Dagur - 24.04.1990, Side 14
14 - DAGUR - Þriðjudagur 24. apríl 1990
Bridge
Firmakeppni B.A.
verður haldin næstu tvo þriðjudaga að Fé-
lagsborg kl. 19.30.
Spilað verður með einmennings fyrirkomulagi.
Allir spilarar velkomnir.
Stjórnin.
Nauðungaruppboð
á eftirtöldum fasteignum fer
fram í dómsal embættisins,
Hafnarstræti 107, 3. hæð,
Akureyri,
á neðangreindum tíma:
Áshlíð 7, Akureyri, þingl. eigandi
Friðrik Friðriksson, föstud. 27. apríl
'90, kl. 14.45.
Uppboðsbeiðendur eru:
Magnús Norðdahl hdl. og íslands-
banki hf.
Fífilbrekka v/Akureyri, þingl. eigandi
Jón T. Sigurðsson, föstud. 27. apríl
'90, kl. 15.15.
Uppboðsbeiðendur eru:
Gunnar Sólnes hrl. og Bæjarsjóður
Akureyrar.
Hafnarstræti 18, Akureyri, þingl.
eigandi Guðmundur Þorgilsson,
föstud. 27. apríl '90, kl. 16.00.
Uppboðsbeiðandi er:
Bæjarsjóður Akureyrar.
ísborg EA-159, Hrísey, þingl. eig-
andi Borg hf., föstud. 27. apríl '90,
kl. 15.15.
Uppboðsbeiðandi er:
Byggðastofnun.
Skipagata 14, salur 4. hæð, ofl.,
Akureyri, þingl. eigandi Byggingar-
og sjúkrasj. Einingar ofl., föstud. 27.
apríl '90, kl. 14.45.
Uppboðsbeiðandi er:
Byggðastofnun.
Spónsgerði 5, Akureyri, þingl. eig-
andi Marinó Jónsson, föstud. 27.
apríl '90, kl. 13.30.
Uppboðsbeiðandi er:
Veðdeild Landsbanka íslands.
Ægisgata 26, Akureyri, þingl. eig-
andi Matthías Þorbergsson, föstud.
27. apríl '90, kl. 13.30.
Uppboðsbeiðandi er:
íslandsbanki.
Bæjarfógetinn á Akureyri
og Dalvík,
Sýslumaðurinn I Eyjafjarðarsýslu.
Nauðungaruppboð
annað og síðara,
á eftirtöldum fasteignum fer
fram í dómsal embættisins,
Hafnarstræti 107, 3. hæð,
Akureyri,
á neðangreindum tíma:
Brekkugata 3, efsta h., Akureyri, tal-
inn eigandi Pálmi Björnsson, föstud.
27. apríl '90, kl. 14.00.
Uppboðsbeiðendur eru:
Gunnar Sólnes hrl., Bæjarsjóður
Akureyrar, Óskar Magnússon hdl.,
Benedikt Ólafsson hdl., Veðdeild
Landsbanka íslands og Sveinn
Skúlason hdl.
Bugðusíða 1, Akureyri, þingl. eig-
andi Sjálfsbjörg, föstud. 27. apríl
'90, kl. 13.45.
Uppboðsbeiðendur eru:
Iðnlánasjóður, íslandsbanki, inn-
heimtumaður ríkissjóðs, Guðjón
Ármann Jónsson hdl., Sigríður
Thorlacius hdl. og Helgi Sigurðsson
hdl.
Böggvisstaðir, minkabú íb. hús. ofl.,
Dalvík, þingl. eigandi þrb. Þorsteinn
Aðalsteinsson, föstud. 27. apríl '90,
kl. 13.45.
Uppboðsbeiðendur eru:
Benedikt Ólafsson hdl. og Hróbjart-
ur Jónatansson hdl.
Draupnisgata 7 k, Akureyri, talinn
eigandi Hliðarfell sf., föstud. 27.
apríl '90, kl. 13.30.
Uppboðsbeiðandi er:
Hreinn Pálsson hdl.
Eyrarlandsvegur 8, n.h., Akureyri,
talinn eigandi Stefán Sigurðsson,
föstud. 27. apríl ’90, kl. 14.00.
Uppboðsbeiðendur eru:
Veðdeild Landsbanka íslands, inn-
heimtumaöur ríkissjóðs og Andri
Árnason hdl.
Fjölnisgata 2 b, hluti II, Akureyri, tal-
inn eigandi Hafspil hf., föstud. 27.
apríl '90, kl. 14.45.
Uppboðsbeiðendur eru:
Iðnlánasjóður, Bæjarsjóður Akur-
eyrar, Guðjón Ármann Jónsson
hdl., Ólafur Garðarsson hdl., Iðn-
lánasjóöur, Benedikt Ólafsson hdl.,
innheimtumaður ríkissjóðs, Gunnar
Sólnes hrl., Andri Árnason hdl., og
Tómas H. Heiðar.
Hafnarstræti 83, 85, Akureyri, talinn
eigandi Hótel Stefanía hf., föstud.
27. apríl '90, kl. 16.00.
Uppboðsbeiðendur eru:
Gjaldheimtan í Reykjavík, Bæjar-
sjóður Akureyrar og Ingvar Björns-
son hdl.
Hrísalundur 16 d, Akureyri, talinn
eigandi Guðni Jónsson, föstud. 27.
apríl '90, kl. 14.00.
Uppboðsbeiðendur eru:
Veðdeild Landsbanka íslands og
Bæjarsjóður Akureyrar.
Móasíða 4 f, Akureyri, þingl. eig-
andi Elspa Elísdóttir, föstud. 27.
apríl ’90, kl. 14.15.
Uppboðsbeiðendur eru:
Veðdeild Landsbanka íslands,
Guðríður Guðmundsdóttir, Ásgeir
Thoroddsen hdl., Bæjarsjóður Akur-
eyrar, Benedikt Ólafsson hdl.,
Garðar Briem hdl., og Sigurmar
Albertsson hdl.
Norðurvegur 25, Hrísey, þingl. eig-
andi Stefán Björnsson, föstud. 27.
apríl '90, kl. 14.30.
Uppboðsbeiðendur eru:
Gunnar Sólnes hrl. og Veðdeild
Landsbanka íslands.
Óseyri 1, Akureyri, þingl. eigandi
Sjúkra- og styrktarsj. bílstj.f. Valur,
föstud. 27. apríl ’90, kl. 14.30.
Uppboðsbeiðandi er:
Iðnþróunarsjóður.
Ránarbraut 9, Dalvík, þingl. eigandi
Rán hf., föstud. 27. apríl '90, kl.
14.45.
Uppboðsbeiðendur eru:
Sigríður Thorlacius hdl., innheimtu-
maður ríkissjóðs og Fiskveiðasjóð-
ur íslands.
Skipagata 14, veitingas. 5. hæð,
Akureyri, þingl. eigandi Byggingar-
og sjúkrasj. Einingar ofl., föstud. 27.
apríl '90, kl. 15.00.
Uppboðsbeiðandi er:
Hróbjartur Jónatansson hdl.
Vallargata 5, Grímsey, þingl. eig-
andi Sigurður Bjarnason ofl., föstud.
27. apríl '90, kl. 16.00.
Uppboðsbeiðendur eru:
Gunnar Sólnes hrl., Veðdeild
Landsbanka íslands, Atli Gíslason
hdl., Ásgeir Thoroddsen hdl., Björn
Ólafur Hallgrímsson hdl., Jóhannes
Ásgeirsson hdl. Ólafur Birgir Árna-
son hdl., Sveinn Skúlason hdl.,
Gjaldskil s.f. Vilhjálmur H. Vil-
hjálmsson hdl. og Ólafur Gústafs-
son hrl.
Bæjarfógetinn á Akureyri
og Dalvík,
Sýslumaðurinn í Eyjafjarðarsýslu.
Minning
ermann Valgeirsson
Fæddur 16. október 1912 - Dáinn 15. apríl 1990
í gær, mánudaginn 23. apríl, fór
fram frá Akureyrarkirkju útför
Hermann Valgeirssonar frá
Lönguhlíð. Hann veiktist snögg-
lega að heimili sínu aðfaranótt
miðvikudagsins 11. apríl, var
fluttur á sjúkrahúsið og andaðisl
þar fjórum sólarhringum síðar,
aðfaranótt páskadags.
Á síðustu dægrum vetrarins
þegar vorið er á næsta leiti með
sínar björtu nætur og kviknandi
líf í hverju andartaki lauk lífi
þessa vinar míns hér á jörð. Fyrr
á árum var hann oft fljótur í
heimanbúnaði. Líka nú er hann
flutti héðan yfir á æðra tilveru-
svið. Öll hljótum við að fagna því
að hann tekk að kveðja án þcss
að heyja langt veikindastríð. Af
alhug þökkum við það góðum
Guði.
Hermann var fæddur í Auð-
brekku 16. október 1912 og var
því kominn á 78. aldursár er
hann andaðist. Foreldrar hans
voru Jóhanna Vigfúsdóttir og
Valgeir Árnason er síðar bjó
lengi í Auðbrekku og ætíð við
þann stað kenndur. Ekki átti það
fyrir foreldrum Hermanns að
liggja að eiga samleið gegnum líf-
ið en í Áuðbrekku var hann
lengstum fyrstu æviár sín, aðal-
lega í umsjá ömmu sinnar og afa,
Guðrúnar Jónsdóttur og Árna
Jónatanssonar. Um tíu ára aldur
kom hann liingað í Stóra-Dun-
haga til foreldra minna og dvaldi
að mestu hjá þeim allmörg næstu
árin. fyrstu minningar mínar um
Hermann eru frá þcim tíma. Eru
þær næsta óljósar sem vonlegt er,
en sú skýrust er hann einhverju
sinni bar mig á herðum sér hér
um túnið. Ekki veit ég livert
tilefnið var, trúlega það eitt að
gleðja lítinn snáða sem var að
feta fyrstu sporin í lífinu. Margar
góðar og glaðar stundir áttum við
cftir að eiga saman síðar. Þær
verða hvorki taldar né tíundaðar
frekar í þessum fáu minningar-
orðum. En óneitanlega leitar nú
hugurinn til liðins tíma þegar
þessi góði vinur minn er horfinn á
vit hins ókunna og leiðir skiljast
um sinn.
Ungur kvæntist Hermann Þur-
íði Pétursdóttur lrá Gautlöndum
í Mývatnssveit, dóttur Péturs
Jónssonar og Sólveigar Péturs-
dóttur er þar bjuggu langa hríð.
Þura, eins og við kölluðum liana
alltaf, reyndist Hermanni traust-
ur lífsförunautur alla tíð meðan
hennar naut við. Hún var vcl
gefin, hægíát, umburðarlynd og
vildi öllum gott gera. Var lfka
vinsæl og virt af þeim er hana
þekktu. Hún andaðist árið 1983
eftir þungbært veikindastríö.
Hér í Hörgárdalnum hófst hin
eiginlega búskaparsaga þeirra
Hermanns og Þuru,.hér áttu þau
heima nær samfellt næstu fjóra
áratugina og hér var því lífsstarf
þeirra að langmestu leyti unnið.
Þau bjuggu á ýmsum jörðum cn
allmörg síðustu árin í Lönguhlíð
og við þann bæ voru þau ætíð
kennd síðan.
Hcrmann og Þura máttu muna
tvenna tímana í búskap sínum.
Þau byrjuðu ung og með tvær
hendur tómar á kreppuárunum
svokölluðu, þegar efnahagsltf
þjóðarinnar var hvað erfiðast á
þessari öld. Þau liafa áreiöanlega
þurft á öllu sínu að halda til aö
komast af. En þau spöruðu ekki
kraftana, enda var það hvorugu
þeirra að skapi. Börnin fóru líka
að hjálpa til jafnóðum og þau
gátu eitthvað létt undir. En svo
leið tíminn, smám saman birti
yfir og eftir að fjölskyldan kom í
Lönguhlíð gerðist eitt undrið í
íslenskri búskaparsögu. Jörðinni,
sem komin var í eyði, var á fáum
árum, með nýjum byggingum og
stórfelldri ræktun, breytt í vildis-
jörö eins og hún raunar áður fyrr
hafði vcrið. Viö þessa uppbygg-
ingu alla naut Hermann í ríicum
mæli sona sinna er uppkomnir
voru og mcira eða minna í bú-
skapnum með honum. Einn
þeirra býr þar nú, ágætu búi,
ásamt fjölskyldu sinni.
Hermann og Þura eignuöust
níu börn. Einn dreng misstu þau,
en hann fæddist andvana. Hin
eru: Pétur Gauti, starfsmaður hjá
ísal, kvæntur Guðríði Sveins-
dóttur, Árni Steinar, bóndi á
Ytri-Bægisá, kvæntur Róslínu
Jóhannesdóttur, Sólveig, búsctt á
ísafirði, gift Óskari Eggertssyni,
rafvirkjameistara. Þóra, búsett á
Akureyri, gift Karli Stefánssyni,
kennara við Verkmennta-
skólann, Kristján Ingi, bóndi í
Lönguhlíð, kvæntur Jórunni Sig-
tryggsdóttur, Jóhann Steindór,
búsettur á Akureyri, starfsmaður
hjá Skeljungi h/f, kvæntur liagn-
heiði Magnúsdóttur, Þórarinn
Dagur, kjötiðnaðarmaöur,
búsettur á Akureyri, kvæntur
Jónu Jónsdóttur, Anna, fóstra,
búsett í Reykjavfk, sambýlis-
■maður liennar er Jóhann Péturs-
son, kennari. Einn son cignaðist
Hermann utan hjónabandsins.
Hann heitir Hreinn Heiðar og
veitir nú forstöðu útibúi Lands-
bankans á Hvolsvclli. Kona hans
er Valdís Þórarinsdóttir. Barna-
börnin eru 33 og barnabarna-
börnin 9 svo aö ættboginn er nti
þegar orðinn æði fjölmennur.
Hermann var meðalmaður át
hæð og samsvaraði sér vel. fríður
í andliti og svipurinn hreinn og
einbeittur. Hann var góður verk-
maður hvar sem hann tók til
hendi, þaulvanur búfjárhirðingu
frá blautu barnsbeini, sinnti vel
þeim þætti búskaparins og mun
Irafa haft góðan arð af skepnum
sínum. Ég man frá gamalli tíð að
hann hafði mikla ánægju af góð-
um reiðhestum en gat víst ekki
sinnt slíku eins og hugurinn stóö
til.
Hann var vel greindur en við-
kvæmur, skapmikill og ör í lund.
Átti það til að reiöast snögglega
ef honurn mislíkaði eða fannst
sér misboðið á einhvern hátt.
Sást hann þá ekki ætíð fyrir í orð-
um né vandaði kveðjurnar. Var
þá sama hver í hlut átti. En eins
og oft er um þá menn er slíkt
skaplyndi hafa hvarf gremjan oft-
ast úr huga hans jafn fljótt og hún
hafði orðið til. Það var líka fjarri
Hermanni að vilja eiga í útistöð-
um við einn eða neinn. Til þess
var hann alltof félagslyndur og
glaðsinna í eðli sínu. Hann naut
jjess að eiga gleðistund í góðra
vina hópi, naut þess að spjalla
um alla heima og geima, rifja upp
atburði sem gjarnan voru þá
eitthvað spaugilegir eða taka lag-
ið því að hann hafði yndi af söng
og hafði sjálfur laglega söngrödd.
Hann hafðiu líka gott brageyra
og gat vel sett saman vísur en
lagði sig lítið eftir því. Aftur á
móti kunni hann mikið af vel
kveðnum tækifærisvísum eftir
hina og þessa og hafði sérstaka
ánægju af því, einkum nú á síðari
árum, að fara með þær og lofa
öðrum að njóta þeirra með sér.
Árið 1974 fluttu Hermann og
Þura frá Lönguhlíð til Akureyr-
ar, kcyptu íbúð að Hrafnagils-
stræti 34 og áttu þar heima síðan.
Næstu árin vann Hcrmann við
ýmis störf á Akureyri. Grunar
mig aö oft muni hann hafa sakn-
að sveitarinnar þó að ég heyrði
hann ekki hafa þar um mörg orð.
Undrar það víst epgan sem til
þekkti. Nokkrum árum eftir
flutninginn til Akureyrar varð
Hermann að gangast undir
skurðaögerð því að fjrlægja
þurfti æxli úr höfði hans. Þetta
var mikil aögerð og erfið svo að á
tímabili var honum vart hugaö
líf. Þó sigraði lífið í það sinn en
aidrei náöi hann sér eftir þetta.
Fann ég það oft, er hann var að
rifja upp gamlar minningar eða
segja frá cinhverju sem hann
hafði lesið, að honum hætti til að
fara rangt með og rugkt saman
atburðum, því að minnið var
ekki cins trútt og áður. Síðustu
árin var hann orðinn þungur upp
á fótinn og sjónin döpur, þó ald-
rei svo að hann gæti ckki litið í
bók eöa horft á sjónvarpið sér til
ánægju og hugarhægðar.
Hér hefur verið fariö fljótt yfir
sögu. Það var heldur ekki ætlun
mín að segja ævisögu Hermanns
Valgeirssonar. Það verður ekki
gert í einni blaðagrein. Ævi sér-
hvers manns getur líka verið efni
í heila bók ef sá heldur á pennan-
um er kann til verka. Þá ekki síð-
ur en annarra ævi þessa vinar
míns, svo margbreytilegt og litr-
íkt var líf hans allt.
Og nú er Hermann dáinn.
Auövitað laut liann þarna lög-
máli lífsins rétt eins og viö eigum
öll eftir að gera. Að leiðarlokum
bið ég algóðan Guð að blessa
hann og halda verndarhendi yfir
honum um alla eilífð. Það er
söknuður í huga mínum en
minningin verður ekki frá mér
tekin. minningin um tryggan vin
og góðan dreng.
Arnstcinn Stcfánsson.
Birting afmælis- og
minningargreina
Dagur tekur afmælis- og minningargreinar til birtingar endurgjalds-
laust. Tekið er við greinunum á ritstjórn blaðsins að Strandgötu 31,
Akureyri svo og á skrifstofum blaðsins á Húsavík og Sauðárkróki.
Athygli skal vakin á því að greinar verða að berast með góðum
fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í fimmtudagsblaði, að
berast síðdegis á þriðjudegi og hliðstætt er með greinar aðra daga.
Þá eru minningargreinar ekki birtar í laugardagsblaði.
Meginreglan er sú að minningargreinar birtist undir fullu nafni
höfundar.