Dagur - 26.06.1990, Blaðsíða 7
Þriðjudagur 26. júní 1990 - DAGUR - 7
Arctic Open golfmótið:
Yfirburðir Drummonds í „miðnæturregnmu“
- sigraði örugglega í keppni án forgjafar með 11 höggum minna en næsti maður
Arctic Open golfmótið fór
fram á Jaðarsvelli á Akureyri
um helgina. Óhætt er að segja
að veðrið hafí sett svip sinn á
mótið á heldur leiðinlegan hátt
því í stað miðnætursólarinnar
frægu máttu keppendur sætta
sig við þungbúið regnveður og
kulda lengst af. Að öðru leyti
tókst mótið í alla staði vel og
varð ekki betur séð en að
útlendingarnir, alls um 30
talsins, skemmtu sér konung-
lega, sem og Islendingarnir.
Það var Englendingurinn John
Drummond, golfkennari hjá
GR, sem bar sigur úr býtum í
keppni án forgjafar en hann
lék 36 holur á 145 höggum. í
keppni með forgjöf sigraði Jón
B. Hannesson, GA, á 139
höggum.
Þegar keppni hófst um kl. 20 á
föstudagskvöldið var veður þung-
búið og ljóst að keppendur
myndu ekki sjá til sólar það
kvöld. Fljótlega fór að rigna og
var veðrið afar leiðinlegt alla þá
nótt. Daginn eftir stytti þó upp
og seinni part dags var veður orð-
ið ákjósanlegt til golfiðkunar
þrátt fyrir að sólina vantaði sem
fyrr.
Veðrið hafði nokkur áhrif á
spilamennsku manna og var
„skorið" á fyrstu 18 holunum
mjög lélegt. Það batnaði þó þeg-
ar á mótið leið og var ekki annað
að sjá en menn væru ánægðir
með sinn hlut þrátt fyrir allt.
Drummond hafði mikla yfir-
burði í keppni án forgjafar. Hann
lék á 145 höggum eins og fyrr
segir en næsti maður, Sæmund-
ur Pálsson, GR, lék á 156
höggum. Andrew Jinsk, nýi golf-
kennarinn hjá GA, varð þriðji á
158 höggum.
í keppni með forgjöf varð
Halldór Sigurðsson, GR, annar á
Jón B. Hannesson tekur við verðlaunum úr hendi Gunnars Sólness, framkvæmdastjóra mótsins.
Jón Baldvinsson við Opel bifreiðina góðu
141 höggi og John Drummond
varð þriðji á 145 höggum. Hann
fékk þó ekki mikinn frádrátt þar
sem hann er með 0 í forgjöf.
Á annað hundrað keppendur
rnættu til leiks og þar af voru um
30 útlendingar sem komu sér-
staklega til landsins til að keppa í
mótinu. Voru þeir almennt
ánægðir með mótið og eins og ein
ensk kona orðaði það: „Að spila
golf í rigningu og roki um miðja
nótt er eitt það heimskulegasta
sem ég hef gert um ævina en jafn-
framt það skemmtilegasta."
John Drummond sigraði í lok mótsins
„Þessi hola hefiir reynst
mér erfið í gegnum árin“
- segir Jón Baldvinsson sem fór
holu í höggi og hlaut bíl að launum
„Ég sá strax að þetta var mjög
gott högg en það hvarflaði
aldrei að mér að kúlan færi í
holuna. Ég var að vona að kúl-
an myndi stoppa á gríninu
enda var það keppikefli hjá
mér, þessi hola hefur reynst
mér erfið í gegnum árin,“
sagði Jón Baldvinsson, sendi-
ráðsprestur í London, í samtali
við Dag í lokahófi Arctic Open
mótsins á laugardagskvöldið.
Jón vann það afrek fyrr um
daginn að slá holu í höggi á 6.
braut og hlaut að laununt
glæsilega Opel bifreið sem Jöt-
unn hf. og Þórshamar hf. gáfu.
„Við höfðum verið að grínast
með það félagarnir í dag að nú
yrðum við að ná í bílinn. Um leið
og ég var búinn að slá á sjöttu
holu sagði félagi minn „þarna
kemur bt'llinn.1- Kúlan kom niður
á grínið tveimur til þremur metr-
um frá stöng og rúllaði beint
ofaní holuna."
Jón sagði að það hefði mikið
verið fagnað á teignum og þetta
hefði verið ólýsanleg tilfinning.
En hvort var skemmtilegra að
vinna bílinn eða fara holu í
höggi?
„Það er alls ekki sanngjarnt að
spyrja svona. En aðalmálið er að
sjálfsögðu að slá holu í höggi,“
sagði Jón Baldvinsson.