Dagur - 08.05.1990, Síða 2
2 - DAGUR - Þriðjudagur 8. maí 1990
Léleg aflabrögð
á Bakkafirði:
„Sumarið er
komið og þá
lagast allt“
„Allir karlar eru á sjó,“
sagði Eygló Antonsdóttir
hjá Útveri hf. á Bakkafirði,
þegar Dagur leitaði upplýs-
inga um afiabrögð þar
eystra.
Lítil veiði hefur verið hjá
trillukörlum á Bakkafirði
undanfarið, enda margir frí-
dagar og veður hefur hamlað
sjósókn.
„Hér hefur allt verið í hönk
hjá trillukörlunum eftir óveðr-
ið. Net voru mikið flækt og
greiða varð úr þeim. Nú eru
allir á sjó í besta veðri og von-
andi gefur fiskurinn sig.
Fjórir gera út á grásleppu,
en þetta er lélegt. Sumarið er
komið og þá lagast allt,“ sagði
Eygló hjá Útveri. ój
------------------------------I
Hundraðasti aðalfundur Sparisjóðs Kinnunga:
Sameining sparisjóðanna heimiluð
fréttir
Hundraðasti aðalfundur Spari-
sjóðs Kinnunga var haldinn sl.
sunnudag að Stórutjörnum. I
tilefni afmælisins var um
hátíðafund að ræða og var
stofnfjáraðilum boðið í
afmæliskaffí, fram borið af
konum í Kvenfélagi Ljósvetn-
inga.
A aðalfundinum var samþykkt
mótatkvæðalaust að heimila sam-
einingu sparisjóðsins við Spari-
sjóð Aðaldæla og Sparisjóð
Reykdæla.
Að sögn Árna Jónssonar, úti-
bústjóra var síðasta starfsár mjög
hagstætt og reyndist innlánsaukn-
ing 38,9%, en hún nam 33%
samtals hjá öðrum sparisjóðum.
Aukning útlána hjá Sparisjóði
Kinnunga á árinu nam 55,6%.
Rekstrarhagnaður var 1,461 þús-
und krónur og nam 125% milli
ára og var 86% umfram verðlags-
breytingar. Eigið fé sparisjóðsins
er 6.173 þúsund kr. og er eigið fé
sem hlutfall af niðurstöðutölu
efnahagsreiknings 13,3%. Raun-
hækkun eigin fjár milli ára er
30,1%, miðað við lánskjaravísi-
tölu.
Sparisjóðurinn flutti frá
Fremstafelli og í útibú KÞ að
Fosshóli 23. apríl sl. Árni sagðist
vera mjög ánægður með nýja og
betri aðstöðu og greinilega mætti
merkja ánægju viðskiptavinanna
með þetta fyrirkomulag, í aukn-
um viðskiptum við sparisjóðinn.
IM
Umfangsmikil könnun Verðlagsstofnunar á vöruverði:
Verðlag er 3,8% hærra
utan höfuðborgarsvæðisins
- verðlag á Akureyri það sama og á höfuðborgarsvæðinu
Verðlag utan höfuðborgar-
svæðinu er að meðaltali 3,8%
Verkalýðsfélagið Eining:
Sjálfkjörið í
trúnaðarmannastöður
Verkalýðsfélagið Eining aug-
lýsti eftir framboðslistum til
stjórnar, varastjórnar og trún-
aðarmannaráðs, varamanna í
trúnaðarmannaráð, endur-
skoðenda og varamanna
þeirra. Skilafrestur var í gær
kl. 12 á hádegi.
Að sögn Sævars Frímannsson-
ar, formanns Einingar, kom
aðeins einn listi fram, núverandi
stjórnar og starfsmanna hennar,
og verður því trúlega sjálfkjörið
á næsta aðalfundi Einingar. ój
Hjúkrunar-
fræðingar
Eftirtaldar stöður
gæslustöðvum
þegar:
1.
hjúkrunarfræðinga í heilsu
eru lausar til umsóknar
nu
Staöa hjúkrunarforstjóra viö Heilsugæslustöö-
ina á Þingeyri.
2. Staöa hjúkrunarforstjóra viö Heilsugæslustöð-
ina í Hólmavík.
3. Staöa hjúkrunarforstjóra viö Heilsugæslustöö-
ina í Neskaupstað.
4. Staöa hjúkrunarforstjóra viö Heilsugæslustöö-
ina í Ólafsvík.
5. Staöa hjúkrunarforstjóra viö Heilsugæslustöð-
ina á Dalvík.
6. Staöa hjúkrunarfræðings viö Heilsugæslustöö-
ina á Djúpavogi.
7. Staöa hjúkrunarfræöings viö Heilsugæslustöðv-
arnar á Fáskrúösfiröi og Stöðvarfirði.
8. Staöa hjúkrunarfræöings við Heilsugæslustöð-
ina á ísafirði.
9. Staöa hjúkrunarfræðings viö Heilsugæslustöö-
ina í Borgarnesi.
10. Hálf staða hjúkrunarfræðings við Heilsugæslu-
stöö Hlíðahverfis í Reykjavík.
11. Staða hjúkrunarfræðings viö Heilsugæslustöö-
ina í Höfn, Hornafirði.
12. Staöa hjúkrunarfræöings viö Heilsugæslustöð-
ina Efra-Breiðholti, Reykjavík. Staðan veitt frá
1. júlí 1990.
13. Staöa hjúkrunarfræðings/ljósmóður viö Heilsu-
gæslustöðina á Skagaströnd. Staöan veitt frá 1.
ágúst 1990.
Umsóknir ásamt upplýsingum um nám og fyrri störf
viö hjúkrun sendist heilbrigðis- og tryggingamála-
ráöuneytinu, Laugavegi 116, 150 Reykjavík.
Hjúkrunarfræðinga vantar á nokkrar heilsu-
gæslustöðvar vegna sumarafleysinga.
Upplýsingar veita hjúkrunarforstjórar heilsugæslu-
stöövanna.
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið,
2. maí 1990.
hærra en á höfuðborgarsvæð-
inu samkvæmt niðurstööum
könnunar Verðlagsstofnunar á
verðlagi í á annað hundrað
matvöruverslunum um allt
land. Könnun náði til 400 teg-
unda mat-, drykkjar-, hrein-
lætis- og snyrtivara.
Að mati Verðlagsstofnunar
liggja ýmsar ástæður að baki því
að verðlag er misjafnlega hátt
eftir byggðarlögum. Flutnings-
kostnaður er þar fyrstur nefndur
til sögunnar, í annan stað að
vöruvelta verslana úti á landi sé
minni en á þéttbýlustu svæðum
og veltuhraði minni. í þriðja lagi
minni kaupmáttur og rekstrar-
kostnaður og í fjórða lagi minni
samkeppni í matvöruverslun borgarsvæðinu.
utan höfuðborgarsvæðisins en á
höfuðborgarsvæðinu.
Ef litið er til Norðurlands og
þá fyrst Norðurlands vestra kem-
ur í ljós að þar er verðlag 2,5%
hærra en á höfuðborgarsvæðínu.
Verðlag á Sauðárkróki er t.d.
2,7% hærra en á höfuðborgar-
svæðinu.
Verðlag á Norðurlandi eystra
reyndist vera 3,4% hærra en á
höfuðborgarsvæðinu, en athygl-
isvert er að verðlag á Akureyri
reyndist ekki vera hærra en á
höfuðborgarsvæðinu. Verðlag á
Dalvík var 1,1% hærra en á
Akureyri, verðlag á Húsavík var
4,8% hærra en á höfuðborgar-
svæðinu og verðlag á Melrakka-
sléttu var 5,6% hærra en á höfuð-
óþh
Nýtt upplýsingarit á ensku um Akureyri:
Whats on in Akueyri“
- kemur út í júní, júlí og ágúst undir
ritstjórn Sigurðar Hróarssonar
99
Ákveðíð hefur verið að gefa út
á Akureyri rit undir nafninu
„Whats on in Akureyri“. Það
er fyrirtækið Atvik hf. í
Reykjavík sem stendur að
útgáfunni. Ritstjóri er Sigurð-
ur Hróarsson, leikhússtjóri á
Akureyri.
Atvik hf. hefur á undanförnum
sex árum gefið út rit undir nafn-
inu „Whats on in Reykjavík". Nú
hefur fyrirtækið ákveðið að færa
út kvíarnar og kynnir nú Akur-
eyri í máli og myndum. í „Whats
on in Akureyri" verða umfjallan-
ir um veitingastaði, söfn og fyrir-
tæki á Akureyri. Einnig verður
þar að finna skrá yfir veitingahús,1
söfn og annað scm lýtur að bein-.
um upplýsingum til ferðamanna
og fyrir hendi er á Akureyri. Ætl-
unin er að ritið komi út í sumar,
í júní, júlí og ágúst. Upplagið er
12 þúsund eintök og verður
útgáfan kostuð af auglýsingum.
Mánaðarlega koma nýjar upplýs-
ingar um hvað er að gcrast á
Akureyri og í næsta nágrenni.
Dreifing ritsins verður á Upp-
lýsingamiðstöðinni á Akureyri og
Reykjavík, hótelum og gisti-
heimilum á Akureyri og öðrum
fjölsóttum viðkomustöðum
ferðamanna þar. óþh
Stangveiðin:
Fer seint af stað
Sumarið er komið að margra
sögn og þessa dagana munda
stangveiðimenn stangir sínar
og æfa fluguköst. Þegar vorar
fer fiskurinn að ganga í árnar
og fyrir sunnan eru stangveiði-
menn löngu farnir að renna
fyrir sjóbirtinginn þegar færi
gefst.
Einar Long á Akureyri er
manna fróðastur um allt er að
stangveiðum lýtur.
„Sjóbirtingsveiði á Eyjafjarð-
arsvæðinu er mjög takmörkuð og
í fyrra veiddust aðeins fáir sjó-
birtingar á stöng á svæði tvö í
Eyjafjarðárá.
Bleikjan, sem menn eru að
veiða núna í sjónum við Akur-
eyri, er niðurgöngufiskur og Dal-
víkingar segja mér að um 20. maí
ár hvert fari bleikja að ganga úr
hafi með fjörum og uppí árnar
hér hjá okkur. Aðstæður allar og
árferði skipta auðvitað miklu
máli og trú mín er sú að vegna
snjóa til fjalla fari veiðin seint af
stað vegna vatnavaxta í ánum,“
sagði Einar Long.
Aðspurður um dorgveiði í vet-
ur upp um ís á Mývatni sagði
Einar: „Fiskurinn var mjög stór
og góður, en ekki var um mikið
magn að ræða og nú er að sjá
hvort Mývatn verður ekki gjöfult
bændum í sumar.“ ój
Húsavík:
Bæjarmála-
punktar
■ Bæjarráö hefur samþykkt
að ráða Halldór Pétursson.
byggingaverkfræðing, í starf
sumarmanns á Tæknideild
Húsavíkurbæjar, en auk hans
sóttu um starfið Bjarni V.
Stefánsson, byggingaverk-
fræðingur, Pétur Hreiöarsson,
byggingafræðingur, Ingólfur
Margeirsson, byggingatækni-
fræðingur, Björgvin Víglunds-
son, byggingaverkfræðingur,
Eyjólfur Valgarðsson, bygg-
ingatæknifræðingur og Yrsa
Sigurðardóttir, byggingaverk-
fræðingur.
■ Gunnar Höskuldsson,
kennari, setti í bréfi til bæjaryf-
irvalda fram hugmyndir um
útivistaraðstöðu við Botsvatn,
m.a. uppsetningu á flotbryggj-
um. báta- og seglbrettaleigu,
hreinlætisaöstöðu o.fl. í bréfi
Gunnars var óskað cftir viö-
brögðum bæjaryfirvalda við
þessum hugmyndum. Bæjar-
ráð hefur falið bæjarstjóra að
kanna ýmsar hliðar þessa máls.
■ Friðrik Sigurðsson, Höfða-
vegi 4, óskaði eítir leyfi til lagn-
ingar sjónvarpsdreifikerfis í
„útbæ“, þ.e. Höfðavegi, Laug-
arbrekku. Höfðabrekku,
Baldursbrekku, Sólbrekku og
hugsanlcga Héðinsbraul og
Lyngbrekku. Bæjarráö vísaöi
erindi Friðriks til umfjöllunar
bygginganefndar.
■ A fundi bæjarráðs nýverið
var lagt fram til kynningar bréf
frá stéttarfélögum í Suður-
Pingeyjarsýslu þar sent fram
kcniur að þau leggja mikla
áherslu á að ekki vcrði ráðið
fólk til starfa, sem ekki hafi
lögheimili í Suður-Pingeyjar-
sýslu.
■ Bæjarráð lielur faílist á að
Béstabæ verði lokað dagana
16. júlí til 13. ágúst í sumar,
eða 19 vinnudaga eins og
undanfarin ár.
■ Bæjarráð samþykkti á fundi
nýlega aö styrkja ferö hand-
knattleiksliðs unglinga frá
Húsavík til Frederiksstad í
byrjun júní nk. með 150 þús-
und króna framlagi.
■ Hafnarstjórn hefur sam-
þykkt erindi frá slysavarna-
deild kvenna á Húsavík um
uppsetningu tveggja skilta við
Húsavíkurhöfn er ntinni á til-
kynningarskyldu sjómanna.
Stærð skiltanna er 83x125 cm.
■ Bæjarráð heíur samþykkt
að sorphreinsun á Húsavík
verði boðin út og jafnframt að
skilafrestur tilboða verði til 21.
maí nk.
■ Húsæöisstofnun hefur veitt
Húsavfkurkaupstað heimild til
að byggja átta íbúöir í verka-
mannabústöðum. Fram-
kvæmdalán kemur til greiðslu
á 15 mánuöum og getur
útborgun á hluta þesshafist 15.
maí nk. Bæjarráö samþykkir
að vísa málinu og framgangi
þess til Stjórnar verkamanna-
bústaða á Húsavík.
■ Veitunefnd hefur samþykkt
erindi fiskeídisstöðva um verð-
lagningu á heitu vatni til þeirra
á cftirfarandi hátt: Grunnverð
verði kr. 6.70 á m' miðað við
fullnýtingu á „Marktaxta" og
taki sömu hækkun og önnur
vatnssala um mæli, gildistími
verði 1.1. 1990 til 31.12. 1990
og fyrirtæki gangi frá greiðsíu
skulda sinna við Hitaveituna.
Aðrir skilmálar vcrði óbreyttir
frá núverandi fyrirkomulagi.