Dagur - 24.04.1990, Side 5
tónlist
Þriðjudagur 24. apríl 1990 - DAGUR - 5
Tónagleði
í Ýdölum
I Karlakórnum Hrcim eru tæp-
lega fimmtíu söngmenn. Raddir
þeirra eru agaöar og falla vel
saman. Hljómöryggi þeirra er
eftirtektarvert og nákvæmni í
innkomum og styrkbreytingum í
góöu lagi. Afar lítiö er um þaö,
að einstaklingar komi fram úr
röddunt og blær hinna ýntsu
radda kórsins er þéttur og fullur í
samsöngnum.
Nokkuð ber á t'lárri raddbeit-
ingu, þegar einstakar raddir
syngja cinar. Þetta kom til dæmis
fyrir í sólókafla hjá öðrum tenór.
Þá á fyrsti tenór í dálitlum vand-
ræöunr með efstu tóna þess sviös,
sem honum er ætlað. Þetta hvort
tveggjti mætti bæta verulega meö
tilsögn í raddbcitingu. Það væri
æskilegt, því aö þessu slepptu var
fátt í raun aöfinnsluvert nema
farið sé út í sparöatíning.
Karlakórinn haföi átta lög á
söngskrá sinni. Ýntis þeirra voru
klöppuð upp og einnig söng kór-
inn aukalög. Flutningur laganna
var yfirlcitt öruggur og virtist
söngstjórinn, Robert Faulkner,
hafa góða stjórn á kónrum.
Tvö skosk þjóðlög, sem söng-
stjórinn, Robert Faulkncr hafði
útsctt fallega fyrir karlakór og
lágfiölu, vöktu athygli. Baldvin
Kr. Baldvinsson söng einsöng í
öðru laganna og gerði það vel. A
lágliðluna lék Julict Faulkner. Þá
tókst vel flutningur á rússneska
laginu Lengi grét alda ein. Þar
söng Baldvin Kr. Baldvinsson
einnig einsöng af smekkvísi.
Reyndar var líkt og kórinn héldi
aftur af sér í þessu lagi.
Kórinn tókst einnig á viö viða-
meiri verkefni. Þar má nefna Þér
landnemar eftir Sigurð Þórðar-
son við ljóð Davíðs Stefánssonar
og Förumannaflokkar þeysa eftir
Karl O. Runólfsson viö Ijóð
Davíðs Stefánssonar. Bæði þessi
karlakórsverk flutti kórinn al'
þrótti. Nokkuö spillti þvingun í
efstu röddum í Þér landnemar og
smávægis ónákvæmni í styrk-
minnkun í Förumannaflokkar
þeysa, þar sem sérstaklega annar
bassi fylgdi ckki alveg öðrum
röddum á nokkrum stöðum.
Skemmtilegt var það, að kór-
inn hafði þrettán ára dreng, Þór-
arinn Má Baldursson, sem ein-
söngvara í laginu Lullu, lullu bía
eftir Karl Ó. Runólfsson við Ijóð
Davíðs Stefánssonar. Þórarinn
söng snyrtilega, en áf heldur litl-
um þrótti. Kórinn hafði gott
tækifæri til þess að sýna getu sína
í því að syngja veikt og samfellt
og tókst það vel.
Næst á dagskrá tónleikanna í
Ýdölum var hljóðfæraleikur.
Nokkrir nemendur í Tónlistár-
skóla Hafralækjarskóla fluttu tvö
lög með aðstoð kennara síns.
Juliet Faulkners. Þetta var
ánægjulegt innskot og fróðlegt að
sjá, hve ágætum árangri tónlistar-
skólinn skilar.
Þessu næst kom fram barnakór
Hafralækjarskóla. Hann á ekki
nema nokkurra ára starf að baki.
en ikaijgur þess er greinilega
góður. Kórinn flutti fimm lög.
Söngur lians var afar áheyrilegur
og jafn og raddirnar falla
almennt vel saman. I barnakórn-
unr eru tæplega fjörutíu börn og
liðlega þriðjungur piltar.
Rúsínan í enda tónleika Karla-
kórsins Hreims að þessu sinni var
samsöngur karlakórsins og barna-
kórsins. Söngstjórjnn. Róbert
Faulkner. hafði ýmist útsett
lögin, senr flutt voru, að fullu eða
aðlagað útsetningarnar þeirri
sérstöku flytjendaskipan, sem
hér var um að ræða og leyst þessi
verk vel af hendi. Sérstaklega
hefur tekist vel útsetning á laginu
ísland eftir Magnús Þ. Sigmunds-
son við texta Margrétar .lónsdótl-
ur, þar sem næst að nýta sntekk-
lega þann tnismun, sem er á
karlakór og barnakór og fella þá
saman í vel uppbyggða og stíg-
andi hljómræna hcild. Þá var
lnífandi blær yfir flutningi kór-
anna á Panis angelieus eftir Cesar
Frank, sent sungið var á latínu. í
einu laganna, Mig dreymdi draum
eftir Ed Mae Curdy, var flutning-
urinn skreyttur með smekklegum
klarinettleik Örlygs Benedikts-
sonar, cn hann er nemandi við
Tónlistarskóla Hafralækjarskóla.
Undirleikari á flygil á tón-
leikununt í Ýdölum var Juliet
Faulkncr. Hún er stórgóður og
afar öruggur undirleikari, sent
kann greinilega þá list til hlýtar
að fylgja og styðja af smekkvísi
og ákveðni. Hún og eiginmaöur
hennar, Robert Faulkner, hafa
þegar sýnt og sannað á mörgum
sviðum, hve ágætlcga fær þau eru
um að efla og þróa áfram það
tónlistarlíf, sent fyrir hendi var í
Aðaldal fyrir komu þcirra. Von-
andi nrega héraðsbúar og aðrir
njóta starfskrafta þeirra og kunn-
áttu lengi enn.
Haukur Ágústsson.
^---------------
Aðalfundur
Kaupfelags Eyfirðinga
verður haldinn í Félagsborg á
Gleráreyrum laugard. 28. apríl.
Fundurinn hefst kl. 9.30 árdegis.
Dagskrá:
1. Rannsókn kjörbréfa og kosning starfsmanna
fundarins.
2. Skýrsla stjórnar.
3. Skýrsla kaupfélagsstjóra.
Reikningar félagsins.
4. Afgreiðsla á reikningum og tillögum félags-
stjórnar.
5. Skýrsla stjórnar Menningarsjóðs.
6. Erindi deilda.
7. Önnur mál.
8. Kosningar.
Stjórn Kaupfélags Eyfirðinga