Dagur - 18.04.1990, Page 13
Miðvikudagur 18. apríl 1990 - DAGUR - 13
Minning
Valtýr Aðalsteinsson
Fæddur 12. september 1905 - Dáinn 6. apríl 1990
Æ, rósin bliknar, hausti hallar að,
og handrít vorrar æsku er sölnað blað,
ogenginn veit, hvert söngvafuglinn flaug,
sem fyrirskömmu Ijóð ígreinum kvað.
(Khayyám: Rubaiyát)
Þessar fornu Ijóðlínur geta minnt
okkur á eilífa hringrás lífsins og
þá óumflýjanlegu staðreynd að á
eftir björtu vori og sumri haustar
að og þá tökum við á móti hvíld-
inni miklu með frið í hjarta og
þakklæti fyrir liðnar ánægju-
stundir.
Fyrstu minningar okkar barna-
barnanna um afa eru vafalaust
heimsóknir okkar til hans og
Stefaníu ömmu í Munkaþverár-
strætið. Þar var alltað tekið vel á
móti okkur og við þurftum ekki
að bíða lengi cftir því að annað
þeirra brygði sér niður í köldu
geymsluna í kjallaranum og
kæmi með epli eða jafnvel gos-
flösku.
Afi var félagslyndur og glað-
vær og hafði unun af því að ferð-
ast um landið. Hann fór ófáar
ferðir með Fcrðafélagi Akureyr-
ar og ef einhver fjölskyldna okk-
ar brá sér úr bænum þá var afi
alltaf tilbúinn að slást í hópinn.
Þá þótti honum ómissandi að
komast í berjamó allt fram á síð- |
ustu ár. Þar naut hann útiverunn-
ar og hlakkaði til að fá bláber og
rjóma þegar heim kæmi. - Og
jafnan var haft á oröi að ekki
þyrfti að hreinsa berin hans afa
upp úr fötunni.
Þegar við litum inn til afa á síð-
ari árum stóð hann oft upp frá
orgelinu sínu eða bókbands-
áhöldunum. Hann undi sér vel
við bókbandið og oft spurði hann
hvort við ættum ekki einhverjar
bækur sem við vildum fá band á.
Mestan hluta starfsævi sinnar
rak afi saumastofu að Strandgötu
II en hann hóf nám í klæðskera-
iðn áriö 1926. Við munum óljóst
eftir þessari vinnustofu en þegar
eldri mcnn spyrja okkur sem
yngri erum um ætt og uppruna og
við nefnum nafn afa fáum við oft
að heyra að hann hafi saumað
fyrstu jakkafötin á viðkomandi
og hafi þau enst vel og lengi og
borið natni og vandvirkni klæð-
skerans vitni.
Þegar afi hætti rekstri sauma-
stofunnar árið 1967 hóf hann
störf í herradeild Amaró og vann
þar til ársins 1982 og var því orð-
inn 77 ára þegar hann dró sig í
hlc frá atvinnulífinu.
Afi gat sér gott orð og vinsæld-
ir jafnt í starfi sem í vinahópi og
eiga því vel við hann fornu sann-
indi Hávamála:
Deyr te.
deyja frændur.
deyr sjálfur ið sama;
en orðstír
deyr aldregi.
hveim er sér góðan getur.
Við biðjum afa blessunar og
þökkurn honum góðar stundir.
Barnabörn.
Kristniboðsfélag kvenna á Akureyri:
560 þúsund til kristniboðs
Ársreikningur Kristniboðsfélags
kvenna á Akureyri fyrir árið 1989
liggur nú fyrir. Tekjur voru
575.897 kr. Mest af þessu cru
gjafir. Félagskonur þakka af
alhug þeim sem stutt hafa kristni-
boðið og gert félaginu kleift að
senda til Kristniboðssambandsins
560.000 kr. Guð launi ykkursam-
stöðu og fórnarlund.
Þeir sem sjá árangurinn af
starfi kristniboðanna okkar í
Eþíópíu og Kenýu biöja þá um
aö korna að hjálpa sér líka. Það
er erfitt að horfa upp á sára and-
lega og líkamlega neyð fólksins
og sinna henni ekki. Þess vegna
vex starfið stöðugt. Það sent
kristniboðsfélag kvenna safnaði á
sl. ári hefur þegar verið notað í
þessi verkcfni.
Við viljum einnig bera ykkur
þakklæti fólksins í Eþíópíu og
Kenýu.
Fyrir hönd kristniboðsfélags
kvenna, Ingileif Jóhannesd. for-
maður Greivöllum 14, Sigríður
Freystcinsd. gjaldkeri, Þingvall-
arstræti 28, Hanna Stefánsd. rit-
ari, Víöilllhdi 24. Fréltatilkynning
Kvennalistinn á Akureyri:
Lýsir yfir stuðningi við Konur gegn klámi
Hópur sem kallar sig Konur gegn
klámi stóð fyrir nokkru fyrir
aðgerðum til að vekja athygli
fólks á því hve auðvelt þaö er á
íslandi að nálgast klám á mynd-
böndum. Þessar aðgerðir hafa
fengið misjafnar viðtökur en of
mikið hefur borið á hncykslun
fólks, gert hefur verið grín að
konunum og málstað þeirra og
þær jafnvel ausnar svívirðingum
persónulega. Kvennalistinn á
Akureyri harmar þessi viðbrögö
og lýsir yfir stuðningi sínum við
Konur gegn klámi. Það er sann-
arlega ekki vanþörf á að vckja
íslendinga til umhugsunar um
muninn á opinskárri umræðu um
kynferðismál og klámi. Klám er
mannskemmandi, það kennir
mannfyrirlitningu og höfðar til
lægstu hvata fólks. Oft er um að
ræða ofbeldi, sérstaklega gegn
konunt og börnum og getur hver
maöur séð hve skaðlegt slíkt efni
er, ekki síst ef það er hclsta
fræöslan sem unglingar hljóta um
kynferðismál eins og stundum vill
veröa. Furðulegt er að nokkur
ntanncskja skuli taka upp hansk-
ann fyrir slíkan sora. Kvennalist-
inn á Akureyri hvetur því fólk til
aö taka höndum saman viö Kon-
ur gegn klárni til að stuðla aö
jákvæöum og mannbætandi viö-
horfum til kynlífs.
Tónleikar að Ýdölum:
Bamakór og karlakór syngja saman
Karlakórinn Hreimur og Barna-
kór Hafralækjarskóla halda tón-
leika að Ýdölum í Aðaldal kl. 16
á sumardaginn fyrsta. 19. apríl.
Sigmar Ólafsson, skólastjóri í
Hafralækjarskóla sagðist ekki
vita til að barnakór og karlakór
hefðu áður sungið saman á tón-
leikum. Þetta væri gert til að
skapa fjölbreyttni í tónleikahaldi
og svo fælist framtíð karlakórsins
að sjálfsögðu í áhuga ungu mann-
anna í barnakórnum á kórstarfi.
Kórarnir ntunu synga sinn í
hvoru lagi og einnig sameigin-
lega. Einsöngvarar veröa Baldvin
Kr. Baldvinsson og Þórarinn Már
Baldursson. Róbert Faulkner er
stjórnandi kóranna en undirleik
annast Júliet Faulkner. Einnig
annast nemendur úr tónlistar-
skólanum við Hafralækjarskóla
hljóðfæraleik.
Karlakórinn Hreimur heldur
Dísukórinn í Öngulsstaðahreppi
heldur söngskemmtun í Frey-
vangi síðasta vetrardag, 18. apríl
kl. 18.
Kórfélagar eru aðallega úr
kirkjukórnum, sem nú er kominn
út í allt aðra sálma, en hann hef-
ur að undanförnu æft söngskrá af
léttara taginu. Þar er að finna
bæði erlend lög sent innlend og
nokkra texta eftir einn kórfélag-
I síöan hátíðatónleika á Húsavík
27. apríl, í tilcfni af 40 ára afmæli
I Húsavíkurkaupstaðar. IM
ann ásamt einu lagi eftir annan
kórfélaga. Auk þessa verða fleiri
létt tónlistaratriði á dagskrá og
fyrrum sveitungi, og kórfélagi
mun flytja pistil.
Söngstjóri er Þórdís Karlsdótt-
ir en undirleik annast Reynir
Schiöth, Birgir Karlsson og
Garðar Karlsson.
Hljómsveit Rafns Sveinssonar
leikur fyrir dansi að söng
loknum.
Dísukórinn í Öngulsstaðahreppi:
Söngskemmtun í Freyvangi
.ÁÁp Til félagsmanna
f»j Skipstjórafélags
Norðlendinga
Skipstjórafélag Norölendinga lætur fara fram alls-
herjar atkvæöagreiöslu meðal starfandi félags-
manna um verkfallsheimild, svo sem kveöiö er á um
í félagslögum. Skipstjórafélag Norðlendinga hvetur
félaga sína aö greiða atkvæöi sem fyrst. Atkvæöa-
greiöslan stendur til 25. apríl í skrifstofu félagsins
Skipagötu 14, Akureyri.
Stjórnin.
Framboðsfrestur
til bæjarstjórnarkosninga á Akureyri 26. maí
1990 rennur út föstudaginn 27. apríl 1990.
Yfirkjörstjórn tekur á móti framboðslistum þann dag
kl. 15 til 16 og 23 til 24 á skrifstofu Ásgeirs Péturs
Ásgeirssonar, héraösdómara, aö Hafnarstræti 107,
3. hæö, Akureyri.
Tekiö skal fram aö fjöldi meðmælenda meö hverjum
lista skal vera 40-80.
Akureyri, 17. apríl 1990.
YFIRKJÖRSTJÓRN AKUREYRAR,
Ásgeir Pétur Ásgeirsson.
Hallur Sigurbjörnsson.
Haraldur Sigurðsson.
Atvinna • Atvinna • Atvinna
FJÓRÐUNGSSJÚKRAHÚSIÐ
Á AKUREYRI
Fjóröungssjúkrahúsiö á Akureyri auglýsir eftir
aöstoðarlæknum til starfa á eftirtöldum deild-
um:
- Bæklunar- og Slysadeild.
- Fæðinga- og Kvensjúkdómadeild.
- Handlækningadeild.
- Lyflækningadeild.
Stööurnar eru lausar frá 1. júlí 1990. Umsóknir skulu
sendar til Halldórs Jónssonar framkvæmdastjóra
sjúkrahússins fyrir 15. maí n.k., og gefur hann ásamt
yfirlæknum deildanna nánari upplýsingar.
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri.
Móðir okkar,
KRISTÍN ÞÓRÐARDÓTTIR,
Skarðshlíð 11 f, Akureyri,
sem andaðist miðvikudaginn 11. apríl verður jarðsungin frá
Glerárkirkju föstudaginn 20. apríl kl. 13.30.
Erla Stefánsdóttir,
Gréta Stefánsdóttir.
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og
útför móður minnar,
SIGRÚNAR SIGTRYGGSDÓTTUR,
Túngötu 7, Húsavík.
Guð blessi ykkur öll.
Sigtryggur Sigurjónsson
og aðrir vandamenn.