Dagur - 25.04.1990, Page 3
Miðvikudagur 25. apríl 1990 - DAGUR - 3
Litli og stóri í samstuði
Einn af vorboðunum á Akureyri er ötull götusópari, sem keppist þessa dagana viö að sópa breiðstræti bæjarins.
Hann getur lent í umferðaróhöppuin eins og önnur ökutæki og það henti einmitt á niótum Gránufélagsgötu og Gler-
árgötu í gær. Betur fór þó en á horfðist og skcmmdir urðu óv ulegar á bílunum. Mynd: Kl
Leiklist:
Leikararmðlun
komið á fót
Fclag íslenskra leikara hefur
koniið á fót leikaraniiölun.
sem er ný þjónusta hér á landi.
I höfuðstóðvuni félagsins að
Lindargötu 6 í Reyk javík hefur
verið koinið upp skrá sem
geymir nöfn félaga í Félagi
íslenskra lcikara og Félagi leik-
stjóra á íslandi.
Þeir sem eru á skrá leikara-
miðlunarinnar eru tilbúnir til að
vinna tímabundið eöa í lengri
tíma að ákveðnu verkefni. Þetta
er gert til að auðvelda bæði þeim
sem leita þessara starfskrafta og
Ifélgum FÍL og FLÍ að nýta tím-
ann sem best.
„I félögunum eru leikarar,
leikstjórar, leikmyndateiknarar,
dansarar og söngvarar. Fólk sem
hefur margvíslega reynslu og
menntun að baki. Ef þig vantar
t.d. upplestur, skemmtidagskrá.
Vinnumálaskrifstofa félagsmálaráðuneytisins:
Bágborið atvinnuástand á Norðurlandi
- atvinnuleysi á Húsavík meira en í mun fjölmennari kaupstöðum
Atvinnuástandið á landinu í
marsmánuði síðastliðnum var
svipað og í febrúar þcgar á
heildina er litið. Samtals voru
skráðir rúmlega 62 þúsund
atvinnuleysisdagar á landinu
öllu í marsmánuði og var skipt-
ing milli kynja sem næst jöfn.
Þetta jafngildir því að 2.900
manns hafí að ineðaltali verið
á atvinnuleysisskrá sem svarar
til 2.3% af áætluðum mannafla
á vinnumarkaði. Meðaltal
marsmánaðar sl. fímni ár nem-
ur hins vegar 1,1% af mann-
afla.
Atvinnuleysi er sein fyrr mest á
Norðurlandi. Á Norðurlandi
vestra mældist það 4,5% í mars,
4,3% á Norðurlandi vestra og
3,8% á Austurlandi. Á Norður-
landi vestra voru 237 atvinnu-
Hvammstangi:
Áburðarverksmiðjaii
í V-Húnavatnssýslu?
- „vel staðsett hér,“ segir Þórður Skúlason
Hvammstangabúar hafa sýnt
því mikinn áhuga að fá Áburð-
arverksmiöju ríkisins í Vestur-
Húnavatnssýslu ef af flutningi
hennar verður. Stjórn átaks-
verkefnis í atvinnumálum í V-
Húnavatnssýslu kom saman í
gær til að ræða máliö. Að sögn
Þórðar Skúlasonar sveitar-
stjóra á Hvannnstanga mælir
margt með því að verksmiðjan
verði staðsett í V-Húnavatns-
sýslu.
Háskólinn á Akureyri:
Fundur um
gæðastjórnim
Gæðastjórnunarfélag Norður-
lands, sem stofnað var
skömmu fyrir síðustu áramót,
boðar til fundar undir yfír-
skriftinni „Á leiðinni heim“, í
dag, miðvikudaginn 25. maí.
Fundurinn verður haldinn í
stofu 16 í Háskólanum á Akur-
eyri og hefst kl. 17.15. Allir sem
láta sig gæðamál einhverju skipta
eru hvattir til að mæta.
Á fundinum verður félagið
kynnt og hugað að framtíð þess.
Einnig verða stutt erindi um
gæðakostnað og hugtök í gæða-
stjórnun. Að lokum verða um-
ræður um hagnýtingu gæða-
stjórnunar í fyrirtækjum, en
áhugi er fyrir því að fyrirtæki geti
samnýtt þekkingu á þessu sviði.
SS
„Hafnarskilyrði eru víða mjög
góð hér t.d. í Miðfirði. Svæðið er
utan jarðskjálfta- og eldvirkni-
svæða. Samgöngur eru góðar til
allra átta og það er skynsamlegt
að verksmiðjan sé staðsett mið-
svæðis á landinu," sagði Þórður.
Með tilkomu Blönduvirkjunar
væri mjög stutt að sækja rafmagn
til verksmiðjunnar. Samdráttur í
atvinnulífi og fólksflótti hefur
verið vaxandi í Vestur-Húna-
vatnssýslu undanfarin ár. Sam-
starfshópur um elfingu atvinnu-
lífs í V-Húnavatnssýslu telur að
með staðsetningu Áburðarverk-
smiðjunnar í sýslunni væri liugs-
anlegt að snúa þróuninni við.
„Allt bendir til þess að af flutn-
ingi verksmiðjunnar verði. Við
teljum að hún væri vel staðsett í
Vestur-Húnavatnssýslu," sagði
Þórður að lokum. kg
lausir í mars á móti 258 í febrúar.
Á Norðurlandi eystra uröu engar
brcytingar milli mánaða, 539
atvinnulausir.
Lítum þá á fjölda atvinnu-
lausra i einstökum sveitarfélög-
um á Norðurlandi. Svigatölur
tákna febrúar: Sauðárkrókur 59
(74), Siglufjörður 52 (59), Blöndu-
ós 32 (32), Skagaströnd 12 (17),
Hofsós 16(14), Hvammstangi 14
(18) , Lýtingsstaðahreppur 21
(19) , Ólafsfjörður II (10), Dal-
vík 28 (40), Akureyri 330 (311),
Húsavík 137 (127), Kópasker 13
(6), Raufarhöfn 4 (11), Þórshöfn
4 (6) og Grýtubakkahreppur 9
(15).
Atvinnuleysi á Akureyri og
Llúsavík hlýtur að teljast sláandi.
Til samanburðar má nefna að á
Húsavík eru helmingi fleiri
atvinnulausir en í Keflavík og 37
fleiri en í Hafnarfirði. Þar er líka
töluverð aukning milli mánaða,
svo og á Akureyri og Kópaskeri.
Á Sauðárkróki, Dalvík og Rauf-
arhöfn minnkar atvinnuleysi hins
vegar milli mánaða.
1 yfirliti frá Vinnumálaskrif-
stofu félagsmálaráðuneytisins
kemur fram að langtíma atvinnu-
leysi fer vaxandi. Fjöldi atvinnu-
leysisdaga á fyrsta ársfjórðungi
þessa árs er nálcga sami og á öllu
árinu 1988, auk þess sem at-
vinnuleysistímabil einstaklinga
virðist hafa lengst að undan-
förnu. SS
framsagnarkennslu, söngdag-
skrá, dansatriði. leikstjórn,
kennslu í leikrænni tjáningu,
leikmynd, jólasveina, trúðaleik,
kynni eða þul, þá er atvinnumiðl-
un leikara reiðubúin til aðstoð-
ar," segir í tilkynningu frá sam-
starfshópi um leikaramiðlun. SS
Sauðárkrókur:
K.S. tryggir sér
byggingarlóðir
- fyrirhugað að reisa
bifreiðaverkstæði
Kaupfélag Skagfírðinga hefur
verið úthlutað þremur lóðum
við Borgarflöt Sauðárkróki.
Kaupfélagið fyrirhugar bygg-
ingu húsnæðis undir bifreiða-
verkstæði, smurstöð og aðra
tengda þjónustu. Nýlega
kcypti KS á nauðungaruppoði
húseign að Borgarflöt 27 og er
fyrirhugað að þar verði raf-
magnsverkstæði til húsa.
Astæðan fyrir að Kaupfélagið
er að tryggja sér þessar lóðir nú
er að núverandi húsnæði þar sem
bifreiðaþjónusta KS er til húsa
verður rifið á næstu árum.
í bæjarskipulagi er gert ráð fyr-
ir að þar rísi íbúðarhúsnæði.
Sauðárkróksbær hefur nú þegar
keypt þær húseignir Kaupfélags-
ins. Ekki verður þó ráðist í bygg-
ingar á þeim lóðum sem KS hefur
fengið úthlutað fyrr en aö nokkr-
um árum liðnum. kg
Gatnagerð í Giljahverfi:
Verkval með lægsta tilboðið
Tilboð í gatnagerð í 1. áfanga
Giljahverfís á Akureyri voru
opnuð á skrifstofu bæjarverk-
fræðings í gær. Lægsta tilboðið
kom frá Verkvali hf.
Segja má að um tímamótaút-
boð sé að ræða hjá Akureyrarbæ,
því það er nýmæli að gatnagerð á
vegum bæjarins sé boðin út.
Hingað til hefur Akureyrarbær
unnið slík verk með tækjum og
starfsmönnum sfn um.
Fjögur tilboð bárust. Möl og
sandur hf. bauö í verkiö fyrir
22,4 milljónir króna, Ýtan hf. kr.
25 milljónir, Haildór Baldursson
24,9 milljónir og Verkval hf. 19,2
milljónir. Kostnaðaráætlun
hljóðar upp á kr. 21,4 milljónir,
vcrkinu á að skila um mánaða-
mótin júní-júlí. EHB
Óhappið í Áburðarverksmiðjunni í umijöllun ríkisstjórnar:
Mikilvægt að viðhalda áburðar-
framleiðslu í landinu
„Ríkisstjórnin telur mikilvægt
að viðhalda áburðarfram-
leiðslu í landinu með þeim
störfum sem þar skapast og til-
heyrandi verðmætasköpun,
enda sé um þjóðhagslega hag-
kvæma starfsemi að ræða.
Sanitímis lýsir ríkisstjórnin sig
reiðubúna til viðræðna við
Ferðamannaiðnaðurinn:
Nýtt íyrirtæki í Reykjavík
Nýtt fyrirtæki í Reykjavík hef-
ur hafíð störf í ferðamannaiðn-
aðinum. Nafn fyrirtækisins er
Napco og sér um leigu á íbúð-
um til ferðamanna.
Að sögn annars eiganda fyrir-
tækisins, Sigurðar Magnússonar,
er vörumerki fyrirtækisins Arn-
fjörð.
„Napco hefur 10-20 íbúðir til
leigu í Reykjavík í nriðbæjar-
kjarnanum. Leiguverð þeirra er
svipað og leiga hótelherbergis.
Símapantanir er hægt að gera í
síma 996000, en það er grænt
númer þ.e. sé hringt í númerið
reiknast þaö sem innanbæjar
væri," sagði Sigurður.
Fyrirtækið sér einnig um pant-
anir hótelherbergja og er albúið
að veita landsbyggðarfólkinu
skjóta og góða þjónustu. ój
Reykjavíkurborg um franitíð
verksmiðjunnar í Gufunesi,
sbr. samþykkt borgarráðas frá
17. apríl s.l.“ Þetta er liluti
ylirlýsingar ríkisstjórnarinnar
sem fjallaði á fundi sínum fyrir
liclgi um óhappið sein varð í
Áburðarverksmiðjunni um
páskana.
Ríkisstjórnin leggur áherslu á
að ýtarlegri rannsókn á orsökum
óhappsins sem varð á páskadag
ljúki hið fyrsta. Ríkisstjórnin
mun sjá til þess að lokið verði svo
fljótt sem auðið er yfirstandandi
öryggisgreiningu í verksmiðjunni
og í beinu framhadli af því veröi
gert heildaráhættumat með
aðstoð viðurkenndra erlendra
sérfræðinga. Þá verði einnig aflað
upplýsinga um staðsetningu,
öryggisbúnað og rekstur
ammolníaksgreyma og sambæri-
legra verksmiðja erlendis.
Loks fólk ríkisstjórnin land-
búnaðarráðherra og félagsmála-
ráðherra að sjá til þess að rekstri
verksmiðjuunnar
þannig að fyllsta
gætt.
veröi hagað
örygitis verði
JÓH
Protabú Rafns hf.:
Norðlendingar
sýna áhuga
Ahugi útgerðarmanna á Norð-
urlandi fyrir skipum Rafns hf. í
Sandgerði er töluverður.
Mjög mörg tilboð hafa liorist í
eignir þrotabús Rafns hf. í Sand-
gerði, að sögn Símonar Ólafsson-
ar, bústjóra þrotabúsins.
Aðspurður sagði Símon:
„Nokkur tilboð hafa borist í skip
félagsins af Norðurlandi, en að
svo komnu máli er ekki hægt að
birta nöfn þcirra. Margir óska
nafnleyndar á þessu stigi málsins
og eins erum við að fara yfir til-
boðin. Þetta kemur allt í ljós
fljótlega." ój