Dagur - 03.07.1990, Page 3
fréftir
Þriðjudagur 3. júlí 1990 - DAGUR - 3
3
Leyndarkerfi sem hindrar hlerun
farsíma ekki verið fundið upp
- Hlerun farsíma ólögleg
Sjómenn hafa verið mjög
óhressir með það að hægt hef-
ur verið að hlera farsíma, en
notkun þeirra hefur aukist
verulega á undanförnum
árum, sérstaklega um borð í
íslenskum skipum.
Sjómannafélag Eyjafjarðar
sendi 6. júní 1989 bréf til Sam-
gönguráðuneytisins þar sem farið
Brottfluttir Ólafsfirðingar:
Gróðursettu um 1000 tijáplöntur
í miðbæ ÓlafsQarðar
Um 1000 trjáplöntur auk
blóma voru gróðursettar við
tjörnina í miðbæ Ólafsfjarðar
og í hlíðinni ofan við bæinn
sl. laugardag, og var það
ólafsfirðingafélagið sunnan
heiða sem hafði veg og vanda
af þeirri framkvæmd.
Aðalhvatamaður að þessari
heimsókn brottfluttra Ólafsfirð-
inga er Hannes Kristmundsson
garðyrkjubóndi í Hveragerði, en
á annað hundrað manns kom að
sunnan auk þeirra sem komu úr
nágrannabyggðalögunum, og í
grillveislu sem haldin var síð-
degis á laugardeginum kom á
þriðja hundrað manns, og álíka
fjöl'di á dansleik um kvöldið í
Tjarnarborg.
Gróðursetning trjáa vegna
Landgræðsluskóga 1990 stendur
yfir að meira eða minna leyti í
allt sumar, en það er unglinga-
vinna bæjarins sem hefur veg og
vanda af þeirri framkvæmd. GG
fat
Skotæfingasvæði á Glerárdal:
Beðið ákvörðunar Skipu-
lagsnefndar Akureyrarbæjar
Skotveiðifélag Eyjafjarðar,
SKOTEY, hefur beðið eftir
svari um tíma frá bæjaryfir-
völdum á Akureyri um endan-
legt samþykki þess að mega
hefja framkvæmdir við skot-
æfíngasvæði fyrir leirdúfuskot-
fimi frammi í Glerárdal.
Gísli Ólafsson formaður
félagsins segir að í vor hafi for-
ráðamenn félagsins ásamt skipu-
lagsstjóra og umhverfisstjóra far-
ið fram í Glerárdal og þar varð
samkomulag um, hvar æfinga-
Húsavík:
Svipaður fjöldi
umsókna nú
ogfyrirári
völlurinn skyldi vera. Þessar hug-
myndir ásamt uppdrætti að svæð-
inu voru svo lagðar fyrir fund hjá
skipulagsnefnd nú nýverið. Þar
var samþykkt að fresta ákvarð-
anatöku þar sem ákveðnir ann-
markar eða hnökrar voru á stað-
setningu skotsvæðisins að mati
nefndarinnar. Formaður SKOT-
EYJAR mun verða boðaður á
fund nefndarinnar innan skamms
til viðræðna um þetta mál.
Flatarmál skotæfingasvæðis
eins og þess sem hér um ræðir, er
ca. 50x50 metrar en öryggissvæð-
ið yrði þá um 300x300 metrar.
Um 2 til 3 vikur tekur að koma
svæðinu í nothæft ástand, en
kostnaður er áætlaður 150 til 200
þúsund krónur.
Skotveiðifélagið hefur þegar
fest kaup á tveimur Jeirdúfu-
kösturum ásamt tilheyrandi bún-
aði, en það mun vera 400 þúsund
króna fjárfesting. GG
Kjötiðnaðarstöð KEA:
Lambakjöt á lágmarksverði selst vel
- tæp 53 tonn frá því í mars sl.
Lambakjötið á lágmarksverð-
inu hefur selst ágætlega hjá
Kjötiðnaðarstöð KEA frá því
það var sett á markað í byrjun
mars sl. Síðustu fjóra mánuði
hafa selst tæp 53 tonn af kjöt-
inu, þar af 22,5 tonn í mars.
Að sögn Óla Valdimarssonar,
sláturhússtjóra, er búist við
góðri sölu í júlí og ágúst, en
það muni m.a. fara mikið eftir
veðri því lambakjötið er vin-
sælt á grillið.
í apríl seldust aðeins 9 tonn,
tæp 11 tonn í maí og í síðasta
mánuði seldust rúm 11 tonn hjá
KEA af lágmarksverðslambá-
kjötinu. Af þessum tæpu 53 tonn-
um seldust 36,5 tonn úr fyrsta
flokki og rúm 16 tonn úr úrvals-
flokki.
Óli sagði í samtali við blaðið
að sala á heilum skrokkum hafi
gengið frekar illa það sem af er
árinu og hafi útsalan á niðursag-
aða lambakjótinu haft þar áhrif.
„Það hefur verið dræm kjötsala
miðað við árið í fyrra, en stærstu
sölumánuðirnir eru eftir, júlí og
ágúst,“ sagði Óli.
Lambakjötið á lágmarksverð-
inu er selt í 5-6 kílóa pokum,
þannig að síðustu fjóra mánuði
hefur Kjötiðnaðarstöð KEA selt
á Eyjafjarðarsvæðið 8-10 þúsund
poka af kjötinu. -bjb
Ráðuneytið hefur ekki séð
ástæðu til að svara áðurnefndu
bréfi sjómanna en á sl. vetri
spurði Karl Steinar Guðnason
alþm. um það í fyrirspurnartíma
á Alþingi hvort unnt væri að
koma í veg fyrir hlerun á farsíma.
Samgönguráðherra Steingrímur
J. Sigfússon svaraði því til að eig-
endur einstakra farsíma gætu
tryggt leynd samtala sinna við
fyrirfram ákveðið símanúmer, og
sá búnaður væri fáanlegur í dag.
Þéir annmarkar eru þó á þeim
búnaði, að leyndin er aðeins milli
tveggja tiltekinna notenda.
Póst- og símamálastofnunin fylg-
ist mjög grannt með þróun þess-
ara máia hjá símstjórnum og
framleiðendum þar sem sams
konar farsímakerfi er í notkun,
en ekkert leyndarkerfi hefur enn
verið fundið upp sem nota má í
öllum gerðum farsíma.
Samkvæmt fjarskiptalögum er
hlerun fjarskipta óheimil, og
öheimilt er að tilkynna það öðr-
um eða notfæra sér á nokkurn
hátt það sem menn verða áskynja
í fjarskiptum. GG
/ skjóli
'var fram á úrbætur í þessum
efnum. í bréfinu til ráðuneytisins
segir m.a.: „Sjómenn fara þess
eindregið á leit við Samgöngu-
ráðuneytið, að settur verði upp
búnaður svo hægt verði að koma
í veg fyrir að símtöl úr farsímum
verði hleruð."
Um 50 umsóknir hafa borist
Framhaldsskólanum á Húsavík
um skólavist næsta skólaár aö
sögn Björgvins Leifssonar
áfangastjóra. Að venju má
búast við að einhverjar
umsóknir berist í ágústmánuði.
Um 170 nemendur eru í skól-
anum þegar hann er fullsetinn.
Þetta er ívið minni aðsókn en
búist var við, en í fyrrahaust voru
nýir nemendur um 60 talsins. Á
vorönn voru nemendur 120, en
áætlað er að nemendur verði um
160 þegar skólastarf hefst í haust.
Iðnbrautirnar eru alltaf vinsæl-
ar því þar geta nemendur lokið
bóknámshliðinni áður en þeir
halda annað, en þær eru starf-
ræktar þegar þátttaka er næg og
næsta vetur verður rafvirkjunar-
braut starfrækt. Nokkrir húsa-
smíðanemar hafa sótt um skóla-
vist, en þeim þarf að fjölga eilítið
til þess að brautin verði starfrækt.
Viðskiptabraut nýtur stöðugra
vinsælda, en nám þar tekur tvo
vetur og hægt er að halda námi
áfram á hagfræðibraut að því
loknu. Vinsælustu brautir til
stúdentsprófs við Framhaidsskól-
ann á Húsavík eru mála- og nátt-
úrufræðibraut. GG
★ Gallar í
miklu úrvali
★ Hjólabuxur
★ NBA bolir
★ Sundfatnaður
B
Lítið fyrst
við hjá okkur
það gæti
borgað sig
Sportbúðin
Strandgötu 6 • Akureyri • Sími 27771
Opið 9.30-18.00 - laugardaga 10.00-12.00
VISA