Dagur - 23.06.1990, Side 8

Dagur - 23.06.1990, Side 8
8 - DAGUR - Laugardagur 23. júní 1990 Lögguhasar og slöngudans - skagfirskt skólafólk við sumarstörf Á vorin tæmast skólarnir og vinnumarkaðurinn fyllist eins og sólargangurinn lengist. Misjafnt er hvaða störf eru laus til handa skólafólkinu og ekki eru allir svo heppnir að komast í vinnu eins og ástandið er í dag. Ástandið á Sauðárkróki er þó nokkuð gott í þessu sambandi og lítið um atvinnuleysi hjá skólafólki. Blaðamaður Dags brá sér einn góðviðrisdaginn út að leita að ungu fólki sem væri að nurla saman aurum til næsta skólaárs. Ekki var hann búinn að keyra langt þegar hvítur bíll með bláum röndum og bláum Ijósum stöðvaði hann og ökumaðurinn bað hann vinsamlegast að spenna öryggisbeltin og anda framan í sig. Þarna var kominn lag- anna vörður og það í yngri kantinum enda háskólanemi á uppleið. Blaðamaður var nú vinsamlegast beðinn um að setj- ast inn í hvíta bílinn með bláu röndunum og notaði hann tækifærið og greip með sér myndavél og segulbandstæki. Eftir að einkennisklæddi maðurinn hafði lokið sér af var röð- in komin að blaðamanni. í Ijós kom að löggan var tvítugur laganemi í Háskóla Islands að nafni Árni Þór Þorbjörnsson. - Hvers vegna í lögguna? „Ég var á skotvopnanámskeiði hér á Króknum og yfirlögreglu- þjónninn spurði hvort ég hefði áhuga á að gerast lögregluþjónn í sumar. Þar sem ég hafði ekki fengið neina vinnu ákvað ég að slá til, enda nýtist þetta mér vel í sambandi við námið eða ég vona það minnsta kosti.“ - Var það kannski draumur- inn hjá litla drengnum honum Árna Þór að verða lögga þegar hann yrði stór? „Nei, langt frá því. Mig hefur aldrei langað til að verða lögga og ég var alltaf hræddur við lögg- ur þegar ég var lítill. Ert þú ekk- ert hræddur við löggur?“ Blaðamaður fer hjá sér, lítur niður á skjálfandi hnjáliði sína en stynur síðan upp neitandi svari gegn samvisku sinni. Hugsar sig um smástund og heldur síðan áfram að bauna spurningum á viðmælanda sinn. - í hverju felst þetta starf? „Það er nú svo margt að ekki er hægt að telja það upp í stuttu máli. Lögreglustarfið felst bara einfaldlega í því að halda uppi lögum og reglum." - Hvernig líkar þér starfið? „Þetta er ágætt, fjölbreytnin er mikil og margt skemmtilegt. Skemmtilegast finnst mér þó að gera skýrslur (hlær og segir nei, nei). Aftur á móti finnst mér hundleiðinlegt á svona eftirlits- rúntum sem felast aðallega í því að benda fólki á að kveikja ljósin og spenna beltin.“ - Heldurðu að þú ílengist í þessu starfi? „Ekki ætla ég nú að spá neinu um það. Kannski fer maður í þetta svona á sumrin ef það stendur manni til boða, annars er ég nú ekki farinn að sjá nein laun ennþá svo að það er best að segja sem minnst.“ Blaðamaður var nú settur út hjá bifreið sinni og beðinn um að muna eftir að aka um með beltin spennt. Síðan var hvíti bíllinn með bláu rendurnar horfinn í eftirlitsrúntinn aftur og Árni Þór hnarreistur, en glaðlegur við stýr- ið tilbúinn að vitna í lögin sem hann lærir á veturna ef einhver gerist svo óforskammaður að villast út fyrir lagabókstafinn. Næst lá leiðin á bensínstöð því að rauðu ljósunum í mælaborði bifreiðar blaðamanns var farið að fjölga ískyggilega mikið. Þegar rennt var upp að ESSO-stöðinni á Sauðárkróki, sem almennt gengur undir nafninu Ábær, birt- ist dökkhærður náungi í Esso- peisu og spurði hvort ætti að fylla. Blaðamaður ansaði játandi og snaraðist síðan út úr bifreið- inni og greip Atla Frey Sveins- son, 19 ára nemanda á félags- fræðibraut í Fjölbrautaskólanum á Sauðárkróki, í spjall meðan hann var að dæla eldsneytinu á bílinn. - Hvaða gerirðu í þessu starfi? . >.Ég er slöngutemjari hér á Ábæ og vinn við afgreiðslustörf í þessari olíuverslun, svo er líka myndbandaleiga hérna og maður sinnir henni einnig.“ - Heldurðu að þú græðir eitthvað á því að vinna hér í sambandi við námið? „Tvímælalaust, maður hittir mikið af fólki og það eru margar manngerðirnar sem rekast hing- að inn. Þetta er nú samt kannski ekki beint hagnýtt starf fyrir námið. Mér finnst þetta samt ákaflega líflegt og mér finnst mjög gaman að hitta ferðafólk, bæði innlent og erlent, og svo er náttúrlega alltaf gaman að heima- mönnum !íka.“ - Gerist aldrei neitt spaugilegt hér á planinu eða í versluninni? „Það gerist aldrei neitt fyndið hérna nema þá helst einhver mistök í sambandi við dælingu. Einu sinni fyllti t.d. einn af- greiðslumannanna hérna, ekki ég, lögreglubílinn á staðnum, sem gengur fyrir bensíni, af dísel- olíu og það má hlæja að því svona eftir á. Það er helst eitt- hvað svona sem gerist hérna. Svo gerðist það í vetur að einn við- skiptavinanna ætlaði nú bara að taka dæluna með sér. Það var verið að dæla á bílinn hjá honum og svo fór bíllinn renna af stað og þá flautaði bíll sem var fyrir aftan hann til að vara hann við því að slangan væri enn í. Náunginn tók þessu sem svo að hann ætti að færa sig og ók af stað með allt heila draslið svo að dælan skemmdist lítillega, en það var nú ekkert alvarlegt.“ Atli Freyr slöngutemjari Sveinssun við dælurnar á Ábæ. Myndir: SBG Atli hafði nú lokið við að dæla á bílinn og þurfti nú blaðamaður að ganga inn með honum til að greiða fyrir vökvann. Þegar hann kom síðan út aftur blasti við hon- um dugnaðarforkur með kústa í höndum. Verið var að sópa á planinu svo að allt yrði nú hreint og fágað þann 17. júní. Ekki var nú hægt að ganga framhjá slíkum þrifamanni án þess að hafa tal af honum. Þetta var Kristinn nokk- ur Kristjánsson einnig nemandi í fjölbrautaskólanum, 17 ára gamall, skráður á náttúrufræði- braut. Kristinn reyndist vera starfsfélagi Atla en kvaðst þó vera bensíntittur, en ekki slöngu- temjari. - Hvað er það í þessu starfi sem heillar svona unga menn? „Ég veit svo sem ekki hvort það er nokkuð sem heillar menn. Þetta er þroskandi starf sem ég held að sé hollt fyrir ungt fóik á mínum aldri að vera í og ég held Kristinn Kristjánsson, dugnaðar- forkur, með kústinn. að það ættu sem flestir að prófa þetta." - Nú tengist þetta engan veg- inn þínu námi eða hvað? „Éflaust er nú hægt að finna eitthvað sem nýtist mér í náminu. Maður leggur t.d. saman tvo og tvo og það er mikil stærðfræði á náttúrufræðibraut. “ - Finnst þér þetta mjög skemmtilegt starf? „Já, aðallega út af því að við Atli vinnum saman. Vaktirnar sem við tökum saman hérna eru hálfgerðar sprelligosavaktir og þá fara flestir sem koma hingað hlæjandi í burtu eftir að viðskipt- um er lokið.“ - Geturðu gefið mér sýnishorn af gleðimeðölum ykkar Átla? „Einu sinni voru tveir bollar að fara í afmæli til þriðja bollans og þeir ákváðu að gefa honum teskeið í afmælisgjöf. Svo komu þeir heim til bollans og afhentu honum teskeiðina. Þá sagði boll- inn sem fékk teskeiðina: „Ég er hrærður.“.“ Með þennan ágæta brandara þeirra Kristins og Atla í fartesk- inu hélt blaðamaður burt frá Ábæ með bros á vör, en tékkaði þó vandlega á því að engir aukahlutir væru fastir við bílinn svo að hann keyrði nú ekki burt með.heila bensínstöð í eftirdrag- inu. Auðvitað eru skagfirskar skólameyjar einnig í vinnu á sumrin eins og piltarnir, en þær verða að fá sinn skammt ein- hvern tímann seinna því eftir þennan lögguhasar og slöngu- dans var blaðamanni öllum lokið. Hann brunaði út í buskann með fullan bensíntank og gamansögur í nesti og síðan hefur ekkert til hans spurst. SBG

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.