Dagur - 23.06.1990, Qupperneq 4
4 - DAGUR - Laugardagur 23. júní 1990
Við byrjum á slœmu fréttunum. Við umsjónarmenn UNGLINGA-síðunnar
erum að hverfa á braut og verður þetta því síðasta UNGLINGA-síðan
okkar. Góðu fréttirnar eru hins vegar þœr að maður kemur í manns stað
og vœntanlega munu nýir umsjónarmenn brátt taka við af okkur svo þú
lesandi góður þarft ekki að örvœnta. Á þessum tímamótum þótti okkur
vel við hœfi að líta yfir farinn veg, en um leið horfa fram á við. Við fórum
því á stúfana og hittum nokkra unglinga og spurðum þá hvernig þeim
fyndist að unglingasíðan œtti að vera, mœttu þeir ráða.
Við viljum nota þetta tœkifœri til að þakl<a starfsmönnum Dags og
Dagsprents fyrir hjálpina og þolinmœðina. Öllum þeim fjölmörgu ung-
lingum sem við höfum kynnst þökkum við einnig kœrlega fyrir.
HH og HÞ
að
„Best
Þeir Páll Tómas Finnsson 15 ára
og Björgvin Ólafsson 14 ára
sátu fyrst fyrir svörum þegar
spurt var hvernig UNGLINGA-
sfðan œtti að vera:
Palli:„Ja, mér finnst hún bara
ágœt eins og hún er.“
Bjöggi:„Mér finnst að það eigi
að vera mikið af viðtölum og
svoieiðis, eitthvað skemmtilegt."
Báðir sögðust þeir sjá
daglega og lesa yfirleitt UNG-
LINGA-síðuna. Aðspurðir um
hvað þeir vœru að gera í sum-
ar annað en að lesa Dag sagð-
ist Palli vera að vinna í saltfiski
allan daginn.
Björgvin sagðist fara í vinnu-
skólann, „Ég verð f vinnuskólan-
um hálfan daginn og hinn
helminginn ligg ég bara f leti."
Áhugamál? „Jú, jú við höfum
auðvitað áhuga á tónlist og svo
náttúrlega að liggja í leti.“ Þá
kvöddum við strákana þar sem
þeir teygðu úr sér í kirkjutröpp-
unum.
Björgvin og Páll eru önnum kafnir
í leti.
en finnst samt best að liggja
Kjartan er með rafmagnsbakteríu en Baldur og Sveinn hafa áhuga á golfi. Þeir eru allir skátar.
„Rafmagn og golf
Við vildum endilega klófesta
fleiri skáta og það tókst. Dreng-
irnir sem við náðum í voru
meira en til í að svara nokkrum
laufléttum spurningum. Fyrst var
spurt um nafn og aldur, og ekki
stóð á svörum. Þetta voru þeir
Sveinn Svavarsson 15 ára, Bald-
ur Ingi Karlsson 14 ára og Kjart-
an Ólafsson 16 ára.
Þeir félagar kváðust kíkja á
UNGLINGA-síðuna misoft.
Baldur: „Hvernig mér finnst að
síðan aetti að vera? Þetta er
náttúrlega alveg ferlega erfið
spurnlng, ég segi bara að hún
eigi að fjalla um félagsmál
ungllnga."
Sveinn.- „Bara sammála
Baldri."
Kjartan: „Um unglinga og
hvað þelr eru að gera, vinnu og
áhugamál."
Kjartan kvaðst vera að vinna í
heildverslun sem höndlaði með
rafmagnsvörur og sagði það
vera þokkalegt starf enda mikill
áhugamaður um allt sem við-
kemur rafmagni.
Baldur sagðist vera f „málara-
bissnessinum" en Sveinn vinnur
uppi á golfvelli við að slá gras
og róta í beðum. Hann sagði
þetta afar heppilega vinnu þar
sem aðaláhugamál hans vœri
golf ásamt sundi. Baldur var
sammála um golfið en Kjartan
hefur skátana fyrir áhugamál
ásamt fyrrnefndu rafmagni.
Enda er hann á leið í grunn-
deild rafiðna í VMA í haust.
„Þessi rafmagnsbaktería er f
blóðinu og ég er mjög ánœgð-
ur með það. Þetta hefur hins
vegar komið dálítið niður á
mömmu því allt frá þvf ég var
smágutti hef ég lagt rafmagns-
snúrur um öll herbergi," sagði
Kjartan brosandi út að eyrum.
Baldur og Sveinn sögðust hins
vegar verja sínum frftíma uppi
á golfvelli og svo eru þeir allir á
leið á skátamótið. Kjartan er
sveitarforingi og þvf hvílir mikil
ábyrgð á herðum hans varð-
andi undirbúning fyrir landsmót
skáta.
Og þar með er plássið búið
og við kveðjum í síðasta sinn.
Umsjón: Hlynur Hallsson
og Hildigunnur Þráinsdóttir
;anm
s eru a
lutverk
■ Suthe
woosie
v/lark R<
ack. - Ai
)5 Duflai
idarísk I
'4. - Dem
, af Ch>
imsins st
öö, sem
aldrifjaöa c
leecham, s<
aielgud. Sp
nynd með <
Jóhanna Mjöll sér unglingasíðuna sjaldan en Díana sagðist yfirleitt alltaf
lesa hana.
„Fjalla um skátana“
Nœst hittum við fyrir tvœr
stelpur, þœr Dfönu Björk Ólsen
14 ára og Jóhönnu Mjöll Björns-
dóttir 13 ára.
Dfana= „Ég les UNGLINGA-sfð-
una yfirleitt alltaf. Mér finnst að
hún eigi að vera skemmtileg
og með viðtölum."
Jóhanna: „Við kaupum ekki
Dag svo ég sé UNGLINGA-sfð-
una sjaldan.“
Aðaláhugamál þeirra
beggja er skátarnir. Dfana
sagðist vera í vlnnuskólanum
og svo eru þœr báðar á leið á
landsmót skáta sem verður í
sumar.
Jóhanna er hins vegar að
passa bróður sinn f sumar.
„Maður hefur nóg að gera á
daginn, ef það er gott veður
förum við stundum í sund.“
Þœr Díana og Jóhanna voru
sammála að ef þœr mœttu
ráða einhverju um nœstu UNG-
LINGA-síðu myndi hún fjalla um
skátana.
„Áhugamál okkar eru útivera, tónlist, skátarnir og leiklist," sögðu þœr
Nanna og Berglind.
„Viðtöl og
Nanna Marfa Júlíusdóttir 13 ára
og Berglind Bergþórsdóttir 13
ára voru á kafi f að taka á móti
dósum fyrir skátana uppi í
Lundarskóla þegar þœr féllust
á að svara aðalspurningunni.
Nanna: „Mér finnst að það
eigi að vera viðtöl við krakka
um áhugamál þeirra og svo-
leiðis."
Berglind: „Já ég segi það
sama, viðtöl og svoleiðis. Ég les
UNGLINGA-síðuna alltaf og
svoleiðis"
finnst hún alveg nauðsynleg."
Þœr stöllur kváðust báðar
vera í vinnuskólanum og að
passa þess á milli. „Áhugamál
okkar eru útivera, tónlist,
skátarnir og leiklist. Við erum að
fara á skátamót í júlí."
Nanna œtlar svo að fara í
veiðiferð í sumar og Berglind fer
e.t.v. f ferðalag til Reykjavfkur.
Svo héldu stelpurnar áfram
að safna dósum fyrir skátana.