Dagur - 24.04.1990, Side 3
fréffir
Þriðjudagur 24. apríl 1990 - DAGUR - 3
7i
Menntaskólinn á Akureyri:
að auka húsakost um 1800 fennetra
Brýnt
Allt útlit er fyrir að húsnæðis-
áætlun Menntaskólans á Akur-
eyri standist og framkvæmdir
við nýbyggingu geti hafist vor-
ið 1992. Stefnt er að því að
taka fyrstu áfangana í notkun
1994-1995. Skólanefnd Akur-
eyrar hefur ákveðið að veita fé
til undirbúningsvinnu á þessu
ári og innanhúsnefnd Mennta-
skólans er tekin til starfa.
Innanhúsnefnd, skipuð skóla-
meistara og fulltrúum skóla-
stjórnar, kennara og nemenda,
mun gera spár um húsnæðisþörf
og tillögur um gerð húsnæðis.
Hún mun safna gögnum í vor og
fram á sumar. Að sögn Jóhanns
Sigurjónssonar, skólameistara,
er vonast til að gögn nefndarinn-
ar liggi fyrir næsta haust.
„Við höfum þegar sótt um
hönnunarfé til fjárveitingavalds-
ins fyrir fjárlög næsta árs. Pað
hefur verið sagt að röðin komi að
Menntaskólanum eftir að ákveðn-
um áfanga við Verkmenntaskól-
ann er lokið en ég held að það sé
löngu komið að okkur. Sam-
kvæmt úttekt sent gerð var í vet-
ur hefur enginn skóli færri fcr-
metra á hvcrn ncmenda en
Menntaskólinn á Akureyri,"
sagði Jóhann.
Að sögn Jóhanns er mjög
brýnt að stækka húsakost skólans
burtséð frá því hvort nemendum
eigi eftir að fjölga eða ekki. því
kröfur til skóla hafa aukist mjög.
Sem dærni nefndi hann að skól-
inn þyrfti væntanlega að leggja
einhverjar kennslustofur undir
tölvuver og fleira til að uppt'ylla
nútímakröfur.
Staðsetning eða húsagerð hef-
ur ekki verið endanlega ákveðin
en Jóhann sagði að hugntyndir
um viðbyggingu við Möðruvelli
væru enn efst á blaði og er talið
að stærð viðbótarhúsnæðis þurfi
að vera um 1800 fermetrar til að
skólinn geti búið þokkalega
næstu 25 árin miðað við sama
nemendafjölda. SS
Akureyri:
Meimtaskóliim kaupir verk
eftir Ásmund Sveinsson
Menningarmálanefnd Akur-
eyrar hefur samþykkt að veita
Menntaskólanum á Akureyri
500 þúsund krónur í styrk
vegna kaupa á listayerkinu
Oðinshrafninum eftir Asmund
Sveinsson myndhöggvara. Það
er væntanlegt á næstu vikum
og mun rísa í stækkaðri mynd á
lóð Menntaskólans.
Jóhann Sigurjónsson. skóla-
meistari MA, sagði að listaverk-
inu yrði komið upp fyrir 110 ára
afmælishátíð skóians sem haldin
verður með veglegum hætti 17.
júní næstkomandi. Pann dag
verður Óðinshrafninn afhjúpað-
ur.
Kaupin á listaverkinu eru fjár-
ntögnuð með áðurnefndum styrk
frá Akureyrarbæ, framlagi úr
listskreytingasjóði ríkisins og
framlagi úr sérstökum skólasjóði
Menntaskólans á Akureyri.
„Það á eltir að taka endanlega
ákvörðun um staðsetningu
verksins, en það verður gert í
samráði við menningarmála-
nefnd og fulltrúa frá Ásmundar-
sal'ni. Þctta gerist um leið og lóð-
in vcrður snjólaus. Þá verður
grafið fyrir undirstöðu og hún
steypt, þannig að hægt verði að
setja verkið upp þegar sautjánd-
inn nálgast." sagði Jóhann. SS
MEISTARAFELAG
BYGGINGAMANNA
rvlORÐURLANDI
Aðalfundur
Breyttur fundartimi
Fyrirhuguöum aöalfundi sem halda átti 25. apríl er
frestað til 2. maí.
Fundurinn veröur haldinn á Hótel Norðurlandi kl.
20.30.
Stjórnin.
...............
Atvinnutryggingasjóður:
300 miUjónir til Álafoss hf.
Samþykkt liefur veriö aö veita
Álafossi hf. allt að 300 millj-
óna króna lán úr Atvinnu-
tryggingasjóði. 200 niilljónir
verða veittar með veði í eign-
um fyrirtækisins, en allt að 100
milljónir með tryggingum í
eignum utan þess.
í fyrra var samþykkt að veita
Álafossi hf. 200 milljóna króna
lán úr Atvinnutryggingasjóði
útflutningsgreina. Þegargögn um
stöðu fyrirtækisins bárust sjóð-
stjórninni þótt hún ekki uppfylla
þau skilyröi sem gerð voru lil já-
kvæðrar afgreiðslu umsóknarinn-
ar. Var lánið því ekki afgreitt í
bili.
Að sögn Gunnars Hilmarsson-
ar, framkvæmdastjóra sjóðsins,
blasti allt önnur mynd við eftir að
ríkið hafði ákveðið að veita fé til
styrktar rekstrinum og samið
hafði verið við ýmsa kröfuhafa
um skuldbrcytingar, niðurfcli-
Alþýðubandalagsmenn á
Sauðárkróki hafa birt lista sinn
til bæjarstjórnarkosninga í
vor. Listinn var samþykktur
Hjálpræðisherinn:
Biblíunámskeið
Biblíunámskeið hefst á Hjálp-
ræðishernum á Akureyri í dag
þriðjudaginn 24. apríl og
stendur til sunnudagsins 29.
apríl.
Kennarar verða ofurstlt. Guð-
finna Jóhannesdóttir og Brig-
aderarnir Ingibjörg Jónsdóttir og
Óskar Jónsson. Efni námskeiðs-
ins er ávöxtun andans og bænin.
Námskeiðið hefst í kvöld kl. 20
og er öllum opið. Því lýkur síðan
með samkomu í sal Hjálpræðis-
hersins á sunnudaginn kl. 20.
ingu eldri skulda og víkjandi lán.
„Uppstokkun. víkjandi lán, yíir-
taka á eignum. framlag frá ríkinu
og fleirá gcrir að verkum aö unnt
var að staðfesta lán að upphæð
200 milljónir, sem áður hafði ver-
ið samþykkt að veita." segir
Gunnar.
Allir vegir í Suður-Þingeyjar-
sýslu eru að verða færir en
cngar skcmmdir liafa oröiö á
þeim enn vegna leysinga í vor.
Að sögn Ingólfs Árnasonar hjá
Vegagerð ríkisins er mjög gott
ef vegfarendur láta vegagerð-
armcnn vita af stífluðum ræs-
um, rcnnsli yfir veg eða hættu-
samhljóða á fundi sl. föstudag.
Listinn er skipaður eftirfarandi
í þessari röð:
Anna Kristín Gunnarsdóttir
kennari, Ólafur Arnbjörnsson
aðstoðarskólameistari, Karl
Bjarnason framleiðslustjóri,
Guðbjörg Guðmundsdóttir skrif-
stofumaður, Skúli Jóhannsson
iðnaðarmaður, Kristbjörn Bjarna-
son iðnaðarmaður, Sigurlaug
Sveinsdóttir iðnverkamaður,
Magnús Ingvarsson trésmiður,
Lára Angantýsdóttir verkamað-
ur, Lúövík Kemp trésmiður,
Guðmundur Jensson íþrótta-
kennari, Hrafnhildur Eiðsdóttir
nemi, Bragi Skúlason trésmiður,
Sólmundur Friðriksson hljómlist-
armaður, Jóhann Svavarsson raf-
veitustjóri, Hjalti Guðmundsson
trésmíðameistari, Sigurlína
Árnadóttir iðnverkamaður og
Hulda Sigurbjörnsdóttir iðn-
verkamaður. kg
muni taka stærsta hlutann af
þeim 100 milljónum króna sem
fyrirtækinu bjóöast að auki í
formi víkjandi lána, með trygg-
ingar í eignum utan þess. „Það er
von okkar og trú að Álafoss muni
ná sér út úr erfiöleikunum með
þessari afgreiðslu," segir Gunnar
Hilmarsson. EHB
lcguni skörðum í veg, sem geta
vcriö fljót að niyndast á þess-
um árstíma.
Ingólfur sagði aö það væri lítiö
sem tæki af snjónum og því hefðu
ekki orðiö miklir vatnavextir
þrátt fyrir mikið snjómagn. Eftir
því sem lengra liöi fram á, án
þess að snjóinn tæki, skapaöist
meiri hætta á að skyndilega hlýn-
aði með mikilli hláku og tilheyr-
andi vatnagangi og látum.
Ingólfur sagði að aurbleytu í
vegum væri ekki heldur fariö aö
gæta, en nú færi að iíða að því að
settar yrðu einhverjar þungatak-
markanir á vegi. Brýnt væri að
ökumenn færu gætilega því vega-
skemmdir gætu myndast á skömm-
um tíma. IM
Ekið á Lödu:
Vitni óskast
Um helgina var ekið á bifreiö-
ina A-10989, sem er Ijósdrapp-
lituð Lada station, þar sem
hún stóð við Seljahlíð á Akur-
eyri. Tjónvaldurinn lét sig
hverfa.
Afturhurð bifreiðarinnar bíl-
stjóramegin er mikið skemnui
eftir ákeyrsluna. Atvikið hefur
átt sér stað á laugardagskvöld
eða sunnudag. Þeir sem geta gef-
ið einhverjar upplýsingar um
þessa ákeyrslu eru vinsamlegast
beðnir að hafa samband við eig-
anda bílsins, Óskar Hjaltalín, í
síma 27822 eða rannsóknarlög-
regluna á Akureyri. SS
Sauðárkrókur:
Listi Alþýðubandalags
Útlit er fyrir að Álafoss hf.
Suður-Þingeyjarsýsla:
Vegir undan vetri
^mmm—mmmmmm—^^^i^^^^^mmmm^—m—mmmm^^mm^^^m
Lr Hestamenn
Akureyri og nágrenni!
Fundur verður haldinn í Skeifunni fimmtudag-
inn 26. apríl kl. 20.30.
Kristinn Hugason, hrossaræktarráðunautur flytur
erindi um sýningar og dóma kynbótahrossa.
Almennar umræður.
Fræöslunefnd Léttis.
Félag verslunar-
og skrifstofufólks, Akureyri
Sími 21635 - Skipagötu 14
Aðalfundu *
félagsins verður haldinn f nmtudaginn 26. apríl
kl. 20.30 í Alþýðuhúsinu 4 hæð.
Fundarefni:
1. Venjuleg aðalfundar örf.
2. Lagabreytingar.
3. Önnur mál.
Kaffiveitingar.
Stjórn F.V.S.A.
/--------------------------------N
Gæðastjórnunarfélag
Norðurlands
boðar til fundar „Á LEIÐINNI HEIM" miðviku-
daginn 25. maí kl. 17.15 í Háskólanum á Akur-
eyri, stofu 16.
Félagið verður kynnt og hugað að framtíð þess.
Einnig verða stutt erindi um gæðakostnað og hugtök í
gæðastjórnun.
Að lokum verða umræður um hagnýtingu gæðastjórn-
unar í fyrirtækjum.
Allir þeir sem hafa áhuga
eru hvattir til aÖ mæta.
V_________________________________/