Dagur


Dagur - 08.05.1990, Qupperneq 6

Dagur - 08.05.1990, Qupperneq 6
6 - DAGUR - Þriðjudagur 8. maí 1990 Sýsluneftidarsögu Enn um I marsmánuði sl. birtist í Feyki grein eftir Konráð Gíslason í Varmahlíð: „Nokkur orð um Sýslunefndarsögu". Par gætir vangár eða vanþekkingar á mikil- vægum atriðum, þar sem mér eru eignuð ummæli annarra. Þessu veldur trúlega eins konar ólæsi á greinarmerki sem og vanþekking á notkun þeirra. í grein Konráðs segir svo: En við fljótan yfirlestur síðara bindis hnaut ég um nokkur atriði, sem... telja verður óná- kvæm, jafnvel flausturslega unnin." þessi orð eiga vel við grein Konráðs sjálfs, vopnið snýst í hendi hans. Hann vitnar til sögunnar og segir svo: „Á bls. 52 neðst og bls. 53 segir: „Árið 1953 lagöi sýslu- nefnd fram til skógræktarfélags Skagfirðinga, 1250 kr. til skóg- ræktargirðingar við Bólu í Blönduhlíð í Silfrastaðalandi o.s.frv." Tilvitnun er stutt, þó er hún röng í fimm, sumpart, veigamikl- um atriðum, þar sem mér eru eignuð annarra orð. Rétt er máls- greinin á þessa leið: „Árið 1957 lagði sýslunefnd fram til Skógræktarfélags Skag- firðinga 1250 krónur, til skóg- ræktargirðingar við Bóluá í Blönduhlíð í Silfrastaðalandi". Hér eignar Konráð mér tilvitn- aða setningu. sem ég er ekki höfundur að. Hún er tekin upp úr sýslufundargerð 1957, bls. 57, og enn víðar cr að þessu efni vikiö með svipuðu orðalagi. Einnig heföi mátt geta þess, að ég segi nokkrum línum framar, að lundurinn Bólu-Hjálmars sé „í landi Bólu". Þurfti því ekki að vefjast fyrir honum, hver væri skoðun mín á staðsetningu hans. Konráð fer hér og rangt með ártalið; hann ýmist setur inn eða sleppir greinarmerkjum, styttir orð og bítur höfuðið af skömm- inni með því aö auka við tilvitn- unina skammstöfun, sem ekki er að finna í henni, sé hún rétt eftir höfð. Höfundur hefur þessa „staðfræði" sem texta, og leggur út af. „Auk þess hafa Silfrastaðir frá fornu fari tilheyrt Norðurár- dal...“ Þótt ekki komi það þessu máli við, má geta þess, að fyrir því eru engar sannanir. I Jarða- bók Árna Magnússonar og Páls Vídalíns segir svo um Akraþing- sókn. „í þeim hluta hennar, sem kall- ast Blönduhlíð, liggur fremst Silfrastader...". Þetta staðhæfa þrír nafnkunnir bændur í Akra- hreppi með undirskrift sinni vor- ið 1713. Vel má vera, að Konráð höfði til eldri tíma með orðalag- inu „frá fornu fari". Þá er því til að svara, að meðan óvíst er, hve- nær Blönduhlíðarnafnið varð til, verður ekki úr málinu skorið. Af fornritum verður ekki markað, hvort Silfrastaðir hafi í öndverðu talist til Norðurárdals, þótt sumir tclji það hugsanlegt. Hitt er alkunna, að staðfræðimerking í heitum byggðarlaga er oft allt önnur en forðum. Nærtækt er að nefna Sæmundarhlíð. Nú segir enginn Kimbastaðir í Sæmund- arhlíð, Vík í Sæmundarhlíð. Stundum eru byggðarheiti notuö í mjög víðtækri merkingu, má sjá óbeinan vott þess í grein Stefáns Vagnssonar frá Hjaltastööum í þætti um Bólu-Hjálmar (Úr fór- um Stefáns Vagnssonar frá Hjaltastöðum, Rv. 1976). Greinarhöf. vitnar í bls. 139 í 2.b. Sýslunefndarsögu, þar sem fallið hefur niður nafn eins nefndarmanns. Sú tilvitnun er heldur ekki lýtalaus, en ekki skal orðlengja það, heldur tekið ann- að dæmi um slaka lestrarhæfni. Konráð ritar svo og vitnar í söguna: „Á bls. 172 neðst og bls. 173 segir: „Mótið setti Árni Hafstað, en sr. Tryggvi H. Kvaran messaði og „söng Karlakór Seyluhrepps" á undan og ávallt á milli ræðu- halda o.s.frv.“. Síðan segir grein- arhöfundur: „Karlakór Seylu- hrepps hefur aldrei verið til og mun hér um að ræða karlakór- inn „Heimi"." Það var enginn að halda því fram, að „Karlakór Seyluhrepps" hefði verið til! Hér er svo slak- lega lesið, að merkingin brenglast. í ritinu er setningin á þessa leið: „Mótið setti Árni Hafstað, en séra Tryggvi H. Kvaran messaði, og „söng karlakór Seyluhrepps á undan og ávallt á milli ræðu- halda“. Eldheitar hvatningarræð- ur fluttu....,í setningunni er á fjórum stöðum rangt farið með, svo sem sjá má. Verst er, að „karlakór Seyluhrepps" verður „Karlakór Seyluhrepps". Ég er ekki höfundur tilvitnaðrar grein- ar, heldur Stefán Vagnsson frá Hjaltastöðum (í Árbók Sögufé- lags Skagfirðinga um árið 1938). Vitaskuld veit hann, hvað hann er að skrifa, er hann kennir „Heimi" við Seyluhrepp, það var ekki ótítt og er einkar heima- mannlegt; enginn nefndi „karla- kór Seyluhrepps" sem sérheiti söngfélags! Þessi atriði verða að teljast „ónákvæm, jafnvel flausturslega unnin", svo að notað sé orðalag Konráðs. Greinarhöfundur víkur svo- felldum orðum að skrifum mín- um um þátt Lilju á Víðivöllum í undirbúningi Alþingishátíðarfar- ar Skagfirðinga á Þingvöll og hjálparmanna hennar: „Á bls. 177 segir: „Hún flutti veislukost suður, hangikjöt, smjör, kæfu o.s.frv.". Og síðar: „Henni til aðstoðar við flutninga og annað vorú Jón Jónsson frá Höskuldsstöðum og Árni Jóns- son í Miðhúsum". Þessar tilvitn- anir eru raunar ekki á bls. 177, heldur á bls. 117. Hér er heldur ekki kórrétt eftir haft, tvívegis farið rangt með, en ekki hirði ég að eltast við það, fer fremur nokkrum orðum um síðari hluta tilvitnunarinnar. Rétt er það, að hvorugur okkar Konráðs kannast við þennan Árna Jónsson í Mið- húsum. Þar er því ekki við mig að sakast, svo er maðurinn nefndur oftar en einu sinni í skjalasafni sýslunefndar, og þáverandi sýslumaður færir þess- um Árna Jónssyni til tekna greiðslu fyrir nefnda aðstoð og ritar eigin hendi. Ég birti umsögnina óbrenglaða og athugasemdalaust, þar eðég fékk ekki sannað, að hér væri hallað máli. Óljóst er hins vegar, hvað- an Konráði kemur sú vitneskja, að enginn maður með þessu nafni hafið átt heima í Miðhúsum síð- an 1878! Hann gerir því skóna, að hjálparmaður Lilju hafi hlotið að bera bóndanafn, þótt hér gæti allt að einu verið um kaupmann í Miðhúsum að ræða. Mér datt að vísu í hug fornkunningi minn, Árni J. Gíslason bifreiðastjóri frá Miðhúsum, og föðurnafn þá mis- ritast, einnig gat bæjarnafn hafa misritast, Miðhús fyrir Víðivelli, og hér sé um að ræða Árna Jóns- son á Víðivöllum, bróðurson Lilju; síðast á Víðimel. Það hvartlaði ekki að mér að taka af skarið um neitt, lesenda látið það eftir. Ég sleppi hér að karpa um ýmsa smámuni, svo sem hvenær sýslunefnd þingaði síðast í Templarahúsinu á Sauðárkróki, enda kemur upp úr kafinu, að hvorugur okkar Konráðs veit það, sat þó sjálfur fundinn, en víst hefur hann vinninginn, þvr að hann kemst nokkru nær hinu rétta! Það þarf og nauinast að eyða mörgum orðum að því, að oddatala ræður, þegar í nefndir er skipað, þótt nafn nefndar- manns í stjórn Búnaðarsambands Skagfirðinga félli niður í texta bókarinnar. Jafnan er álitamál, hvernig greina skuli heimilisfesti manna. sem lil sögu eru nefndir. ef úr einhverju er að moða að því leyti, og hiröi ég ekki að orð- lengja það. Þá kem ég að bókaraukanum, sýslunefndarmannatalinu. Kon- ráði þykir sýslunarstörfin mjög vantalin. Ég tek raunar fram, að ég ætli aðeins að geta fárra þeirra. Það var aldrei ætlunin að semja æviskrá eða starfsskrár. Lesendum átti því ekki að koma þetta á óvart. Hitt er lakara, að villur eru í því og sumar bagaleg- ar. - Bókin var komin í setningu, þegar þessi samantekt var ákveð- in, 12. jan. 1989, og þá einnig svo um samið, að ég sæi um mynda- val. söfnun og texta og heföi hönd í bagga með útgáfunni að öðru leyti. Þó ég nefni þetta hér, leysir það mig ekki undan ábyrgð á mistökum, sem mér eru að kenna og bætir ekki málstað Bridge Firmakeppni B.A. verður haldin í kvöld, þriðjudagskvöld að Félags- borg kl. 19.30. Spilað verður með einmennings fyrirkomulagi. Allir spilarar velkomnir. Stjórnin. Skógræktarfélag Eyjafjardar 'W Aðiilfuiidur Aðalfundur Skógræktarfélags Eytlrðinga verður haldinn laugardaginn 12. þ.m. í Dynheimum, Hafn- arstræti 73, Akureyri og hefst kl. 13.30. Dagskrá samkvæmt lögum félagsins. Kl. 16.00 hefst síðan hátíðarfundur vegna 60 ára afmælis félagsins í Alþýðuhúsinu Skiptagötu 14. Félagar fjölmennið á fundinn. Stjórnin. Útvegsmenn Norðurlandi Útvegsmannafélag Norðurlands heldur fund mánudaginn 14. maí n.k. að Hótel KEA kl. 14.00. Fundarefni: 1. Ný samþykkt lög um stjórnun fiskveiða. 2. Afkomuskýrsla bátaflotans. 3. Önnur mál. Kristján Ragnarsson formaður L.Í.Ú. og Sveinn Hjálmar Hjartarsson koma á fundinn. Stjórnin. Ingimar Eydal: Það eru sveitarstjórnarkosningar framundan. íhaldsöflin í landinu hafa náðarsamlegast tilkynnt okkur að þau eigi leikinn, kosningar séu nánast formsatriði. Við kjósendur veitum þeim svar 26. maí. Breytinga er þörf á stjórn Akureyrarbæjar, þess vegna eflum við það félagshyggjuafl sem eitt getur haft forystu um fráhvarf frá stefnu íhalds og stöðnunar. Snúum torfunni við, græna litinn upp! minn, þótt áþekkra yfirsjóna gæti allvíða í sýslufundagjörðum. - Ætlunin var að tíunda aðalstarf hvers og eins og geta jafnan hreppstjóra- og oddvitastarfa, ef við átti. Það tókst að mestu. Þó er það mín sök, að fallið hefur niður að geta oddvitastarfs Þor- steins Hjálmarssonar í Hofsós- hreppi, árin 1955-1974. Prentvill- ur leiðréttir Konráð nokkrar og er það vel. Mun ég síðar bæta um betur. - Rétt er það, aö yfirlit um starfsferil kennara og skólastjóra er hvorki fugl né fiskur, og stafar sumpart af vangá minni, svo að einhverjir gætu ætlað, að ég gerði upp á milli inanna. Það er þó ekki viljandi gert. Vitandi vits sleppi ég víða að geta þess, að viðkomandi hafi sinnt kennslu, þar eö ég taldi, að ekki væri um aðalstarf að ræða, og um skóla- stjóra starf háttaði ósjaldan svo til, að kennari var aðeins skóla- stjóri yl'ir sjálfum sér. Eigi að síð- ur gætir hér ósantræmis, og er ég þakklátur Konráði að bæta nokk- uð úr því. Víst er venja að nafn- greina formenn nefnda og flutn- ingsmenn tillagna fyrst, þó er hún ekki algild; og ekkert segir þaö raunar um hver verið hafi upp- hafsmaður tillögu. Konráð ritar: „Upphaf Sýslunefndarsögu - fyrri hluta - hefst á tillögu þcirri, sem tlutt var og samþykkt á sýslufundi árið 1975, og varð þess valdandi að sagan var skráð." Raunar er vefengjanlegt, hvort rétt sé að taka svo til orða, að þess sé getið í upphafi sögunnar, þegar um er að ræða formála aö sögunni. Konráð var flutnings- maður tillögunnar, en ég beiti stafrófsreglunni, er ég tel upp alla flutningsmenn (meðflutn- ingsmennina), svo að aðalmaður skipar fjórða sætið. Hitt er rangt, sem gefið er í skyn, að reglu þess- ari sé aðeins beitt í þetta sinn, sbr. bls. 119 í II. bindi. Ég tek undir þaö með Kon- ráði, að æskilegt hefði verið að geta allra ritara sýslunefndar. Ég hafði hug á því, en var í mikilli tímaþröng, og útgáfunefnd fór heldur ekki fram á það við mig. Ekki veit ég, hvort skilja má svo, að Konráð telji mig leitast við að gera hlut hans og bræðra hans sem minnstan. Því fer víðs fjarri; hef jafnan metið þá bræður mikils. Við Rögnvaldur bróðir hans - ritari sýslunefndar hátt í tvo áratugi og síðasti maður, sem gegndi því starfi - unnum lengi saman að safnamálum og fór vel á með okkur, svo og ágætis- manninum Gísla í Eyhildarholti, föður hans. er sat í sömu nefnd. Ég vil neyta þessa ágæta færis, sem mér barst upp í hendur með grein Konráðs og leiörétta nokkrar villur, sem ég hef komið auga á, en Konráð nefnir ekki: Þegar bókin var i próförk, benti Hjalti Pálsson mér á, að mynd nr. 9 í I. b. væri ekki tekin af honum. Ég sendi prentsmiðju leiðréttingu, sem þó skilaði sér ekki í bókina. Ljósmynd nr. 36 í II. b. er sögð tekin 1944, svo sem ritað stóð aftan á henni, en er rangt. Hún mun tekin 1945. - í sýslunefndarmanntali eru enn ótaldar villur, sem hvorugur okk- ar Konráðs kom auga á í tækan tíma: Um Sigurð á Sleitustöðum segir á bls. 330, að hann væri sýslunefndarmaður 1970-1988. Hið rétta er: 1970-1974, 1978- 1988., sbr. um forvera hans Jón G. Gunnlaugsson; en þar er prentvilla, Jón bjó á Hofi 1951- 1988. Eflaust leynast fleiri villur í verkinu, sem þörf er að lciðrétta. Það væru raunar firn, ef rit, sem er um 800 bls., að meginmáli talið, geymdi aðeins ámóta marg- ar villur og umsögnin Konráðs. Frekar hirði ég ekki um að ræða þessi mál. Ég er Konráði þakk- látur fyrir réttmætar aðfinnslur og vona, að þeir, sem ritið eiga, leiðrétti villurnar. Kristniundur Bjarnason.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.