Dagur - 12.06.1990, Side 9
Þriðjudagur 12. júní 1990 - DAGUR - 9
1. deild kvenna:
Glæsimark Ellenar
- þegar Þór og Valur gerðu jafntefli 1:1
Þór og íslandsmeistarar Vals
skildu jöfn, 1:1, þegar liðin
mættust í 1. deild kvenna á
Þórsvellinum á Akureyri á
föstudagskvöldið. Úrslitin
voru sanngjörn miðað við gang
leiksins en komu þó nokkuð á
óvart, ekki síst þar sem liðin
léku í Reykjavík tæpri viku
fyrr og lauk þeim leik með 4:0
sigri Vals.
Jafnræði var með liðunum í
fyrri hálfleik og fengu þau eitt
færi hvort, Völsurum tókst að
nýta sitt en færi Þórsara fór for-
görðum. Hera Ármannsdóttir,
Annarrardeildarlið Tindastóls
mætti 4. deildarliði Neista á
Hofsósi sl. föstudagskvöld.
Fyrirfram var talað um leikinn
sem viðureign Davíðs við
Golíat. í fyrri hálfleik virtist
gamla biblíusagan eiga við rök
að styðjast, en leiknum lauk
samt með sigri Tindastóls, 6:0.
Fyrri hálfleikur fór vel af stað
hjá Neistamönnum og baráttu-
gleðin virtist ríkja í þeirra her-
búðum. Þó fór svo á 15. mínútu
að „Stólarnir" skoruðu eftir að
hafa skömmu áður átt skot í
þverslá. Var þar að verki Sigur-
finnur Sigurjónsson með skot
sem lak í gegnum klofið á mark-
verði Neista. Ekki líkaði öllum
áhorfendum það jafnvel og tók
einn sig til og skokkaði inn á völl-
inn til að styrkja sókn heima-
manna. Reyndist aukamaðurinn,
sem var reyndar hundur, þó fljótt
verða að flýja af vellinum þegar
leikmenn Tindastóls þustu í
vörn. í fyrri hálfleik voru ekki
gerð fleiri mörk, en liðin skiptust
á að sækja og áttu ágætis færi.
Sérstaklega gott færi fékk einn
Neistamanna þegar hann komst
einn inn fyrir á síðustu mínútum
fyrrum leikmaður með Þór, fékk
stungusendingu inn fyrir vörn
Þórs og skoraði örugglega. Stað-
an í hléi var því 1:0 fyrir Val.
Þórsstúlkur náðu yfirhöndinni
í síðari hálfleik og pressuðu stíft.
Það bar svo árangur þegar 10
mínútur voru til leiksloka en þá
skoraði Ellen Óskarsdóttir glæsi-
legt mark og jafnaði metin. Hún
fékk góða sendingu inn fyrir
Valsvörnina, tók knöttinn með
sér og skaut síðan þrumuskoti
sem hafnaði efst í markhorninu.
Leikurinn var mjög góður,
spilið var gott hjá báðum liðum
hálfleiksins, en Stefán Arnarsson
varði eins og svo oft áður.
Seinni hálfleikur fór aðallega
fram á vallarhelmingi Neista og á
56. mín. skoraði Sverrir Sverris-
son annað mark Tindastóls eftir
að skalli frá Ólafi Adolfssyni
hafði verðið varinn. Jóhanni
markverði Neista tókst þó ekki
að verja skalla Ólafs á 64. mín.
og staðan 3:0 fyrir Tindastól. Þau
úrslit hefðu verið sanngjörn, en
síðustu tíu mínútur leiksins var
einstefna á mark Neista og Tinda-
stóll bætti við þremur mörkum.
Þar var Sverrir Sverrisson tvíveg-
is að verkiog síðasta markið áttu
varamenn Tindastóls, þeir Jón
Gunnar Traustason og Sigurður
Ágústsson og var það Sigurður
sem rak endahnútinn á 6:0 sigur
Tindastóls á heimamönnum.
Bestu leikmenn voru Sigmund-
ur Jóhannesson hjá Neista og
Ólafur Adolfsson og Sverrir
Sverrisson hjá Tindastól. Dómari
var Magnús Jónatansson og skil-
aði hann sínu þokkalega, nema
hvað leikurinn hófst ekki fyrr en
tíu mínútum seinna en til stóð
vegna þess hve seint hann mætti.
og úrslitin sanngjörn. „Ég er
mjög ánægður með þennan leik.
Stelpurnar stóðu sig mjög vel og
baráttan í liðinu var góð. Þær
höfðu trú á sjálfum sér og þarna
sást að þetta er hægt ef viljinn er
fyrir hendi,“ sagði Sigurður
Pálsson, þjálfari Þórs.
Ellen Óskarsdóttir.
Mjólkurbikarinn:
Þorlákur
með þrennu
- í stórsigri Leifturs
á Magna
Leiftursmenn áttu ekki í mikl-
um vandræðum með 4. deild-
arlið Magna frá Grenivík þeg-
ar liðin mættust í 2. umferð
Mjólkurbikarsins í Ólafsfirði á
laugardaginn. Heimamenn
höfðu allnokkra yfirburði,
unnu leikinn 5:0, og voru mörg
marka þeirra mjög lagleg.
Leiftursmenn tóku fljótlega
völdin í sínar hendur og þeir
náðu forystunni á 18. mínútu
þegar Þorlákur Árnason skoraði
með föstu skoti frá vítateigslínu.
Þjálfari Leifturs, Ómar Torfa-
son, bætti fallegu marki við 10
mínútum síðar með skalla eftir
hornspyrnu og hann var síðan
aftur á ferðinni á 31. mínútu með
skalla í slá.
Á 40. mínútu var brotið á Erni
Torfasyni í vítateig Magna og
vítaspyrna dæmd sem Þorlákur
skoraði úr. Jón S. Helgason,
Leiftursmaður, átti síðan skalla í
þverslá Magnamarksins á síðustu
mínútu fyrri hálfleiks en fleiri
urðu mörkin ekki og staðan var
3:0 í hléi.
Magnamenn mættu mun
ákveðnari í seinni hálfleik og
fljótlega færðist nokkur harka í
leikinn og má segja að hann hafi
á köflum verið grófur. Kristján
Kristjánsson, þjálfari Magna, átti
ágætt færi á 25. mínútu en Þor-
valdur Jónsson, markvörður
Leifturs, bjargaði vel. Þá var röð-
in aftur komin að Leiftursmönn-
um og Hörður Benónýsson skor-
aði fjórða markið á 30. mínútu.
Fimm mínútum fyrir leikslok inn-
siglaði svo Þorlákur Árnason
stórsigur Leifturs þegar hann
skoraði sitt þriðja mark af stuttu
færi.
Leiftursmenn voru mun sterk-
ari aðilinn í þessum leik og það
var aldrei spurning hvorum megin
sigurinn myndi lenda þrátt fyrir
að Magnamenn hafi rétt heldur
úr kútnum í seinni hálfleik.
Leikurinn var ekkert sérstakur en
mörkin mörg hver býsna falleg.
Þorlákur Árnason var besti mað-
ur vallarins en Kristján Kristjáns-
son var bestur Magnamanna.
KH/JHB
SBG
Heilsuhlaup Krabbameinsféiagsins 1990 á Akureyri fór fram síðastiiðinn
laugardag. Þátttaka var allgóð, en 150 tóku þátt, hlaupandi eða á lijólum.
Þátttaka í Reykjavík var hinsvegar 400 manns, þannig að Akureyringar geta i
vel við unað. Fyrstur í mark varð Sigfús Jónsson, fráfarandi bæjarstjóri, sem
hér sést á myndinni.
Mjólkurbikarinn:
„Stóllinn,, malaði Neista
- Sverrir með þrennu
Eydís Marinósdóttir náði ekki að skora fyrir KA gegn Val. Mynd: kl
1. deild:
Reynsluleysi KA
sagði til sín
- þegar liðið tapaði 0:3 fyrir Val
Valur sigraði KA 3:0 í 1. deild
kvenna á malarvelli KA á laug-
ardaginn. Valsstúlkurnar voru
ívið sterkari lengst af en KA-
liðið stóð þó vel í þeim allt þar
til Valur náði að skora sitt ann-
að mark um miðjan síðari hálf-
leik. Eftir það var sigur þeirra
öruggur.
Valsmenn voru öllu meira með
boltann í fyrri hálfleik en gekk
erfiðlega að skapa sér færi. Þær
áttu nokkur hættulaus skot utan
af velli en þegar um 10 mínútur
voru til leikhlés slapp Bryndís
Valsdóttir í gegnum vörn KA og
skoraði fyrsta markið og staðan í
hléi var 1:0.
KA-liðið byrjaði síðari hálf-
leikinn af miklum krafti og hafði
undirtökin fyrstu 15 mínúturnar.
Færin létuþó á sér standa og eftir
að Hera Ármannsdóttir náði að
skora fyrir Val úr skyndisókn má
segja að KA-stúlkurnar hafi
sprungið. Reynsluleysi hins unga
liðs sagði til sín og eftirleikurinn
var Völsurum auðveldur. Helga
Jónsdóttir bætti einu marki við
áður en leikurinn var flautaður af
og úrslitin 3:0.
Þess má geta að KA-stúlkurnar
léku einni færri síðustu 8 mínút-
urnar þar sem Arndís Ólafsdóttir
meiddist og þurfti að yfirgefa
völlinn þegar búið var að skipta
tveimur varamönnum inná.
Hörpudeildin:
Hvað gera íslands-
meistaramir?
- heil umferð í kvöld
í kvöld fer fram heil umferð í
Hörpudeildinni í knattspyrnu.
A Akureyri verður einn leikur,
KA-menn mæta Víkingum í
sínum fyrsta heimaleik á
keppnistímabilinu og fer viður-
eignin fram á Akureyrarvelli.
Þórsarar halda hins vegar til
Hafnarfjarðar og mæta FH-
ingum.
Hinir leikirnir í umferðinni eru
leikur KR og Fram á KR-vellin-
um, Vals og ÍBV að Hlíðarenda
og ÍA og Stjörnunnar á Skagan-
um. Allir leikirnir hefjast kl. 20.
Eins og menn vita hefur gengi
íslandsmeistara KA verið heldur
brösótt upp á síðkastið. Liðið
hefur leikið fjóra leiki og tapað
þeim öllum. Hins vegar ber að
taka ýmislegt í reikninginn, t.d.
þá staðreynd að þrír af þessum
leikjum hafa verið gegn liðum
sem að öllum líkindum verða í
toppbaráttunni í sumar. Þá hefur
KA leikið alla fjóra leiki sína á
útivelli sem er vitanlega mjög
óvenjulegt. Leikurinn í kvöld er
kærkomið tækifæri fyrir KA-
menn að snúa þessari þróun við
og með góðum stuðningi ætti það
að takast.
Ákveðin stígandi hefur verið í
leik Þórsliðsins upp á síðkastið
eftir heldur slaka byrjun. Liðið
var óheppið að tapa fyrir KR á
dögunum og verður fróðlegt að
sjá hvað Þórsarar gera í Hafnar-
firði í kvöld.
Þór:
Knattspyrnu-
æfingar fyrir
6-10 ára
Nú eru fótboltaæfmgar Þórs
fyrir 6-10 ára komnar á fulla
ferð og er enn hægt að bæta
við miklum fjölda barna.
Æfingar fyrir 6-8 ára eru alla
virka daga kl. 10-11. Æfingarfyr-
ir 9-10 ára eru alla virka daga kl.
11-12 og 13-14.
Eru allir krakkar á þessu aldri
hvattir til að vera dugiegir og
drífa sig á fóboltaæfingar.