Dagur - 25.04.1990, Blaðsíða 7

Dagur - 25.04.1990, Blaðsíða 7
Miðvikudagur 25. apríl 1990 - DAGUR - 7 Nýtt leikherbcrgi á barnadeildinni. Iíins og sjá má eru börnin á ýmsum aldri. KafTistofa starfsfólks barnadeildarinnar. fólk mjög ábótavant. Til þess að vel megi við una þurfa að koma til tvö einangrunarherbergi, stærri vökustofa, leikherbergi, dagstofa fyrir eldri börn sem gæti verið kennslustofa um leiö, skoð- unarherbergi, snyrtingar. bað. skol, geymlsur, stærri vakt, her- bergi fyrir deildarstjóra og að- staða fyrir foreldra. Ýmsum spurningum er enn ósvarað varð- andi Barnadeild FSA. svo sem varðandi hlutverk deildarinnar, húsnæðismál og áform yfirvalda gangvart henni í framtíðinni. Heilbrigðisþjónusta barna og unglinga á að vera forgangsverkefni Eftir skoöun og kynningu á barnadeild FSA, var hlýtt á fyrir- lestur um mjólk sem Kolbeinn Guömundsson aðstoðarlæknir flutti. Því næst var matur í boði FSA en eftir hádegi var fjallað um viðhorf og stefnumótun innan sjúkraþjónustu barna og unlinga, en þær Halldóra Kristjánsdóttir formaður deildar barnahjúkrun- arfræðinga og Alda Halldórsdótt- ir barnahjúkrunarfræðingur fluttu þau erindi. Barnahjúkrunarfræðingar telja einn málaflokk innan heilbrigðis- þjónustunnar, þ.e. sjúkraþjón- ustu barna og unglinga, ekki hafa náð fótfestu eða vcrið forgangs- verkefni hjá heilbrigöisyfirvöld- um. Nú þcgar almenn umræða snýst um að samfélagið hafi breyst og lífskjör þrengst, upp- eldisstörf séu unnin í hjáverkum hjá ungu fjölskyldunni, þá sé Ijóst að slík þróun hafi áhrif á börn og unglinga, því þroski, uppvöxtur og heilsa sé að miklu leyti háð þeirri aðstöðu sem börn búa við. Á námstefnunni var lögð áhersla á að hafa áhrif á íslensk heilbigðisyfirvöld, þannig að við gerö íslenskrar heilbrigðisáætlun- ar verði heilbrigðisþjónusta barna og unglinga eitt af for- gangsverkefnum á hvcrjum tíma, bæði hvaö varðar forvarnir, heilsugæslu og sjúkraþjónustu. Brýnt þykir að foreldrar og for- ráðamenn barna og unglinga geti milliliðalaust átt greiðan aðgang aö sjúkraþjónustu allan sólar- hringinn og að upplýsingar um aðgengi séu öllum Ijós. Um næstu helgi veröur haldin ráðstefna barnalækna og barna- hjúkrunarfræðinga í Rcykjavík, þar sem fjallað verður um fram- tíðarskipulag sjúkraþjónustu barna á íslandi. VG deild fer í upplýsingasöfnun og t'ræðslu. Þá ber að hafa í huga að barni fylgir móðir eða annar að- standandi. Til að geta metið þarf- ir og líöan barnsins þarf nána samvinnu við foreldra/aðstand- endur og til að ná áætlunum okk- ar þarf stuðningur náins ættingja, í flestum tilfellum móður. Hjúkrunarfræðingar skipta með sér verkum, vinna kennslu- og fræðsluáætlun og skipta sjúk- dómaflokkum á milli sín. Tel ég þetta hafa gengið afar vel, hægt hefur verið að hafa samband við hjúkrunarfræðing eftir heim- komu ef óöryggi eða spurningar hafa vaknað og hefur þetta kom- ið á trausti og góðum kynnum milli einstaklinga. Fyrir utan að fræða barn og aðstandendur hefur verið unnið með umhverfinu, þ.e. skólafélög- um og kennurum og samvinna tekin upp við skólahjúkrunar- fræðing. Undirbúningur fyrir rannsókn- ir, aðgerðir og fleira er í höndum hjúkrunarfræðinga, notaðar eru myndir, áhöld sem nota á, brúð- ur o.fl. og eru aðstandendur hafðir með í undirbúningnum og jafnframt hvattir til að fylgja barni sínu í hinar ýmsu rann- sóknir. Með auknum undirbúningi fyr- ir aðgerðir hefur sýnt sig að draga má úr lyfjagjöf fyrir aðgerðir. Til gamans má geta þess að hjúkrun- arlið á barnadeild FSA í sam- vinnu við fræðslustjóra FSA hcf- ur skipulagt heimsóknir barna af leikskólum á Akureyri. Börnun- um 6-8 í hóp er fylgt um sjúkra- húsið, þau koma við á röntgen- deild og rannsókn, skoða og fá upplýsingar unt barnadeildina. Þá er sett upp sýnikennsla með dúkku sem er veik. Þctta vekur mikla ánægju og fáum við sem þakklæti margar skemmtilegar myndir sem þau gera af heim- sókninni. Tilgangur ferðarinnar er að draga úr sjúkrahúsótta, en á hverjum degi fá börnin tíma með fóstru þar sem þau tjá sig í leik og starfi. Þau teikna, leira og losnar þá oft um spennu og hræðslu sem í þeim býr. Kemur það í veg fyrir að þau útskrifist ineð innibyrgðar tilfinningar sem fá útrás eftir heimkomu. Foreldrum er heimilt að dvelja hjá börnum sínum að vild og er oft þröngt á þingi þegar foreldrar verða jafnmargir börnunum, jafnve! fleiri. Reynt er að útbúa svefnstæði við rúm barnsins þeg- ar þess gerist þörf; barn á brjósti eða foreldri fjarri heimili. Enginn í dag dregur í efa ágæti þess fyrir móður og barn að vera saman. Hjúkrun - görgæsla fyrirbura/ nýbura krefst mikils öryggis, samviskusemi og samvinnu. Þar þarf bæði að koma til þekking á lífinu, lífeðlisfræðinni og tækn- inni. Öndunarvél er til staðar, fylgst er með öndun, púls, línu- riti, súrefnismettun í blóði, litar- hætti, lyfjagjöfum og næringu. Hlúð er að móður/föður og þörf- um þeirra og þau upplýst um allt er við kemur barni þeirra. Það er ósk mín að í framtíðinni þurfi sern fæst börn að leggjast inn á sjúkrahús. Foreldrar fái aukna fræðslu um forvarnir og heilbrigt líferni, heimahlynning verði aukin, dagdeildarþjónusta og aðstaða fyrir foreldra sem koma langt að bætt og þeim gert auðvelt að hafa barn sitt hjá sér. Einnig þarf að bæta tryggingar- kerfi svo foreldrar geti vcitt sjúku barni sínu sem besta umönnun. En aldrei verður hægt að koma í veg fyrir sjúkdóma og innlagnir og þau börn sem þurfa á sjúkra- hússvistun að halda eiga kröfu um bætta aðstöðu. Enn þann dag í dag hefur engin barnadeild ver- ið byggð með þarfir barna í huga, en vonandi rætist fljótlega úr því.“ Sjómenn! Aðalfundur Sjómannafélags Eyjafjarðar verður haldinn föstudaginn 27. apríl n.k. að Skipagötu 14, 4. hæð og hefst kl. 11.00 f.h. Dagskrá fundarins: 1. Skýrsla stjórnar fyrir liðið starfsár. 2. Endurskoðaðir reikningar lagðir fram til afgreiðslu. 3. Endurskoðun á reglugerð sjúkrasjóðs félagsins. 4. Matarhlé. 5. Umræður um kaup á öðru sumarhúsi. 6. Önnur mál. Stjórnin. Útskriftarnemar V.M.A. 1989 Nú höldum við upp á eins árs útskrift í Sjallanum 25. maí n.k. með borðhaldi o.fl. Áríöandi fundur á Eyrarlandsholti fimmtudaginn 26. apríl kl. 20.00. Athugið þetta á ekki einungis við stúdenta heldur alla útskriftarnema. Nánari upplýsingar gefur Ólöf í síma 27586 frá kl. 09.00-18.00. Mætum öll. 's____________________________________-J Framsóknarfólk Húsavík Umræðufundir um mótun stefnuskrár B - listans fyrir bæjarstjórnarkosningarnar á Húsavík verða haldnir í Garðari sem hér segir: Fimmtudaginn 26. apríl kl. 20.30. íþrótta- og æskulýðsmál. Heilbrigðis- og félagsmál. Mánudaginn 30. apríl kl. 20.30. Umhverfis- og skipulagsmál. Hafnarmál. Miðvikudaginn 2. maí kl. 20.30. Skólamál. Menningarmál. Fimmtudaginn 3. maí kl. 20.30. Atvinnumál. Fjölmennum. Frambjóðendur! Félag verslunar- og skrifstofufólks, Akureyri Stmi 21635 - Skipagötu 14 SUMARHÚS til leigu fyrir félaga verslunar- og skrifstofufólks Akureyri og nágrenni. Félagið hefur til umráða hús á eftirtöldum stöðum; lllugastaðir, Aðaldalur, Skógarsel í Vaglaskógi, Bjark- arlundur í Vaglaskógi, Ölfusborgir, Grímsnes, íbúð í Reykjavík og íbúð á Egilsstöðum. Þeir sem aldrei hafa verið áður ganga fyrir. Eyðublöð og upplýsingar á skrifstofu félagsins Skipa- götu 14, sími 21635. Umsóknarfrestur er til 4. maí 1990. Ekki verður tekið á móti umsóknum í síma. Leiga á íbúðum er kr. 7.000,- Leiga lllugastaðir og Ölfusborgir kr. 7.000,- Leiga Skógarsel, Grímsnes, Bjarkarlundur og Aðal- dalur kr. 6.000.- F.V.S.A.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.