Dagur - 24.04.1990, Síða 16
Sigluíjörðiir:
Innbrot í Sjálfstæðishúsið
Á sunnudagsmorgun var brot-
ist inn í Sjálfstæðishúsið við
Grundargötu á Siglufirði.
Miklar skemmdir urðu á inn-
réttingum og innanstokksmun-
Háskólinn
á Akureyri:
Fjórar umsóknir
um lektorsstöður
Menntamálaráðuneytinu bár-
ust fjórar umsóknir um lausar
lektorsstöður við Háskólann
á Akureyri. Auglýstar voru
tvær stöður við heilbrigðis-
deild, ein staða við rekstrar-
deild og tvær stöður við sjáv-
arútvcgsdeild.
Um stöðumar í heilbrigðis-
deild barst cin umsókn og kont
hún t'rá Regínu Stefnisdóttur.
Um lektorsstöðu í efnafræði
barst umsókn frá Sigþóri Pét-
urssyni og tvær umsóknir bárust
unt lektorsstöðu í lífefna og
um, en í gær hafði lögreglan
ekki komist að því hverjir
valdir voru að verkinu.
Yfirlögregluþjónn og varð-
stjóri lögreglunnar á Siglufirði
sinna rannsóknunt mála af þessu
tagi á Siglufirði, en þar starfar
ekki sérstakur rannsóknarlög-
reglumaður.
Töluvert hefur verið um inn-
brot í bænum í vetur, að sögn
lögreglumanns sent Dagur ræddi
við. Fæst innbrotanna hafa verið
í heimahús, þótt slíkt komi fyrir,
en flest í vinnuskúra við bygging-
arstaði, verslanir og samkomu-
hús. Pess er skemmst að minnast
að brotist var inn í Útvcgsbank-
ann á Siglufirði sl. Iiaust.
Ekki var neinu fé stolið í inn-
brotinu í Sjálfstæðishúsið, en
þeim mun meiri skemmdir unn-
ar. Innbrot þetta er mikið rætt
manna á meðal á staðnum, og
þykir mörgum sem fjöldi inn-
brota í vetur hafi verið með
mesta móti. EHB
Unnið við uppgröft á tunnununi við Steinullarverksmiðjunna á Sauðáróki. Innihald tunnanna er í rannsókn í
Reykjavík. Mynd: kg
Tunnurnar við Steinullarverksmiðjuna á Sauðárkróki:
örverufræði viö sjávarútvegs-
deild, frá Hjörleifi Einarssyni
og Þórarni Sveinssyni.
Um lektorsstöðu í þjóðhag-
fræði barst umsókn frá Lilju
Mósesdóttur.
Menntamálaráðuneytið hefur
leitað umsagnar Háskólanefnd-
ar Háskólans á Akureyri um
umsóknirnar og verður ráðið í
stöðurnar að fengnu áliti nefnd-
arinnar. JÓH
Norðurland:
Enn glímt við
ófærð á vegum
Töluverður hópur fólks leuti í
hrakningum á Öxnadalsheiði
sl. sunnudagskvöld í skafrenn-
ingi og ófærð. Nokkrir bílar
sátu fastir, þar af tveir hóp-
ferðabílar. Fólkið í þeim varð
að ganga ytir skafla í Bakka-
selsbrekkunni og að bílum
sem komu frá Akureyri til
hjálpar.
Ófærðartíðindum virðist
seint ætla að linna þrátt fyrir
komu sumars. Skafrenningur
lokaði vegum víöa á Norður-
landi um hclgina eða gerði þá
illa yfirferðar, en f gær hafði
Vegagerðin opnað helstu leiðir.
Að sögn starfsmanns vegaeft-
irlitsins á Akureyri fóru vega-
gerðarmenn af stað snemma í
gærmorgun og opnuðu Öxna-
dalsheiði og var orðið fært til
Reykjavíkur í gær. Einnig var
fært austur unt til Vopnafjarðar
svo og á helstu leiðurn, s.s. til
Ólafsfjarðar og Grenivíkur. SS
Dalvík:
Fiskuppboð í dag
Að sögn Hilmars Dantelsson-
ar verður fyrsta fiskuppboð
Fiskmiðlunar Norðurlands
haldið í dag þriðjudag kl. 10 í
fiskverkunarhúsi Haraldar
hf. á Dalvík.
Boðin verða upp 12 til 15
tonn af netafiski, sem koma frá
Grímsey með nýju ferjunni. ój
„Höfum alltaf starfað í samráði
við bæjar- og heilbrigðisyfirvölcT
segir framkvæmdastjóri verksmiðjunnar
Milli 20 og 30 tunnur fundust
við uppgröft á lóð Steinullar-
verksniiðjunnar á Sauðárkróki
á föstudag. Innihald tunnanna
eru úrgangsefni sem falla tij
við framleiðslu á steinull. í
Minkur var skotinn heima við
íbúðarhús á bænum Syðri-
Bakka í Kelduhverfi seint á
sunnudagskvöld. Það var Ing-
ólfur Hcrbertsson frá Akureyri
sem skaut minkinn, en Ingólf-
Fiskiðjusamlag
Húsavíkur:
Boðið í
Barðann GK
tunnuniim er að fínna urea- og
resinefni, auk salmíaklausnar.
Við uppgröftinn komu göt á
nokkrar tunnur og lak græn-
leitur og rauðleitur vökvi úr
þeim.
ur var gestkomandi á bænum.
Heimilisfólkið hefur ekki fyrr
orðiö vart við mink heima við
bæinn, en telur að mikið sé um
mink í nágrenninu og hefur séð
slóðir eftir hann í vctur. Það var
klukkan að ganga 11 á sunnu-
dagskvöld sem húsbóndanum á
Syðri-Bakka, Agli Stefánssyni
varð litið út um eldhúsgluggann,
sér hann þá einhvcrja skepnu
koma heim að húsinu, hélt fyrst
að þar væri köttur á ferðinni og
fannst það furðulegt þar sem
langt er til næstu bæja. Minkur-
Að sögn Einars Einarssonar
framkvæmdastjóra verksmiðj-
unnar var svæði það sem tunn-
urnar voru grafnar á samþykkt af
heilbrigðis- og bæjaryfirvöldum
fyrir urðun efna af þessu tagi.
inn kom að eldhúsglugganum.
fór hálfhring um luisið og var
kominn að eldhúsglugganum aft-
ur þegar Egill hljöp út ásamt Ing-
ólfi sem skaut skepnuna. „Það er
líklega best að passa sig að hafa
útidyrnar lokaðar," sagði Ingi-
björg Jóhannesdóttir, húsfreyja á
Syðri-Bakka, en henni líst ekk-
ert á aö fá fleiri slíka gesti aö hús-
inu. Sagði hún minkinn mórauð-
an og ljótan á feldinn, vera að
fara úr hárum og ekki til upp-
stoppunar, eða nokkurs hlutar
nýtilegan. IM
„Fréttaflutningur í máli þessu
hefur veriö til skammar. Reynt er
að gefa í skyn að við séum að
brjóta rcglur og lög viö meðferð
þessara efna. Við höfum alltaf
starfað í samvinnu og samráði við
bæjar- og heilbrigðisyfirvöld. Sá
orðrómur komst af stað að við
hefðum grafið þarna hreint
ammóníak og álíka efni en það er
að sjálfsögðu hreinn uppspuni,"
sagði Einar.
Þegar uppgröftur á tunnunum
hófst virtist enginn vita hvað þær
innhéldu. „Framkvæmdin á upp-
greftrinum var ekki til fyrirmynd-
ar. Með stórvirkum vinnuvélum
voru sett göt á margar af tunnun-
um. Hefði verið um hættuleg
eiturefni að ræða, eins og DV gaf
í skyn, voru þær alls ekki með-
höndlaðar sem slíkar." sagði Ein-
ar.
Erfiölega gengur að fá upplýs-
ingar um af hvers frumkvæði
uppgröfturinn var fyrirskipaður.
Hverjir eru ábyrgir fyrir fram-
kvæmd uppgraftrarins liggur
heldur ekki fyrir. kg
Kelduhverfi:
Minkur skotinn við húsvegg
Fiskiðjusanilng Húsavíkur hef-
ur gert tilboð í Barðann GK,
um 200 lesta bát frá Sandgerði.
Tryggvi Finnsson, fram-
kvæmdastjóri Fiskiðjusamlags
Húsavíkur staðfesti í samtali viö
Dag að tilboð hefði verið gert í
bátinn, en vildi ekki tjá sig nánar
um málið á þessu stigi. Tilboð i
bátinn eru til athugunar hjá
skiptaráðanda, sem ekki hefur
tekið afstöðu til þeirra enn.
Hráefnisskortur hefur háð
Fiskiðjusamlaginu á þessu ári.
Stafar hann af tregum aflabrögð-
um hjá Húsavíkurbátum og
miklu gæftaleysi það sem af er
árinu. Einnig sigldi Kolbeinsey
með afla úr einni veiðiferð fyrir
páskana. IM
Heilbrigðisfulltrúinn á Sauðárkróki:
„Tunnumar grafiiar án vit-
undar heilbrigðisyílrvalda“
Ekki er allt seni sýnist í tunnu-
málinu við Steinullarverk-
sniiðjuna á Sauðárkróki. Að
sögn Sveins Helga Guðmunds-
sonar, heilbrigðisfulltrúa á
Sauðárkróki, voru tunnurnar
grafnar án vitundar eða sam-
þykkis, heilbrigðisyfírvalda.
Einnig höfðu heilbrigðisyfír-
völd ckki upplýsingar um
hversu mikið magn efnaúr-
gangs væri um aö ræða þegar
ráðist var í uppgröftinn.
Að sögn Sveins fengust ekki
upplýsingar hjá verksmiðjunni
áður en uppgröfturinn hófst um
hvaða efni þarna væri að ræða né
í hvaða magni. Um framkvæmd
uppgraftrarins eru mjög skiptar
skoðanir. „Ég veit ekki betur en
Steinullarverksmiðjan hafi pant-
að það tæki sem notað var viö
uppgröftinn," sagði Sveinn
Helgi.
Þetta stangast á við orð Einars
Einarssonar, framkvæmdastjóra
Steinullarverksmiðjunnar. Að
hans sögn var farið í uppgröftinn
án samráðs við verksmiðjuna og
áttu starfsmenn hennar þar eng-
an hlut að máli. Ekki liggur Ijóst
fyrir hvaða aðilar fyrirskipuðu
raunverulega þennan uppgröft.
Mál þetta er í rannsókn og senni-
lega cr niöurstöðu ekki að vænta
alveg á næstunni. kg