Dagur - 03.07.1990, Síða 2
2 - DAGUR - Þriðjudagur 3. júlí 1990
Eimskip hættir öllum siglingum til Ólafsflarðar:
fréttir
STURTUVAGN!
Þessi sturtuvagn er til sölu, stærð 5,5 m3.
Vagninn er með Miller hliðarsturtum, öxull á fjöðrum og
tvöfaldir hjólbarðar 900x20. Hentugur aftan í dráttarvélar.
Upplýsingar í síma 95-37380 og 95-37381 á kvöldin.
Þnr lógrcglubílar frá Saab sem lögreglan hefur keypt. Næstur er Saab 9000 CD en hinir tveir eru af gerðinni Saab
900 sem fara til lögreglunnar í Hafnarfirði og á Sauðárkróki.
Hugmyndir um að Dalvík verði
útflutningshöfii Ólafsfirðinga
Eimskip hefur ákveðið að
hætta öllum siglingum til
Olafsfjarðar með tilkomu
nýrrar ferðaáætlunar í strand-
siglingum með ms. Stuðlafossi.
Eimskip hefur ekki verið með
áætlun til Ólafsfjarðar en hef-
ur hins vegar tekið þar frystar
sjávarafurðir úr frystihúsi og
frystiskipum samkvæmt sam-
komulagi við Sölumiðstöð
Hraðfrystihúsanna.
Guðni Sigþórsson forstöðu-
maður Eimskips á Akureyri segir
ekki hafa verið gert ráð fyrir
viðkomu á Ólafsfirði í hinni nýju
áætlun, og einhvers staðar verði
að takmarka eða afleggja við-
komur til þess að skipið nái að
halda áætlun í hringferðinni.
Félagið hefur haft viðkomu á
Dalvík sl. 6 ár og hyggst halda
því áfram og þjóna Ólafsfirðing-
um þaðan, þ.e. aka vörum til
þeirra og frá fyrir Ólafsfjarðar-
múla og gegnum göngin þegar
þau verða tekin í notkun. Ölafs-
firðingar muni ekki bera neinn
kostnað af þessari ráðstöfun.
Eimskip hefur aldrei þurft að
fella niður ferð til Dalvíkur
vegna veðurs eða annara óhag-
stæðra skilyrða, en komið hefur
fyrir að skip hafi lokast inni í
Ólafsfjarðarhöfn, t.d. var Ljósa-
foss þar tepptur í tvo sólarhringa
sl. vetur. A sl. ári hafði Eimskip
10 viðkomur á Ólafsfirði, en til
Dalvíkur eru vikulegar viðkom-
ur. Auk þessa er Stuðlafoss
nokkru stærra skip en Ljósafoss
og háfermdara svo vandi á sigl-
ingum til Ólafsfjarðar eykst.
Óskar Þór Sigurbjörnsson for-
seti Bæjarstjórnar Ólafsfjarðar
segir bæjaryfirvöld hafa átt fund
með Höskuldi Ólafssyni og Ingólfi
Guðmundssyni hjá Eimskip þar
sem þessari ráðstöfun þeirra var
harðlega mótmælt. Þar var þeim
kynnt sú uppbyggingaráætlun
sem fyrir liggur, en í sumar verða
hafnar talsverðar framkvæmdir
við höfnina, og eins eru ýmsir
hagsmunaaðilar í sjávarútvegi að
íhuga byggingu á frystigeymslu
sem staðsett yrði á hafnarvæðinu.
Með því móti yrði ekki nauðsyn-
legt að siglingar yrðu háðar lönd-
un úr frystiskipum eða fram-
leiðsluhraða í frysihúsi.
Bæjaryfirvöld í Ólafsfirði telja
það fráleitt að allar frystar sjávar-
afurðir verði fluttar „hreppa-
flutningum" til Dalvíkur til út-
flutnings, en þar hefur SH nánast
enga framleiðslu. Á þessu ári
hefur útflutningur á frystum sjáv-
arafurðum frá Ólafsfirði numið
2.331 tonni og þar af 18,6 tonn af
rækju, en vörugjöld af því magni
er um 443 þúsund krónur, sem er
þá tekjumissir Ólafsfjarðarhafn-
ar við þessar breytingar auk
gjalda af skipunum sjálfum.
Á næstunni munu bæjaryfir-
Sjávarafurðadeild Sambandsins:
Benedikt Sveinsson
ráðinn framkvæmdastjóri
Benedikt Sveinsson aðstoðar-
framkvæmdastjóri Sjávar-
afurðardeildar Sambandsins,
hefur verið ráðinn fram-
kvæmdastjóri deildarinnar frá
1. júlí. Hann tekur við starlinu
af Sigurði Markússyni, sem
kosinn var formaður stjórnar
Benedikt Sveinsson.
Sambandsins á aðalfundi þess í
byrjun júní en Sigurður hefur
gegnt framkvæmdastjórastarfí
í Sjávarafurðadeild frá árinu
1975.
Benedikt Sveinsson hóf störf
hjá Sjávarafurðadeild Sambands-
ins árið 1977. Hann starfaði á
skrifstofu Sambandsins í London
á síðari hluta árs 1980 og réðst til
starfa hjá Iceland Seafood
Limited í Bretlandi er það fyrir-
tæki hóf starfsemi í ársbyrjun
1981. Benedikt varð fram-
kvæmdastjóri fyrirtækisins 1.
sept. það sama ár og gegndi því
til ársloka 1986.
Frá ársbyrjun 1987 hefur
Benedikt verið aðstoðarfram-
kvæmdastjóri í Sjávarafurðadeild
og jafnframt aðalsölustjóri deild-
arinnar. Hann er kvæntur Sif
Haraldsdóttur og eiga þau tvö
börn.
völd eiga viðræður við Eimskip,
S.Í.F., S.H. og þá aðra aðila sem
nota höfnina.
í MÚLA, bæjarfréttablaði
Ólafsfirðinga segir, að bæjaryfir-
völd hafi lengi óskað eftir viðræð-
um við Dalvíkinga um hafnar-
málin, en þeir hafi farið sér hægt
enda hafi tíminn unnið með Dal-
víkingum. Einnig hafi gamli
hrepparígurinn verið mönnum
fjötur um fót í tilraunum til þess
að finna lausn á málinu.
Trausti Þorsteinsson forseti
Bæjarstjórnar Dalvíkur segir
hafnarnefndirnar hafa komið
saman og rætt þessa hluti, en
hann viti ekki til þess að það hafi
neitt verið sótt á um það af Ólafs-
firðingum að þessi hafnarmál
væru rædd frekar. Dalvíkingar
hafi verið tilbúnir til að ræða
þessi mál, en spurning er kannski
sú hvort þeir hafi átt að hafa
frumkvæðið í þeim viðræðum.
Trausti segir að það sé ekki fyrr
en eftir að þeim hafnarfram-
kvæmdum ljúki á Dalvík sem nú
er hafin vinna við sem bæjar-
yfirvöld geti boðið Eimskip þá
aðstöðu á hafnarsvæðinu undir
vöruskemmu sem þeir hafa farið
fram á.
Hafnaryfirvöld á Dalvík hafi
ekki reynt að hafa nein áhrif á
ákvarðanir Eimskips um við-
komustaði, en greiðari samgöng-
ur milli staðanna með tilkomu
jarðgangna hljóta að auka þá
möguleika að viðkomustöðum
Frá Dalvíkurhöfn
fækki. í umræðum milli hafnar-
nefndanna hefur þeirri skoðun
verið haldið á lofti að Dalvík yrði
útflutningshöfn fyrir utanverðan
Eyjafjörð, en aðrar hafnir
fiskihafnir.
Umræður um það hvernig
Ólafsfirðingar tengdust útgjalda-
og tekjuhlið þessa máls eru hins
vegar á frumstigi. GG
Rækjuverksmiðja Sigluness hf:
Viima úr erlendu og innlendu hráefni
- verðfall á rækju á heimsmarkaði setur strik í reikninginn
Mikið er að gera hjá rækju-
verksmiðju Sigluness hf. á
Siglufíröi, þrátt fyrir versnandi
söluhorfur á rækju. Fjórir bát-
ar hafa landað hjá fyrirtækinu,
og sá fímmti er að byrja veið-
ar. Auk þess hefur sjófryst
rækja verið keypt frá norsku
veiðiskipi, ásamt innlendri
rækju sem flutt hefur verið
frosin til Siglufjarðar.
Vinnsla hófst hjá Siglunesi 27.
mars, eftir langt hlé frá gjaldþroti
Sigló hf. Þormóður rammi hf.
hefur húsnæði verksmiðjunnar á
leigu til 1. nóvember nk., en
leigusali er Ríkissjóður íslands.
Ekki er vitaö hvert framhaldið
verður eftir að samningurinn
rennur út, en Guðmundur Slcarp-
héðinsson, framkvæmdastjóri,
segir að reynt verði að finna
lausn áður.
Rækjuframleiðendur hafa af
því nokkrar áhyggjur að sölu-
horfur á rækju á heimsmarkaði
hafa versnað undanfarið. Norð-
menn og Grænlendingar hafa
stóraukið rækjuveiðar sínar frá
því sem áður var. Orsökin er
fyrst og fremst sú að kvóti þeirra
hefur verið þrengur mikið á
helstu botnfisktegundum, og
útgerðarmenn hafa í stórum stíl
farið á rækju með skipin.
1 Tuttugu og fimm manns.vjþna
hjá Siglunesi við að pilla rækjuna
og pakka henni. Framleiðslan fer
á Evrópumarkað.
„Rækjuiðnaðurinn á í erfíð-
leikum vegna mikils framboðs 'áf
rækju, einkum norskri. Kvótinn
var skorinn það mikið niðuUá
öðrurh tegundum áð Norðméhn
hafa sótt meira á rækju en áður.
Almennt séð er ástandið slæmt
um allt landið hvað þetta snertir.
Það er slæmt að rækjan skuli vefa
á niðurleið þegar aðrar sjávaraf-
urðir eru á uppleið,“ segir Guö-
mundur Skarphéðinsson. EHB
■ TUJO
Nýr lögreglubíll á SauðárkróR
Þrír bflar frá Saab-verksmiðj-
unum sænsku hafa nú bæst í
lögreglubílaflota landsmanna.
Einn er af gerðinni Saab 9000
CÐ og verður hann notaður
við vegaeftirlit lögreglunnar en
hinir eru Saab 900 sem fara til
lögreglunnar á Sauðárkróki og
í Hafnarfírði. Böðvar Braga-
son lögreglustjóri í Reykjavík
tók við lyklum Saab 9000 bíls-
ins úr hendi Ágústs Ragnars-
sonar hjá Globus.
Bíllinn sem fer í vegaeftirlitið
er af gerðinni Saab 9000 CD og
er búinn aflmikilli vél og sjálf-
skiptingu og að öllu leyti útbúinn
sem lögreglubíll af hendi verk-
smiðjanna eins og sænska lög-
reglan notar. Síðan hafa tækni-
menn lögreglunnar búið hann
tækjum og öðrum búnaði sem
nauðsynlegur er. Hinir bílarnir
eru Saab 900i turbo með aflmik-
illi 16 ventla vél.
Athuganir og samningar vegna
kaupanna hafa staðið lengi og
náðust hagstæð kjör hjá
Saabverksmiðjunum. Böðvar
Bragason lögreglustjóri í Reykja-
vík segir hugsanlegt að fleiri
Saab-bílar verði keyptir verði
reynslan af þeim góð. Álls eru nú
20 lögreglubílar af Saab-gerð vítt
og breitt um landið.