Dagur - 26.06.1990, Qupperneq 10
10 - DAGUR - Þriðjudagur 26. júní 1990
:
1. deild kvenna:
íþróttir
Tvö töp KA-liðsins syðra
- fyrir ÍA og UBK
KA lék um helgina tvo leiki í
1. deild kvenna. Sá fyrri var
gegn IA á Akranesi á laugar-
daginn og tapaði KA þeim leik
0:3 og sá síðari var í Kópavogi
daginn eftir við Breiðablik og
máttu KA-stúlkurnar einnig
sætta sig við tap í þeim leik,
0:2.
Skagastúlkurnar voru tvímæla-
laust sterkan aðilinn í leiknum á
laugardaginn en KA-liðið átti þó
lóðan dag og stóð lengi í þeim.
A náði forystunni í fyrri hálfleik
með marki Önnu Lilju Valsdótt-
ur og staðan var 1:0 í hléi.
í síðari hálfleik vörðust KA-
stúlkurnar vel allt þar til 15
mínútur voru til leiksloka en þá
skoraði ÍA tvívegis með stuttu
millibili og gerði út um leikinn.
Mörkin skoruðu þær Friðgerður
Jóhannsdóttir og Elín Davíðs-
dóttir.
Á sunnudaginn léku KA og
Breiðablik, en margir spá síðar-
nefnda liðinu íslandsmeistaratitl-
inum. Leikurinn var góður og
KA-liðið lék sinn besta leik til
þessa.
Breiðabliksliðið náði foryst-
unni um miðjan fyrri hálfleikinn
með marki Sigríðar Lilju Sigurð-
ardóttur en eftir það var nokkurt
jafnræði með liðunum. KA-liðið
var tvívegis nálægt því að skora
og átti Linda Hersteinsdóttir
m.a. skot í stöng.
í síðari hálfleiknum voru
Breiðabliksstúlkurnar öllu sterk-
ari undan vindinum og náðu að
bæta við marki þegar 5 mínútur
voru til leiksloka úr umdeildri
vítaspyrnu. Úrslitin því 2:0.
3. deild:
Reynismeim sluppu á Húsavík
- Völsungar nálægt sigri í 1:1 jafntefli
Völsungur og Reynir skildu
jöfn 1:1 í 3. deildinni í knatt-
spyrnu á Húsavík á föstudags-
kvöldið. Leikurinn var jafn
framan af en í síðari hálfleik
voru Völsungar sterkari aðil-
inn og máttu Reynismenn
þakka fyrir jafnteflið.
Páll Gíslason skoraði mark Reynis á
Húsavík.
3. deild:
Haukar
unnu TBA
í ágætum
leik
TBA tapaði sínum fjórða leik í
röð í 3. deildinni þegar liðið
mætti Haukum frá Hafnarfirði
á KA-vellinum á föstudags-
kvöldið. Haukar unnu 2:0 og
sitja í 2. sæti deildarinnar en
TBA er í næstneðsta sætinu.
Leikurinn hófst nánast á því að
Haukar náðu forystunni. Páll
Paulsen skoraði þá eftir hrikaleg
varnarmistök hjá TBA.
TBA-menn brotnuðu þó ekki
við mótlætið og höfðu í fullu tré
við Haukana. Liðin sóttu á víxl
og var leikurinn ágætlega leikinn,
spilið þokkalegt þrátt fyrir að
færin væru ekkert sérlega mörg.
í síðari hálfleik var það sama
uppi á teningnum. TBA-menn
voru þó orðnir full ákafir í sókn-
inni og Valdimar Sveinbjörnsson
náði að skora fyrir Hauka úr
skyndiupphlaupi. TBA-menn
fengu kjörin færi til að minnka
muninn en ekkert gekk og úrslit-
in því 2:0.
líins og fyrr segir var jafnræði
með liðunum í fyrri hálfleiknum
og það voru Reynismenn sem
náðu forystunni á 10. mínútu
þegar boltinn hrökk í hönd eins
varnarmanna Völsungs inni í
vítateig. Páll Gíslason tók víta-
spyrnuna og skoraði af öryggi.
Eftir þetta gerðist lítið fyrr en
á 43. mínútu þegar Völsungar
jöfnuðu metin, eða réttara sagt
Reynismenn jöfnuðu metin fyrir
þá. Reynismaðurinn Jóhann
Jóhannsson skoraði þá glæsilegt
sjálfsmark með skalla í þverslána
og inn og staðan var því jöfn í
hléi.
í síðari hálfleik voru Völs-
ungar sterkari aðilinn og áttu
m.a. Pór Stetánsson og Jónas
Grani Garðarsson dauðafæri sem
þeim tókst ekki að nýta. í lokin
vildu Völsungar meina að þeir
hefðu átt að fá vítaspyrnu en
dómarinn sá ekki ástæðu til og
jafnteflið var því staðreynd. Pess
má geta að dómarinn vísaði Birni
Olgeirssyni, Völsungi, af velli
fyrir pústra undir lok leiksins.
4. deild, D-riðill:
Kormákur burstaði
Geislann 10:0
- og Neisti sigraði Þrym 2:0
Tveir leikir fóru fram í D-riðli
4. deildarinnar um helgina.
Kormákur vann stórsigur á
Geislanum, 10:0, og Neisti
vann Þrym 2:0.
Kormákur-Geislinn
Leikur Kormáks og Geisla fór
fram á Hvammstangavelli,
heimavelli þeirra fyrrnefndu.
Mikið hvassviðri var meðan á
leiknum stóð og setti það nokk-
urn svip á leikinn þrátt fyrir að
knattspyrna væri furðu góð mið-
að við aðstæður.
Heimamenn höfðu mikla yfir-
burði eins og úrslitin gefa til
kynna. Hefði sigur þeirra getað
orðið enn stærri ef miðað er við
marktækifæri. Kormáksmenn
skoruðu fjögur mörk í fyrri hálf-
leik og fimm í þeim síðari en
Geislamenn náðu nánast aldrei
að skapa sér færi í leiknum.
Albert Jónsson skoraði fimm
mörk fyrir Kormák, Hörður
Guðbjörnsson þrjú og Jón Magn-
ússon og Bjarki Gunnarsson eitt
hvor.
Neisti-Þrymur
Neisti frá Hofsósi hafði betur á
heimavelli sínum í baráttuleik
gegn Prym frá Sauðarkróki á
laugardaginn. Neistamenn skor-
uðu tvö mörk en gestirnir ekkert.
í fyrri hálfleik var fremur jafnt
á komið með liðunum en þrátt
fyrir góða baráttu Þrymsmanna
tókst Neista að gera eitt mark
fyrir hlé. Seinni hálfleikinn áttu
hins vegar Neistarnir en þeim
tókst ekki að nýta sér nema eitt
færi. Mörkin fyrir Neista skoruðu
Magnús Jóhannesson og Oddur
Jónsson.
Það má segja að þetta hafi ver-
ið hálfgerð „derbyviðureign“ því
töluverður rígur er milli þessara
tveggja 4. deildarliða sem bæði
eru úr Skagafirði og verður gam-
an að sjá fleiri leiki milli þeirra í
sumar. SBG/JHB
Arnar Snorrasun, fyrirliði Dalvíkur. Liðið tapaði 1:3 fyrir Þrótti R. um helg-
ina.
3. deild:
Þróttarar héldu sigur-
göngunni áfram
- unnu Dalvíkinga 3:1
Þróttur Reykjavík hélt áfram
sigurgöngu sinni þegar liðið
mætti Dalvíkingum nyrðra á
föstudagskvöldið. Þróttarar
unnu 3:1 og er liðið í efsta sæti
eftir fimm umferðir með fullt
hús stiga.
Þróttarar náðu forystunni í
fyrri hálfleik með marki Sigurðar
Hallvarðssonar. Sigurður hefur
sennilega fylgst með Heimsmeist-
arakeppninni í knattspyrnu upp á
síðkastið því hann fylgdi fordæmi
Maradona, lagði knöttinn snyrti-
lega fyrir með hendinni og skor-
aði.
Þróttarar voru sprækari eftir
markið og sóttu meira en það
voru þó Dalvíkingar sem náðu að
skora næsta mark og jafna leik-
inn. Var þar að verki Guðjón
Antóníusson.
Þróttarar bættu tveimur mörk-
um við fyrir hlé og í bæði skiptin
skoraði Oskar Óskarsson.
í síðari hálfleik voru Dalvík-
ingar sterkari aðilinn en sóknar-
lotur þeirra báru ekki árangur og
Þróttarar fóru heim með öll stigin
í farteskinu.
• •
4. deild, E-riðill:
Oruggir sigrar HSÞ-b og Magna
- 1:1 jafnteíli hjá UMSE-b og SM
4. umferð í E-riðli 4. deildar
hófst á fimmtudagskvöldið og
lauk á laugardaginn. Magni
sigraði Austra á Raufarhöfn
4:0 á fimmtudagskvöldið, dag-
inn eftir skildu UMSE-b og
SM jöfn 1:1 á Laugalandsvelli
og á laugardaginn gjörsigraði
HSÞ-b Narfa, 8:0, á Árskógs-
strandarvelli.
Austri-Magni
Magnamenn höfðu mikla yfir-
burði er þeir mættu Austramönn-
um á Raufarhöfn. Gestirnir náðu
strax góðum tökum á leiknum en
gestgjafarnir pökkuðu í vörnina
og beittu skyndisóknum með litl-
um árangri. Bjarni Áskelsson og
Heimir Ásgeirsson skoruðu hvor
sitt markið í fyrri hálfleiknum
fyrir Magna og staðan í hléi var
2:0. í þeim síðari bætti þjálfari
Magna, Kristján Kristjánsson,
tveimur mörkum við, því síðara
úr vítaspyrnu, og úrslitin því 4:0
fyrir Magna á Raufarhöfn.
Krístján
Magna,
Austra.
Kristjánsson, þjálfari
skoraði tvívegis gegn
UMSE-b-SM
Nokkuð óvænt úrslit urðu á
Laygalandsvelli á föstudags-
kvöldið þegar UMSE-b og SM
skildu jöfn, 1:1. Jafnræði var
með liðunum í fyrri hálfleiknum
en SM náði þá forystunni með
marki Jóns Forberg.
í síðari hálfleiknum tóku leik-
menn UMSE-b öll völd á vellin-
um og sóttu stíft. Baldvin Hall-
grímsson jafnaði leikinn en síðan
fór liðið illa með kjörin tækifæri
til að tryggja sér stigin þrjú þegar
það brenndi af tveimur víta-
spyrnum.
Narfi-HSÞ-b
Leikur HSÞ-b og Narfa var ein-
stefna á mark Narfa allan tímann
og er í raun lítið annað um þann
leik að segja. Leikurinn varð
aldrei skemmtilegur, til þess voru
yfirburði HSÞ-b allt of miklir og
hefði sigurinn hæglega getað orð-
ið stærri ef miðað er við mark-
tækifærin sem voru mýmörg.
Viðar Sigurjónsson skoraði þrjú
mörk fyrir HSÞ-b, Skúli Hall-
grímsson tvö og Ari Hallgríms-
son, Jónas Hallgrímsson og Hall-
grímur Guðmundsson eitt hver.