Dagur - 23.06.1990, Blaðsíða 18

Dagur - 23.06.1990, Blaðsíða 18
18 - DAGUR - Laugardagur 23. júní 1990 poppsíðan The Stone Roses ekki bamanna bestir The Stone Roses, ein af þeim fjöl- mörgu hljómsveitum frá Man- chester sem náð hafa hylli, lenti nú á dögunum í miklu karpi við blaðamenn á fyrsta alþjóðlega blaðamannafundi sínum. Það er reyndar ekkert nýtt hjá meðlim- um Stone Roses að vekja athygli fyrir annað en tónlistarflutning sinn því þeir hafa verið duglegir við að koma sér í allskyns vand- ræði og m.a. oftar en einu sinni komist ( kast við lögin. Á þessum fyrsta heimspressu- fundi hljómsveitarinnar var orsök vandræðanna sú, að ýmsum blaðamönnum þótti svörin við spurningum sínum vera heldur lítilfjörleg og gagnrýndu þeir hljómsveitina harkalega og sögðu m.a. að slík framkoma væri óvirðing við aðdáendur þeirra og um leið móðgun við þá blaðamenn sjálfa sem sumir væru langt að komnir til að ná tali af þeim. Viðbrögð meðlima Stone Roses voru ekki til að bæta andrúmslofið því þeir sögðu að blaðamennirnir ættu ekki að vera að kvarta því varla þyrftu þeir að borga krónu í ferðakostnað, en ef hins vegar svo væri „mættu þeir gjarnan sem slíkt gerðu rétta upp hönd“. Urðu umræður enn hvassari í framhaldi af þessu og gekk einn blaðamaðurinn svo langt að saka hljómsveitina um hatur í garð Bandaríkjanna og af því stjórn- voru flestir frá Bandaríkjunum.) Við þessi orð blaðamannsins vildi einn drukkinn aðdáandi Stone Roses sem viðstaddur var fundinn ekki una og gerði hann sig líklegan til að ráðast á hann en því var afstýrt áður en í illt færi. Tókst að Ijúka fundinum nokk- uð friðsamlega en bandarísku blaðamennirnir sögðu að þegar að því kæmi að hljómsveitin færi í tónleikaferð til heimalands þeirra væri alveg Ijóst að slík framkoma yrði ekki liðin þar. hlýða á hljómsveitina. Sagði söngvarinn Peter Garrett að með þessu hefðu þeir félagarnir í Midnight Oil verið að leggja til sinn skerf í þágu umhverf- isverndar og um leið að vekja fólk til umhugsunar um hve illa sé farið með móður jörð. Michael Jackson Pær fréttir berast nú af Michael Jackson að hann hafi fyrir skömmu verið fluttur í skyndi á sjúkrahús í Los Angeles kvart- andi yfir sársauka í brjósti. Hafa læknar enn sem komið er ekki tjáð sig um hvað ami að Gull- drengnum en vinir hans segja að honum líði þolanlega. Af Velvet Underground salugu Fjórir upprunalegu meðlima hinn- ar frægu bandarísku hljómsveitar The Velvet Underground þau Lou Reed, John Cale, Sterling Morrison og Maureen Tucker munu hittast saman á ný í París á mikilli hátíð tileinkaðri fyrrum umboðsmanni og áhrifavaldi hljómsveitarinnar Andy Warhol. Það er þó harla ólík- legt að þau muni koma fram saman á sviði vegna innbyrðis beiskju þeirra á milli en hina tón- listarlegu hlið hátíðarinnar þar sem fram koma hljómsveitir sem eitthvað eru skyldar Velvet Under- ground eða eru undir áhrifum frá henni, munu þau kynna hvert í sínu lagi. Umsjón: Magnús Geir Guðmundsson aðist framkoma þeirra á fundin- um. (Hinir aðkomnu blaðamenn NOBRÆNA FERÐASKRIFSTOFAN SMYRIL-LINE ÍSLAND LAþGAVEGUR 3 101 REYKJAVlK SIMI 91-62 6362 AUSTFAR HF. NORRÆNA FERÐASKRIFSTOFAN FJfRÐARGÖTU 710 SEYÐISFIRÐI SIMI 97-21111 Soul II Soul Blökkumannapoppsveitin Soul II Soul sem nú situr með nýju plöt- una sína í efsta sæti breska vin- sældalistans, er nú orðin söng- konulaus því söngkonan Doreen hefur sagt skilið við hljómsveit- ina. Er hún nú þegar búin að setja á stofn aðra sveit undir nafninu Space og hljóðritað með henni útgáfu af gamla JimiHendr- ix laginu Purple Haze. Umhverfisvernd brennur heitt á Midnight Oil. Midnight Oil Ástralska rokkhljómsveitin Midnight Oil hélt fyrir skömmu all sérstæða tónleika í Hew York. Voru þeir haldnir á vörubílspalli fyrir framan höfuðstöðvar olíufyr- irtækisins Exxon Oil í mótmæla- skyni við mengunarslys sem varð af völdum fyrirtækisins í sundinu Prince Williams í Alaska í fyrra. Vakti þessi uppákoma mikla athygli og söfnuðust nær fimm þúsund manns saman til að 1111111111111111 '-'llllllllllllllllllll □ llll IL-LINE ■IIIIIIIIIIIIIK Það er notaleg tilbreyting að sigla með lúxusfleytu til Evrópu. Um borð í þægi- legri ferju með öllum ný- tísku þægindum geturðu slakað á og byrjað að njóta sumarleyfisins. Hreint sjávarloftið hressir ótrú- lega og streitan hverfur eins og dögg fyrir sólu á Atlants- hafsöldunni. Norræna er bílferja af fullkomnustu gerð, búin þeim þægindum sem kröfuharðir ferðamenn nútímans vilja. Um borð í Norrænu er að finna veitingastaði, frí- höfn, bari, diskótek og leikherbergi fyrir bömin. Fullkominn stöð- ugleikabúnaður gerir siglinguna að ljúfum leik. Þannig eiga sumarfríin að vera. Hringdu eða líttu inn og fáðu all- ar upplýsingar um ferðir Norrænu til Færeyja, Noregs, Danmerkur og Hjaltlands, því vel undirbúið sumarfrí er vel heppnað sumarfrí. Stone Roses eru ekki vinsælir hjá bandarískum blaðamönnum. Black Crowes - Shake your Moneymaker: Suðurríkjarokk Suðurríkjarokk er eins og nafnið gefur til kynna upprunnið frá Suðurríkjum Bandaríkjanna. Þar hafa löngum verið höfuðvígi þeirra tveggja tónlistarstefna sem auk hins gamla rokk og róls hafa mótað Suðurríkjarokkið það er að segja blúsins og kántrítón- listarinnar. Hefur Suðurríkjarokk- ið fætt af sér margar mjög góðar hljómsveitir og hafa sumar þeirra náð mikilli frægð. Má í því sam- bandi nefna sveitir eins og Molly Hatchet, Blackfoot, 38 Special og síðast en ekki síst Lynyrd Skynyrd sem teljast verður þeirra merkust en lög hljómsveitarinnar svo sem eins og Freebird, Sweet TIL EVROPU K3PI Black Crowes er ein af þeim efnilegri I rokkinu í dag. home Alabama og Simple Man þykja sígild. Undir áhrifum frá þessum hljómsveitum auk Aerosmith, Otis Redding o.fl. er hljómsveitin Black Crowes á fyrstu plötu sinni Shake your Moneymaker. Kemur hún frá Atlantaborg í Georgiufylki þar sem bræðurnir Chris og Rich Robinson stofnuðu hana fyrir rúmum tveimur árum. Auk Chris sem syngur og Rich sem leikur á gítar eru trommuleikarinn Steve Gorman og bassaleikarinn Johnny Colt í hljómsveitinni. Það er alveg óhætt að taka undir með erlendum gagnrýn- endum sem hælt hafa Shake your Moneymaker. Er skífan vægast sagt góð blanda af kraft- miklum lögum og rólegum ball- öðum og er með ólíkindum hve hljómsveitin er þroskuð strax á sinni fyrstu plötu. Ómögulegt er að taka út einhver einstök lög og segja að þau séu best en þó má segja að í rólegri lögum eins og Seeing Thing sé hápunktinum náð. Shake your Moneymaker er tvímælalaust með betri frum- burðum sem heyrst hafa lengi í rokkinu og verður mjög spenn- andi að fylgjast með hvort Black Crowes nær að halda sama dampi í framtíðinni. Hitl og þetta

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.