Dagur


Dagur - 28.06.1990, Qupperneq 3

Dagur - 28.06.1990, Qupperneq 3
fréftir Fimmtudagur 28. júní 1990 - DAGUR - 3 Sala á lambakjöti á lágmarksverði gengur vel: Brandaraflug yfír grillinu! „Vertu ekki svona hryggur, fáðu þér læri.“ Eitthvað í lík- ingu við þessi orð hefur mátt heyra á öldum Ijósvakans að undanförnu í auglýsingatím- um. Það eru Spaugstofumenn sem hafa auglýst lambakjöt á lágmarksverði og tilgangurinn er að fá landsmenn til að setja lambið á grillið. Að sögn Þór- halls Arasonar í landbúnaðar- ráðuneytinu hefur salan á kjöt- inu gengið vel, en stefnt er á að selja 1700 tonn af lambakjöti á lágmarksverði ofan í landann, þar af 1200 tonn í sumar. Það náðist á Þórhalli þar sem hann var á ferð um landið að kynna kjötið fyrir kaupmönnum. Sölutölur fyrir júnímánuð liggja ekki fyrir en Þórhallur sagði að sala hafi gengið nokkuð vel. Sent dæmi um það þá var Afurðasalan í Reykjavík búin að selja jafn mikið af lambakjöti um miðjan júní eins og í öllum maímánuði, en Afurðasalan hefur haft 30- 35% markaðshlutdeild af heild- arsölu lambakjöts í landinu. Aðspurður um hvort auglýs- ingaherferðin í kringum lamba- kjötið væri dýr, sagði Þórhallur að auðvitað kostaði hún sitt, en ekkert í líkingu við veltu og framleiðsluverðmæti kjötsins. „Annars er ég hræddur um að þeim þætti þetta lítið hjá Kók t.d. Það er oft verið að hnýta í landbúnaðinn og þá sérstaklega lambakjötið. Ef við auglýsum þá erum við að eyða peningum, en ef við auglýsum ekki, þá erurn við sagðir staðnaðir og óhollir neytendum," sagði Þórhallur. Þórhallur var ánægður með samstarfið Spaugstofumenn. „Við tengjunt grillið við sól, sumar, gleðskap og gleði. Að grilla er mjög félagslegt og upp- lagt að láta brandarana fljúga yfir grillinu. Þess vegna var ákveðið að leita samstarfs við Spaugstofu- menn," sagði Þórhallur að lok- um. -bjb Samgöngu- og landbúnaðarráðuneytið: Flagga nú grænum símanúmerum Laufás- Kaupmannahöfn: Bolli Gústavsson í fræðimannsíbúð Fræöimannsíbúð í húsi Jóns Sigurðssonar í Kaupmanna- höfn hefur verið úthlutað fyrir tímabilið 1. september 1990 til 31. ágúst 1991. Alls fengu fjór- ir úthlutun og var sr. Bollí Gústavsson, sóknarprestur í Laufási, einn þeirra. Séra Bolli fær fræðimanns- íbúðina frá 1. mars til 31. maí 1991 til að kynna sér gögn vegna dvalar sr. Björns Halldórssonar, skálds, í Kaupmannahöfn 1850- 51. Jafnframt ætlar Bolli að kanna tengsl Prestaskólans í Reykjavík, sem stofnaður var 1874, við guðfræðideild Kaup- mannahafnarháskóla. Aðrir sem fengu úthlutun voru Gunnar Steinn Jónsson, vatna- Félagslegi hluti húsnæðis- kerfisins tók umtalsverðum breytingum með nýjum Iögum sem gengu í gildi nýverið. Með þessum lögum eru settar fram nýjar áherslur og markmið í húsnæðismálum landsmanna. Lögð er áhersla á að fólk eigi val um þá kosti sem í boði eru, að fólk geti eignast eða leigt íbúðir eftir aðstæðum hvers og eins. Áhersla er lögð á að aðstoð til húsnæðismála miðist jafnt við eignar- og leiguíbúðir. Einnig að félagsleg aðstoð í húsnæðismál- um miðist við aðstæður einstakl- inga hverju sinni en ákvarðist ekki í eitt skipti fyrir öll. í lögun- um er skýrar kveðið á um ábyrgð sveitarfélaga á félagslegu hús- næði en í eldri lögunum. Stjórnir verkamannabústaða eru með þessum lögum aflagðar og húsnæðismál sveitarfélagsins færð undir sérstakar húsnæðis- nefndir sveitarfélaga. Þessar nefndir fara með stjórn og sam- ræmingu félagslegs húsnæðis í líffræðingur, Sveinn Skorri Höskuldsson, prófessor, og dr. Sverrir Tómasson, handritafræð- ingur, en alls barst 31 untsókn um fræðimannsíbúöina. SS sveitarfélaginu í umboði sveitar- stjórnar. Lánshlutfall er nú 90% af byggingarkostnaði eða kaupverði íbúðar í stað 85% áður. Lánstím- inn er jafnframt lengdur úr 43 árum í 50 ár. Viðurlög við óleyfilegri útleigu eru hert þannig að íbúðareigend- um er óheimilt að leigja út íbúð sína nema að fengnu leyfi sveitar- stjórnar eða húsnæðisnefndar. Með nýju lögunum varð einnig breyting á þeim tekjumörkum sem gilda urn rétt manna til að festa kaup á félagslegri eignar- íbúð eða félagslegri kaupleigu- íbúð. Tekjuviðmiðun hjóna var hækkuð um 25% fra því sent áður gilti. Þá eru ákvæði urn að hámarksstærðir félagslegra íbúða skuli vera 130 fermetrar brúttó. Framlög sveitarfélaga vegna félagslegra eignaríbúða verða framvegis í formi skuldabréfaláns í stað afturkræfs framlags áður. Kaupskylda sveitarfélaga á fé- lagslegum íbúðum varir nú í 10 ár í stað 15 áður. JÓH Samgöngu- og landbúnaðar- ráðuneytið hafa tekið í notkun svokölluð græn símanúmer, en ef hringt er í þau greiðist kostnaðurinn vegna langlínu- sambands af þeim sem hringt Dótturfyrirtæki Sölumiðstöðv- ar hraðfrystihúsanna fékk á dögunum aflient fyrstu verð- laun í keppni breskra samtaka í matvælaiðnaði um bestu uppskriftirnar fyrir fískréttinn „Cod En Croute“, sein frain- leiddur er undir vörumerkinu „Marico“. Hér er um að ræða frosinn fiskrétt tilbúinn beint í ofninn þar sem þorskur er uppistaðan ásamt rækjum í ostasósu. Verðlaunin eru veitt árlega af samtökum breskra matvælafram- leiðenda „British Frozen Food Federation“ og eru veitt fyrir nýjungar í gerð tilbúinna rétta. Keppt er annars vegar um besta tilbúna réttinn fyrir neytenda- markað og hins vegar bestu fram- leiðsluna fyrir veitingahús. Tekið er tillit til atriða eins og útlits, bragðs, umbúða, leiðbeininga á umbúðum og verðs. Í dómnefnd sitja fulltrúar frá samtökum matreiðslumeistara sem starfa m.a. sem yfirkokkar á hótelum, brytar og við þróun uppskrifta hjá matvælaframleiðendum og þykja þessi verðlaun mjög eftir- Mesta mildi var að ekki fór illa á mánudaginn, þegar bíll fór út af veginum í Biöndudal og endaði niðri á gilsbotni. Um eittleytið sl. mánudag var bíl ekið niður Blöndudalinn og virðist vera að ökumaður hafi dottað við stýrið. Bíllinn fór út af veginum og hélt áfram för sinni utan hans, um 100 metra er í en ekki þeim sem hringir eins og venja er. Sá sem hring- ir greiðir aðeins samkvæmt staöartaxta. Græna símanúm- er samgönguráðuneytisins er 91-996900 og 91-996800 í land- sóknarverð. í niðurstöðu dóm- nefndar segir nt.a.: „Tilbúnir fiskréttir njóta vaxandi vinsælda og falla vel að hugmyndum manna um holla fæöu og heilbrigt líferni. Þessi tilhnciging markað- arins og aukinn áhugi á hráefnum til matargerðar hefur leitt til þessarar vönduðu framleiðslu." Vesturdalur í þjóðgaröinum í Jökulsárgljúfrum hefur ekki enn verið opnaður fyrir ferða- menn til umferðar eða gisting- ar, en vegna óvenju mikilla flóða í Vesturdalsá í fyrra kem- ur svæðið óvenju illa undan vetri. Sigurborg Rögnvaldsdóttir landvörður segir að sú undan- tekning hafi þó verið gerð, að vegalengd. Ökumaðurinn vakn- aði síðan þegar bíllinn var kom- inn á gilbarminn og náði að kasta sér út úr honum áður en hann fór niður í gilið. Fallið á bílnum var um 100 metrar og ekki til í hon- um heill bútur að sögn lögregl- unnar á Blönduósi, en maðurinn sem var einn í bílnum slapp ómeiddur. SBG búnaðarráðuneyti. Þessi þjónusta hefur notið mikilla vinsælda í þeim löndum sem hún hefur verið boðin, segir í frétt frá samönguráðuneytinu. Þar segir að græn númer henti vel fyrir stjórnsýslustofnanir vegna þess að með þcim sé fólki á landsbyggðinni gert kleift að hringja þangað án þess að greiða meira fyrir símtalið heldur en ef stofnunin væri í viðkomandi bæjarfélagi. Þegar hringt er í grænt númer fer símtalið í gegnunt stafrænu langlínumiðstöðina í Reykjavík sem afgreiðir þaö sjálfvirkt beint í annað eða önnur símanúmcr handhafanna. í símstööinni er fjöldi og lengd símtalanna skráður. Handhafi græna númersins greiðir meðallanglínu- gjald fyrir símtölin sem felur í sér að 30 sek. eru í skrefi á dagtaxta, 45 sek. á kvöldtaxta og 60 sek. á nætur- og helgartaxta. göngufólk sem kemur úr Mý- vatnssveit á lcið niður í Ásbyrgi hefur fengið að tjalda á smábletti á svæðinu, því það nær ekki að ganga þessa leið á einum degi. Venjulega standa flóð í Vest- urdalsá ekki nerna í nokkra daga, en í fyrra stóð flóðið í 5 til 6 vikur og stórskemmdi allan grasvöxt, því áin ber alltaf með sér eitthvað af aur og sandi. Fyrirhugaðar eru einnig lagfæringar á íverustað landvarðar og útisalernum, en ástand þessara bygginga er nú orðið rnjög bágborið. Ekki er reiknað með að leyft veröi að tjalda í Vesturdal fyrr en fyrsta lagi í annarri viku júlí. Búið er að opna veginn í þjóð- garðinum upp að Dettifossi, en hann er ekki mjög góður og hefur eitthvað spillst í rigningunum að undanförnu. Vegagerðin var búin að gera fyrstu vorlagfæring- ar á veginum, en hann þarfnaðast betri „meðhöndlunar“ til að mæta þeirri umferð sem venju- lega er á þessu svæði í júlímán- uði. GG Ný lög um félagslegar íbúðir: Hækkað lánshlutfaU og lánstími lengdur um 7 ár Dótturfyrirtæki SH í Bretlandi: Krækti í eftirsótt bresk matvælaverðlaun Bíll ofan í gil í Blöndudal - ökumaður stökk út á síðustu stundu oþh Þjóðgarðurinn í Jökulsárgljúfrum: Tjaldsvæði enn lokuð í Vesturdal

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.