Dagur - 24.04.1990, Síða 1
73. árgangur
Akureyri, þriðjudagur 24. apríl 1990
76. tölublað
LACOSTE
Peysur • Bolir
HERRADEILD
Gránutélagsgötu 4
Akureyri ■ Sími 23599
Dalvík:
Fóðurstöðin í gjaldþrot
Fóöurstööin á Dalvík verður
að öllum líkindum tekin til
gjaldþrotaskipta. Samþykkt
var á fundi eyfirskra loðdýra-
bænda á Ákureyri í gær með
fulltrúum Byggðastofnunar og
Framleiðnisjóðs landbúnaðar-
ins að leggja fram beiðni hjá
sýsluinannsembættinu í Eyja-
fjarðarsýslu um að Fóðurstöð-
in verði tekin til gjaldþrota-
skipta. Stjórn stöðvarinnar
mun væntanlega leggja fram
beiðni þess efnis í dag.
Fundinn á Akureyri í gær sátu
loðdýrabændur viö Eyjafjörð.
Símon Ellertsson, framkvæmda-
stjóri Fóðurstöðvarinnar á
Dalvík. fulltrúar Byggðastofnun-
ar, þeir Guðmundur Malmquist,
forstjóri, Valtýr Sigurbjarnason,
forstöðumaöur útibús Byggöa-
stofnunar á Akureyri, Guðmund-
ur Guðmundsson, starfsmaður
þess og Jóhannes Torfason f.h.
Framleiðnisjóðs landbúnaðarins.
Skiptar skoðanir eru unt rétt-
mæti þess að taka Fóöurstööina
til gjaldþrotaskipta en Byggða-
stofnun metur það svo að ckki sé
ncin önnur leið möguleg í stöð-
unni.
Bændur á svæði Fóöurstöðvar-
innar hafa á undanfötnum \ ikum
fengið fóður frá Melrakka á
Sauðárkróki og hefur Byggða-
stofnun greitt umframkostnað
vegna flutnings á fóðrinu þaöan
til loðdýrabúa í Eyjafirði. Á
fundinum kom fram aö bændur
líta almennt svo á að dæmið snú-
ist um að þreyja þorrann frant á
haustið. en þá verði dýrunum
lógað, og spurningin sé því að
tryggja þcim fóður í vor og
sumar. Þeim möguleika var velt
upp að bændur tækju vélar og
bíla Fóðurstöðvarinnar á leigu.
en engar ákvaröanir voru teknar
um það enda snýr málið beint að
þrotabússtjóra eftir að fyrirtækið
hefur verið úrskutðað gjald-
þrota.
Fimm menn voru skipaðir í
nefnd til að fjalla frekar um fyrir-
komulag fóörunar, Jón Hjalta-
son, Arvid Kro og Ævttr Hjartar-
son f.h. Loðdýraræktarfélags
Eyjafjarðar og Valtýr Sigur-
bjarnason og Guðmundur
Guðmundsson f.h. Byggðastofn-
unar. óþh
íslandsnici.starar í stórsvigi «g bikarineistarar í alpagreinuni, Valdiinar Valdimarsson <>g Gnðriín H. Kristjánsdóttir,
koiiiu til Akiirevrar í gær en |>an tókn |>att í Skíóalandsnióti Islands seni Irani lór i Kcykjavík iini helgina. Tekið var
á móti þeim nieð viAliófn «g allienti Þróstnr Giiójónssiin, fiirmaónr SRA, þeim blóinvendi fyrir vasklega frain-
göngu. A inyndinni eru f.v. Valdiniar Valdiinarssnn, .lagodic Flnrjan, þjálfari, «g Guóriin H. Kristjánsdóttir. A
niyndina vantar Hauk Eiríkssnn seni er bikur- «g Islandsnieistari í skióugiingu karla. Sjá nánar bls. 7-10. Myiul: Kl
Aðalfundur Útgerðarfélags Akureyringa hf.:
Efnahagsstaða félagsins styrktist á árinu 1989
- hagnaður af rekstrinum á síðasta ári nam 91,5 milljónum króna
Verkamannabústaðir:
40 íbúðir til
Akureyrar
Stjórn Húsnæðisstofnunar
ríkisins hefur úthlutað Stjórn
verkantannabiistaða á Akur-
eyri leyfi til að láta byggja
Ijörutíu íbúðir á síntitn vegum
á þessu ári. I’etta er sanii
Ijöldi íbúða og Stjórn verka-
mannabústaða sótti um að fá
að byggja.
Hákon Hákonarson, formað-
ur Stjórnar verkamannabústaða,
segir að stjórnin hafi veriö á
lundi nýlega og þar heföi veriö
rætt um að leita eftir tilboðum
frá verktökum í bænum í bygg-
ingar íbúðanna.
Fyrst og fremst cr um að ræða
litlar tveggja og þriggja her-
bergja íbúöir, en algengast er
að sótt sé um íbúðir af þeirri
stærö í verkamannabústöðum á
Akureyri um þcssar mundir.
Þessar ibúðir verða nánast allar
byggðar í fjölbýlishúsum.
Hákon telur ólíklegt að Ueiri
íbúðir en þessar fjörutíu vcrði
byggðar á vegum verkamanna-
bústaða á Akurcyri á þessu ári,
enda hafi sú tala sem sótt var
um fengist afgreidd hjá Hús-
næðisstjórn. „Sveitarfélög hafa
hins vegar fullan rétt á að senda
athugasemdir, fyrirspurnir og
beiðnir um endurskoðun á þess-
um ákvörðunum, þegar þær
liggja fyrir. Þaö hcfur alltaf ver-
ið reynt að vega það og meta, ef
nýjar upplýsingar koma fram
sem réttlæta frekari úthlutun til
sveitarfélaga, og reynt hefur að
verða við slíku. En þessi úthlut-
un byggir á fyrirliggjandi
gögnum. þegar hún fer fram."
segir Hákon. EHB
Rekstur Útgerðarfélags Akur-
eyringa hf. skilaði 91,5 millj-
óna króna hagnaði á síðast-
liðnu ári. Þetta er umtalsvert
betri afkoma en á árinu 1988
þegar hagnaður var 5,6 millj-
ónir króna. Á árinu 1989 voru
skip félagsins rekin með 35
milljóna króna halla en vinnsl-
an með rösklega 126 milljóna
króna hagnaði. Eiginfjárstaða
félagsins batnaði verulega á
árinu og nemur raunhækkun
eigin fjár um 12,6% á þessu
tólf mánaða tímabili.
Aðalfundur Útgerðarfélags
Akureyringa hf. var haldinn í
gærkvöld og var þar gerð grcin
fyrir rekstrinum á síðastliðnu ári.
Heildarafli skipa félagsins nam
22.073 tonnum á árinu en 23.107
Vinna hófst á ný í Slippstöð-
inni á Akureyri í gær að af-
ioknu hálfs mánaöar páska-
leyfi starfsmanna sem tekið var
vegna verkefnaskorts í stöð-
inni. Vinna hófst í gær við
fjögur skip og auk þess við
smíði rækjuvinnslubúnaðar í
Hjalteyrina togara Samhcrja
hf. á Ákureyri.
Sem kunnugt er setti Slipp-
stöðin hf. fiskvinnslubúnað í
Hjalteyrina fyrir skömmu cn allt-
af var ætlunin að smíða rækju-
vinnslubúnað þannig að liægt
tonn öfluðust árið áður. Skerðing
fiskveiðihcimilda niillí þcssara
ára var hins vegar tæpum 600
tonnum meiri en sem nemur afla-
mismun og er ástæða þess að hún
skilar sér ekki að fullu í aflanum
er sú að á árinu 1089 var keyptur
nokkur kvóti.
Sem fyrr var nær allur afli
skipa félagsins unninn í eigin
fiskvinnslustöðvum. Framleiðsla
freðfisks var 6.883 tonn en var
6.387 tonn árið áður. Framleiösla
á saltfiskafurðum til útflutnings
var 613 tonn á árinu 1989, sem er
330 tonnum minna en árið áöur.
Framleiðsla hertra hausa var liins
vegar 207 tonn, eða mjög svipuð
og á árinu 1988.
Scm fyrr voru Bandaríkin
stærsta markaðslandið en þangað
voru flutt 35,3‘/o af magninu og
væri að skipta á rækjuvinnslu
þegar hentaði. Slippstöðin ætlar
að ljúka þessari smíði fyrir 10.
maí.
Skipin fjögur sem nú eru í slipp
eru Guðmundur Ólafur ÓF,
Stakfelliö ÞH, Þórður Jónasson
EA og Hálfdán í Búð ÍS. í Stak-
fellinu verður skipt um vindu-
dælugír. í Þórði Jónassyni verður
skipt um vindumótora og smíð-
aður ballestageymir, í Guðmundi
Ólafi verður skipt um botnstykki
og togarinn Hálfdán í Búð er í
árlegri slipptöku. JÓH
47,6% af verðmætinu. Árið áður
var um að ræða 32% af magni og
42,7% af verðmæti. Samdráttur í
útflutningi afurða UA til Sovét-
ríkjanna var mikill þar sem að-
eins 1% framleiðslunnar fór
þangaö á árinu en 30,3% árið
1988. Mest varð aukningin í
útflutningi milli ára til V-Þýska-
lands og Frakklands. Þangað
fóru 39,4% franilciðslunnar áriö
1989 á móti 9,4‘X> framleiðslunn-
„Ég tel að miöaö viö aðstæður
megi hagnaður ekki vcra minni
en raun ber vitni. Það sem er
takmarkandi þáttur í afkoniu
félagsins eru þær veiðiheiinild-
ir sem okkur eru útlilutaðar og
við þurfum að gera okkur sem
mest úr. Þær hafa niinnkað
verulega á undanförnum
tveimur áruin en samt er það
okkar mat að þessi rekstrar-
niðurstaða á síðasta ári sé við-
undandi,“ sagði Gunnar Ragn-
ars, annar tveggja fram-
kvæmdastjóra Útgerðarfélags
Akureyringa hf. um afkomu
félagsins á síöasta ári.
„Rekstrarskilyrðin bötnuðu á
árinu en aflaskerðingar draga
hins vegar úr áhrifunum. Hjá
okkur skerðast aflaheimildir frá
ársbyrjun 1988 til ársloka 1989
um 2800 tonn sem er meðalársafli
ar árið 1988.
I efnahagsreikningi félagsins
kemur fram að bókfærðar heild-
areignir voru um sl. áramót kr.
2.142,2 millj. Skuldir fclagsins
námu kr. 1.362.0 millj. og var því
eigiö fé í árslok kr. 780,2 milljón-
ir. Skuldastaöan batnaði á árinu
og lækkuðu skuldir að raunvirði
um 162 milljónir. Eiginfjárhlut-
fallið í árslok var orðið 36,4%.
eins togara. Þetta hefur augljós-
lega mikil áhrif og þótt menn
grípi til þess ráðs að kaupa afla-
kvóta þá hefur það nokkurn
kostnaö í för með sér. Því er í
ýmis horn að líta þó svo ytri
rekstrarskilyrði batni," sagöi
Gunnar.
Hann segir að þrátt fyrir
minnkandi veiðiheimildir síöustu
ára sé óhætt að segja aö Útgerð-
arfélag Akureyringa hafi komið
nokkuð vel út úr þessu tímabili
sem að þrengdi í rekstrinum.
„Jú. ef skoðuð er þróun nokk-
urra ára þá hefur eigið fé Útgerð-
arféiags Akureyringa tvöfaldast
að raungildi síðan 1985 og það
verður að teljast nijög svo viðun-
andi, ekki síst ef rhiðað er við þá
erfiðleika sem glímt hefur verið
við í þessari grein á síðustu
árum,“ segir Gunnar. JÓH
Slippstöðin hf.:
Vinna hófst í gær eftir
háJfs mánaðar stöðvun
„Teljum rekstramiður-
stöður viðunandf
- segir Gunnar Ragnars framkvæmda-
stjóri Útgerðarfélags Akureyringa hf.