Dagur - 18.04.1990, Side 9
Miðvikudagur 18. apríl 1990 - DAGUR - 9
Millwall fallið í 2. deild
- Charlton og Luton á leið niður - Aston Villa heldur enn í vonina
Á iaugardaginn fyrir páska fór
fram heil umferð í deilda-
keppninni. Ekki varð sú um-
ferð til þess að línur yrðu skýr-
ari í 1. og 2. deild, en þó varð
Ijóst að Millwall er fallið úr 1.
deild. Aston Villa heldur enn í
vonina um meistaratitil og á
toppi 2. deildar er nú allt kom-
ið í hnút. En þá eru það leik-
irnir.
Liverpool virtist hafa gert út
um leik sinn gegn Nottingham
For. strax eftir 15 mín. leik.
Ronnie Rosenthal skoraði á 14.
mín. eftir sendingu John Barnes
Úrslit Úrslit í páskavikunni.
FA-bikarinn undanúrslit endurtekinn
jafnteflisleikur.
Manchester Utd.-Oldham 2:1
1. deild
Arsenal-Aston Villa 0:1
Charlton-Liverpool 0:4
Q.P.R.-Manchester City 1:3
2. deild
Barnslev-Sundcrland 1:0
Hull Ciiy-Blackburn 2:0
Ipswich-Portsmouth 0:1
Plymouth-Leeds Utd. 1:1
Sheffield Utd.-Watford 4:1
Stoke City-Oxford 1:2
Swindon-Brighton 1:2
Wolves-Leicester 5:0
Middlesbrough-Port Vale 2:3
Newcastle-W.B.A. 2:1
West Ham-Bournemouth 4:1
Úrslit á laugardag. 1. deild
Aston Villa-Chelsea 1:0
Crystal Palace-Arsenal 1:1
Derby-Millwall 2:0
Liverpool-Nottingham For. 2:2
Luton-Everton 2:2
Manchester City-Sheffield Wed. 2:1
Q.P.R.-Manchester Utd. 1:2
Soulhampton-Charlton 3:2
Tottenliam-Coventry 3:2
Wimbledon-Norwich 1:1
2. deild
Oldham-Leeds Utd. 3:1
Barnsley-West Ham 1:1
Bradford-Blackburn 0:1
Brighton-W.B.A. 0:3
Ipswich-Port Vale 3:2
Leicester-Portsmouth 1:1
Plvmouth-Bournemouth 1:0
Sheffield Utd.-Oxford 2:1
Stoke City-Middlesbrough 0:0
Sunderland-Hull City 0:1
Swindon-Watford 2:0
Wolves-Newcastle 0:1
Úrslit á annan í páskum. 1. deild
Chelsea-Crystal Palace 3:0
Coventry-Q.P.R. 1:1
Everton-Derby 2:1
Millwall-Tottenham 0:1
Norwich-Manchester City 0:1
Nottliingham For.-Luton 3:0
2. deild
Blackburn-Swindon 2:1
Hull City-Wolves 2:0
Leeds Utd.-Sheffield Utd. 4:0
Middlesbrough-Bradford 2:0
Newcastle-Stoke City 3:0
Oxford-Sunderland 0:1
Portsmouth-Brighton 3:0
Port Vale-Oldham 2:0
W.B.A.-Plymouth 0:3
og lagði síðan upp mark fyrir
Steve McMahon aðeins mín.
síðar. Liverpool hafði yfirburði
og Barnes átti skot í slá auk þess
sem Stuart Pearce bjargaði á línu
frá honum. Þessi óheppni Liver-
pool hleypti nýju blóði í leik-
ntenn Forest og í síðari hálfleik
tókst Steve Hodge að minnka
muninn fyrir Forest. Eftir mistök
í vörn Liverpool tókst síðan Nig-
el Jameson að jafna leikinn fyrir
Forest. Lánleysi Liverpool var
algert og Pearce bjargaði öðru
sinni á línu fyrir Forest, nú frá
Ian Rush. Jafntefli og tvö dýrmæt
stig hjá Liverpool voru þar með
farin í súginn.
Á sama tíma tókst Aston Viila
að knýja fram erfiðan sigur á
heimavelli gegn Chelsea. Eina
mark leiksins kom á 15. mín.,
Gordon Cowans renndi boltan-
um í autt markið eftir að Dave
Beasant í marki Chelsea hafði
varið skot Tony Cascarino, en
eftir það komust leikmenn Villa
varla fram fyrir miðju. Vörn liðs-
ins var þó mjög vel skipulögð og
þrátt fyrir þunga sókn Chelsea
komust þeir Derek Mountfield
og Paul McGrath sjaldnast í
vandræði með hina marksæknu
sóknarmenn Chelsea og liðið
heldur enn í vonina um meistara-
titilinn, en til þess verður Liver-
pool að misstíga sig á lokasprett-
inum.
Mjög lélegum fyrri hálfleik í
leik Derby og Millwall lauk án
marka, en í þeim síðari skánaði
leikurinn og endir var bundinn á
veru Millwall í 1. deild. Leik-
menn Millwall börðust vel, en
sköpuðu sér lítil færi og Peter
Shilton í marki Derby átti náðug-
an dag. Mick Harford náði for-
ystu fyrir Derby á 15. mín. síðari
hálfleiks með skalla eftir auka-
spyrnu og hann skoraði einnig
síðara markið með skalla eftir
aðra aukaspyrnu.
Charlton virðist einnig dæmt til
að falla eftir að hafa bjargað sér á
ótrúlegan hátt síðustu þrjú árin.
Liðið gefst þó aldrei upp og þrátt
fyrir að Southampton kæmist í
3:0 munaði minnstu að Charlton
tækist að jafna. Neil Ruddock
skallaði inn hornspyrnu fyrir
Southampton eftir 22 mín. og
bætti öðru eins marki við á 34.
mín. Aðeins mín. síðar virtist
sigurinn í höfn er Rod Wallace
komst í gegnum vörn Charlton,
renndi fyrir á Jimmy Case sem
gat ekki annað en skorað þriðja
mark Southampton. Andy Jones
skoraði fallegt mark fyrir Charl-
ton snemma í síðari hálfleik og
Tonny Caton bætti öðru við með
langskoti undan sterkuin vindi. I
síðustu sókn Charlton í lokin
munaði hársbreidd að Robert
Lee tækist að jafna fyrir
Charlton, en heppnin var ekki
með honum.
Luton er líklegt til að fylgja
Millwall og Charlton niður, liðið
þurfti nauðsynlega að sigra
Everton á heimavelli og lengi leit
út fyrir að það tækist. Ian Dowie
náði forystu fyrir Luton á 2. mín.
með skalla er hann komst inní
sendingu ætlaða markverði
Everton. Rétt fyrir hlé skoraði
Dowie annað mark sitt eftir send-
ingu bakvarðarins Tim Breacker.
Tony Cottee lagaði stöðuna fyrir
Everton snemma í síðari hálfleik
með marki af stuttu færi og Gra-
ham Sharp náði að jafna með
skalla eftir hornspyrnu Kevin
Sheedy. Jafntefli 2:2, en það dug-
ir Luton tæplega í fallbaráttunni.
Tottenham vann sinn fjórða
leik í röð eftir að hafa verið 2:0
undir gegn Coventry. David
Smith skoraði fyrra mark Coven-
try beint úr hornspyrnu og átti
Erik Thorstvedt markvörður
Tottenham alla sök á því marki.
David Speedie bætti síðan öðru
marki Coventry við eftir mistök í
vörn Tottenham. Gary Lineker
lagaði stöðuna fyrir Tottenham
rétt fyrir hlé eftir undirbúning
Paul Gascoigne og heimaliðið
hrökk í gang. Paul Stewart jafn-
aði með glæsilegu skoti á fyrstu
mín. síðari hálfleiks og Lineker
skoraði sigurmarkið 20 mín. fyrir
leikslok nteð skalla. Thorstvedt
varði síðan glæsilega góðan
skalla frá Speedie undir lokin og
tryggði liði sínu sigurinn.
Andy Thorn miðvörður Cryst-
al Palace var borinn af leikvelli
eftir 16 mín. í leik liðsins gegn
Arsenal og gæti misst af úrslita-
leiknum á Wembley þó í ljós hafi
komið að hann er óbrotinn. Pal-
ace þurfti að ná stigi úr leiknum
til að losna við fallhættu. Arsenal
komst þó yfir á 16. mín. með
marki Martin Hayes af stuttu
færi. Leikmenn Palace börðust
vel, gáfust ekki upp og sú barátta
bar ávöxt 10 mín. fyrir leikslok er
hinn óþreytandi tengiliður þeirra
Andy Gray komst í gegnum vörn
Arsenal og skoraði á milli fóta
John Lukic í marki Arsenal.
Pegar 52 mín. voru liðnar af
leik Q.P.R. og Man. Utd. og
heimaliðið 1:0 yfir, sendi Colin
Gibson fyrir mark Q.P.R. en
Mark Hughes brenndi af opnu
færi. Alex Ferguson tók Hughes
strax útaf og eftir snörp orða-
skipti þeirra kom Mark Robins
inná. 8 mín. síðar hafði Robins
jafnað fyrir Utd. óg 6 mín. eftir
það hafði hann lagt upp sigur-
mark Utd. fyrir Ncil Webb.
David Seaman í marki Q.P.R.
hafði haldið liði sínu á floti et'tir
að Justin Channing hafði náð for-
ystu fyrir Q.P.R: á 33. mín. gegn
gangi leiksins. Bryan Robson og
Paul Ince léku mjög vel fyrir
Utd. í leiknum sem nú þarf vart
að óttast fall í 2. deild lengur.
Sheffield Wed. tapaði gegn
Man. City 2:1 og voru leikmenn
liðsins ekki á skotskónum, en lið-
ið lék vel og enginn betur cn Tre-
vor Francis. City náði forystu á
22. mín. með marki Niall Quinn
sem nýlega var keyptur frá
Arsenal. David Hirst jafnaði fyr-
ir Sheffield á 60. ntín. eftir undir-
búning Francis, en sigurmark
City kom á 77. mín. frá Adrian
Heath sem keyptur var frá Aston
Villa og var þetta hans fyrsta
mark fyrir City.
Wimbledon og Norwich gerðu
1:1 jafntcfli, leikmenn Wimble-
don börðust eins og Ijón og
minnstu munaði að markvöröur
þeirra Hans Segers skoraði sigur-
mark liðsins úr aukaspyrnu, en
lið Norwich er aðeins skugginn af
því liöi sem lék svo vel í fyrra.
Mark Bowcn kom Norwich yfir 2
mín. fyrir hlé, cn John Fashanu
jafnaöi fyrir Wimblcdon með fal-
legu skallamarki á 10. ntín. síðari
hálfleiks.
2. deild
• Nú er allt kornið í hnút í 2.
deild og Leeds Utd. og Sheffield
Utd. sent liaft hafa góða forystu í
vetur eru nú ekki lengur viss um
sæti í I. deild að ári. Leeds Utd.
tapaði á útivclli á föstudag gegn
Oldham 3:1 þar sem Richard
Holden skoraði tvö af mörkum
Oldham. Leeds Utd. hefur nú
jafnmörg stig og Sheffield Utd.
og heldur efsta sætinu aðeins á
hagstæðari markatölu.
• Sheffield Utd. sigraði Oxford
heima 2:1 og Newcastle sem nú
er óstöövandi sigraði Wolves 1:0
á útivelli ineð marki Kevin Scott.
Newcastle viröist ætla að taka
annað efsta sætið og Leeds Utd.
sem nú virðist heillum horfiðgæti
þurft að leika í úrslitakeppninni.
• Peter Swan tryggöi Hull City
óvæntan sigur á útivelli gegn
Sundcrland.
• Ðunctin Shearer og Steve
White skoruöu mörk Swindon
gegn Watford og Swindon hefur
enn ekki gefið upp alla von um
annaö efsta sætið.
• Trcvor Morley jafnaði fyrir
West Ham gegn Barnsley.
• Blackburn sigraði Bradford
með sjálfsmarki Gavin Oliver.
• Tonnny Tynan skoráði sigur-
mark Plymouth úr vítaspyrnu
gegn Bournemouth, cn liðið er í
mikilli fallhættu. Þ.L.A.
Gary Lineker, Tottenham, er nú markahæstur í 1. deild nteð 25 mörk.