Dagur - 26.06.1990, Blaðsíða 1
LACOSTE
Peysur • Bolir
HERRADEILD
Ciránutelagsgötu 4
Akureyri • Sími 23599
Sæfari á flot um helgina
Hríseyjar- og Grímseyjarferjan Sæfari hefur áætlunarsiglingar á ný um næstu helgi en að undariförnu
hefur ferjan verið í Slippstöðinni á Akureyri þar sem smíðaður var farþegasalur á skipið. Með þessu
verður mikil breyting á aðstöðu fyrir farþega á skipinu og rúmar þessi salur upp undir 100 farþega. Mikil
eftirspurn hefur verið eftir ferðum með skipinu út í eyjarnar auk þess sern vöruflutningar með ferjunni
hafa verið miklir. Á myndinni hér að ofan sést Sæfari í Slippstöðinni á Akureyri í gær. JÓH/ntynd: KL
Ýmislegt á borði Iðnþróunarfélags Eyjaijarðar hf.:
Fisklundir og handþurrkur
framleiddar í Eyjafirði?
Akureyri:
Ökuþór á 135 km
Lögregluþjónar á Akureyri
grétu ekki grámyglulegt veðrið
um heigina. Suddinn hafði það
í för með sér að fólk flýtti sér
heim af dansleikjum og lítið
var um óspektir í Miðbænum.
Aðeins einn fékk næturgist-
ingu í fangageymslum lögregl-
unnar.
Engin óhöpp urðu í umferð-
inni um helgina, að sögn varð-
stjóra hjá lögreglunni, en tveir
ökumenn voru teknir grunaðir
um meinta ölvun við akstur.
Lögreglan var með radarmæl-
ingar og stöðvaði 10 ökumenn
fyrir of hraðan akstur. Sá sem var
bíræfnastur að þessu leyti ók
bifreið sinni á 135 km hraða á
þjóðveginum norðan Akureyrar
þar sem reglur kveða á um 90 km
hámarkshraða, en algengustu
brotin fólust í því að ökumenn
misstu bíla sína á um 20 km meiri
hraða en löglegur hámarkshraði
segir til um. SS
Norðurland vestra:
Annasöm helgi
spellvirkja
Fremur róleg helgi var hjá lög-
reglunni bæði á Blönduósi og
Sauðárkróki. Sömu sögu er þó
ekki að segja af spellvirkjum í
Skagafirði, því um helgina
voru framin þrjú innbrot á
Sauðárkróki, einn bíll
skemmdur og rúður brotnar í
einum fjárhúsum.
Að sögn lögreglunnar á
Blönduósi virðist vera að fólk sé
farið að hægja á sér og um helg-
ina voru aðeins um 20 bílar
stöðvaðir fyrir of hraðan akstur
sem er mun lægri tala en vana-
lega. Pó varð þriggja bíla árekst-
ur við Síkárbrú, en engin slys á
fólki.
Hjá lögreglunni á Sauðárkróki
hlaðast aftur á móti upp mál
vegna helgarinnar. Brotist var
inn í Sláturhús KS, dælustöð
hitaveitunnar í Sauðármýri og
félagsheimili Léttfeta. Lftið
fémætt var til handa þeim er inn
brutust, en þó var einhverju
smádóti stolið. Einhver árátta
virðist vera um þessar mundir að
brjóta rúður, því í síðustu viku
voru brotnar nær allar rúður í
íbúðarhúsi, sem ekki er búið í, á
Stapa í Lýtingsstaðahreppi. Það
mál er upplýst, en óupplýst er
hverjir stóðu fyrir rúðubrotum í
einum fjárhúsum uppi á Nöfum
aðfaranótt sl. laugardags. SBG
Umsóknarfrestur um starf
framkvæmdastjóra Fjórðungs-
sjúkrahússins á Akureyri til
næstu fjögurra ára rann út 20.
júní s)., en þá hafði fjöldi
umsókna borist og mikið
spurst fyrir um starfið.
Halldór Jónsson fráfarandi
framkvæmdastjóri og verðandi
bæjarstjóri á Akureyri segir að
umsóknirnar fari fyrir nefnd sem
úrskurði um hæfni umsækjenda,
Að undanförnu hefur Iðnþró-
unarfélag Eyjafjarðar hf. m.a.
kannað möguleika á fram-
leiðslu vörubílastuðara, neta-
akkera, salernispappírs, hand-
þurrka og fisklunda. Athugun
á framlciðslu þessara vara er
misjafnlega langt á veg komin,
að sögn Sigurðar P. Sigmunds-
sonar, framkvæmdastjóra Iðn-
þróunarfélagsins, og of
snemmt að segja hvort allar
þessar hugmyndir verða meira
en hugmyndirnar einar.
Samkvæmt reglugerð, sem tek-
ur gildi um næstu áramót, verður
öllum vörubílum skylt að hafa
afturstuðara að lágmarki 55 cm
en nefndin samanstendur af full-
trúum frá heilbrigðisráðuneytinu,
Félagi forstöðumanna sjúkrahúsa
og stjórn sjúkrahússins.
Fundartími nefndarinnar var
áætlaður öðrum hvorum megin
við sl. helgi, og því ætti stjórn
FSA að getað fjallað um umsókn-
irnar og ráðið nýjan fram-
kvæmdastjóra í þessari viku.
Halldór Jónsson tekur væntan-
lega við bæjarstjórastarfinu 1.
ágúst nk.
frá jörðu. Slíkir stuðarar eru ekki
til hér á landi og því kannar IFE
nú ásamt aðila á Ákureyri mögu-
leikann á að smíða þá hér norðan
heiða. Sama gildir um netaakker-
ið, en búið er að vinna frum-
athugun á því og er Iðnþróunar-
félagið ásamt Iðntæknistofnun og
viðkomandi hugvitsmanni á
Akureyri að kanna málið frekar.
Sigurður sagði að könnun á
framleiðslu salernispappírs og
handþurrka væri komin lengra á
veg. Búið er að afla gagna varð-
andi vélar, markaðsmál og annað
er að þessu lýtur, en næsta skref
verður að gera arðsemismat.
„Handþurrkurnar eru ekki fram-
leiddar hér á landi,“ sagði
Sigurður, „en við leggjum
áherslu á að taka salernispappír-
inn með. Þetta getur vel komið til
greina. Við viljum finna lilla og
heppilega einingu fyrir slíka
framleiðslu."
Þessa dagana kanna fulltrúar
IFE ásamt forsvarsmönnum Norð-
urfisks hf. í Keflavík stofnsetn-
ingu fyrirtækis á Eyjafjarðar-
svæðinu fyrir framleiðslu á fisk-
lundum og fleira. Að sögn
Sigurðar hefur Norðurfiskur hf.
yfir að ráða vélabúnaði til slíkrar
framleiðslu og til greina kemur
að stofna til lítils fyrirtækis sem
ynni úr hráefni er félli til í einni
eða fleiri fiskvinnslustöðvum hér
á svæðinu. „Við erum komnir
nokkuð áleiðis í þessu og ef okk-
ur sýnist svo gæti þetta farið í
gang fljótlcga," sagði Sigurður.
óþh
Á árinu 1988 stóðu hagsmuna-
aðilar, ferðamálanefndir og
bæjarfélögin á Siglufirði,
Dalvík, í Olafsfirði og Hrísey;
saman að auglýsingaátaki til
þess að auglýsa Tröllaskaga
sem valkost fyrir þá ferðamenn
sem um hringveginn aka, og
var átakinu fyrst og fremst
beint að innlcndum ferða-
mönnum
Auglýsingaherferðin kostaði
um 1,2 milljónir króna, og var til-
gangurinn fyrst og fremst sá að
koma svæðinu á framfæri í ferða-
málaumræðunnni, og benda á þá
möguleika sem svæðið hefur upp
á að bjóða eins og t.d. gönguferð
í Héðinsfjörö eða útreiðartúr úr
Svarfaðardal um Heljardalsheiði
yfir í Hjaltadal í Skagafirði.
Sótt var um styrk frá Byggða-
stofnun í fyrrahaust vegna gerðar
auglýsinga og auglýsingaspjalda
en umsókninni var hafnað.
Birgir Steindórsson formaður
ferðamálanefndar Siglufjarðar
segir að vegna verulegs niður-
„SauðQár-
búskapur
hangir á
horriminni“
- segir Kári Karlsson
á Nýpá
„Saudfjárbúskapur hangir á
horriminni. Engar serstakar
aögeröir þarf til að minnka
fjárbúskap í landinu. Staða
stéttarinnar er þannig, að
mönnum fækkar jafnt og
þétt,“ sagði Kári Karlsson,
bóndi að Nýpá i Út-Kinn, S.-
Þingeyjarsýslu, en hann og
heimafólkið á Nýpá voru að
reka fjárstofninn út í Náttfara-
víkur er blaðamann Dags bar
að.
„Miklar breytingar eru orönar
á. T.'d. hér austur í Aöaldal er
vart búið með kindur. Ef bændur
hata ckki hætt fjárbúskapnum,
þá er búiö að skera niður vegna
riöu. Þessir bændur byrja vart
aftur.
Við hér í Út-Kinn erunt tiltölu-
lega einangraðir, okkar fé þvælist
ekki innan uni annað fé, við rek-
um í Náttfaravíkurnar og Vík-
urnar eru ekki ofbeittar.
Mjög erfitt er að kotna tenu á
afrétt og cins að ná því á haustin,
við þurftum að grípa til þess ráðs
að gera 11-12 m jarðgöng til að
koma fénu útfyrir í Víkurnar.
Göngur eru mjög erfiðar, því
hcstar nýtast ekki hér á þessu
landi. nema rétt miðsvæðis.
Kindurnar cru cru mikið í klett-
ununt fram við sjó. Vanhöld eru
töluverð. í fyrra vantaði töluvert
og cr skiljanlegt, hætturnar eru
víða. Þetta er hluti af tilverunni,"
skuröar á fjárframlagi frá sveitar-
félögunum verði ekki auglýst í
sumar utan auglýsingar í bækl-
ingnunt „Around Iceland", en
það sé ntjög slæmt að geta ekki
haldið þessu átaksverkefni gang-
andi, því eðli málsins samkvæmt
sé þetta langtímaverkefni.
Á Siglufirði ríkir ntikill áhugi á
því að gera Skarðsveginn ökufær-
an yfir sumarið til þess að geta
boðið ferðamönnum upp á hring-
akstur, þ.e. aka unt Strákagöng
til bæjarins og þaðan um skarðið.'
Margir þeir sem fóru þessa leið á
síldarárunum ntunu eflaust vilja
rifja upþ gamlar endurminningar
með því að aka um Siglufjarðar-
skarð.
Talið er að á síðasta ári hafi
eyðsla ferðamanna verið á annan
milljarð króna á Norðurlandi
eystra svo eftir töluverðu er að
slægjast, en Tröllaskagasvæðið
gæti tekið á móti tíföldum þeim
fjölda sem þar hefur farið um á
undanförnum árum án þess að
það kæmi niður á svæðinu. GG
Framkvæmdastjóri FSA:
Margir vilja í starfið
sagði Kári bóndi á Nýpá. ój
Tröllaskagi lítt auglýstur vegna prskorts: