Dagur - 28.06.1990, Blaðsíða 11

Dagur - 28.06.1990, Blaðsíða 11
Fimmtudagur 28. júní 1990 - DAGUR - 11 íþróttir Sumaríþróttahátíð ÍSÍ: Opnunarhátíðin í kvöld Íþróttahátíð ÍSÍ 1990 verður sett við hátíðlega athöfn á Laugardalsvelli í kvöld. Hér er í raun um að ræða síðari hluta hátíðarinnar því Íþróttahátíð Iþróttasambands íslands hófst með vetraríþróttahátíðinni á Akureyri sl. vetur. Þetta er stærsta íþróttahátíð sem haldin hefur verið hérlendis fram til þessa og hefur mikill undir- búningur farið fram fyrir hana. Hátíðin stendur fram til sunnu- dags. Þrátt fyrir að flestar greinar sem tengjast hátíðinni þessa daga fari fram á höfuðborgarsvæðinu verða einnig margir dagskrárliðir út unt land. Hið árlega Tomma- mót sem í taka þátt yngstu knatt- spyrnumenn landsins hófst í Vestmannaeyjum í gær og annað kvöld kl. 18 fara fram golfmót á öllum golfvöllum landsins sam- tímis. Keppt verður í einum flokki karla og kvenna, svo- kölluðum höggieik. Þá fer fram í Keflavík aldurs- flokkamót Sundsambands ís- lands um helgina og þar verður einnig hluti af dagskrá Skotsam- bands íslands. Þá fer Kvenna- hlaupið, svokallaða, fram á nokkrum stöðum á landinu, þ.e. í Garðabæ, á ísafirði, Grundar- firði og á Akureyri. Markmiðið með þessu hlaupi er að leggja áherslu á íþróttaiðkun kvenna og holla lífshætti sem konur fá gegn- um þátttöku í íþróttum. í kvennahlaupinu verður ekki keppt um verðlaunasæti en allir þátttakendur fá viðurkenningar- skjal fyrir þátttökuna. Hlaupa má vegalengdina, ganga eða skokka. Á Akureyri verður kvennahlaupið í Kjarnaskógi næstkomandi laugardag og hefst kl. 15.30. Konur eru beðnar að koma hálftíma fyrir hlaupið til skráningar. Af einstökum dagskrárliðum næstu daga er vert að benda á Bilun í prentsmiðju: Umfjöllun um leiki bíður morgundags Vegna bilunar í tæknibúnaði í prentsmiðju Dags, Dagsprenti hf., er þetta blað að hluta til unnið í Prentverki Odds Björns- sonar. Þess vegna þurfti að prenta blaðið óvenju snemma í gærkvöld. Af þeim sökunt birt- ist frásögn af leikjum sem fram fóru í Hörpudeild ísiandsmóts- ins í knattspyrnu í gærkvöld, leik KA og ÍBV annars vegar og ÍA og Þórs hins vcgar, ekki fyrr en á morgun. Lesendur eru beðnir velvirð- ingar á þessu en vonir standa til að viðgerð á hinum bilaða tækjabúnaði ljúki um helgina. Ritstj. fjögurra þjóða mót í handknatt- leik en þar keppir landslið ís- lands í fyrsta sinn undir stjórn Þorbergs Aðalsteinssonar, ný- ráðins landsliðsþjálfara. Þá mun Blaksamband íslands halda blak- mót smáþjóða og Badminton- samband íslands fær í heimsókn sterka erlenda keppendur. Þá verður fimleikasambandið með svokallaðan Landsleik milli ís- lands og Danmerkur og Frjáls- íþróttasamband íslands verður með landskeppni milli íslands, Skotlands og Irlands. Þar mætir flest okkar sterkasta frjáls- íþróttafólk til leiks. Loks má þess geta að Esso/ KA-mót í knattspyrnu sem verð- ur á Akureyri um aðra helgi, svo og Pollamót Eimskips sem fram fer um allt land í sumar eru hluti Íþróttahátíðar ÍSÍ JÓH Sigurður Matthíasson verður nieðal keppenda í landskeppninni við Skota og íra. Uppgangur í þríþrautinni: Fyrsta íslandsmeistaramótið verður á Hrafiiagili búist við ijölda keppenda Fyrsta íslandsmeistaramót í þríþraut sem haldið er hér á landi fer fram á Hrafnagili í Eyjafirði þann 22. júlí næst- komandi. Nú eru liðin rúm tvö ár frá því fyrst var keppt í þrí- þraut á íslandi og virðist sem þessi skemmtilega nýjung á íþróttasviðinu sé að ná fótfestu hér á landi. Saga þríþrautarinnar hér á landi hófst á Akureyri sumarið 1988 þegar 13 manns kepptu í fyrstu þríþrautarkeppninni. Sá sem harðast hefur gengið fram í því að kynna þessa íþrótt hér á landi er Hollendingurinn Cees Van de Ven og segir hann að hér sé uin að ræða grein sem hver sem er geti tekið þátt í og þátttaka þurfi því ekki að einskorðast við keppnisfólk í frjálsum íþróttum. Ungmennafélag Akureyrar: Akureyrarmót í vonskuveðri - Keppendur börðust við norðangarrann Akureyrarmót Ungmennafé- lags Akureyrar fór fram um síðastliðna helgi í vonskuveðri. Eins og gefur að skilja náðist ekki verulega góður árangur við þessar aðstæður en vert er þó að benda á ágætan tíma Orra Oskarssonar í 60 m hlaupi hnokka, tíma Smára Stefánssonar í 60 m hlaupi stráka, tíma Sigríðar Hannes- dóttur í 60 m hlaupi stelpna og tíma Hólmfríðar Jónsdóttur í 100 m hlaupi telpna. En úrslit á mótinu fylgja hér á eftir: Tátur 60 m hlauu tup: 1. Stella Olafsdóttir 2. Rúna Ásmundsdóttir 3. Arna Pálsdóttir 600 m hlaup: 1. Stella Ólafsdóttir 2. Arna Pálsdóttir 3. Assa Van de ven Langstökk: 1. Stella Ólafsdóttir 2. Arna Pálsdóttir 3. Assa Van de ven Boltakast: 1. Arna Pálsdóttir 2. Assa Van de ven 3. Rúna Ásmundsdóttir Hnokkar 60 m hlaup: 1. Orri F. Óskarsson 2. Hilmar Stefánsson 3. Hilmar Kristjánsson sek. 10,0 10.3 10.4 mín. 2:36,5 2:36,8 2:37,8 metrar 3,45 3,29 3,12 metrar 21,12 18,76 17,35 sek. 9.4 9.5 10,1 600 m hlaup: sek. 800 m hlaup: mín. 1. Orri F. Öskarsson 2:16,7 1. Smári Stefánsson 3:01,6 2. Hilmar Stefánsson 2:22,2 2. Robert Kárason 3:23,0 3. Hilmar Kristjánsson 2:23,1 3. Rúnar Leifsson 3:36,8 Langstökk: metrar Langstökk: metrar 1. Orri F. Óskarsson 3,60 1. Smári Stefánsson 4,29 2. Rúnar Þór Jónsson 3,39 2. Rúnar Leifsson 3,36 3. Þórarinn Jóhannsson 3,05 3. Helgi Gunnlaugsson 3,24 Boltakast: metrar Kúluvarp: inetrar 1. Rúnar Þór Jónsson 38,21 1. Helgi Gunnlaugsson 6,38 2. Orri F. Óskarsson 37,17 2. Robert Kárason 5,44 3. Þórarinn Jóhannsson 32,50 3. Smári Stefánsson 5,28 Telpur Hástökk: metrar 60 m hlaup: sek. 1. Smári Stefánsson 1,20 1. Sigríður Hannesdóttir 9,0 2. Rúnar Leifsson 1,15 2. Hildur Bergsdóttir 9,8 3. Robert Kárason 1,10 3. Freydís H. Árnadóttir 10,2 800 m hlaup: mín. Stelpur 1. Hildur Bergsdóttir 3:19,1 100 m hlaup: sek 2. Freydís Árnadóttir 3:23,2 1. Hólmfríður Jónsdóttir 13,7 3. Kristín Haraldsdóttir 3:31,0 2. Jóhanna Erla Jóhannsdóttir 14,6 3. Hrönn Bessadóttir 14,9 Langstökk: inetrar 1. Sigríður Hannesdóttir 4,13 400 m hlaup: sek. 2. Hildur Bergsdóttir 3,68 1. Hrönn Bessadóttir 79,3 3. Freydís H. Árnadóttir 3,58 2. Þrúður Gunnarsdóttir 82,0 Kúluvarp: metrar 800 m hlaup: niín. 1. Sigríður Hannesdóttir 5,54 1. Unnur Friðriksdóttir 3:08,7 2. Freydís H. Árnadóttir 4,28 2. Margrét Karlsdóttir 3:32,0 3. Hildur Bergsdóttir 4,13 1500 in hlaup: mín. Hástökk: inetrar 1. Unnur Friðriksdóttir 5:48,2 1.-2. Freydís Árnadóttir 1,20 Langstökk: metrar 1.-2. Sigríður Hannesdóttir 1,20 1. Jóhanna Erla Jóhannsdóttir 4,38 Strákar 2. Regína Gunnarsdóttir 3,72 3. Hrönn Bessadóttir 3,62 60 m hlaup: sek. 1. Smári Stefánsson 8,5 Hástökk: metrar 2. Rúnar Leifsson 9,3 1. Jóhanna Erla Jóhannsdóttir 1,35 3. Robert Kárason 10,3 2. Margrét Karlsdóttir 1,20 Kúluvarp: metrar 1. Jóhanna Erla Jóhannesdóttir 7,56 Spjótkast: metrar 1. Jóhanna Erla Jóhannesd. 14,48 2. Hrönn Bessadóttir 9,80 Piltar 100 m hlaup sek. 1. Freyr Ævarsson 13,8 2. Jóhannes M. Sigurðarson 14,1 3. Stefán Sigurðsson 15,0 400 m hlaup sek. 1. Jóhannes M. Sigurðarson 73,1 2. Freyr Ævarsson 77,5 3. Birgir Ö. Reynisson 77,5 800 m piltar mín. 1. Jóhannes M. Sigurðarson 2;38,3 2. Birgir Örn Reynisson 2:44,3 3. Freyr Ævarsson 2:46,6 Langstökk metrar 1. Jóhannes M. Sigurðarson 4,62 2. Freyr Ævarsson 4,33 3. Birgir Örn Reynisson 4,01 Hástökk metrar. 1. Jóhannes M. Sigurðarson 1,40 2. Birgir Örn Reynisson 1,20 3. Freyr Ævarsson 1,20 3. Stefán Sigurðsson 1,20 Kúluvarp metrar 1. Stefán Sigurðsson 7,57 2. Jóhannes M. Sigurðarson 6,97 3. Birgir Örn Reynisson 5,02 Spjótkast metrar 1. Stefán Sigurðsson 28,79 2. Jóhannes M. Sigurðarson 21,83 3. Birgir Örn Birgisson 20,23 JÓH I þessari kcppni synda kepp- endur 750 metra, hjóla því næst 20 kílómetra og hlaupa 5 kíló- metra. f fyrra fór aftur fram þrí- þrautarkeppni á Akureyri og voru keppendur rösklega helm- ingi fleiri en árið áður. Nú er í fyrsta skipti efnt til íslandsmeist- aramóts í þessari grein og er þetta mót komið til sögunnar í framhaldi af viðræðum nokkurra áhugamanna við ÍSÍ um efl- ingu greinarinnar hér á landi. Þess má geta að nýlega fór fram námskeiö og keppni í þrí- þraut á Laugarvatni og þessi grein er meðal dagskrárliða á sumaríþróttahátíð ÍSÍ um kom- andi helgi. Skráning í keppnina er þegar hafin í símum 96-27541, 96- 23116 og 91-19856.____JÓH Vélamót GA: Sigurpáll á toppnum í dag fer fram fjórða Vélamót Golfklúhhs Akureyrar. Leikn- ar verða 9 holur og mega menn fara út á tímabilinu 13-19. Keppt verður alla fímmtudaga í sumar og fær sigurvegarinn ferðavinning frá Ferðaskrif- stofu Akureyrar en veitt verða 9 önnur verðlaun. Staðan í mótinu nú er þannig að Sigurpáll Sveinsson er efstur með 22 stig. Næstir koma Guð- mundur Finnsson nteð 15,5 stig, Arnar Birgisson 12 stig, Jón E. Gíslason 12 stig, Þórarinn B. Jónsson 11.33 stig, Gylfi Krist- jánsson 9,5 stig, Sævar Jónatans- son 8,33 stig, Gísli Jónsson 8,33 stig, Gunnar Jakobsson 7 stig, Júlíus Haraldsson 7 stig, Jón S. Árnason 5,5 stig, Ríkarður Rík- arðsson 5,5 stig, Ari Jón Bald- ursson 4 stig, Páll Gíslason 2 stig og Guðbjörn Garðarsson 2 stig. Fyrirkontulag þessa móts er þannig að hægt er að bæta það upp ef keppendur ntissa úr mót og geta þeir farið hring við tæki- færi. Ágóði af mótinu rennur til vallarnefndar og eru keppendur minntir á að fylla út kort sín sam- viskusamlega. JÓH

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.