Dagur - 24.04.1990, Side 11

Dagur - 24.04.1990, Side 11
Þriðjudagur 24. apríl 1990 - DAGUR - 11 f:/\ hér&þar ji Stjórhjarta piparsveinn ættleiðir 35 böm Kojo Odo er einstæður faöir 35 barna. Hann trúir því að öll börn eigi skiliö að eiga fjölskyldu og þess vegna hefur hann ættleitt þessi börn. sem öll voru talin óættleiðanleg, þ.e. þar til Kojo kom til sög- unnar vildi enginn ættleiöa þau. Félagsráðgjafi sem l'ylgst hefur með Kojo og haft millí- göngu um síöustu ættleiöing- arnar segisl t'uröa sig á því í hvert skipti sem hún heim- sækir fjölskylduna, hvaö þar er að finna mikla ást og ham- ingju. Hún segir aö Kojo hafi tekiö mörg barnanna að sér án þess aö sjá þau fyrst, því hann segir að meö því aö eiga viötöl við börnin sé veriö aö gera þau að kaupvöru. Hinn stjórhjartaöi Kojo ættleiddi fyrst 7 ára dreng fyr- ir 15 átrum og ætlaöi sér aldrei aö ættleiöa 34 til viöbótar. „En ég var alltaf aö heyra af börnum sem þörfnuöust heimilis og mér fannst mér bcra skylda til aö taka þau aö mér." Alls 25 barnanna eru ennþá heima, en l() eru farin aö heiman, ýmist í skóla eöa hafa hafið sjálfstætt líf. Átta barnanna eru andlega van- heil, en hin voru yfirgefin eöa illa vanrækt af foreldrum sínum. Þar til í scptcmbcr 19S<S vann Kojo utan heimilisins en nú lifir hann á styrkjum frá ríkinu og greiöslum fyrir fyrir- lestra sem hann heldur af ýmsum tilefnum. Fjölskyldan býr í New York, í 10 svefnherbcrgja húsi með 6 baðherbergjum. Vitaskuld þarf heilmikla pen- inga til að fæða svona stóran hóp enda þarf aö steikja um 80 hamborgara þegar þeir eru á boðstólum. Þrátt fyrir fjár- hagserfiðleika hefur fjölskyld- unni tekist ágætlega að sjá sér farborða. Þeir sem höfðu milligöngu uni ættleiðingu barnanna sögöu Kojo aö börnin sem hann væri aö ættleiða ættu enga framtíð fyrir sér og myndu aldrei verða nýtir þjóðfélagsþegnar. „Nú er þetta sama fólk agndofa," sagði Kojo, enda hafa mörg þeirra sýnt heldur betur hvað í þeim býr. Elsta barnið, Muata sem nú er 29 ára, kom til Kojo þegar hann var 15 ára eftir hræöilega barnæsku. Foreldrar hans voru áfengis- sjúklingar og honum var fleygt milli uppeldisstofn- ana. Þegar hann var 13 ára strauk hann og fór aö lifa villtu lífi á götunni en 15 ára ákvað hann að snúa aftur til eðlilegs lífs. Kojo bauðst til að taka hann að sér og hann vinnur nú við félagsstörf og sem lista- maður. Hann ætlar bráðlega að gifta sig. Dæmin eru fleiri og Kojo segir að svona árang- ur fái hann til að halda áfram. Bros á barnsandliti jafnist á við vítamínsprautu. „Við erum ein stór fjölskylda og ég elska þetta.“ Einbýlishús Bújöró Viltu skipta á einbýlishúsi og bújörð í sæmilegu ástandi? Upplýsingar í síma 41916. "N AKUREYRARB/ER Viðtalstímar bæjarfulltrúa Fimmtudaginn 26. apríl 1990 kl. 20-22 verða bæjarfulltrúarnir Guðfinna Thorlacius og Sigríður Stefánsdóttir til viðtals á skrifstofu bæjarstjórnar, Geislagötu 9, 2. hæð. Bæjarfulltrúarnir munu svara símaviðtölum eftir því sem aðstæður leyfa. Síminn er 21000. Bæjarstjóri. & Almennt kennaranám <ENNARA Ö til B.ED.-prófs Umsóknarfrestur um þriggja ára almennt kennaranám við Kennaraháskóla íslands er til 1. júní nk. Umsókn skal fylgja staðfest afrit af prófskírteinum og önnur gögn sem umsækjendur telja að skipti máli. Inntökuskilyrði eru stúdentspróf eöa önnur próf við lok framhaldsskólastigs svo og náms- og starfs- reynsla sem tryggir jafngildan undirbúning. Stúdentsefni á vori komanda, sem ekki hafa hlotið prófskírteini, láti fylgja umsókninni staöfestingu frá viðkomandi framhaldsskóla um rétt þeirra til að þreyta lokapróf í vor. Nánari upplýsingar ásamt umsóknareyðublöðum fást á skrifstofu skólans, Stakkahlíð, 105 Reykjavík, sími 91-688700. Rektor. Vinningstölur laugardaginn 21. apríl ’90 VINNINGAR FJÖLDI VINNINGSHAFA UPPHÆÐ Á HVERN VINNINGSHAFA 1. 5af 5 2 2.875.468,- 2. 10 58.263.- 3. 4af5 276 3.641.- 4. 3af 5 6.622 354.- Heildarvinningsupphæð þessa viku: 9.682.670.- UPPLÝSINGAR: SÍMSVARI 681511 - LUKKULÍNA 991002

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.