Dagur - 08.05.1990, Blaðsíða 3
Þriðjudagur 8. maí 1990 - DAGUR - 3
fréftir
Ruslagámasamsetning komin í gang á Árskógsströnd:
Samstarfsverkefiii við danska
smiðju skilar góðum árangri
Véla- og bílaverkstæði Hjalta
Sigfússonar á Arskógsströnd
er þessa dagana að afhenda
fyrstu ruslagámana seni settir
eru þar sanian. Hér cr á ferð-
inni samstarfsverkefni verk-
stæðisins, Iðnþróunarfélags
Eyjafjarðar og Asum Smedie í
Danmörku því gámarnir koma
ósamsettir frá fyrirtækinu í
Danmörku en samsetning-
arvinnan er öll á Árskógs-
strönd.
Sigfús Þorsteinsson. fram-
kvæmdastjóri véla- og bílaverk-
stæðis Hjalta Sigíússonar. segist
fyrst og fremst horfa til sveitar-
félaganna með markað fyrir
þessa gáma. Fyrst um sinn verða
gámarnir í þremur stærðum en
mögulegt er að síðar meir veröi
meiri fjölbreytni.
Þeir fjórir gámar sem settir
liafa vet'ið saman eru allir seldir
til Arskógshrepps. Dalvíkurbæj-
ar og Ólafsfjarðarbæjar. Settir
voru saman þrír 12 rúmmetra
gámar og einn 20 rúmmetra gám-
ur en allir eru þessir gámar lok-
aðir. Verð minni gámanna er 217
þúsund krónur en stærri gám-
anna 27S þúsund krónur.
Sigfús segir að ávinningur með
þessu samstarfi sé fyrst og fremst
sá að flytja vinnu inn í landiö en
einnig komi þessi samsetningar-
vinna sér vel á dauðum tíma hjá
verkstæðinu. Þá er með þessu
einnig komist hjá skemmdum á
\'örunni í flutningi hingað til
lands.
Mikill snjór enn á láglendi í Fljótum:
Vegurinn fram að
verður opnaður
í dag verður vegurinn uni
Austurfljót og Stíflu opnaður,
en hann hefur verið lokaðúr
frá 9. janúar. Vegagerð ríkis-
ins á Sauðárkróki sendir snjó-
blásara á vettvang, og verður
blásið af veginum frain að
Deplum.
A Deplum er tvíbýli, og er það
'eina byggða jörðin í Stíflu eftir
áð Þrasastaðir fóru í eyði á síð-
asta ári. Þaðan flutti fjölskyldan
að Reykjarhóli í Austurfljótum.
Haukur Ástvaídsson. bóndi á
Deplum, segir að snjó sé lítið far-
iö að taka upp. Næturfrost voru í
síðustu viku. engin úrkoma að
gagni og þaö litla sem hlánar er
aðallega vegna sólbráðar. Síðast-
liðinn vetur er með þeim verstu
sem Haukur man eftir, og snjór
er ennþá úm eins og hálfs meteis
djúpur á láglendi. Þó hefur hann
sigið mikið og fönnin er blaut.
Venjulega er mokað frá Ketil-
ási fram að Reykjarhóli, en vest-
an Fljótaár er vegurinn ruddur
fram að Skeiösfossvirkjun. Regl-
ur þær sem Vegagerð ríkisins fer
eftir eru þannig að aðeins t'yrsii
og síðasti mokstur er greiddur af
ríkinu. Aörir, mokstrar greiðast
að helntingi af hreppnum á móti
Vegagerðinni. I fámennum og
strjálbýlum sveitarfélögum fylgir
slíku oft mikill kostnaður.
Gísli Felixson. rekstrarst jóri
Vegagerðar ríkisins á Sauðár-
Deplum
í dag
króki, segir að snjóblásari Vega-
gerðarinnar hafi \erið i \ innu á
Vestfjörðum, en eítir viðgerð í
gær verður hann sendur í Aust-
urfljótin. Heildarþungi ökutækja
verður takmarkaður við tvö tonn
á veginum þangað til hann
þornar. í vikunni verða aðstæður
á Lágheiði kannaðar. „Þegar
búið er að opna frameftir verður
Lágheiðin skoðuð. og ákvöröun
tekin í framhaldi af því. Þaö er
óhemju snjór í Stíflunni, en hann
hefur sigið talsvert," segir Gísli.
EHB
Lögreglan á Akureyri:
Sumarhjólbarðana undir!
Eins og landsmönnum er
kunnugt, gilda þær reglur aö
frá 1. maí til 15. október ár
hvert, skulu ökutæki lands-
manna vera á sumarhjólbörð-
um.
Að vísu fer þetta eftir öllum
aðstæðum hér norður á hjara ver-
aldar, þar sem sumarið lætur oft
bíða eftir sér vegna vorhretanna
og haustmánuðirnir eru oft gráir.
Að sögn Erlings Pálmasonar,
yfirlögregluþjóns, fer lögreglan
að líta eftir hjólbörðum og fram-
fylgja lagaákvæðum þar að lút-
andi.
Nú þegar séð er að suntarið er
komið og vetur á braut þá förum
við hjá lögreglunni af stað með
herferð gegn vetrarhjólbörðun-
um. Ég skora á bæjarbúa að setja
sumarhjólbarðana undir og forð-
ast þau óþægindi sem af hljótast
ef það er ekki gert,“ sagði Erling-
ur Pálmason, yfirlögregluþjónn.
ój
Egilsstaðir:
Unglingar í sund og
gæsir um miðjar nætur
Vorhugur virðist hlaupinn í
ungt fólk á Egilsstöðum og
hefur lögregla haft í ýmsu að
snúast vegna klögumála af
þeim sökum undanfarna daga
og nætur.
Aðfaranótt föstudags var lög-
regla kölluð út vegna óboðinna
gesta í sundlauginni. Á fimmtu-
dag dimmiteruðu menntaskóla-
nemar og um nóttina brugöu
surnir þeirra sér í sund ásamt
fleira fólki, og var stór hópur í
leyfisleysi í lauginni þegar lög-
reglu bar þar að. Unga fólkið
yfirgaf sundstaðinn í miklu hasti
er lögreglan birtist, en síðar urn
nóttina voru þó nokkrir komnir í
sund og voru þeir reknir uppúr
öðru sirini. Ekki var nóg með að
hinir óboðnu gestir svikjust um
að greiða aðgangseyri að hinum
lokaða sundstað. heldur skildu
þeir eftir rusl. sígarettustubba og
einhverskonar blöðrur við laug-
ina.
Síðustu daga hafa rúður veriö
brotnar á Egilsstöðum, bæði í
íþróttahúsinu og barnaskólanum.
Sautján ára gamall piltur var
klagaður fyrir gæsaveiðar og
lagði lögregla hald á stóran riffil
sem hann var méð. Bændur á
Héraði hafa mjög kvartað ýfir
ágangi gæsaskyttna að undan-
förnu, en menn eru skjótandi í
löndum þeirra um miðjar nætur í
leyfisleysi. Mun logregla fylgjast
með grannt með þessum skot-
veiðimönnum á næstunni. IM
Steinþór Olafsson frá Iðnþróunarfélagi Eyjafjarðar og Sigfús Þorsteinsson
framkvæmdastjóri Véla- og bílaverkstæðis Hjalta Sigfússonar fyrir framan
einn af gámunum fjórum sem settir hafa verið saman hjá fyrirtækinu. Á inn-
felldu myndinni er 20 rúmmetra gámur sem Ólafsfjarðarbær hefur fest kaup
á. Myndir: JÓH
Það var fyrir tilstuölan Iðn-
þi'óunarfélags Eyjaljarðar sem
þessu samstarfi var komið á milli
fyrirtækjanna. Sigfús og Stéinþór
Olafsson. hjá Iðnþróunarfélag-
inu. sögðu að samstarfið við
danska fyrirtækiö hafi verið mjög
gott og eflaust gætu fleiri fyrir-
tæki nýtt sér slíkt samstarf.
Þessir aðilar telja gott útlit
með áfrttmhaldið. Flest bendi til
þess að þetta samstarf sé hagstætt
og þar sem sveitarfélög og aðrir
aðilar leggi í auknum mæli
áhetslu á þrifnað þá þurfi þeir á
þessari vöru að halda. Vel komi
til greina að bjóða í framtíðinni
smíði á öörum búnaði tengdum
þessari tækni. t.d. gámavögnum.
Þá muni verkstæðiö einnig sjá um
viðhald gámanna. JÓH
n Ultra
Hampers
TRÁKA STELP
BLEIUR
3 stærðir
Rakadrægur kjarni
aðframan
Rakadrægur kjarni
í miðju
Stórkostleg nýjung
fyrir litla
Stráka og Stelpur
Þægilegri - passa betur
en nokkru sinni fyrr.
þó bleian sé vot
eru þau þurr
Einkaumboð
ísltmsk /////
Amnrín’lrn
Tunguháls 1 \. Sími 82700.