Dagur - 03.07.1990, Side 5

Dagur - 03.07.1990, Side 5
Þriðjudagur 3. júlí 1990 - DAGUR - 5 4 kvikmyndarýni ’Jj Umsjón: Jón Hjaltason Fæddur 4. júlí Borgarbíó sýnir: Fæddur 4. júlí (Born On The Fourth Of July.) Leikstjóri: Oliver Stone. Aðalhlutverk: Tom Cruise. Universal Pictures 1989. I Ég efast um að nokkrum kvik- myndaleikstjóra hafi til þessa tekist að draga upp jafn skýra þjóðfélagsmynd og Oliver Stone gerir í þessari kvikmynd um lífs- reynslu Víetnam-hermannsins Ron Kovics (Tom Cruise). Fædd- ur 4. júlí er í þremur meginköfl- um; fyrst greinir frá hernaðar- anda bandarísku þjóðarinnar fyr- ir Víetnamstríðið. Ungir menn fá hvatningu allsstaðar frá um að elska föðurland sitt og heiðra stjórnendur þess. Svo skellur Víetnam-fárið á og föðurlandið byrjar að krefjast mannslífa. Jafnvel úr predikunarstólum hvetja hempuklæddir prestarnir unga menn til að vígbúast og bjarga ættlandinu. Einstaka velt- ir því þó fyrir sér hvers vegna $ynir þeirra þurfa um hálfan hnöttinn að heyja stríð til bjargar ættlandinu. Annar kafli gerist í Víetnam. Með snöggum myndskotum tekst Stone að undirstrika óreiðuna sem setur mark sitt á stríðið. Barnamorð árétta grimmd þess. Þriðja kaflanum, en í honum snýr Kovic heim aftur, má raunar skipta í nokkra undirkafla. Ennþá er Kovic æstur föður- landssinni, ill vist á hersjúkrahúsi breytir því ekki í neinu. Honum blöskra mótmælin gegn Víetnam- stríðinu og virðingarleysi unga Græskulaust gaman Borgarbíó sýnir: „Cookie“. Aðalhlutverk: Peter Falk og Emiiy LLoyd. Warner Bros 1989. Cookie (Emily LLoyd) er táning- ur til vandræða; klæðist eins og : pöhkari, hugsar eins og göturóni óg er móður sinni til skapraunar. Hún hefur aldrei haft neitt að segja af föður sínum (Peter Falk) fyrr en sá gamli lætur útsendara sína svo gott sem ræna henni og færa til sín í fangelsið. Hann er nefnilega nafnkunnur glæpon, búinn að sitja í grjótinu í 13 ár en á nú loks von á náðun. Hann fær .hins vegar ekki betur séð en að dóttirin tefli náðun hans í tvísýnu jmeð hömlulitlu framferði sínu. Á þennan hátt hefjast kynni þeirra feðgina og samstarf. Annað - glæpamaðurinn - á harma að hefna en hitt - dóttirin - er ráð- villt og hugsar aðeins um líðandi stund. Samstarf þeirra skilar þeim báðum nokkru í aðra hönd. „Cookie“ er vissulega glæpa- , mynd en það er létt yfir henni og [ blóðug morð eru engin. Hún er saklaus afþreying sem meiðir engan. Æskulýðsráð og Léttir: Reiðnámskeið fyrir böm og Æskulýðsráð Akureyrar og Hestamannafélagið Léttir hafa staðið fyrir reiðnámskeiðum fyrir börn og unglinga að Hamraborgum, ofan Akureyr- ar. Kennari er Haukur Sigfús- son og ræddi Dagur stuttlega við hann um helgina. „Við erum að ljúka hér tveggja vikna námskeiði og erum að fagna lokunum með grilluðum pylsum og gosi. Nemendur eru 12, en það er sá fjöldi sem við tökum á hvert námskeið," sagði ungiinga Haukur. Hann sagði að vegna Lands- móts hestamanna yrði nú gert hlé á námskeiðahaldinu en mánu- daginn 9. júlí hefjast ný nám- skeið fyrir byrjendur, fram- haldsflokk og eitt fyrir blandaðan flokk. „Pað er ekki fullbókað á þessi, námskeið þannig að enn hafa börn og unglingar tækifæri til að tileinka sér grundvallarþekkingu í hestamennsku,“ sagði Haukur að lokum. ój/SS fólksins gagnvart föðurlandinu og forsetanum. Á áhrifamikinn hátt er dregin upp mynd af því hvernig þetta viðhorf Kovics breytist smám saman - kannski er þó vist hans í hjólastólnum gerð enn betri skil. Hann fór ungling- ur að heiman, hafði aldrei haft kynmök, en kom lamaður til baka aftur og ófær um samræði. Þetta er næstum því of stór biti að kyngja og eftir heimkomuna geisar stríð í sálu Kovics; sam- viska hans kvelst vegna hluta er hann gerði í Víetnam, föður- landsást hans á í vök að verjast, lömunin gerir hann að hálfum manni og hótar að taka manndóm hans með öllu. Það er ekki fyrr en Kovic gengur á hólm við sálarháska sinn að byrjar að Tom Cruise sem Ron Kovic. Fæddur 4. júlí er kvikmynd er ailir ættu að sjá, þó ekki væri til annars en átta sig á ægivaldi þjóðernishyggjunnar og hversu stjórnvöldum virðist hægt um að misnota hana. Hún skýrir einnig hvernig Víetnam-hermennirnir bandarísku urðu að óhreinu börnunum hennar Evu í augum landa sinna. Fæddur 4. júlí er þó fyrst og fremst greining á baráttu Kovics við sjálfan sig og hjólastólinn. rofa til; — og þegar hann hættir að tengja hernað Bandaríkjamanna í Víetnam við föðurlandsást og frelsisstríð hyllir loks undir sigur. Aðeins lömunin verður ekki sigruð, við hana þarf að semja. VIÐ ERUM FLUTTIR! Raflagnadeild KEA hefur verið flutt á nýjan stað, Óseyri 2. Við bjóðum ykkur öll velkomin. Kær kveðja, Starfsmenn Rat'lagnadeildar KEA Sírnar: 30300 (Skiptiborö KEA) Og 30415 (beinnsími)

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.