Dagur - 08.05.1990, Síða 10
10 - DAGUR - Þriðjudagur 8. maí 1990
fþróttir
Leeds Utd. loks í 1. deild
- Sheffield liðin skiptu um sæti - Frábært hjá Luton
Lee Chapman skoraði sigurmark Leeds Utd. gegn Bournemouth en hann
skoraði 12 mörk í 21 Ieik eftir að hann var keyptur frá Forest.
Um helgina fór fram síðastu
umferðin í Ensku knattspyrn-
unni og augu manna beindust
fyrst og fremst að 2. deild þar
sem þrjú lið háðu gífurlega
baráttu um tvö örugg sæti í 1.
deild. En það var einnig mikil
spenna í leikjum Sheffíeld
Wed. og Luton sem börðust
uni tilverurétt sinn í 1. deild.
En lítum þá nánar á leikina og
byrjum á 2. deild.
Leeds Utd. tókst nú loks að
endurheimta sæti sitt í 1. deild
sem liðið tapaði 1982. Eftir að
hafa haft forystu í 2. deild frá
miðjum desember var staðan
orðin sú að liðið varð að sigra
Bournemouth á útivelli í sfðasta
Úrslit í vikunni
1. deild
Liverptiol-Derby 1:0
Wimbledon-Crystal Palace 0:1
Manchcster Utd.-Wimbledon 0:0
Arscnal-Southampton 2:1
Nottingham For.-Man. Utd. 4:0
2. deild
Hull City-lpswich 4:3
Middlesbrough-Barnsley 0:1
Oldham-Wolves 1:1
Port Vale-Sunderland 1:2
Blackhurn-SheHield Utd. 0:0
West Ham-Leiccster 3:1
Oldham-Oxford 4:1
1. deild
Coventry-Liverpool 1:6
Crystal Palace-Man. City 2:2
Derby-Luton 2:3
Everton-Aston Villa 3:3
Manchester Utd.-Charlton 1:0
Millwall-Chelsea 1:3
Norwich-Arsenal 2:2
Q.P.R.-W'imbledon 2:3
Sheffield Wed.-Nott. For. 0:3
Tottenham-Southampton 2:1
2. deild
Blackburn-Brighton 1:1
Bournemouth-Leeds Utd. 0:1
Bradford-Plymouth 0:1
Leicester-Sheffield Utd. 2:5
Middlesbrough-Newcastle 4:1
Oxford-Port Vale 0:0
Portsmouth-Barnsley 2:1
Stoke City-Swindon 1:1
Sunderland-Oldham 2:3
Watford-Hull City 3:1
W.B.A.-lpswich 1:3
West Ham-Wolves 4:0
3. deild
Birminghain-Reading 0:1
Blackpool-Bristol Rovers 0:3
Bristol Cily-W'alsall 4:0
Bury-CardifT Cily 2:0
Crewe-W'igan 3:2
Fulham-Leyton Orient 1:2
1 luddersfield-Chcster 4:1
Notts County-Mansfield 4:2
Rotherham-Northampton 2:0
Shrewsbury-Preston 2:0
Swansea-Bolton 0:0
Tranmere-Brentford 2:2
4. deild
Aldershot-Cambridge 0:2
Chesterfield-Grimsby 2:0
Colchester-Burnley 1:2
Halifax-Stockport 1:2
Lincoln-Exeter 1:5
Maidstone-Carlisle 5:2
Peterborough-Southend 1:2
Rochdale-Hereford 5:2
Scarborough-Gillingham 0:1
Scunthorpe-Doncaster 4:1
'Iorquay-York City 1:1
Wrexham-Hartlepool 1:2
leik sínum til að tryggja sér sigur
í deildinni. Það var ekki létt
verk, því Bournemouth barðist
fyrir sæti sínu í deildinni og mátti
alls ekki tapa leiknum.
Undirritaður hefur lengi haft
taugar til Leeds Utd. og laugar-
dagurinn var erfiður. En eins og
Ingi Björn Albertsson sagði, er
hann skreið uppí til Þorstcins
Pálssonar eftir að hafa lifað póli-
tísku hirðingjalífi undanfarin ár,
þá er allt gott sem endar vel.
Já, Leeds Utd. tókst að sigra
Bournemouth, sem við ósigurinn
féll í 3. deild. Leeds Utd. hafði
ávallt undirtökin í leiknum, Carl
Shutt sem kom inná sem vara-
maður fyrir Bobby Davison
snemma í leiknum var tvívegis
nærri að skora í markalaus-
um fyrri hálfleik. Besti kafli
Bournemouth í leiknum var und-
ir lok fyrri hálfleiks og Luther
Blissett sem var eini leikmaður
Bournemouth sem var til vand-
ræða misnotaði gott færi.
Sigurmark Leeds Utd. kom á
5. mfn. síðari hálfleiks, Lee
Chapman skoraði með skalla eft-
ir fyrirgjöf Kamara og Chapman
fékk síðar í leiknum kjörið tæki-
færi er hann slapp í gegn um vörn
Bournemouth, en hinn ágæti
markvörður liðsins Gerry Peyton
varði mjög vel. Eftir markið lok-
aði Leeds Utd. leiknum, hinir
reyndu leikmenn í vörninni, Mel
Sterland, Peter Haddock, Chris
Fairclough og Jim Beglin sem lék
mjög vel tóku enga áhættu og
Mervyn Day í markinu hafði lítið
að gera. Kamara og Vinnie Jones
börðust sem Ijón á miðjunni, vel
studdir af Gordon Strachan og
Gary Speed á vængjunum.
Chapman var mjög ógnandi í
framlínunni ásamt Shutt og undir
lokin kom David Batty inná fyrir
Shutt og munaði minnstu að hon-
um tækist að skora.
Howard Wilkinson hefur unn-
ið mjög gott starf á Eiland Road
frá því hann tók við, en mikið var
karlinn orðinn stressaður í leikn-
um, hann settist aldrei á vara-
mannabekkinn allan síðari hálf-
leikinn og hafði bannað aðstoð-
armönnum sínum að fylgjast með
öðrum leikjum í útvarpi, ein-
beitti sér aðeins að sínum leik.
Pað gekk mikið á hjá Sheffield
Utd. á útivelli gegn Leicester.
Gary Mills náði forystu fyrir
Leicester á 8. mín., Paul Wood
jafnaði og Brian Deane náði for-
ystu fyrir Sheffield. Markvöröur
Leicester Martin Hodge meidd-
ist, kom þó inná eftir 5 mín., en
tók ekki þátt í leiknum í síðari
hálfleik. Tony Agana og Wilf
Rostron komu Sheffield í 4:1
áöur en Marc North sem leysti
Hodge af í markinu skoraði ann-
að rnark Leicester rétt fyrir hlé.
Tony Agana bætti einu marki við
fýrir Sheffield í síðari hálfleik og
liðið var þar með komið í 1.
deild. Glæsilegur árangur hjá
Dave Bassett sem kom liðinu upp
úr 3. deild á síðasta leiktímabili.
Newcastle varð að gefa eftir og
tekur þátt í úrslitakeppni fjög-
urra liða um eitt laust sæti í 1.
deild eftir að liðið tapaði gegn
nágrönnum sínum Middlesbrough,
sem með sigrinum tryggðu sæti
sitt í 2. deild. Fyrri hálfleikurinn
markalaus. en Bernic Slaven og
Ian Baird sem keyptur var frá
Leeds Utd. í vetur skoruðu tvö
mörk hvor fyrir Middlesbrough í
síðari hálfleik. Eina mark
Newcastle var sjálfsmark Owen
McGee.
Sunderland kemst áfram þrátt
fyrir að tapa 2:4 á heimavelli
gegn hinu sterka liði Oldham.
Mjög jafn og spennandi leikur
þar sem Neil Adams skoraði fyrst
fyrir Oldham, en Gary Owers
jafnaði fyrir Sunderland. Andy
Rhodes í marki Oldham varði
síðan vítaspyrnu Paul Hardyman
og Andy Ritchie náði forystu 2:1
fyrir Oldham. Roger Palmer
bætti því þriðja við, en Gordon
Armstrong skoraði síðan annað
mark Sunderland. Oldham situr
eftir í 2. deild, hðið á eftir að
leika aðeins einn leik, en sigur í
þeim leik dugir ekki til sætis í
úrslitakeppninni.
Blackburn náði sæti í úrslita-
keppninni þrátt fyrir að ná aðeins
jafntefli 1:1 heima gegn
Brighton. Andy Kennedy kom
Blackburn yfir snemma í síðari
hálfleik. en Kevin Brcmner jafn-
aði fyrir Brighton skömmu síðar.
Leikmenn Blackburn máttu
þakka fyrir að halda jafnteflinu
því lið Brighton sótti mjög undir
lokin.
Swindon undir stjórn Ossie
Ardiles tekur þátt í úrslitakeppn-
inni eftir 1:1 jafntefli á útivelli
gegn Stoke City. Tony Ellis iíáði
forystu fyrir Stoke City snemma í
leiknum, en Duncan Shearer
jafnaði fyrir Swindon aðeins mín.
síðar og þar við sat þrátt fyrir
mikla yfirburði Swindon allan
síðari hálfleikinn.
í 3. deild varð Bristol Rovers
sigurvegari og Bristol City fór
einnig upp í 2. deild. í auka-
keppni fara lið Notts County,
Tranmere, Bury og Bolton.
Úr 3. deild falla lið Cardiff
City, Blackpool, Northampton
og Walsall.
í 4. deild sigraði Exeter og
með þeim fara upp Grimsby og
Southend, en í úrslitakeppni
leika Stockport, Maidstone,
Cambridge og Chesterfield.
Colchester féll úr deildakeppn-
inni, en í stað þeirra kemur lið
Darlington sem féll úr deildinni í
fyrra.
1. deild
Sheffield Wed. þurfti aðeins jafn-
tefli úr heimaleik sínum gegn
Nottingham For. til að halda
örugglega sæti sínu í I. deild. En
það tókst ekki, liðið tapaði 0:3 og
þar með sæti sínu í 1. deild á
sama tíma og hitt Sheffield liðið
var að vinna sæti í 1. deild. Leik-
menn Sheffiekl nýttu ekki færi
sín í leiknum, en Stuart Pearce
skoraði tvö af mörkuin Forest og
Negel Jemson það þriðja.
Luton tókst það ómögulega,
að forða sér frá falli í 2. deild eft-
ir frækilegan sigur á útivelli gegn
Derby. Tim Breacker náði for-
ystu fyrir Luton strax á fyrstu
mín. með þrumuskoti af löngu
færi sem Peter Shilton í marki
Derby reyndi ekki að verja. Ian
Dowie bætti skömmu síðar öðru
marki Luton við, en Mark
Wright og Paul Williams með
síðustu spyrnu fyrri hálfleiks
jöfnuðu fyrir Derby. Luton lék
vel í síðari hálfleik og skoraði
sigurmarkið er 15 mín. voru til
leiksloka, Kingsley Black skoraði
með skoti í stöng og inn og bjarg-
aði þar með sæti félagsins í 1.
deild.
Kevin Gallacher náði forystu
fyrir Coventry strax á 2. mín., en
það var sem olía á eldinn og
rauður loginn brann það sem eft-
ir var leiks. John Barnes skoraði
þrjú mörk, Ronnie Rosenthal tvö
og Ian Rush eitt í 6:1 sigri
Liverpool sem lék eins og meist-
urum sæmir.
Paul Stewart og Paul Allen
skoruðu fyrir Tottenham í 2:1
sigri gegn Southampton þar sem
Ian Cook gerði eina mark Sout-
hampton.
Kerry Dixon skoraði öll þrjú
mörk Chelsea gegn Millwall á
útivelli, en kveðjumark Millwall í
I. deild gerði Malcolm Allen.
Manchester Utd. sigraði
Charlton á Old Trafford með
marki Gary Pallister f fyrri hálf-
leik.
Crystal Palace komst í 2:0 gegn
Manchester City með mörkum
Alan Pardew og Andy Gray, en
City gafst ekki upp og Clive
Allen lagaði stöðuna með marki
úr vítaspyrnu og Niall Quinn
jáfnaði síðan í lokin.
Everton og Aston Villa gerðu
3:3 jafntefli þar sem liðin skiptust
á um að hafa forystu. Tony
Cascarino, Gordon Cowans og
Tony Daley skoruðu mörkin fyrir
Aston Villa, en fyrir Everton
skoruðu þcir Neil Pointon. Mike
Newell og Kevin Sheedy úr víta-
Spyrnu.
Norwich og Arsenal skildu
einnig jöfn 2:2. Arsenal tókst
tvívegis að jafna, og var Alan
Smith að verki í bæði skiptin.
Pað voru þeir Mark Bowen og
Ruel Fox sem höfðu náð forystu
fyrir Norwich.
Wimbledon gerði það ekki
endasleppt á leiktímabilinu og
sigraði Q.P.R. á útivelli í síðasta
leik. John Fashanu kom Wimble-
don yfir, en Roy Wegerle jafnaði
fyrir Q.P.R. úr vítaspyrnu. Paul
Miller kom Wimbledon í 2:1, en
Justin Channing náði enn að
jafna fyrir Q.P.R. Fashanu skor-
aði síðan sigurmark Wimbledon
og sitt annað mark undir lokin.
Þ.L.A.
Staðan
1 deild
Liverpool 38 23-10- 5 78:37 79
Aston Villa 38 21- 7-10 57:38 70
Tottcnham 38 19- 6-13 59:47 63
Arsenal 38 18- 8-12 54:38 62
Chelsea 38 16-12-10 58:50 60
Everton 38 17- 8-13 57:46 59
Southampton 38 15-10-13 71:63 55
Wiinbledon 38 13-16- 9 47:40 55
Nott. Forest. 38 15- 9-14 55:47 54
Norwich 38 13-14-11 44:42 53
QPR 38 13-11-14 45:44 50
Coventrv 38 14- 7-17 39:58 49
Man. Utd. 38 13- 9-16 46:47 48
Man. Citv 38 12-12-14 43:52 48
Crystal Palace 3813- 9-16 42:6648
Derby 38 13- 7-19 43:40 46
Luton 38 10-13-15 43:57 43
Sheff. Wed. 38 11-10-17 35:51 43
Charlton 38 7- 9-22 31:57 30
Millwall 38 5-11-22 39:65 26
2. deild
Leeds Utd. 46 24-13- 9 79:52 85
Sheff. Utd. 46 24-13- 9 78:58 85
Newcastle 46 22-14-10 80:55 80
Swindon 46 20-14-12 79:59 74
Blackburn 46 19-17-10 74:59 74
Sunderland 46 20-14-12 64:72 74
West Ham 46 20-12-14 80:57 72
Oldham 45 19-13-13 69:56 70
Ipswich 46 19-12-15 67:66 69
VVolves 46 18-13-15 67:60 67
Port Vale 46 15-16-15 62:56 61
Portsmouth 46 15-16-15 62:65 61
Leicester 46 15-14-17 67:79 59
Hull 46 14-16-16 58:65 58
Watford 46 14-15-17 58:60 57
Plymouth 46 14-13-19 58:63 55
Oxford 46 15- 9-22 57:66 54
Brighton 46 15- 9-22 56:72 54
Barnsley 46 13-15-18 49:70 54
W.B.A. 46 12-15-19 67:71 51
Middlcshr. 46 13-12-21 52:63 50
Bournemouth 4612-12-2257:7648
Bradlord 45 9-13-23 43:67 40
Stoke 46 6-19-21 35:63 37