Dagur - 26.06.1990, Side 14
14 - DAGUR - Þriðjudagur 26. júní 1990
Umboðsmaður Alþingis:
150 kvartanir bárust
frá almeimingi 1989
Á árinu 1989 bárust umboðs-
manni Alþingis, 150 kvartanir
frá einstaklingum og samtök-
um og auk þess tók umboðs-
maður upp 4 mál að eigin
frumkvæði. í upphafi ársins
var 35 málum ólokið og því
fjallaði umboðsmaður á árinu
um 189 mál. Á árinu var lokið
afgreiðslu 122 ;nála. Þá hafa
skrifstofu umboðsmanns borist
fjölmargar fyrirspurnir, sem
leyst hefur verið úr með leið-
beiningum til aðila.
Umboðsmaður Alþingis starfar
samkvæmt lögum nr. 13/1987 og
það er hlutverk hans að hafa í
umboði Alþingis eftirlit með
stjórnsýslu ríkis og sveitarfélaga
og tryggja rétt borgaranna gagn-
vart stjórnvöldum landsins.
Umboðsmaður getur tekið mál til'
meðferðar eftir kvörtun eða að
sjálfs sín frumkvæði. Þær kvart-
anir, sem borist hafa til umboðs-
manns hafa lotið að ýmsum þátt-
um í stjórnsýslunni en af einstök-
unt málaflokkum hafa flest mál
lotið að framkvæmd skattamála!
eða 13. í 11 tilvikum var fjallað
um ákvörðun stjórnvalda unt
skipan forsjár barna og umgengn-
isréttar og meðferðar slíkra
mála. í 9 tilvikum var kvartað
yfir meðferð og afgreiðslum í
málum er varða atvinnuréttindi
og atvinnuleyfi. Af öðrum mála-
flokkum má nefna málefni opin-
berra starfsmanna, málefni fanga
og annað er lýtur að fangelsum
og meðferð ákæruvalds.
Af þeim málum, sem lokið var
á síðasta ári, lauk 29 þeirra með
því að umboðsmaður lét uppi álit
sitt á því, hvort tiltekin athöfn
stjórnvalds bryti í bága við lög
eða vandaða stjórnsýsluhætti. í
23 málum kom ekki til frekari
afskipta umboðsmanns, þar sem
aðilar höfðu ekki skotið málum
til æðra stjórnvalds áður en
kvörtun var borin fram en það er
skilyrði eigi umboðsmaður að
fjalla um málið. í 29 málum var
fallið frá kvörtun eða kvörtun gaf
ekki tilefni til frekari meðferðar
að lokinni frumathugun og í sum-
um tilvikum höfðu þeir, er kvört-
un báru fram fengið leiðréttingu
sinna mála eftir að umboðsmaður
hafði beint fyrirspurn til hlutað-
eigandi stjórnvalds um efni, sem
kvartað var yfir.
Skrifstofa umboðsmanns
Alþingis að Rauðarárstíg 27 í
Reykjavík er opin virka—daga
milli kl. 9-15, sími 91-621450 og
pósthólf 5222, 125 Reykjavík.
Nauðungaruppboð
á eftirtöldum fasteignum fer
fram í dómsal embættisins,
Hafnarstræti 107, 3. hæð,
Akureyri,
á neðangreindum tíma:
Amarsíða 6 d, Akureyri, þingl. eig-
andi Ásgeir I. Jónsson, föstud. 29.
júní ’90, kl. 13.45.
Uppboðsbeiðendur eru:
Gunnar Sólnes hrl. og Ólafur Birgir
Árnason hdl.
Byggðavegur 145, Akureyri, þingl.
eigandi Jón V. Guðlaugsson,
föstud. 29. júní '90, kl. 14.00.
Uppboðsbeiðandi er:
Jónas Aðalsteinsson hrl.
Eyrarlandsvegur 3, e.h. Akureyri,
þingl. eigandi Borghildur Sigurðar-
dóttir, föstud. 29. júni ’90, kl. 14.00.
Uppboðsbeiðandi er:
Ævar Guðmundsson hdl.
Furulundur 1 c, Akureyri, talinn eig-
andi Halldór Svanbergsson o.fl.,
föstud. 29. júní '90, kl. 14.15.
Uppboðsbeiðandi er:
Gunnar Sólnes hrl.
Gefjun vinnslus., Ketilhús hl., þingl.
eigandi Álafoss, Akureyri, föstud.
29. júní '90, kl. 15.15.
Uppboðsbeiðendur eru:
Iðnþróunarsjóður og Iðnlánasjóður.
Grundargerði 3 a, Akureyri þingl.
eigandi Þorsteinn Jónatansson,
föstud. 29. júní kl. 13.30.
Uppboðsbeiðandi er:
Ásgeir Thoroddsen hdl.
ísborg EA-159, Hrísey, þingl. eig-
andi Borg hf., föstud. 29. júní '90, kl.
14.45.
Uppboðsbeiðandi er:
Byggðastofnun.
Kaldbaksgata 2, Akureyri, þingl.
eigandi Blikkvirki s.f., föstud. 29.
júní '90, kl. 14.30.
Uppboðsbeiðendur eru:
Guðjón Ármann Jónsson hdl., inn-
heimtumaður ríkissjóðs, Gunnar
Sólnes hrl. og Steingrímur Eiríks-
son hdl.
Móasíða 1, iðnaðarhúsnæði 2. hl.,
þingl. eigandi Kristján Gunnarsson,
föstud. 29. júní '90, kl. 15.30.
Uppboðsbeiðendur eru:
Björn Jósef Arnviðarson hdl., Ólafur
Birgir Árnason hdl., Elvar Unn-
steinsson hdl. og Benedikt Ólafsson
hdl.
Ráðhúsið Dalvík, hluti, þingl. eig-
andi Bókhaldsskrifstofan hf., föstud.
29. júní '90, kl. 15.00.
Uppboðsbeiðandi er:
Innheimtumaður ríkissjóðs,
Strandgata 51, Akureyri, þingl. eig-
andi Blikkvirki sf., föstud. 29. júní
'90, kl. 14.30.
Uppboðsbeiðendur eru:
Guðjón Ármann Jónsson hdl.
Gunnar Sólnes hrl. og Steingrímur
Eiríksson hdl.
Ægisgata 26, Akureyri, þingl. eig-
andi Matthías Þorbergsson, föstud.
29. júní '90, kl. 15.15.
Uppboðsbeiðandi er:
íslandsbanki.
Bæjarfógetinn á Akureyri
og Dalvík,
Sýslumaðurinn í Eyjafjaröarsýslu.
Nauðungaruppboð
annað og síðara,
á eftirtöldum fasteignum fer
fram í dómsal embættisins,
Hafnarstræti 107, 3. hæð,
Akureyri,
á neðangreindum tíma:
Langholt 21, Akureyri, þingl. eigandi
Margrét Jónsdóttir, föstud. 29. júní
'90, kl. 15.00.
Uppboðsbeiðandi er:
Óskar Magnússon hdl.
Óseyri 1, Akureyri, þingl. Sjúkra- og
styrktarsj. bílstjf.f Valur, föstud. 29.
júní '90, kl. 13.30.
Uppboðsbeiðandi er:
Iðnþróunarsjóður.
Vallargata 5, Grímsey, þingl. eigandi
Sigurður Bjarnason o.fl., föstud. 29.
júní '90, kl. 14.45.
Uppboðsbeiðendur eru:
Veðdeild Landsbanka íslands,
Gunnar Sólnes hrl., Ásgeir Thor-
oddsen hdl., Björn Ólafur Hallgríms-
son hdl., Jóhannes Ásgeirsson hdl.,
Ólafur Birgir Árnason hdl., Sveinn
Skúlason hdl., Gjaldskil sf., Vilhjálmur
H. Vilhjálmsson hdl. og Ólafur
Gústafsson hrl.
Bæjarfógetinn á Akureyri
og Dalvík,
Sýslumaðurinn í Eyjafjarðarsýslu.
Sr. Björn Jónsson, nýkosinn stórtemplar, heiðrar Ingimar Eydal (t.v.). Aðrir á myndinni eru Styrmir Gunnarsson,
Hclga, eiginkona Omars Ragnarssonar, og Páll Daníelsson.
Sögulegu stórstúkuþingi lokið
- Mjöll Matthíasdóttir, Akureyri,
kosin stórgæslumaður Unglingareglunnar
Þing Stórstúku Island IOGT fór
fram í Templarahöllinni, Eiríks-
götu 5 í Reykjavík dagana 6.-9.
júní.
Á þinginu kom fram að við-
ræður standa yfir við fræðsluyfir-
völd um að Unglingaregla Stór-
stúkunnar taki að sér félagsmála-
fræðslu í skólum landsins. Þá var
þingheimi kynnt útgáfa Stórstúk-
unnar á litabókinni „Fávís og
Fjölvís". Bókin er þýdd úr ensku
af Elísabetu Jensdóttur. í bók-
inni er mælt með bindindi á
nýstárlegan máta. Henni verður
dreift af skólayfirvöldum í grunn-
skólana.
Á þinginu var skýrt frá nýaf-
stöðnum kaupum Stórstúkunnar
á Tónabíói. Þar er nú verið að
innrétta einhverja glæsilegustu
aðstöðu til ráðstefnu-, funda- og
skemmtanahalds hérlendis. Hús-
ið hefur fengið nafnið Veltubær
og þegar hefur verið ákveðið að
halda þar bingó þrisvar í viku í
framtíðinni.
Þinginu barst ósk frá Bindind-
isfélagi ökumanna um stuðning
við að ná mörkum um ölvunar-
akstur, sem nú er 0,5 prómill,
neðar.
Á þinginu voru nokkrir innan-
og utanregluaðilar heiðraðir við
hátíðlega athöfn fyrir stuðning
við starf bindindishreyfingarinn-
ar. Þetta voru þeir Ingimar Ey-
dal, tónlistarmaður, Ómar Ragn-
arsson, fréttamaður og skemmti-
kraftur, Páll Daníelsson, fyrrver-
andi deildarstjóri Pósts og síma,
Styrmir Gunnarsson, ritstjóri, og
Pétur Pétursson, þulur.
Þetta 76. Stórstúkuþing er
sögulegt af þeirri ástæðu að þeir
sem gegnt hafa æðstu embættum
Stórstúkunnar allan síðasta ára-
tug gáfu ekki kost á sér til endur-
kjörs. Hvorki Hilmar Jónsson,
stórtemplar, né Kristinn Vil-
hjálmsson, stórgæslumaður
Unglingareglunnar.
í þeirra embætti voru kosin sr.
Björn Jónsson, prestur á Akra-
nesi, í embætti stórtemplars, og
Mjöll Matthíasdóttir, frá Akur-
eyri, í embætti stórgæslumanns
Unglingareglunnar.
Fulltrúaráð Kennarasambands íslands:
Krefst aukinna fjárveitinga
til enduraienntunar kennara
Á fundi fulltúraráðs Kennara-
sambands Islands, sem haldinn
var þann 13. júní sl. var m.a.
fjallað um fjárveitingar hins
opinbera til endurmenntunar
kennara. Eftirfarandi ályktun
var samþykkt samhljóða:
„Á sama tíma og síauknar
kröfur eru gerðar til kennara um
fjölbreytni og sveigjanleika í
skólastarfi og frumkvæði í skóla-
þróun eru fjárveitingar til Kenn-
araháskóla íslands fjarri því að
nægja til þeirra verkefna á sviði
endurmenntunar kennarastéttar-
innar sem honum er skylt að
sinna.
Vegna fjárskorts hefur KHÍ
valið þá leið að hluti kennara
utan af landi fái greidda dagpen-
inga og ferðakostnað en öðrum
boðið upp á að sækja námskeið á
eigin kostnað. Þessi framkvæmd
leiðir til þess að ákvæði kjara-
samninga KÍ um greiðslu dag-
peninga og ferðakostnaðar kenn-
ara sem sækja námskeið á vegum
menntamálaráðuneytis eru þver-
brotin.
Fulltrúaráð Kennarasambands
íslands fordæmir að nú skuli vera
tilviljunum háð hvort áhugasamir
kennarar utan Reykjavíkur-
svæðisins fái tækifæri til að nýta
sér takmarkað framboð KHI á
endurmenntunarnámskeiðum
þrátt fyrir að endurmenntun sé
liður í vinnuskyldu starfandi
kennara.
Fulltrúaráð KÍ krefst þess að á
fjárlögum verði tryggt nægilegt
fjármagn til að uppfylla samn-
ingsbundin ákvæði um endur-
menntun og þess gætt að kennar-
ar utan af landi eigi jafna mögu-
leika óg aðrir til að njóta hennar.
Þá felur fulltrúaráðið stjórn KÍ
að leita réttar þeirra kennara sem
sækja munu námskeið í sumar og
fá ekki greidda dagpeninga óg
ferðakostnað samkvæmt kjara-
samningum."
Heilræði
Hestamenn:
Verið vel á verði, þar sem öku-
tæki eru á ferð. Haldið ykkur
utan fjölfarinna akstursleiða.
Stuðlið þannig að auknu umferð-
aröryggi.
Ökumenn:
Forðist allan óþarfa hávaða, þar
sem hestamenn eru á ferð. Akið
aldrei svo nærri hesti að hætta
sé á að hann fælist og láti ekki
að stjórn knapans.
Gistihúsið Langholt Snæfellsnesi:
Fjölbreytt þjónusta
á þjóðvegi 54
Gistiheimilum og -húsum hef-
ur fjölgað með undraverðum
hætti á liðnum árum. Eitt
nýrra gistihúsa í landinu er
Langaholt á sunnanverðu
Snæfellsnesi. Það er byggt á
árunum 1985-1990. í því eru 12
herbergi og einn 60 fermetra
salur fyrir svefnpokaplássgist-
ingu.
Matsalur, sólstofa og sjón-
varpsstofa eru á neðri hæð, einn-
ig er í húsinu ferðamannaeldhús
sem gestir geta notað. Veitinga-
eldhús afgreiðir morgunverð og
máltíðir eftir pöntun! Gos og
sælgæti er selt í móttöku.
Samgöngur til og frá gistihús-
inu eru mjög góðar, það stendur
um 100 metra frá þjóðvegi nr. 54
og áætlunarbíllinn milli Reykja-
víkur og Ólafsvíkur fer þarna um
tvisvar á dag.
Á staðnum er boðið upp á bíl-
ferðir að óskum í kringum jökul-
inn, í hellaferðir eða að sund-
lauginni á Lýsuhóli.
Vatnasvæði Lýsu er 2-4 km frá
staðnum. Silungsveiðileyfi eru
frá 1. apríl til 30. júní, en lax-
veiðileyfitíminn er frá 1. júlí til
20. september. Gistihúsið gefur
út tvö laxveiðileýfi daglega fyrir
gesti á laxveiðitímanum, silungs-
veiðileyfi kostar kr. 600 en lax-
veiðileyfi kr. 2.500 - 3.500.
(Fréttatilkynning.)