Dagur


Dagur - 23.06.1990, Qupperneq 3

Dagur - 23.06.1990, Qupperneq 3
Laugardagur 23. júní 1990 - DAGUR - 3 Sjálfsbjörg/Tölvufræðslan hf. Akureyri: Emdu tu tölvunam- skeiðs fvrir fatlaða Fyrir nokkru lauk tölvunám- skeiði fyrir fatlaða, sem haldið var í húsi Sjálfsbjargarfélagsins á Akureyri að Bugðusíðu 1. Námskeiðið var haldið dagana 28. maí til 8. júní, í samvinnu Sjálfsbjargar á Akureyri og Tölvufræðslunnar á Akureyri hf., og var það ætlað aðalfélögum í Sjálfsbjörgu. Um var að ræða PC-grunnnám- skeið fyrir byrjendur í tölvunotk- un. Kynnt voru helstu hugtök tölvutækninnar, svo sem skipting tölvu í vélbúnað og hugbúnað, og heiti og hlutverk hinna ýmsu hluta vélbúnaðarins. Lögð var áhersla á verklegar æfingar í meðferð stýrikerfisins MS-DOS, ritvinnslukerfisins Word Perfect og töflureiknisins Multiplan. Kennslustundir voru samtals tólf. Undanfarið hefur talsvert ver- ið rætt um tölvunotkun í sam- bandi við atvinnumöguleika fyrir fatlaða. Ljóst þykir að fyrir marga hreyfihamlaða skapar tölvan möguleika fyrir fjarvinnu, og ríkir mikill áhugi innan raða fatlaðra um þessi mál. Nefna má að Bandaríkjamenn eru langt komnir í rannsóknum varðandi fjarvinnu fatlaðra með tölvu- notkun. Leiðbeinendur á námskeiðinu voru Halldóra Sævarsdóttir og Jóhann Sigurðsson. Helgi Krist- insson er framkvæmdastjóri Tölvufræðslunnar á Akureyri. EHB Á tölvunámskeiði fyrir fatlaða. Talning vorfugla á Mývatnssvæðinu: Margir stoftiar að rétta verulega við Öndum í Mývatnssveit og Laxárdal hcfur fjölgað um 9% frá því í fyrra en þá voru fugiastofnar í lágmarki eftir hrun átustofna árin 1983 og 1988. Einstakar tegundir hafa þó tekið misjafnlega við sér ef miðað er við síðasta ár. Þessar voru niðurstöður árlegrar talningar á vorfuglum í Mývatnssveit og Laxárdal en hún fór fram í júníbyrjun. Taln- ingin er á vegum Rannsókna- stövarinnar við Mývatn og er þetta 16. árið í röð sem slík talning fer fram. Markmið með talningunni er að fá yfirsýn yfir þær breytingar sem verða á líf- ríki Mývatns og Laxár í tímans rás. Mest varð fjölgunin frá í fyrra á hrafnsönd sem fjölgað hefur um 45%. Húsönd hefur fjölgað um 25% og duggönd um 16% en einmitt þessir þrír stofnar hafa látiö verulega á sjá á síð- ustu árum. Stofnar rauðhöfða- andar og straumandar standa í stað en fækkun hefur orðið um 20% á gargönd, um 14% á hávellu og um 9% á toppönd. Að mati rannsóknarmanna má hiklaust rekja aukið fuglalíf til mýklaks nú í vor en toppmý kom í óvenju miklurn mæli upp úr vatninu, einkum Syðriflóa. Mýtegund þessi er eftirsótt fæða flestra vatnafugla og sé mikið af þessu mýi má telja víst að anda- varp verði með mcira móti. Að mati starfsmanna Rannsókna- stöðvarinnar er þó of snemmt að segja til um lífslíkur unganna því að afkoma þeirra ræðst af öðrum fæðutegundum. JÓH Spaugstofan: Leitar að léttustu lundinni á ferð sinni um landið Spaugstofan geysist nú um landið með gamanleikinn „í gegnum grínmúrinn“, gleði- þrungið leikhús lífs og Iista, og í kjölfarið á því sama kvöldið fer fram fyrsti hluti keppninnar „Leitin að léttustu lundinrii“. í grínmúrnum koma fram landsþekkt sjónvarpsandlit eins og Pétur Teitsson fréttastjóri, Kristján Ólafsson neytendafröm- uður, Örvar og Bogi rónar, Frið- mar C. Gauksson matreiðslu- maður, Ragnar Reykás, Erlend- ur fréttamaður, Friðrik Eyjólfs- son íþróttafréttamaður og fleiri. Leikverkið er tæplega tveggja stunda gleðileikur fyrir almenn- ing sem byggist upp á laustengdri röð spaugilegra atvika sem tengd eru með söng, hljóðfæraslætti og ljósagangi. Öllum íslendingum með sæmi- lega óbrenglaða kímnigáfu er heimilt að taka þátt í „Leitinni að léttustu lundinni 1990“ sem er samstarfsverkefni Spaugstofunn- ar hf. og Samstarfshóps um sölu á lambakjöti. Keppendum sem eru með kynþáttafordóma, klám, guðlast og þess konar óþrif verð- ur hafnað, einnig er óheimilt að hía á Spaugstofuna. Ferðaáætlun Spaugstofunnar um Norðurland er eftirfarandi: 24. júní: Félagsheimilið, Hvammstanga 25. júní: Félagsheimilið, Blönduósi 26. júní: Miðgarður, Skagafirði 27. júní: Nýja bíó, Siglufirði 28. júní: Tjarnarborg, Ólafsfirði 29. júni: Leikhúsið, Akureyri 30. júní: Leikhúsið, Akureyri Verðlagsráð: Verðhækkun á steypu óheimil Verðlagsráð hefur úrskurðað fyrirhugaða verðhækkun á steypu ógilda. Ákveðið hafði verið að hækka steypu um 2,8- 4,0% frá 19. þ.m. Verðlagsráð kom saman til fundar um þessa hækkun og eftir fundinn var tilkynnt að hækkun á verði steypu frá steypustöðvum eftir 1. júní sé ekki heimil. Verð helst því áfram óbreytt. JÓH Dalvík: Dómsátt í máli lögreglu- þjóns og þriggja pilta Gerð hefur verið dómsátt í máli Sævars Freys Ingasonar, lögregluþjóns á Dalvík, og þriggja pilta á Dalvík, Stefáns Agnarssonar, Þóris Guðmunds- sonar og Svavars Hreiðarsson- ar. Piltunum er gert að greiða 20 þúsund króna sekt hverjum og bera málskostnað og ennfrem- ur að greiða lögregluþjóninum skaðabætur. Af hálfu embættis ríkissaksóknara er máli þessu þar með lokið. Forsaga þessa máls er sú að aðfaranótt 20. janúar sl. kom til stympinga milli lögregluþjónsins og piltanna fyrir utan heimili þess fyrrnefnda á Dalvík. Málinu var skotið til ríkissaksóknara til fyrir- sagnar og var niðurstaða málsins sú að piltarnir hefðu gerst brot- legir við áfengislög, þ.e. ölvun á almannafæri, og ennfremur hafi Pórir og Stefán gerst brotlegir við 1. málsgrein 106. greinar almennra hegningarlaga, sem kveður á um að óheimilt sé að hindra embætt- ismann í starfi. Kristinn Einarsson, formaður Lögreglufélags Akureyrar, en Sævar Freyr á aðild að því, segist sáttur við þessa niðurstöðu og málinu sé þar með lokið. Hann kvaðst líta svo á að Sævar hafi með þessari niðurstöðu verið hreinsaður af þeim áburði að hafa rotað einn viðkomandi með kylfu og ennfremur hafi eigin- kona Sævars verið hreinsuð af áburði um hlut hennar að mál- inu. óþh SÝNING Á GARÐSIQFUM Bjóðum ykkur velkomin á garðstofusýningu okkar að Óseyri 8 Akureyri helgina 23.-24. júní kl. 13:00-18:00. Gróður- og sumarsæla allt árið. SINDRI BORGARTÚNI 31 • SÍMI 91-627222 ÓSEYRI 8 • SÍMI 96-21800

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.