Dagur - 23.06.1990, Qupperneq 2
2 - DAGUR - Laugardagur 23. júní 1990
fréttir
ww\
„Ég ferðast rnn á afahjóli"
„Ég ferðast um á afahjóli,“
sagði Eggert Vigfússon^ yfir-
maður Brunavarna Arnes-
sýsiu á Selfossi, þar sem hann
áði utan vegar á Mývatnsör-
æfum.
„Ég lagði af stað fyrir fimm
sóiarhringum frá Selfossi, en
var í tjaldinu mínu í nótt við
Reynihlíð. Á Akureyri var ég
eftir þriggja daga ferð og nú er
ég á austurleið. Fyrir nokkrum
árum hjólaði ég hringinn ásamt
konunni minni, en nú er ég einn
á ferð, langaði að skoða landið
réttsælis og reyna á mig. Já, það
er gott að ferðast einn, einn
með sinni hugsun. Ég var tvo
tíma að koma mér af stað í
morgun. Hitaði graut úr hafra-
mjöli og sveskjum, en verst var
að rjóminn hafði strokkast á
hjólinu. Ég hendi mér út í kant
í hádeginu og fæ mér flatköku
með hangikjöti, annars þarf ég
ekki mikið. Mikið er gott að
vera kominn úr Mývatnssveit-
inni. Bölvaðar flugurnar ætluðu
mig lifandi að éta, þær sækja í
svitann. Sjáðu þarna austurfrá
er sandstormur," sagði Eggert,
og var þotinn á afahjólinu aust-
ur Mývatnsöræfin. ój
Þjóðhátíðarsjóður:
Styrkir gróðurfarskönnun
í Jökulsárgljúfrum
Þjóðhátíðarsjóður hefur lokið
úthlutun styrkja fyrir árið
1990, en sjóðurinn hafði að
þessu sinni rúmar 8 milljónir til
umráða. Upphæð umsókna
nam um fjórfaldri upphæð ráð-
stöfunarfjár, en hæsti einstaki
styrkurinn, kr. 405 þúsund,
kom í hlut Náttúruverndar-
ráðs.
Þóroddur Þóroddsson fram-
kvæmdastjóri Náttúruverndar-
ráðs segist vera mjög ánægður
með þennan styrk vegna þess að
ráðið hafi nánast fengið þá upp-
hæð sem það sótti um. Búið er
að girða suðurhluta þjóðgarðsins
í Jökulsárgljúfrum, en innan
hans var búið að girða nokkra
reiti til viðmiðunar til þess að
fylgjast með gróðurfarsbreyting-
um við friðunina.
Einnig nýtist styrkurinn til þess
að gera úttekt á gróðri á tjald-
svæðunum í Herðubreiðarlind-
um, Nýjadal, Landmannalaug-
um, í Landmannahelli og á
Hveravöllum. Tilgangurinn er sá
að skoða ástand gróðurs, áhrif
ferðamanna á þessar gróðurvinj-
ar og fá nokkuð nákvæma lýsingu
á því hvernig ástandið raunveru-
lega er og hvort til ráðstafana
þurfi að grípa til að viðhalda
gróðri á þessum stöðum. Niður-
stöður munu liggja fyrir í haust.
Náttúruverndarráð fær einnig
fast framlag úr Þjóðhátíðarsjóði,
2 milljónir króna, sem notast í
báðum þjóðgörðunum til endur-
bóta á tjaldstæðum og t.d. til að
greiða uppihald erlendra sjálf-
þoðaliða, verkfæri og efni.
Einnig þarf að útbúa skilti á ýms-
um friðlýstum svæðum svo sem
Særún á Blönduósi:
Nóg hráeftii í sumar
Gott útlit er hjá Fiskiöjuverinu
Særúnu hf. á Blönduósi. Nóg
aflast af rækju hjá minni bát-
unum til að halda vinnslunni
gangandi, en þeir bátar sem
eru undir 200 tonnum veiöa
Ekki setið auðum höndum á Hvammstanga:
Vatnsleiðsla lögð 11,5 km leið
- mikið um framkvæmdir í sumar
Miklar framkvæmdir verða í
sumar á vegum Hvammstanga-
hrepps. Stærsta verkefnið
verður að leggja vatnsleiðslu
upp í Vatnsnesfjall fyrir ofan
Hvammstanga, nánar tiltekið
norður í Mjóadal. Leiðslan
verður alls 11,5 kílómetra
löng. Framkvæmdir hefjast
fljótlega, en hreppurinn á í
samningum við heimaaðila um
að taka að sér verkið.
Af öðrum framkvæmdum á
Hvammstanga í sumar má nefna
undirbyggingu gatna, skipt verð-
ur um holræsalagnir, unnið að
gerð landfestinga fyrir smábáta-
bryggjur og viðlegukantur í höfn-
inni lagaður. Að sögn Þórðar
Skúlasonar, sveitarstjóra, hefur
bátum á Hvammstanga fjölgað
mikið og þeir stækkað. „Frekari
hafnarframkvæmdir á Hvamms-
tanga eru mjög brýnar og verða
að eiga sér stað á næsta ári. Það
er dýpkun hafnarinnar sem hefur
forgang, og síðan verður að
halda áfram að laga viðlegukant-
inn áður en hann hrynur niður í
höfnina,“ sagði Þórður.
Eftirspurn eftir húsnæði er
mikil á Hvammstanga um þessar
mundir. Sem dæmi um það var
nýlega auglýst ein leiguíbúð og
alls 8 umsóknir bárust um hana.
Um þessar mundir er verið að
byggja 4 kaupleiguíbúðir og í
sumar verður ráðist í byggingu
tveggja verkamannabústaða á
Hvammstanga.
Af ofansögðu má sjá að engin
uppgjöf er í íbúum Hvamms-
tanga. Að sögn Þórðar er fjár-
hagsstaða hreppsins góð. „Breyt-
ingar á verkaskiptingu ríkis og
sveitarfélaga og ný tekjustofna-
lög eiga að koma sveitarfélagi
eins og Hvammstanga til góða
fjárhagslega. Að því er stefnt og
vonandi gengur það eftir,“ sagði
Þórður að lokum. -bjb
Sæplast hf.:
Styrkir knatt-
spymumenn
áDalvík
Ungmennafélag Svarfdæla og
Sæplast hf. hafa gert með sér
þriggja ára auglýsingasamn-
ing sem gildir keppnistímabil-
in 1990-1992.
UMFS selur Sæplasti hf. aug-
lýsingar á alla búninga meist-
araflokks í knattspyrnu, auglýs-
ingar við knattspyrnuvöll og á
önnur gögn tilheyrandi starf-
semi UMFS.
í samningnum eru ákvæði um
fastar árlegar greiðslur, en að
auki koma til greiðslur sem
byggjast á árangri meistara-
flokks í 3. deild íslandsmótsins
og í Bikarkeppni KSÍ.
Greitt verður sérstaklega fyr-
ir unninn leik og skoruð mörk.
GG
Björn Friöþjófsson formaður U.M.F.S. og Matthías Jakobsson stjórnar-
formaður Sæplasts hf. undirrita auglýsingasamninginn. Fyrir aftan þá
standa leikmenn í hinum nýju búningum.
innan ákveðinnar línu og innan
hennar mega stærri bátar ekki
veiða fyrr en eftir 15. október.
Að sögn Kára Snorrasonar,
framkvæmdastjóra hjá Særúnu,
lítur vel út með hráefnisöflun, en
salan virðist vera að dragast
saman. Aðallega hefur rækjan
farið á markað í Bretlandi og
Danmörku, en núna er orðin ein-
hver tregða þar og verðið að
lækka.
Haldið verður uppi fullri
vinnslu hjá Særúnu í allt sumar
og sá Kári ekki fram á neinar
uppsagnir eða stöðvanir þegar
blaðið hafði samband við hann í
gær. Fólkið mun taka sumarfríið
til skiptis svo að vinnslan haldist
stöðug.
Um 25 manns vinna nú í Sæ-
rúnu og átta bátar leggja þar upp.
Þeir stærri eru Nökkvi sem er á
grálúðu eins og er og Þröstur
BA, en hann hefur núna lagt upp
hjá Særúnu í eitt og hálft ár.
SBG
Bílaleiga Akureyrar:
Mesti annatím-
inn fer í hönd
Þessa dagana streyma ferða-
menn til Akureyrar og margir
þurfa bílaleigubOa. Skúli
Ágústsson hjá BOaleigu Akur-
eyrar segir að í næstu viku
komi fyrstu stóru hóparnir, en
þó fer ekki að lifna yfir fyrir
alvöru fyrr en um mánaðamót-
in.
„Pantanir í sumar líta ágætlega
út, en þetta er stuttur tími, að-
eins sex vikur. Þetta er ósköp
svipað og áður, það vilja allir
vera á sama tíma. Það gildir svip-
að um þetta og hótelin, í dag er
nóg laust af hótelherbergjum en
kannski verður ekkert laust eftir
tíu daga. Síðan er t.d. allt upp-
bókað á hótelum fyrstu tíu dag-
ana í ágúst, en eftir það er mesti
ferðamannatíminn líka búinn,“
segir Skúli.
Að sögn Skúla Ágústssonar er
algengast að ferðamenn frá
Bretlandi, Þýskalandi, Sviss og
Frakklandi taki bíla á leigu hjá
fyrirtækinu þennan árstíma, og
hefur svo verið í mörg ár. EHB
við Hverfjall í Mývatnssveit sem
leiðbeinir ferðamönnum um það
hvar má ganga upp á fjallið, en
margir stígar eru að myndast í
fjallinu sem er verulegt útlitslýti.
Þóroddur segir að mikil flóð
hafi verið í Vesturdal í vor og því
þurfi að gefa landinu tækifæri til
að þorna áður en ferðamönnum
verði leyft að tjalda þar, og það
verði ekki fyrr en í byrjun júlí-
mánaðar. GG
Siglufjörður:
Bæjarmála-
punktar
■ Hallgrímur Ólafsson,
skiptastjóri Tréverks hf., hef-
ur í bréfi til bæjarráðs tilkynnt
að hann hafi ákveðið að leggja
til við skiptaráðanda að íslands-
banki hf. fái heimild skipta-
fundar til að höfða mál til rift-
unar á samkomulagi þrotabús
Tréverks hf. við bæjarsjóð
Siglufjarðar um verkiok og
verkframkvæmdir við Hvann-
eyrarbraut 42 á Siglufirði. Á
fundi bæjarráðs 22. maí sl. var
lögð fram álitsgerð Árna Páls-
sonar, hdl. á Akureyri, um
erindi skiptastjórans þar sem
hann telur rök skiptastjórans
ekki standast og hann fari
frjálstega með staðreyndir. Á
áðurnefndum bæjarráðsfundi
var samþykkt að mótmæla
fullyrðingum og ásökunum í
erindi skiptastjórans á hendur
bæjarráði og bæjarstarfs-
mönnum. Jafnfram samþykkti
bæjarráð að af hálfu Siglu-
fjarðarbæjar hafi að fullu ver-
ið staðið við samkomulagið
um verklok að Hvanneyrar-
braut 42.
■ Iþróttaráð hefur samþykkt
að koma upp hjólabrettabraut
í bænum hið fyrsta.
■ Siglufjarðarbær hefur tekið
á leigu húsnæði að Eyrargötu
3 fyrir sérstuðning forskóla-
barna. Ákveðiö hefur verið að
þessi deild heiti Myllukot.
■ Bygginganefnd hefur veitt
Óðni Gunnarssyni byggingar-
leyfi til að byggja fiskverkun-
arhús úr stálgrind á lóðinni
Vesturtanga 1.
■ Framkvæmdanefnd um
byggingu dvalarheimilis fyrir
aldraða mælir með að dvalar-
heimilið fái nafnið Skálarhlíð.
Alls bárust 49 tillögur að nafni
á dvalarheimilið.
■ Átaksnefnd samþykkt á
fundi 7. júní sl. að ráða Val-
björn Steingrímsson í starf
framkvæmdastjóra átaksverk-
efnis í atvinnumálum á Siglu-
firði í stað Björns Valdimars-
sonar, sem nú hefur tekið við
starfi bæjarstjóra á Siglufirði.