legt að tjá sig með myndlist, og eiga e.t.v. oft auðveldara með það en margur annar.“ - Hvaða litir eru notaðir? „í vetur höfum við mest unnið með tréliti, blýanta ásamt akrýl- og þekjulitum. Litir og tilfinning- in fyrir litum er þessum nemend- um mjög nátengd, þannig að þeir eiga auðvelt með málun og lita- meðferð. í fyrstunni var þeim auðvitað framandi að vinna með efni eins og akrýlmálningu, en þau lærðu að fara með hana og hefur gengið það vel. Mér finnst litanotkun þeirra meira vera kominn undir tilfinningu en skynsemi, hún kemur eiginlega beint frá hjart- anu. Þess vegna, meðal annars, er svo spennandi að vinna með þeim. Mótívin eru mismunandi, stundum hef ég látið þau hafa sérstök verkefni, en þau hafa líka fundið sínar eigin fyrirmyndir," segir Sólveig. Sólveig Baldursdóttir, myndhöggv- ari. Kristján Pétur Sigurðsson. Sungið og spilað í Dynheimum En fleira verður á dagskrá en myndlistarsýning í Dynheimum. Þar verður tónlistarflutningur, og spjallaði blaðamaður við Kristján Pétur Sigurðsson um það atriði og tónlistarfræðsluna í Löngu- mýri. „Einu sinni í viku erum við með tónlistartfma hérna í Löngu- mýri, og á sýningunni í Dynheim- um verður bæði sungið og spilað. Við sömdum heilt tónverk í tilefni dagsins, og heitir það „Stormdagur." Það er leikið á þau hljóðfæri sem eru mest notuð hér, sílafóna, trommur og tón- Álfareiðin - mynd unnin sem hópverkefni. Magni Hjálmarsson, forstöðumað- ur. stafi. Þetta er því tónverk fyrir slagverkshljóðfæri. Tónlistartímarnir hérna byggj- ast mikið upp á takti og að kenna nemendum að skynja takt. Þetta eru æfingar í að skynja hrynjanda í tónlist, auk þess sem við syngj- um mikið, bæði gömul og ný ís- lensk lög og slagara. í tónverkinu Stormdegi er þó enginn söngur. Stormdagur varð til í kringum litla ritgerð, sent fjallar um það að dag nokkurn vaknar fólk í góðu veðri, fuglarn- ir syngja og allt er stillt. Þá fer að hvessa og er mikið rok allan dag- inn, en lægir aftur um kvöldið, þannig að næsti dagur lofar góðu. Þetta reynum við að túlka í tón- list, aðallega með slagverki og trommum." Myndir eftir nemendur í Löngumýri.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.